Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.spreaker.com
Autor
Thorarinn Hjartarson
Categoría
Web del podcast
Último episodio
23 de oct. de 2026
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
#143 "Erum við Trump eða? Hverjum datt í hug að láta ríka fólkið ráða?" (með Gunnari Smára Egilssyni) 13.05.2022 1:00:11
www.patreon.com/einpaeling Gunnar Smári Egilsson er flestum hlustendum kunnur. Að þessu sinni ræðum við sveitastjórnakosningarnar á laugardaginn kemur, 14. maí. Um hvað snúast kosningarnar? Einnig yfirvofandi kreppu á húsnæðismarkaði, kjör hinna verst settu, frjálshyggju og fleira. Í síðari hluta þáttarins eru landsmálin og Íslandsbankasalan í brennidepli. Rætt er um stöðu ríkisstjórnarflokkanna,...
#142 Stjórnmál, skák og #MeToo (Viðtal við Helga Áss Grétarsson) 11.05.2022 45:12
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Helga Áss Grétarsson um ýmis málefni. Helgi býður sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum en margir þekkja til hans í umræðunni um #MeToo sem hann skipti sér af þegar sú umræða stóð sem hæst. Helgi er hvergi banginn við að snerta á erfiðum málefnum og standa við sínar skoðanir. Rætt er um leikjafræði og stjórnmál, hvern...
#142 Elon Musk ætlar að kaupa Twitter (Viðtal við Grétar Theodórsson) 08.05.2022 43:23
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Grétar Theodórsson um kaup Elon Musk á Twitter. Grétar er almannatengill, stundakennari við HÍ og annar stjórnenda hlaðvarpsins Hismið. Í þættinum er rætt um áhrif sölunnar á lýðræðislega umræðu, áhrif samfélagsmiðla á stjórnmál víðsvegar um heiminn, reynt að greina fyriráætlanir Musk með nýja samfélagsmiðlinn sinn og hvort að vestræn lýðræðissamfélög...
Borgarstjórnarkosningar - Framsókn (Viðtal við Einar Þorsteinsson) 06.05.2022 1:21:20
Síðasti borgarstjórnarkosningaþátturinn. Þórarinn ræðir við Einar Þorsteinsson um áherslur Framsóknarflokksins fyrir kosningarnar 14. maí. Rætt er um húsnæðismál, skotárás á bíl borgarstjóra, samgöngumál, velferðarmál og kjaramál.
#141 Netöryggi, upplýsingastríð og gervigreind (viðtal við Guðmund Arnar Sigmundsson) 04.05.2022 38:11
Guðmundur Arnar er sviðsstjóri CERT-IS, netöryggissveitar Fjarskiptastofu sem vinnur náið með almannavörnum við að verja Ísland fyrir netárásum. Hér ræðir Þórarinn við Guðmund um álitamál sem að snúa að netöryggi. Hvaða áhrif hefur stríðið í Úkraínu á varnir Íslands? Er Ísland í verri eða betri stöðu en önnur ríki? Er líklegt að netárásir muni færast í aukana vegna ástandsins? Hvað með upplýsingaö...
#140 Iðnaður í breyttum heimi (viðtal við Sigurð Hannesson) 01.05.2022 56:49
Sigurður Hannesson er framkvæmdarstjóri Samtaka iðnaðarins. Þórarinn ræðir við Sigurð um hvað stríðið í Úkraínu og eftirmálar Covid-19 þýði fyrir iðnaðargeirann á Íslandi. Rætt er um hrávöruskort, húsnæðismál, kjaramál og fleira. Að lokum er rætt í nokkuð löngu máli um orkumál og sérstöðu Íslands í þeim efnum.
#139 Sala Íslandabanka (Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur) 29.04.2022 41:01
Hlaðvarpið í heild sinni: www.patreon.com/einpaeling Nýleg sala á stórum hlut ríkisins í Íslandsbanka hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarna daga. Kristrún Frostadóttir er þingmaður Samfylkingarinnar og hefur hún verið sérstaklega áberandi í þeirri umræðu. Í þessu hlaðvarpi er rætt um ábyrgð fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, ábyrgð bankasýslunnar, hlutverk og ábyrgð söluaðilana, sérstaka ra...
#138 Afstaða og aðgengi stjórnmálafólks gagnvart fjölmiðlum (Viðtal við Kristján Kristjánsson) 27.04.2022 41:17
Kristján Kristjánsson er sjóaður blaðamaður sem að hefur komið víða við. Hann stjórnar útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni og er þetta í annað skiptið sem að hann mætir í hlaðvarpið Ein Pæling. Að þessu sinni ræðir Þórarinn við Kristján um aðgengi fjölmiðla að stjórnmálafólki, bæði hvernig það var áður og hvernig það er í dag. Í síðari hluta hlaðvarpsins er síðan farið yfir afstöðu stjórnmála...
#137 Bónusþáttur - Hvað varð um svartan húmor? 23.04.2022 10:08
Þórarinn, Eyþór og Ívar ræða um hvort að svartur húmor eigi undir högg að sækja. Rætt er um áhrif twitter, hvort að grínistar veigri sér við að prófa nýtt efni á uppistöndum, dósahlátur, hvort það megi gera grín að öllum ásamt ýmsum hliðarsporum.
#136 Er fæðuöryggi Íslendinga í hættu vegna vanrækslu? (Viðtal við Þórarinn Inga Pétursson) 16.04.2022 41:30
www.patreon.com/einpaeling Nafnarnir Þórarinn Hjartarson og Þórarinn Ingi Pétursson ræða um fæðuöryggi Íslendinga. Þórarinn Ingi er þingmaður Framsóknar og telur hann að fæðuöryggi á Íslandi sé verulega ábótavant, sérstaklega nú í breyttum heimi. Rætt er um ESB, hækkun hrávöruverðs, stöðu Íslands, þróunarlönd og fleira.
#135 Vestræn gildi - Sala Íslandsbanka, twittermanneskjan og kynferðisafbrot (Viðtal við Brynjar Níelsson) 13.04.2022 40:17
www.patreon.com/einpaeling Brynjar Níelsson ræðir málefni líðandi stundar yfir einum köldum með Þórarni Hjartarsyni. Vestræn gildi eru rauði þráðurinn að þessu sinni en farið er yfir kynferðisafbrotamál á Íslandi og hvað það þýðir fyrir þolendur að verða aðilar máls, sölu Íslandsbanka, innflytjendamál, ummæli Sigurðar Inga gagnvart Vigdísi Häsler, twittermanneskjuna og margt fleira. www.patreon.co...
#134 Innrásin í Úkraínu - Eru Vesturlönd tilbúin að berjast fyrir eigin gildum? (Viðtal við Friðrik Jónsson) 10.04.2022 42:18
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Friðrik Jónsson um innrásina í Úkraínu. Friðrik er sérfræðingur í utanríkismálum og hefur margt um innrásina að segja. Umræðuefnin snúa að því hvort að vestrænar þjóðir séu tilbúnar að berjast fyrir eigin gildum, getu rússneska heraflans, ágæti efnahagsaðgerða og fleira.
#133 Á að leggja niður heiðurslaun listamanna? (Viðtal við Vilhjálm Árnason) 08.04.2022 31:40
www.patreon.com/einpaeling Nýverið báru þrír þingmenn fram tillögu um að leggja niður heiðurslaun listamanna. Vilhjálmur Árnason er einn þeirra. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Árna um álitaefni sem snúa að þessu máli og fleira.
#132 Hatursorðræða og fjórða valdið (Viðtal við Jódísi Skúladóttur) 07.04.2022 39:51
w www.patreon.com/einpaeling Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna, skrifaði nýverið pistil sem bar heitir "Hatursorðræða og fjórða valdið." Pistillinn var andsvar og gagnrýni við öðrum pistli sem skrifaður var af Írisi Erlingsdóttur en Íris skrifaði grein í morgunblaðið sem nefndist "Siðræna transgátan." Í þessu hlaðvarpi er rætt um þau heimspekilegu ágreiningsefni sem snýr að því hvort að...
#131 Er leiguþak svarið við húsnæðisvandanum? (Viðtal við Guðmund Hrafn Arngrímsson) 02.04.2022 42:32
www.patreon.com/einpaeling Guðmundur Hrafn er formaður Samtaka leigjenda á Íslandi. í þessu hlaðvarpi rökræða Þórarinn og Guðmundur um ágæti leiguþaks til þess að takast á við vandann sem hefur skapast á húsnæðismarkaði.
#130 The War in Ukraine - Is realism making a comeback? (With Page Wilson) 31.03.2022 58:40
Page Wilson is a senior lecturer at the University of Iceland who specializes in international relations and security studies. In this interview, Page explains what impact the invasion of Ukraine has on security and politics globally. The questions raised relate to whether realism is making a comeback, nuclear deterrence and vulnerability, balance of power, buffer states and sphere of influence, g...
#129 Afglæpavæðing vímuefna (Viðtal við Halldóru Mogensen) 26.03.2022 41:47
www.patreon.com/einpaeling Kristín og Þórarinn ræða við Halldóru Mogensen um afglæpavæðingu fíkniefna. Umræðan snýr að því að reyna að greina kosti og galla afglæpavæðingar, hvort að mismunandi reglur eigi að gilda um ákveðin fíkniefni, hvort að hið opinbera eigi að standa í því að gæðavotta, muninn á lögleiðingu og afglæpavæðingu og fleira.
#128 Orka, matur og hrávörur í breyttum heimi (Viðtal við Eld Ólafsson) 23.03.2022 43:56
www.patreon.com/einpaeling Eldur Ólafsson er jarðfræðingur og einn stofnenda AEXGold, sem meðal annars starfar í námugreftri á Grænlandi. Nýverið skrifaði Eldur pistla á visir.is þar sem hann ræðir áhrif stríðsins í Úkraínu á hrávöru og orkumál á Íslandi. Ein pæling spurði Eld nánar út í þessi mál í samhengi við pólitík, aðföng, loftslagsmál og fleira.
Borgarstjórnarkosningar - Píratar (Dóra Björt Guðjónsdóttir) 23.03.2022 1:00:36
Dóra Björt mun leiða Pírata í næstkomandi borgarstjórnarkosningum. Þórarinn ræðir við Dóru um Braggamálið, fjármál borgarinnar, rafræna stjórnsýslu og fleira.
Borgarstjórnarkosningar - Sósíalistaflokkurinn (Sanna Magdalena Mörtudóttir) 20.03.2022 1:05:35
Sanna Magdalena mun leggja áherslur á sósíalískar breytingar og kjör hinna lægst settu. Í þessu hlaðvarpi er rætt um stefnu Sósíalistaflokksins, kjaramál, húsnæðismál hinna lægst settu, mögulegt samstarf og fleira.
Borgarstjórnarkosningar - Vinstri Græn (Líf Magneudóttir) 19.03.2022 1:00:09
Líf Magneudóttir hlaut oddvitasæti Vinstri Grænna í Reykjavík. Í þessu hlaðvarpi er farið yfir þær áherslur sem Líf ætlar að leggja fyrir kjósendur og þær ræddar í ljósi nýrra aðstæðna þar sem stríðsástand í Úkraínu og hækkandi verðbólga mun koma til með að hafa áhrif á efnahag Reykjavíkurborgar.
Borgarstjórnarkosningar - Viðreisn (Pawel Bartoszek) 18.03.2022 49:03
Pawel Bartoszek býður sig fram fyrir Viðreisnar í næstu borgarstjórnarkosningum. Í þessu hlaðvarpi er farið yfir áherslur Viðreisnar ásamt því að rætt er um hvernig hugmyndir Pawels sem hægri manni rúmast inn í meirihlutasamstarfi með þremur flokkum til vinstri.
Borgarstjórnarkosningar 2022 - Viðbótarþáttur með Vigdísi Hauksdóttur 17.03.2022 58:01
Vigdís Hauksdóttir hefur ákveðið að draga framboð sitt til baka og mun því ekki koma til með að leiða Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum. Þórarinn ræðir við Vigdísi um hvernig fjármálum borgarinnar er háttað en hún hefur margt út á það að setja. Umræðuefnin snúa að bensínstöðvamálinu svokallaða, borgarlínunni, skipulagsmálum og afhverju Vigdís talaði inn á auglýsingar þar sem Dagur B. E...
Borgarstjórnarkosningar 2022 - Flokkur fólksins (Kolbrún Baldursdóttir) 16.03.2022 50:11
Kolbrún Baldursdóttir er oddviti Flokks fólksins og ætlar sér að leiða flokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum. Þórarinn ræðir við Kolbrúnu um húsnæðismál, fjármál borgarinnar, velferðarmál og fleira.
Prófkjörsþáttur - Sjálfstæðisflokkurinn (Hildur Björnsdóttir) 15.03.2022 58:38
Dagana 18-19 mars næstkomandi munu Hildur Björnsdóttir og Ragnhildur Alda vilhjálmsdóttir etja kappi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sigurvegarinn mun síðan leiða flokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara þann 14. maí. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Hildi um hennar áherslur og afhverju hún telur sig betur í stakk búna til þess að leiða flokkinn í þessum kosningu...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos