Límónutréð
Límónutréð
Límónutréð er hlaðvarp um leikskólamál. Rætt verður um allt milli himins og jarðar sem tengist leikskólastarfi og gestir þáttanna koma úr öllum áttum leikskólasamfélagsins
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: podcasters.spotify.com
Autor
Límónutréð
Categoría
Web del podcast
Último episodio
20 de dic. de 2024
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Áhrif fyrstu bylgju Covid-19 á leikskólastarf 31.01.2021 35:05
Gestir okkar að þessu sinni eru Anna Elísa Hreiðarsdóttir lektor og Kristín Dýrfjörð dósent, sem báðar starfa við Háskólann á Akureyri. Í þættinum spjöllum við saman um rannsóknir okkar sem snúa að áhrifum fyrstu bylgju Covid-19 á leikskólastarf, út frá sjónarhóli stjórnenda og starfsfólks í leikskólum.
Framúrskarandi lokaverkefni sem tengjast leikskólastarfi - Linda Rún Traustadóttir og Melkorka Kjartansdóttir 24.01.2021 30:45
Í þættinum segja þær Linda Rún Traustadóttir og Melkorka Kjartansdóttir okkur fá lokaverkefnum sínum sem nýverið hlutu viðurkenningu frá skóla-og frístundasvið Reykjavíkurborgar. Linda Rún skoðaði áskoranir í starfi leikskólastjóra og Melkorka útbjó stafrænt fræðsluefni fyrir leiðbeinendur í leikskólum. Við óskum þeim báðum til hamingju með þennan glæsilega árangur
Umboðsmaður barna - Salvör Nordal 13.09.2020 30:23
Límónutréð fór og hitti Salvöru Nordal sem situr í embætti umboðsmanns barna. Salvör sagði okkur frá því um hvað embættið snýst og hvers vegna það er mikilvægt. Heimasíða umboðsmanns barna er barn.is
Krikaskóli 24.08.2020 36:29
Krikaskóli er samþættur leik-og grunnskóli í Mosfellsbæ fyrir börn á aldrinum 2ja - 9 ára. Þrúður Hjelm skólastjóri segir okkur frá sérstöðu skólans; hvernig hugmyndafræðin og húsnæðið og lóðin vinna saman.
Hetjuspilið - Gunnar Kristinn Þorgilsson 29.06.2020 33:13
Í þættinum segir Gunnar Kristinn Þorgilsson okkur frá Hetjuspilinu sem hann útbjó sem lokaverkefni til B.ed prófs í leikskólafræði. Gunnar Kristinn er nú meistaranemi við Menntavísindasvið og undirbýr rannsókn í tengslum við spilið fyrir meistaraverkefni sitt. Markmið spilsins er m.a. að ýta undir félagsfærni og málþroska barna.
Mikilvægt að börn fái tækifæri til að leika sér og tjá sig - Dr. Kristín Karlsdóttir 14.06.2020 38:20
Í tíunda þætti þessar árs kom Dr. Kristín Karlsdóttir dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í spjall við okkur í Límónutrénu. Hún sagði okkur frá helstu rannsóknum sínum og frá þeim breytingum sem eru að verða í leikskólakennaranáminu.
"Mér finnst rosalega merkilegt að vera leikskólakennari" - Kolbrún Lára Kjartansdóttir, meistaranemi 02.06.2020 24:14
Við áttum samtal við Kolbrúnu Láru Kjartansdóttur sem er meistaranemi í leikskólakennarafræði. Hún sagði okkur frá upplifun sinni af náminu og hvers vegna hún valdi þessa leið. Kolbrún Lára heldur úti Instagram síðu sem heitir leikskólakennari.
Nýfrjálshyggja í menntakerfinu og vísindasmiðjur í leikskólum 26.05.2020 36:08
Límónutréð nýtti sér tæknina sem við lærðum í samkomubanninu og átti samtal við Kristínu Dýrfjörð í gegnum fjarfundbúnað. Kristín er dósent við Kennaradeild Háskólans á Akureyri og hefur lengi komið að málefnum leikskóla á Íslandi frá ýmsum hliðum. Hún segir okkur sína sögu
Útinám í Stekkjarási - Alda Agnes Sveinsdóttir og Unnur Henrysdóttir 09.04.2020 42:41
Þær Alda Agnes Sveinsdóttir leikskólastjóri og Unnur Henrysdóttir deildarstjóri sögðu okkur frá leikskólastarfinu í Stekkjarási þar sem áhersla er lögð á útinám. Margt áhugavert að gerast hjá þeim
Lausnahringurinn í Brákarborg - Sólrún Óskarsdóttir og Arnrún Magnúsdóttir 27.03.2020 38:24
Í leikskólanum Brákarborg er unnið frábært starf með Lausnahringinn. Þetta er verkefni sem börnin í leikskólanum hafa tekið virkan þátt í að móta. Sólrún Óskarsdóttir leikskólastjóri og Arnrún Magnúsdóttir deildarstjóri segja okkur frá Lausnahringnum
Snerting, jóga, slökun - lærdómssamfélag í Reynisholti - Aðalheiður Stefánsdóttir 13.03.2020 40:28
Í þættinum segir Aðalheiður Stefánsdóttir, leikskólastjóri, okkur frá því hvernig unnið hefur verið með nálgun lærdómssamfélags í leikskólanum Reynisholti. Áherslur leikskólans eru snerting, jóga og slökun sem eru þættir sem Límónutréð mælir með að fólk tileikni sér á þessum viðburðaríku dögum
Staða leikskólakennaranema við Menntavísindasvið Háskóla Íslands - Dr. Amalía Björnsdóttir og Dr. Þuríður Jóhannsdóttir 03.03.2020 40:46
Þær Dr. Amalía Björnsdóttir og Dr. Þuríður Jóhannsdóttir, sem báðar eru prófessorar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, segja okkur frá áhugaverðum niðurstöðum rannsóknar sem þær gerðu á stöðu leikskólakennaranema við sviðið. Hægt er að lesa meira um niðurstöðurnar í skýrslun sem þær gáfu út ásamt Höllu Jónsdóttur, aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ: www.menntavisindastofnun.hi.is/utgafa
Fagmennska leikskólakennara - Arna H. Jónsdóttir 15.02.2020 37:47
Í þættinum segir Dr. Arna H. Jónsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, okkur sögu sína. Arna hefur snert á mörgum ólíkum þáttum tengdum leikskólastarfinu. Hún segir okkur einnig frá rannsóknum sínum sem flestar snúa að fagmennsku leikskólakennara og stjórnun menntastofnanna.
Hvað er að gerast í leikskólum Reykjavíkur - Skúli Helgason 31.01.2020 29:38
Límónutréð hitti Skúla Helgason formann Skóla-og frístundaráðs Reykjavíkurborgar. Skúli sagði okkur frá því helsta sem er að gerast í leikskólamálum borgarinnar og að sjálfsögðu ræddum við heitasta málið í dag - fyrirhugaða styttingu opnunartíma leikskóla í Reykjavík.
Litla menntabúðin í Reykholti - Ingibjörg Kristleifsdóttir 20.01.2020 31:36
Límónutréð er loksins komið úr jólafríi og segir gleðilegt nýtt ár við hlustendur sína. Í fyrsta þætti ársins segir Ingibjörg Kristleifsdóttir okkur frá Litlu menntabúðinni í Reykholti, Borgarfirði. Nánari upplýsingar má finna á http://litlamenntabudin.heimskringlan.is/
Jólakveðja frá Límónutrénu 13.12.2019 11:47
Límónutréð sendir jólakveðju og þakkar fyrir góðar móttökur á árinu. Fyrir okkur hefur þetta verið mjög skemmtilegt ferli, áhugavert og lærdómsríkt. Við höfum náð að senda frá okkur 18 þætti síðan um miðjan ágúst og við erum hvergi hættar og höfum margar hugmyndir fyrir nýja þætti. Gleðileg jól
Hvað segja nýútskrifaðir leikskólakennarar? 16.11.2019 51:49
Við áttum skemmtilegt samtal við þrjá nýútskrifaða leikskólakennara sem allar fengu viðurkenningu frá Reykjavíkurborg fyrir framúrskarandi meistaraverkefni. Þær Ingunn Heiða Kjartansdóttir, Sólveig Björg Pálsdóttir og Valdís Ingimarsdóttir segja okkur fá meistaraverkefnunum sínum og hvernig er að vera nýútskrifaður leikskólakennari í dag. Við í Límónutrénu erum bjartsýnar á framtíð stéttarinnar ef...
Wonders of Waste - Leikskólinn Akrasel 09.11.2019 47:00
Límónutréð fór í bíltúr upp á Akranes og heimsótti leikskólann Akrasel. Þar hittum við Anneyju Ágústdóttur og Sigurrósu Ingimarsdóttur sem sögðu okkur frá helstu áherslum leikskólans og spennandi Erasmus+ verkefni sem er að fara í gang. Verkefnið heitir Wonders of Waste og það er hægt að fylgjast með því á Facebook
Jafnrétti kynjanna og virðingasess í barnahópnum - Þórdís Þórðardóttir 01.11.2019 37:58
Þórdís Þórðardóttir dósent í uppeldis-og menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, segir frá rannsóknum sínum síðustu ár. Hún hefur skoðað jafnrétti kynjanna frá ólíku sjónarhornum.
Leyndarmál Rauðhólsgleðinnar 27.10.2019 33:18
Hér segja þær Elín Guðrún Pálsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir, verkefnisstjórar, frá þróunarverkefni sem unnið var í leikskólanum Rauðhól í Norðlingaholti.
Sýn barna á leik - Sara Margrét Ólafsdóttir 18.10.2019 28:25
Í þættinum segir Sara Margrét Ólafsdóttir okkur frá doktorsverkefninu sínu þar sem hún skoðaði hvernig börn skilgreina leik og hvernig þau sjá hlutverk fullorðinna í leiknum. Hún segir okkur frá áhugaverðum rannsóknarverkefnum sem hún tekur þátt í í dag, sem nýráðinn lektor við Menntavísindasvið.
Fjóla Þorvaldsdóttir 11.10.2019 37:46
Í þættinum segir Fjóla Þorvaldsdóttir sögu sína. Hún útskrifaðist sem fóstra 1983 og lauk meistaraprófi á síðasta ári. Meistaraverkefnið hennar fólst í því að gera námsvef um upplýsingatækni sem heitir Fikt (fikt.kopavogur.is). Fjóla segir okkur einnig frá áhugaverðum menntabúðum sem verða 23. október á vegum faghóps um skapandi leikskólastarf. Fjóla hefur einnig verið varaformaður félags leikskól...
Hildur Skarphéðinsdóttir 05.10.2019 56:34
Hér segir Hildur Skarphéðinsdóttir okkur sögu sína. Hún var ung stelpa þegar hún ákvað að verða fóstra og hefur langa reynslu sem leikskólakennari, leikskólastjóri og leikskólaráðgjafi. Margir þekkja Hildi einnig síðan hún var skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála hjá skóla-og frístundasviði Reykjavíkurborgar.
Menntakvika 27.09.2019 36:20
Í þættinum fjöllum við um Menntakviku sem er ráðstefna haldin á Menntavísindasviði HÍ , n.k. föstudag, 4. október 2019. Fyrst segir Kristín Erla Harðardóttir okkur frá Menntakviku. Við hittum einnig nokkra leikskólakennara sem verða með kynningar á ráðstefnunni. Við vonumst til að sjá sem flesta, það er spennandi dagskrá og mikið af erindum sem tengjast leikskólamálum. Sjá nánar á menntakvika.hi.i...
Margrét Halldórsdóttir, Ísafjarðarbæ 26.09.2019 36:54
Í þessum þætti segir Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla-og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar, frá breytingum sem eru að fara af stað í bænum til þess að bæta starfsumhverfi leikskólanna
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos