Ási
Betri helmingurinn með Ása
Ási spjallar á léttu nótunum við skemmtilegt fólk og þeirra betri helming.
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
#75 - Ástrós Trausta & Adam Karl 28.09.2022 1:19:42
Áhrifavaldurinn og dansarinn Ástrós Traustadóttir mætti til mín ásamt sínum betri helmingi Adam Karli Helgasyni í virkilega skemmtilegt spjall nú á dögunum. Ástrós hefur verið áberandi undanfarin ár á samfélagsmiðlum og talar hún um að það hafi í raun allt byrjað eftir að hún tók þátt í sjónvarpsþáttunum Allir geta dansað þar sem hún var fengin til að dansa og þjálfa einn keppandann. Ástrós var um...
#74 - Sigurjón Ernir & Simona 21.09.2022 1:17:43
Hlaupagarpurinn og þjálfarinn Sigurjón Ernir Sturluson mætti til mín í áhugavert og stórskemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Simonu Vareikaité. Sigurjón er afreksmaður í utanvegahlaupum en hefur hann lengst hlaupið hvorki meira né minna en 147 kílómetra og í hækkun í þokkabót. Sigurjón rekur einnig líkamsræktarstöðina UltraForm sem er hugmynd sem byrjaði í bílskúrnum hjá honum 2017 en eru...
#73 - Margrét Eir & Jökull 14.09.2022 1:44:54
Söng og leikkonan Margrét Eir Hönnudóttir og hennar betri helmingur, tónlistarmaðurinn Jökull Jörgensen eru gestir vikunnar í Betri helmingnum. Margrét Eir ætti að vera flestum kunnug fyrir sína einstaklega fallegu söngrödd og hefur Margrét komið víða við í tónlistinni og sungið við hin ýmsu tilefni í áraraðir. Margrét er mikið jólabarn og er því ekki að undra að það ber mikið á henni á þeim tíma...
#72 - Bjartmar & Snorri 07.09.2022 1:40:53
Leikarinn, leikstjórinn, söngvarinn og skemmtikrafturinn Bjartmar Þórðarson og hans betri helmingur Snorri Sigurðarson komu til mín í ansi skemmtilegt spjall nú á dögunum. Bjartmar er menntaður leikari frá leiklistarskólanum Weber Douglas í London og útskrifaðist þaðan árið 2004. Bjartmar er svo sannarlega ekki við eina fjölina felldur þegar kemur að listaheiminum en hann ákvað að sækja sér nám í...
#71 - Arnar Gunnlaugs & María Builien 31.08.2022 1:20:41
Fótboltagoðsögnin og þjálfari Víkinga Arnar Gunnlaugsson mætti til mín í einlægt og virkilegs skemmtilegt spjall ásamt sýnum betir helming, Maríu Builien Jónsdóttur. Arnar hefur verið áberandi í boltanum frá því hann var aðeins 16 ára gamall og spilaði þá með uppeldis-klúbbnum ÍA. Þremur árum síðar var hann kominn út í atvinnumennsku þar sem hann fékk samning við Feyenoord í Hollandi en kom hann v...
#70 Haraldur Ari & Sæa 24.08.2022 1:23:07
Leikarinn og tónlistarmaðurinn Haraldur Ari Stefánsson og hans betri helmingur fimleikadrottningin Kristjana Sæunn Ólafsdóttir mættu til mín stórskemmtilegt spjall. Haraldur fann ungur fyrir leiklistarbakteríunni enda alinn upp í leikhúsinu þó hann hafi byrjað sinn feril í sviðsljósinu sem slagverksleikari í hljómsveitinni Retro Stefson sem urðu gríðarlega vinsælir bæði hér heimafyrir og ekki síðu...
#69 - Birta Líf & Gunnar Patrik 17.08.2022 1:22:12
Hlaðvarpsstjarnan & Hollywood sérfræðingurinn Birta Líf Ólafsdóttir kom ásamt sínum betri helmingi Gunnari Patrik Sigurðssyni í virkilega hresst og skemmtilegt spjall. Birta Líf er annar þáttastjórnenda hlaðvarpsþáttarins vinsæla, Teboðsins, þar sem farið er vel yfir allt það helsta sem gerist í heimi hollywood stjarnanna og allt þar á milli ásamt því að mæta vikulega í heimsókn í Brennsluna á...
#68 - Logi Pedro & Hallveig 10.08.2022 1:19:50
Listamaðurinn Logi Pedro Stefánsson og hans betri helmingur Hallveig Hafstað Haraldsdóttir kíktu til mín í skemmtilegt spjall nú á dögunum. Logi er ekki við eina fjölina felldur en er hann einna þekktastur fyrir músíkina sína en byrjaði hann snemma í mússíksenunni og vakti fyrst athygli fyrir störf sín í hljómsveitinni Retro Stefson sem var geysivinsæl hér um árið en síðan þá hefur hann gert heila...
#67 - Yesmine Olsson & Addi Fannar 03.08.2022 1:28:39
Í þætti dagsins fékk ég til mín hjónin Yesmine Olsson og Arngrím Fannar Haraldson, eða Adda Fannar eins og hann er betur þekktur, í létt og skemmtilegt spjall. Þeim hjónunum er ýmislegt til lista lagt en er Yesmine meðal annars afar vinsæll einkaþjálfari hjá World Class, dansdrottning með meiru og stjörnukokkur en er hún búin að koma víða við í eldamennskunni bæði sem sjónvarpskokkur og haldið fjö...
#66 - Birna Rún & Ebenezer 27.07.2022 1:35:12
Leikkonan Birna Rún Eiríksdóttir og hennar betri helmingur Ebenezer Þórarinn Einarsson eru viðmælendur 66 þàttar af Betri helmingnum. Birna Rún er eins og fyrr segir leikkona en hefur hún meðal annars verið fastráðin í Borgargarleikhúsinu og lék þar í fjölda sýninga. Þá hefur hún einnig unnið til Edduverðlaunana en það var fyrir hlutverk sitt í Rétti sem sló í gegn árið 2016. Birna hefur einnig ve...
#65 - Halli Melló & Matthildur 20.07.2022 1:19:55
Hallgrímur Ólafsson, eða Halli Melló eins og hann er gjarnan kallaður, mætti til mín í áhugavert og skemmtilegt spjall nú á dögunum ásamt sínum betri helmingi Matthildi Magnúsdóttur. Halli er leikari og hefur verið fastráðinn við Þjóðleikhúsið undanfarin ár og getið sér þar gott orð. Hann hefur komið víða við í leiklsitinni en ættu margir að kannast við hann til dæmis sem manninn sem aldrei náði h...
#64 - Bjarki Már Elísson & Unnur Ósk 13.07.2022 1:16:22
Á dögunum fékk ég til mín í spjall handboltamanninn knáa Bjarka Má Elísson og hans betri helming Unni Ósk Steinþórsdóttur. Bjarki hefur verið atvinnumaður í handbolta frá árinu 2013 en hann hefur spilað með þremur mismunandi liðum í Þýskalandi og getið að sér einstaklega gott orð í horninu en var hann einmitt áberandi á síðasta stórmóti landsliðsins fyrir frábæra frammistöðu. Unnur er menntuð í sá...
#63 - Daði & Árný 06.07.2022 1:24:20
Í þætti dagsins fékk ég til mín hjón sem flestir Íslendingar ættu að kannast við enda Íslendingar Eurovision aðdáendur með meiru en þetta eru að sjálfsögðu Gagnamagnshjónin Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir. Daði og Árný eru búsett í Berlín en hafa þau átt heima þar undanfarin 8 ár og er enginn heimferðarhugur í þeim en kunna þau einstaklega vel við sig í Berlín þar sem þau hafa kom...
#62 - Arna Ýr & Vignir Þór 29.06.2022 1:29:34
Fegurðardrottingin og athafnakonan Arna Ýr Jónsdóttir mætti til mín ásamt sínum betri helming, Vigni Þór Bollasyni kírópraktor í einlægt og ótrúlega skemmtilegt spjall. Arna ýr var krýnd Ungfrú Ísland árið 2015 og tók í kjölfarið þátt fyrir Íslands hönd í hinum ýmsu fegurðarsamkeppnum úti í heimi ásamt því að hreppa titilinn Miss Universe Iceland árið 2017. Síðan þá hefur margt vatn runnið til sjá...
#61 - Sigga Dögg & Sævar 22.06.2022 2:07:24
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt og forvitnilegt spjall við kynfræðinginn Sigríði Dögg Arnarsdóttur, eða Siggu Dögg eins og hún er alltaf kölluð, og hennar betri helming Sævar Eyjólfsson. Sigga Dögg hefur verið áberandi í samfélaginu undanfarin ár og má segja að hún sé þekktasti og umtalaðisti kynfræðingur landsins en hún hefur algjöra ástríðu fyrir því að fræða fólk á öllum aldri um kynlíf...
#60 - Þórdís Björk & Júlí Heiðar 15.06.2022 1:29:36
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við listaparið Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur og Júlí Heiðar Halldórsson. Dísu og Júlí er margt til listanna lagt en eru þau bæði útskrifaðir leikarar og hafa tekist á við hin ýmsu verkefni í leiklistarheiminum ásamt því að þau eru bæði mjög áberandi í tónlistarsenunni. Dísa hefur undanfarið verið með annan fótinn á Akureyri þar sem hún hefur tekið þátt...
#59 - Regína Ósk & Svenni Þór 08.06.2022 1:23:02
Í þættinum í dag fékk ég til mín söngkonuna Regínu Ósk Óskarsdóttur og hennar betri helming Sigursvein Þór Árnason ,sem er þó alltaf kallaður Svenni og áttum við ótrúlega létt og skemmtilegt spjall. Þau eru bæði búin að láta mikið af sér kveða í tónlistarlífinu undanfarin ár, en er Regína söngkona af guðs náð ásamt því að vera skólastýra í Söngskóla Maríu Bjarkar, á meðan Svenni semur poppsmelli,...
#58 - Þórhildur Þorkels & Hjalti 01.06.2022 1:19:25
Fjölmiðlakonan Þórhildur Þorkelsdóttir og hennar betri helmingur Hjalti Harðarson mættu til mín í ansi skemmtilegt spjall nú á dögunum. Þórhildur hefur starfað í fjölmiðlum undanfarin 10 ár en skipti nýlega um starfsvetfang og tók við stöðu kynningarstjóra BHM. Hún talar þó um það í þættinum að erfitt sé að slíta sig alfarið frá fjölmiðlunum og til að sinna áfram þessum gríðarlega fjölmiðlaáhuga...
#57 - Þórhildur & Kjartan 25.05.2022 1:31:45
Í þessum 57. þætti átti ég frábært & forvitnilegt spjall við hjónin Þórhildi Magnúsdóttur og Kjartan Loga Ágústsson. Þórhildur heldur úti Instagram-reikningnum vinsæla Sundur & Saman þar sem hún fjallar til dæmis um sambönd og samskipti í samböndum en hún heldur einnig námskeið og hjálpar fólki að bæta sambandið, saman & í sitthvoru lagi. Kjartan starfar í dag sem læknir og er hann í s...
#56 - Edda Björg & Stebbi Magg 18.05.2022 1:32:58
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við listahjónin Eddu Björgu Eyjólfsdóttur og Stefán Magnússon. Eddu ættu flestir að kannast við en hefur hún verið verið áberandi bæði á fjölum leikhúsana sem og í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og má sem dæmi nefna sketsaþættina geysivinsælu Stelpurnar, Svínasúpunu og fór hún nú síðast á kostum í Allra síðustu veiðiferðinni. Stefán eða Stebbi eins og...
#55 - Steinunn Camilla & Erlingur Örn 11.05.2022 2:08:50
Í þessum þætti átti ég virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall við tónlistarkonuna Steinunni Camillu Stones og hennar betri helming byggingarverkfræðinginn Erling Örn Hafsteinsson. Eins og frægt er orðið gerðu Steinunn og vinkonur hennar allt vitlaust hér á árum áður í stúlknasveitinni Nylon, en hún sagði einmitt frá því í þættinum að þetta hafi einungis byrjað sem drauma sumarvinna sem vatt hel...
#54 - Magnús Geir & Ingibjörg Ösp 04.05.2022 1:18:55
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóra og hans betri helming, Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur. Það eru fáir íslendingar sem geta státað sig af því að hafa verið leikhússtjóri þriggja stórra leikhúsa landsins og í ofanálag útvarpsstjóri og hvað þá að hafa tekið við sínu fyrsta leikhúsi aðeins 31 árs gamall, en eins og Magnús segir sjálfur kviknaði lei...
#53 - Linda & Sigurður 27.04.2022 1:38:23
Í þessum 53 þætti, fékk ég til mín í stórskemmtilegt spjall leikkonuna Lindu Ásgeirsdóttur og hennar betri helming Sigurð Gunnar Gissurarson. Linda hefur verið fastagestur á skjám landsmanna í yfir 19 ár en hana ættu flestir að kannast við sem Skoppu úr hinum geysivinsælu barnaþáttum Skoppu og Skrítlu. Þær vinkonur hafa í gegnum tíðina brallað ansi margt saman en auk sjónvarpsþátta má nefna leikr...
#52 - Margrét Lára & Einar Örn 13.04.2022 1:33:24
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við Margréti Láru Viðarsdóttur, eina okkar allra bestu fótboltakonu fyrr og síðar og eiginmann hennar og betri helming, Einar Örn Guðmundsson sjúkraþjálfara og fyrrum handboltamann. Margrét Lára var eins og flestir vita lykilmaður í íslenska landsliðinu í fótbolta um árabil og á heldur betur glæstan feril að baki sem við fórum yfir í þættinum en starf...
#51 - Siggi Þór & Sonja 06.04.2022 1:09:54
Leikarinn Sigurður Þór Óskarsson mætti til mín í skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri helming Sonju Jónsdóttur. Sigurður, eða Siggi eins og hann er alltaf kallaður, hefur gert garðinn frægan á fjölum leikhúsanna sem og í sjónvarpsþáttum og bíómyndum og fer hann einmitt á kostum þessa dagana í myndinni “Allra síðasta veiðiferðin”. Sonja er nýkomin heim frá San Fransisco þar sem hún hefur verið að l...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos