Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.spreaker.com
Autor
Thorarinn Hjartarson
Categoría
Web del podcast
Último episodio
22 de oct. de 2026
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
#293 Snorri Másson - Íslensk tunga og menning þarf á málsvara að halda 28.02.2024 19:52
Snorri Másson stýrir miðlinum Ritstjóri en miðillinn hefur náð mikilli athygli allt frá því að hann hóf göngu sína. Í þessum þætti er rætt um stöðu íslenskrar tungu og menningar ásamt þeim spurningum sem vert er að spyrja sig á tímum mikilla samfélagsbreytinga. Þessum spurningum er meðal annars svarað: Hvaða áhrif hefur bág fæðingartíðni Íslendinga? Er rétttrúnaðurinn liðinn undir lok? Afhverju hæ...
#292 Hilmar Þór Hilmarsson - Alþjóðastofnanir sem ættu að stuðla að friði eru úreltar 25.02.2024 1:01:13
Þórarinn ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson um stöðu mála í síbreytilegu alþjóðakerfi. Rætt er um tengsl stríðsins fyrir botni Miðjarðarhafs við stríðinu í Úkraínu, stöðu Bandaríkjanna og Kína. Hvernig Ísland eigi að móta sína stöðu í breyttum heimi og ályktanir um það hvað framtíðin ber í skauti sér.
#291 Brynjar Níelsson - Gæti Þórdís orðið Margaret Thatcher? 23.02.2024 32:25
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um hælisleitendamál, íslensk stjórnmál, heimspeki, menningu og margt margt fleira.
#290 Björgvin Ingi Ólafsson - Hvað er gott, hvert stefnum við? 18.02.2024 32:12
Þórarinn ræðir við Björgvin Inga Ólafsson, meðeiganda hjá Deloitte. Í þættinum er rætt við skilvirkni og hagræðingu innan opinberra kerfa. Farið er yfir hvaða forsendur og hvatar þurfa að liggja fyrir ef að bæta eigi kerfi og hvaða áhrif það hefur ef að starfsfólk vinnur við öfugsnúna hvata. Rætt er um eftirfarandi spurningar: Er neyslumynstur upplýsinga að breytast? Hvað er Íslendingur og hvað er...
#289 Þórður Snær Júlíusson - Umræða um hælisleitendur pólitísk tækifærismennska Sjálfstæðisflokksins 13.02.2024 18:22
Þórður Snær er ritstjóri hjá Heimildinni en í þessu hlaðvarpi er rætt um hælisleitendamál. Þórður telur að umræðan sem hefur átt sér stað undanfarið vera til komin vegna pólitískrar tækifærismennsku Sjálftæðisflokksins sem beitir þessum málaflokki sem örþrifaráði vegna sífallandi fylgi flokksins.. Þarf að hafa áhyggjur af menningarlegum breytingum á Íslandi vegna aukins fjölda útlendinga? Er núver...
#288 Kristrún Frostadóttir - Hvað vill Samfylkingin gera í hælisleitendamálum? 10.02.2024 19:19
Þórarinn ræðir enn einu sinni við Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar. Að þessu sinni er rætt um hælisleitendamál og hvað Samfylkingin sér fyrir sér að þurfi að gera í þeim efnum. - Hvað finnst Kristrúnu um fyrirhuguð áform Guðrúnar Hafsteinsdóttur um lokaðar flóttamannabúðir? - Hvað fannst Kristrúnu um tjaldbúðirnar á Austurvelli? - Telur Kristrún að grípa þurfi til álíka úrræða og...
#287 Guðlaugur Þór Þórðarson - Mun þessi ríkisstjórn koma í veg fyrir orkuskort? 08.02.2024 18:53
Þórarinn ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um stöðu ríkisstjórnarinnar, hælisleitendamálin og orkumálin. Mun VG koma í veg fyrir orkuöflun og mun þessi ríkisstjórn geta komið í veg fyrir orkuskort? Hvað finnst Guðlaugi um tjaldbúðirnar á Austurvelli? Mun Guðlaugur bjóða sig aftur fram í formann Sjálftæðisflokksins? Er Ísland að ljúga að sjálfu sér með fyrirhug...
#286 Þórður Gunnarsson - Endamarkmiðið er að fækka fólki og minnka lífsgæði 04.02.2024 15:02
Þórður Gunnarsson er hagfræðingur og viðskiptablaðamaður. Í þessum þætti er rætt um stöðu orkumála í breyttum heimi. Fjallað er um orkuskiptin, orkuöflun, matvæli, áherslur stjórnmálanna og eftirfarandi spurningum svarað: Getum við útrýmt notkun jarðefnaeldsneytis? Í hvaða stöðu er Ísland í orkumálum? Hvernig heim skiljum við eftir fyrir börnin okkar? Í hvaða stöðu er ríkisstjórnin? Hlaðvarpið í h...
#285 Þorgerður María Þorbjarnardóttir - Lífsgæði, samdráttur, orkuskortur og náttúruvernd 02.02.2024 17:36
Þorgerður María er formaður Landverndar. Í þessum þætti er rætt um lífsgæði, loftslagsmál og náttúruvernd og eftirfarandi spurningum svarað: Hvað þýða kröfur um minnkandi losun fyrir þróun í fátækari löndum heimsins? Er hægt að halda í lífsgæði samhliða samdrætti? Er orkuskortur á Íslandi? Hver er sýn Landverndar gagnvart virkjunum? Hlaðvarpið má finna í heild á www.pardus.is/einpaeling
#284 Eldur Ólafsson - Sjaldgæfir málmar leggja undirstöður velmegunar 31.01.2024 16:14
Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq kemur í annað skiptið til þess að svara eftirfarandi spurningum: Afhverju eru Norðmenn að íhuga að grafa á hafsbotni? Í hvað eru sjaldgæfir málmar notaðir? Verður Ísland og Grænland að sameiginlegu efnahagssvæði? Afhverju er Kína OPEC málmheimsins? Hvað þarf að gera í orkumálum á Íslandi? Hvaða áhrif hafa sjaldgæfir málmar á alþjóðastjórnmálin? Hlaðvar...
#283 Diljá Mist Einarsdóttir - Þeir sem þagga niður umræðu bera ábyrgð á aukinni skautun 27.01.2024 15:53
Diljá Mist Einarsdóttir er þingkona Sjálfstæðisflokksins. Þetta er í þriðja skipti sem hún kemur í hlaðvarpið en í þessum þætti er lögð sérstök áhersla á málefni Palestínu, flóttafólks og hælisleitenda. Rætt er um hversu mörgum Ísland getur tekið á móti, tjaldbúðirnar á Austurvelli, rasisma, menningarleg áhrif innflutnings fólks á samfélagið, staðan í Evrópu og hvort að Ísland þurfi að læra af rey...
#282 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir - Það ríkir neyðarástand í menntamálum 25.01.2024 17:50
Þórarinn ræðir við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Í þessum þætti er rætt um stjórnmálin á Íslandi, verðmætasköpun og hugmyndafræði, stöðu menntamála og þá sérstaklega STEM greina og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
#281 Íris Róbertsdóttir - Ísland hefur ekki efni á að hafa þetta skólakerfi 23.01.2024 1:07:15
Þórarinn ræðir við Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja, um orkumál, stöðu Vestmannaeyja en einna helst um skólamál og þær áherslubreytingar sem gerðar hafa verið með góðum árangri. Til að styrkja þetta hlaðvarp: www.pardus.is/einpaeling
#280 Sigurður Hannesson - Fyrirtæki fá ekki þá orku sem þau þurfa 20.01.2024 17:35
Þórarinn ræðir við Sigurð Hannesson, framkvæmdarstjóra Samtaka Iðnaðarins. Þetta er í annað skipti sem að tvímenningarnir ræða saman en að þessu sinni er rætt um meintan yfirvofandi orkuskorts og hvaða áhrif það muni koma til með að hafa á fyrirtæki í iðnaði. Fjallað er um húsnæðismál, verðmætasköpun, loftslagsmál og að sjálfsögðu mismunandi orkugjafa. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardu...
#279 Hörður Arnarson - Rúllandi rafmagnsleysi ekki óhugsandi 16.01.2024 16:02
Þórarinn ræðir við Hörð Arnarson um orkumál á Íslandi. Fjallað er um þann orkuskort sem Hörður telur yfirvofandi, sjónarmið umhverfissinna, loftslagsmál, flutningsgetu, jarðefnaeldsneyti og fleira. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
#278 Helga Vala Helgadóttir - Hvernig getum við tekið á móti flóttafólki frá öðrum menningarheimum 11.01.2024 18:29
Þórarinn ræðir við Helgu Völu Helgadóttur, lögmann og fyrrum þingmann Samfylkingarinnar. Rætt er um stjórnmálin og hvort að Helga Vala sakni þess að vera á þingi. Þá er einnig talað um fólk á flótta og hvaða skyldum Ísland þarf að bera ábyrgð á í því að taka á móti fólki og samfélagsleg áhrif sem fylgir því að taka á móti fólki frá öðrum menningarheimum. Að lokum er svo rætt um rétttrúnað og woke-...
#277 Jasmina Vajzović Crnac - Stefnuleysi ríkir í hælisleitendamálum 05.01.2024 14:50
Þórarinn ræðir við Jasminu Vajzović Crnac um flóttamanna- og hælisleitendamál. Jasmína er stjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum flóttafólks og innflytjenda. Í þessu hlaðvarpi er rætt um þær áskoranir sem fylgja því að taka á móti flóttafólki og hælisleitendum. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
#276 Áramótadeigla 2023 01.01.2024 1:27:28
Þórarinn, Ívar Elí og Eyþór ræða ýmis mál. Þar á meðal frásagnarlistina, stjórnmálin, ríkt fólk, fiskeldi, Grindavík, frelsi og fleira. Til að styrkja þetta framlag og fá aðgang að öllu efni hlaðvarpsins má fara á www.pardus.is/einpaeling
#275 Júlíus Viggó Ólafsson - Trúverðugleiki Sjálfstæðisflokksins, flóttafólk, PISA og skipun Svanhildar Hólm 24.12.2023 22:54
Þórarinn ræðir við Júlíus Viggó, formann Heimdallar. Tvímenningarnir ræða það hvernig Sjálfstæðisflokkurinn getur komist hjá því að missa meira fylgi, hvernig flokknum hefur tekist að takast á við aukinn straum hælisleitenda, menntakerfið og PISA, og hvað Júlíusi finnst um að ráða Svanhildar Hólm sem nýjan sendiherra í Bandaríkjunum. Þáttinn í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
#274 Jón Pétur Zimsen - Hagsmunaöfl skólakerfisins í vörn eftir hörmulegar PISA niðurstöður 18.12.2023 1:25:13
Jón Pétur Zimsen er aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla. Í þessum þætti er rætt um nýlegar niðurstöður PISA sem sýna að 40% grunnskólabarna útskrifast án þess að geta lesið sér til gagns. Jón Pétur telur lausn vera fyrir hendi til þess að bæta þessa stöðu en kerfis- og hagsmunaöfl innan skólakerfisins ríghalda í eigin hagsmuni á kostnað barnanna. Þetta telur hann að muni koma til með að leiða til...
#273 Ingvar Smári Birgisson - Flóttamenn, þriðja vaktin og íslensk stjórnmál 15.12.2023 17:12
Þórarinn ræðir við Ingvar Smára Birgisson en í dag starfrækir hann lögmannsstofuna Firma. Ingvar var aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar á meðan hann sinnti stöðu dómsmálaráðherra núverandi ríkisstjórnar. Hann er því sjóaður er varðar málefni hælisleitenda hér á landi en eins og þekkist lagði Jón Gunnarsson sérstaka áherslu á þann málaflokk í sinni ráðherratíð. Í þessu hlaðvarpi er rætt um stöðu mála...
#272 Magnús Þorkell Bernharðsson - Hin fullkomna deila - Ísrael og Palestína 09.12.2023 18:18
Þórarinn ræðir við Magnús Þorkel Bernharðsson um stöðu mála við botni Miðjarðarhafs. Magnús Þorkell er prófessor við Williams College þar sem hann kennir Mið-austurlandafræði. Rætt er um stöðuna í víðu samhengi og hvaða áhrif stríðið mun koma til með að hafa á Mið-Austurlönd í heild sinni. Hlaðvarpið er hægt að finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
#271 Atli Þór Fanndal - Er Ísland land lágrar spillingar? 03.12.2023 14:08
Atli Þór Fanndal er framkvæmdarstjóri Transparency International sem eru alþjóðasamtök sem berjast gegn spillingu. Í þessum þætti er fjallað um spillingu á Íslandi, fjölmiðla, stjórnmálamenningu og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
#270 Hanna Björg Vilhjálmsdóttir - KSÍ, kulnun kvenna, þriðja vaktin og aumingjar 29.11.2023 17:08
Þórarinn ræðir við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur, kynjafræðikennara við Borgarholtsskóla þar sem tekin er staðan á KSÍ-málinu svokallaða og árangur þeirrar baráttu sem hófst árið 2021. Einnig er rætt um mál Frosta Logasonar og Eddu Falak, þriðju vaktina, kulnun kvenna, valdaójafnvægi milli kennara og foreldra, ástarsorg og aumingja. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
#269 Heiðar Guðjónsson - Það sem skiptir mestu máli er að trúa á framtíðina 24.11.2023 26:12
Þórarinn ræðir í þriðja sinn við Heiðar Guðjónsson, fjárfesti og fyrrverandi forstjóra Sýnar. Í þessum þætti er rætt um: - Umhverfismál - Sorpu - Rétttrúnað - Hvort að Heiðar gæti séð fyrir sér að gerast formaður Sjálfstæðisflokksins - Fjölmiðlastéttina - Skattamál - Akademíuna - Deilu Palestínumanna og Ísraelsmanna Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos