Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

Hlaðvarp

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.spreaker.com

Autor

Thorarinn Hjartarson

Categoría

Society

Web del podcast

www.spreaker.com

Último episodio

19 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

#474 Hannes Hólmsteinn Gissurarson - Skraufþurrir pappírspokar í blekjuðu bákni ríkisins þola ekki átök 02.10.2025

Þórarinn ræðir við Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor emeritus við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Í þættinum er farið um víðan völl og rætt um menningarstríðið, sveitarstjórnarkosningar, stöðu Sjálfstæðisflokksins, lýðsrkum, slaufun Hannesar úr háskólanum, kynjafræði, átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, vinstrimenn og margt fleira. Hannes segir kynjafræði vera gagnslausa námsgrein sem get...

#473 Björn Jón Bragason - Aukin umsvif hins opinbera minnka félagslegt auðmagn 30.09.2025

Björn Jón Bragason er sagnfræðingur, bókahöfundur og kennari en hann er einnig hlustendum hlaðvarpsins kunnugur. Í þessum þætti er rætt um stöðu íslensk samfélags frá heimspekilegu sjónarmiði. Útlendingamál hafa verið mikið til umræðu undanfarin misseri en Björn Jón telur stöðuna vera bæði ósjálfbæra og óviðunandi. Hann gerir félagslegu taumhaldi og auðmagni góð skil og ræðir um það hvort að fjölb...

#472 Sæþór Benjamín Randalsson - Nýr leiðtogi Sósíalistaflokksins ekki token útlendingur 28.09.2025

Þórarinn ræðir við Sæþór Benjamín Randalsson, nýjan leiðtoga Sósíalistaflokksins, um stjórnmálin, woke-ið, húsnæðismál, mannréttindi, yfirtöku í Sósíalistaflokknum, peningamál Sósíalista, hvort að Sæþór sé Íslendingur og margt fleira. Sæþór Benjamín segist hafa lært mikið af Sólveigu Önnu undanfarin misseri en hann hefur einnig setið í stjórn Eflingar stéttarfélags undanfarin ár. Hann telur að auk...

#471 Dóri DNA - Kokkálar sem sækja testosterone-ið sitt í gegnum áttræðan karlmann 25.09.2025

Þórarinn ræðir við Dóra DNA, þúsundþjalasmið með meiru, um heima og geima.  Í upphafi er rætt um reynslu Dóra af þyngdarstjórnunarlyfjum og hvaða áhrif þau gætu haft til framtíðar. Sú umræða er sett í samhengi við áhrif samfélagsmiðla á allt sem við kemur hinu mannlega og hversu erfitt er að eiga samskipti í því fuglabjargi sem að samfélagsmiðlar sannarlega eru. Þar að auki er rætt um nútímatrend,...

#470 Bergþór Ólason - Hatursherinn er töluvert betur skipulagður á vinstrivæng stjórnmálanna 22.09.2025

Þórarinn ræðir við Bergþór Ólason um stjórn- og samfélagsmál nútímans og snert á ýmsu. Fjallað er um útlendingamál, transmál, fjárlögin, Charlie Kirk, Snorra Másson, ungt fólk sem færir sig í auknum mæli til hægri, tjáningarfrelsi, erlenda glæpahópa, og margt fleira. Bergþór telur að hatursöflin séu betur skipulögð á vinstri væng stjórnmálanna þrátt fyrir það að umræður um þessi mál bendi til hins...

#469 Páll Jakob Líndal - Þráhyggja í skipulagsmálum 21.09.2025

Þórarinn ræðir við Pál Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, um skipulag Reykjavíkur, stjórnmálin, fæðingartíðni, hvort fólk eigi að búa á byggingarreitum, hvaða byggingarreitir hafa verið slæmir og borgarlínuna og fleira. Jakob er verulega gagnrýninn á stefnu skipulagsmála hjá Reykjavíkurborg og telur hann að það skapi ýmis fyrirsjáanleg vandamál.  - Er hægt að yfirfæra skipulagsmál í Danmörk...

#468 Sigurjón Þórðarson - Strandveiðar, stríð, hælisleitendur og kulnun 15.09.2025

Þórarinn ræðir við Sigurjón Þórðarson, alþingismann Flokks fólksins, um ýmis mál sem snúa að stjórnmálum á Íslandi Fyrst er rætt um strandveiðar en Sigurjón hefur oft verið nefndur í samræðum um þau mál vegna báts sem hann á og hann hefur nýtt til strandveiða. Þórarinn spyr hvort að hann sé ekki að ganga eigin erinda með því að auka strandveiðikvótann og tekist er á um það. Sigurjóni þykir vegið a...

#467 Noorina Khalikyar - Feminism, honor culture and muslim assimilation in Europe 12.09.2025

Þórarinn speaks with Noorina Khalikyar about her experience coming to Iceland from Afghanistan as a refugee. Noorina is a doctor and an outspoken advocate for the liberation of Afghan women. In this episode, she discusses differing opinions among muslims in Iceland on whether women should be allowed to work, whether muslim women can be unveiled in Iceland, the concept of honor culture, views on ho...

#466 Halldóra Þorsteinsdóttir - Múgæsingur og leikhús samskiptanna 10.09.2025

Þórarinn ræðir við Halldóru Þorsteinsdóttur héraðsdómara og háskólaprófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík um mörk tjáningarfrelsins. Nýlegar vendingar í stjórnmálunum eru ofarlega á baugi en í liðinni viku fóru af stað miklar umræður eftir Kastljósþátt þar sem Snorri Másson var til viðtals og tjáði sig um sínar eigin skoðanir á kynjamálum.  Farið er um víðan völl og rætt um ýmsa þætti tjáni...

#465 Sólveig Anna Jónsdóttir - Vinstrið verður að kljúfa sig frá woke-inu 07.09.2025

Þórarinn ræðir við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, um stjórnmál, rétttrúnað, kjarabaráttu, stöðu láglaunafólks og margt fleira. Umfjöllunin snýr meðal annars að undarlegum vendingum á vinstri væng stjórnmálanna, þar sem áherslan hefur oft færst yfir í táknræn mál á borð við „píkupólitík“ og kvennafrídaga. Sólveig leggur áherslu á að barátta láglaunafólks verði að byggjast á raunveruleg...

#464 Kolbeinn H. Stefánsson - Frelsi og sjálfsritskoðun akademíunnar 05.09.2025

Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson um akademískt frelsi, útlendingamál og Háskóla Íslands. Akademískt frelsi hefur verið sérstaklega áberandi umræðuefni undanfarið eftir að Ingólfur Gíslason, aðjúnkt við deild menntunar og margbreytileika, tók þátt í mótmælum sem urðu til þess að ísraelski prófessorinn Gil S. Epstein gat ekki haldið erindi á vegum Háskóla Íslands. Sama dag og hlaðvarpið var...

#463 Konráð Guðjónsson - Lækkunarferli stýrivaxta lokið í bili 03.09.2025

Þórarinn ræðir við Konráð Guðjónsson, fyrrum aðstoðarmann utanríkisráðherra og fjármálaráðherra sem og fyrrverandi efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar síðustu, um stefnu og stöðu efnahagsmála á Íslandi nú þegar lækkunarferli stýrivaxta er komin á bið. Rætt er um áhrif húsnæðismála á verðbólguna, kjaramál og krónutöluhækkanir, framleiðni, styttingu vinnuvikunnar, stefnu ríkisstjórnarinnar, kulnun o...

#462 Hjálmtýr Heiðdal - Akademískt frelsi, prinsip og þjóðarmorð 30.08.2025

Þórarinn ræðir við Hjálmtý Heiðdal, formann Félagsins Ísland-Palestína um stríðið fyrir botni miðjarðarhafs, stjórnmálin á Íslandi, akademískt frelsi og sumarbústaðarferðir.  Rætt er um stríðið ásamt því að ræða vendingar hérlendis er varðar mótmælendur sem hafa bæði ráðist gegn fjölmiðlum og akademísku frelsi á Íslandi. Hjálmtýr og Þórarinn takast á um það hvar mörk tjáningarfrelsi prófessora eig...

#461 Magnús Árni Skjöld Magnússon - Á Ísland að ganga í ESB? 28.08.2025

Þórarinn ræðir við Magnús Árna Skjöld Magnússon, formann Evrópuhreyfingarinnar og prófessor við stjórnmálafræðideild á Bifröst, um kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið. Farið er um víðan völl og rætt um Draghi skýrsluna, stjórnmálin í Evrópu, stjórnmálin í Evrópu, hvað það þýðir að kíkja í pakkann, hvaða praktísku þýðingu það hefði fyrir Ísland að ganga í ESB, stöðu Evrópuríkjanna og mar...

#460 Snorri Másson - Annaðhvort segir þú hug þinn eða lætur kúga þig 26.08.2025

Þórarinn ræðir við Snorra Másson, inngildingarsérfræðing og þingmann Miðflokksins. Samræðurnar fara um víðan völl en sérstök áhersla er lögð á þær menningarbreytingar sem viðmælandi og þáttarstjórnandi telja að séu að eiga sér stað bæði erlendis en engu að síður hér heima.  Menningarbreytingarnar eru settar í samhengi við það hvenær umburðarlyndi verður að trúarsetningu og jafnvel stjórnlyndi. Í þ...

#459 Björgvin Ingi Ólafsson og Sigurður Stefánsson - Hvernig hægt er að leysa húsnæðisvandann 24.08.2025

Þórarinn ræðir við Björgvin Inga Ólafsson og Sigurð Stefánsson um það hvernig megi leysa húsnæðisvandann. Rætt er um skipulagsmál, forgangsröðun, markmið, pólitíska eftirspurn, flöskuhálsana, fæðingartíðni, lóðaskort, félagsleg vandamál og margt fleira. Björgvin og Sigurður telja báðir að staðan í dag sé afar slæm og ef fram fer sem horfir muni sífellt færri ungmennum takast að fjárfesta í þaki yf...

#458 Árni Árnason - Er Ugla Tré pólitísk ádeila? 22.08.2025

Þórarinn ræðir við Árna Árnason en hann hefur undanfarið farið mikinn á samfélagsmiðlum þar sem hann birtir satíriskar ádeilur um íslenskt stjórnkerfi og stjórnmál í dulargervi fígúrurnar Ugla Tré.  Rætt er um stjórnsýsluna, grín, mannúð, velferð, hvernig maður opnar bakarí og fleira.  Árni og Þórarinn deila sögum um reynslu sína og annarra af því að eiga við kerfið en þeir eru sammála um að víða...

#457 Jakob Birgisson og Diljá Mist Einarsdóttir - Valkyrjuelskendur: Þáttur 3 20.08.2025

Þórarinn ræðir við Jakob Birgisson, aðstoðarmann dómsmálaráðherra og Diljá Mist Einarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins. Að þessu sinni er eftirfarandi spurningum svarað: - Er swing sena í Grafarvogi? - Hvað kjósa hlustendur Hjörvars Hafliða? - Hvað hefur Jakob farið oft í Gísla Martein? - Á að setja stífari reglur hvað varðar klæðaburð kvenna? - Þarf nýja baráttu fyrir tálmuð kvár? - Er Jakob...

#456 Róbert Helgason - Hlutir sem kostuðu þúsundir munu kosta örfáar krónur 19.08.2025

Þórarinn ræðir við Róbert Helgason, sjálfstætt starfandi sérfræðing í málefnum sem snúa að gervigreind. Í hlaðvarpinu er farið yfir mismunandi forsendur og sviðsmyndir sem munu óumflýjanlega valda breytingum á samfélaginu. Róbert telur að þetta muni koma til með að valda straumhvörfum á lífsháttum, atvinnumarkaði og öðru. - Hvernig er best að gera sit tilbúinn fyrir byltinguna sem mun fylgja auknu...

#455 Frosti Sigurjónsson - Þeir fljúga á einkaþotum því þeir vita að þetta er della 17.08.2025

Þórarinn ræðir við Frosta Sigurjónsson, frumkvöðul og fyrrum alþingismann. Frosti hefur miklar efasemdir um ágæti loftslagsaðgerða og að loftslagsbreytingar séu yfir höfuð af mannavöldum. Hann telur að Ísland nýti tækifæri sín ekki að fullu og að margt megi bæta í því að bæta lífskjör á Íslandi. Fjallað er um loftslagsaðgerðir, faraldurinn, thorium, vindmyllur, stjórnmál á Íslandi og hvort að Ísla...

#454 Albert Jónsson - Íslendingar myndu ekki samþykkja loftslagsaðgerðir ef þeir vissu kostnaðinn 13.08.2025

Þórarinn ræðir við Albert Jónsson um loftslagsmál. Albert hefur víðtæka reynslu af því að vinna á sviði alþjóðamála og hefur skrifað mikið um aðgerðir Íslands í loftslagsaðgerðum sem hann telur ekki byggja á forsendum raunveruleikans. Hann telur að almenningur á Vesturlöndum hafi ekki verið nægilega vel upplýstur um kostnaðinn sem loftslagsaðgerðum fylgir og að stuðningur við slíkar aðgerðir myndi...

#453 Margrét Valdimarsdóttir - Þróun innflytjendamála á Íslandi 05.08.2025

Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur, afbrotafræðing og kennara við Háskóla Íslands. Í þættinum er rætt um afbrot innflytjenda og hælisleitenda sérstaklega og breytta sviðsmynd á Íslandi í þeim efnum. Sérstök áhersla er lögð á áhrif umræðunnar og hvernig óþol hefur aukist á Íslandi gagnvart menningartengdum breytingum.  Fjallað er um spurningar sem vakna þegar hópar taka sig saman á borð vi...

#452 Jón Pétur Zimsen - Framtíð barna fórnað vegna gíslatöku hagsmunaafla 04.08.2025

Þórarinn ræðir við Jón Pétur Zimsen, skólamann og þingmann Sjálfstæðisflokksins. Rætt er um veiðigjöldin, umræðuna í kringum þau á Alþingi Íslendinga og áhrif þess á stjórnmál framtíðarinnar. Að því loknu er vikið að bágri stöðu skólakerfisins og afhverju foreldrum er haldið í myrkrinu hvað varðar árangri barnanna. Fjallað er sérstaklega um áhrif skjánotkunar og afhverju erfitt virðist vera að úti...

#451 Guðjón Heiðar Valgarðsson - Þetta er alltaf sama klíkan 01.08.2025

Þórarinn ræðir við Guðjón Heiðar Valgarðsson, sjálftitlaðan samsæriskenningamann, um stjórnmál, innflytjendamál, alþjóðapólitík, skjánotkun, heimspeki og margt fleira.  Guðjón telur að innflytjendastraumur til Vesturlanda sé hluti af stærri stefnu fólks sem vill koma á heimsstjórnvöldum með auknu vægi stofnanna bandalagsríkja. Hann telur þetta ólýðræðislegt en hælisleitendastraumurinn sé til þess...

#450 Jónas Atli Gunnarsson - Hækkun húsnæðisverðs hefur áhrif á fjölskyldumynstur framtíðarinnar 30.07.2025

Þórarinn ræðir við Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, um uppbyggingu húsnæðis. Fjallað er um þau áhrif á fasteignamarkaðinn sem kunna að eiga sér stað vegna dræmrar sölu á nýbyggingum.  Rætt er um ýmsa þætti sem kunna að hafa áhrif á þessa stöðu líkt og hlutdeildarlán, lækkun stofnkostnaðar fyrir óhagnaðardrifna úrræða, stjórnmálin, hvort að HMS sé pólitísk stofn...

Escucha el podcast Ein Pæling en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos