RÚV

Þetta helst

News IS ↓ Επεισόδια: 765

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: www.ruv.is

Δημιουργός

RÚV

Κατηγορία

News

Ιστοσελίδα του podcast

www.ruv.is

Τελευταίο επεισόδιο

8 Οκτ 2026

Πού να ακούσεις;

Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομα

Τα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast

Κατέβασέ το από το Google Play Δωρεάν εγκατάσταση Android σχεδόν 10 εκατ. λήψεις · βαθμολογία 4,8 iOS σύντομα

Επεισόδια

Kastljósið beinist að Íslandi og krísu Evrópusambandsins 02.09.2026

,,Skilaboðin frá Íslandi”; ,,Þetta er synd fyrir Evrópu”; ,,Sterk tengsl Íslands við Evrópusamband fela í sér að niðurstaðan er ekki sambærileg við Brexit” eru nokkrar af þeim fyrirsögnum sem birst hafa í dagblöðum í Evrópu um þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi á laugardaginn. Ísland, og fréttir frá Íslandi, eru ekki til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum á hverjum degi. Síðustu daga hefur þetta hin...

Eldsneytisverðið hækkar á ný 01.09.2026

Eflaust hafa hlustendur tekið eftir því að bensinverðið er hærra í dag en í gær – því tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi á miðnætti. Rætt er við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra FÍB, Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, og Hjalta Óskarsson, hagfræðing. Þá er rætt við ökumenn á bensínstöðvum. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Sýn hættir með kvöldfréttir eftir að ekkert varð af viðskiptum við Símann 31.08.2026

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að sú ákvörðun stjórnenda Sýnar að hætta með sjónvarpsfréttir sé gríðarleg vonbrigði. Sýn greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallar Íslands núna í morgun. Síðasti kvöldfréttatími Sýnar verður í kvöld. Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu kvöldfrétta á Sýn og fyrrirennara Sýnar, Stöðvar 2. Fyrsti fréttatíminn á Stöð 2 var s...

Lykilinnviðir og hættan af eldgosum 28.08.2026

Nýtt langtímahættumat vegna Reykjanesskaga sem Veðurstofa Íslands gerði sýnir að áhrifasvæði eldgosa ná allt frá Reykjanestá að Ölfusá og Hvalfirði. Á þessu svæði eru lykilinnviðir, meðal annars allar fjórar, stjóru jarðmarmavirkjanirnar á svæðinu: Reykjanesvirkjun, Svartsengisvirkjun, Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun. Eldgos í Hengli gæti haft mikil áhrif á þær. Halldór Halldórsson, örygg...

Slorævintýrið á Nýbýlaveginum 27.08.2026

Á Nýbýlaveginum í Kópavogi er matvöruverslunin Fiska þar sem yfirleitt er örtröð síðdegis og um helgar. Verslunin selur matvöru frá öllum heimshornum sem yfirleitt er ekki til í öðrum búðum. Tekjuaukningin hjá Fisku hefur verið ævintýraleg síðustu ár og hefur verslunin nú sprengt af sér húsnæðið í Kópavogi og er verið að tvöfalda það. Eigandinn, Árni Elvar Eyjólfsson, segir að veltan hafi sexfalda...

Stórveldið sem keypti fyrirtækið af skattakóngi Íslands 26.08.2026

Í ár var maður að nafni Daníel Sigurðsson skattakóngur Íslands. Hann greiddi 932 milljónir í fjármagnstekjuskatt í fyrra og var því með fjármagnstekjur upp á 4,3 milljarða króna. Ástæðan fyrir þessum himinháu fjármagnstekjum og skattgreiðslum í fyrra er sú að Daníel seldi 70 prósenta hlut í fyrirtæki sem hann stofnaði. Þetta fyrirtæki heitir DS Lausnir og sérhæfir sig í útleigu og þjónustu við byg...

Úrslitastund um líftíma kjarasamninga 25.08.2026

Á fimmtudaginn kemur í ljós hvort forsenduákvæði kjarasamninga haldi en þá birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst. Rætt er við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing hjá Íslandsbanka, og Sigurð Pétursson, sagnfræðing, um stöðu mála. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Þrefalda þyrlupallinn í Surtsey 24.08.2026

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í síðustu viku umsókn Surtseyjarfélagsins um að stækka þyrlupallinn í Surtsey úr 36 fermetrum í um 100. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi - en hvers vegna að stækka pallinn og hvernig myndu slíkar framkvæmdir vera skipulagðar með tilliti til náttúruverndar? Rætt er við M...

Aska látinnar konu grafin upp í skjóli nætur 21.08.2026

Gröf Kristjöna Jónsdóttur Dinse í Sóllandi í Fossvogskirkjugarði var opnuð í skjóli nætur í júní í fyrra. Duftkerfið með jarðneskum leifum Kristjönu var grafið upp og stór hluti öskunnar var tekinn úr því eftir að kerið hafði verið brotið upp. Kristjana lést í nóvember 2024, rúmlega áttræð að aldri. Ummerki sáust við leiðið daginn eftir og var málið kært til lögreglu í kjölfarið. Að raska grafarhe...

Fiskur dagsins - loðna 20.08.2026

Af hverju borga Færeyingar og Norðmenn miklu hærra verð fyrir loðnu og makríl en Íslendingar? Er það vegna þess að á Íslandi kaupa sömu menn fisk og selja hann? Er verið að svindla á sjómönnum, sveitarfélögum og ríkissjóði, eða erum við bara með öðruvísi kerfi, sem skilar sömu niðurstöðu? Umsjón: Helgi Seljan

Er æskilegt að framleiða bætiefni úr hvalkjöti? 19.08.2026

Morgunblaðið greindi frá því í upphafi viku að Hvalur hf. ætlaði að hætta að selja Japönum hvalkjöt í bili en nýta kjöt af langreyðum þess í stað til framleiðslu á járnbætiefni. Í þætti dagsins beinum við sjónum að járnskorti og þeirri hugmynd að framleiða járnbætiefni úr hvalkjöti. Viðmælendur: Jóhanna Eyrún Torfadóttir, dósent í næringarfræði og verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu Edda Elísab...

Svona kom saga Manongs til rithöfundarins Sjóns 18.08.2026

Í þættinum í gær var sagt frá sögu Suður-Afríkumannsins Johannes Manong hér á Íslandi á árunum 1964 og 1965. Manong lenti í kynþáttaofbeldi frá nýnasistum á Íslandi þegar hann vildi setjast hér að til að leggja stund á tannlækningar og var hrakinn frá landinu. Bréf með hakakrossi var sent til Manongs og haldin var krossbrenna fyrir utan Stúdentagarðana sem var í fjölmiðlum sögð minna á aðferðir Ku...

Saga Suður-Afríkumannsins sem lenti í nýnasistum á Íslandi 17.08.2026

Í lok árs 1964 kom tæplega þrítugur Suður-Afríkumaður hingað til lands og vildi fá inngöngu í Háskóla Íslands. Hann hét Johannes Manong og hafði lent í pólitískum ofsóknum í Suður-Afríku á dögum aðskilnaðarstefnunnar samkvæmt fréttum í blöðum frá þessum tíma. Áður en Johannes Manong kom til Íslands eftir að hafa flúið frá Suður-Afríku sendi hann bréf á undan sér til Stúdentaráðs Háskóla Íslands og...

Opnun hringvegarins um Ísland og upphaf vegasjoppumenningar 14.08.2026

Sagnfræðingurinn Arnþór Gunnarsson hefur skrifað bók um hringveginn um Ísland. Þar fjallar hann fjallar um það hvaða áhrif opnun hringvegar um Ísland hafði fyrir landann. Hringvegurinn varð til sem heild árið 1974 þegar þjóðvegur landsins var tengdur í hring með opnun brúar yfir Skeiðará á Suðurlandi. Bókin er gefin út í nýrri seríu frá Sögufélaginu þar sem fjallað er um söguleg mál í stuttum, aðg...

Fréttirnar í viðtalinu við Björgólf Thor 13.08.2026

Í júlí var sagt frá því að auðmaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson hefði flutt lögheimili sitt frá Bretlandi til borgarinnar Mílanó á Norður-Ítalíu. Í viðtali við fréttaveituna Bloomberg sagði Björgólfur Thor frá því að skattalegar ástæður væru fyrir þessum flutningi þar sem ríkisstjórn Verkamannaflokksins hefði breytt aldagömlu skattkerfi sem var hagstætt alþjóðlegum fjárfestum. Björgólfur Thor...

Almyrkvinn 1954 12.08.2026

Í þætti dagsins beinum við sjónum að almyrkva á sólu sumarið 1954. Rætt er við Gunnstein Gunnarsson, lækni, sem fór með föður sínum að fylgjast með myrkvanum, þá sextán ára. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Sjálfsmorð Schraders á hafi úti 11.08.2026

Í þættinum í dag er sagt frá afdrifum þýsk-bandaríska uppfinningamannsins og milljónamæringsins Georg Schrader sem dvaldi á Akureyri á árunum 1912 til 1915. Í nóvember árið 1915 skaut Schrader sig á þilfarinu á síldarbátnum Helga Magra sem hann hafði fengið far með til Noregs. Fyrri heimsstyrjöldin var þá í fullum gangi og Schrader var illa haldinn af taugasjúkdómi. Í þættinum í gær var sagt frá þ...

Dularfulli uppfinningamaðurinn sem elskaði íslenska hestinn 10.08.2026

Þýsk-bandarískur uppfinningamaður, Georg Schrader, sem fann upp frægasta loftventil í heimi dvaldi síðustu þrjú æviárin á Akureyri í upphafi síðustu aldar. Hann bjó á hóteli allan tímann og bað vertinn um að sjá til þess að alltaf væri til kampavín á hótelinu. Af hverju Schrader kom til Íslands til að byrja með liggur ekki fyllilega fyrir. Ásgeir Jónsson, rithöfundur og seðlabankastjóri, hefur kyn...

Staðan á leigumarkaði í ljósi breytinga í New York 30.06.2026

Í Þetta helst í dag er sjónum beint að stöðunni á leigumarkaði hér á landi. Ákveðið var að frysta leiguverð í New York í lok síðustu viku. Væri æskilegt að fara svipaða leið hér? Rætt er við Kristínu Amalíu Líndal, hagfræðing hjá HMS, og Yngva Ómar Sigrúnarson, formann Samtaka leigjenda. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Stoðir styrkjast: Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður 29.06.2026

Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef samruninn gengur eftir verður til risastórt fyrirtæki á ferðaþjónustumarkaði. Samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækjanna tveggja er rúmlega 1100. Eitt af því sem vekur athygli við þessa fyrirhugðuðu sameiningu Bláa lónsins og Arctic Adventures er að fjárfestin...

Takmörkuð áhrif lækkunar kakóverðs 26.06.2026

Í nýrri úttekt verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands, sem birt var í gær, kom fram að verð á vinsælum súkkulaði- og sælgætisvörum hefur hækkað um tæp 33 prósent að meðaltali frá júní 2024 til júní 2026 - og að miklar verðlækkanir á kakó og sykri undanfarið hafa ekki skilað sér í smásöluverð. Rætt er við Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóra Vísbendingar, og Bjarka Stein Benja...

Ójöfnuður til heilsu fer vaxandi 25.06.2026

Í gær birti embætti landlæknis nýja úttekt þar sem rýnt er í þróun á andlegri heilsu landsmanna undanfarinn áratug. Það vekur athygli að mikinn mun má sjá á öllum mælingum eftir fjárhagsstöðu, á þeim sem eiga erfitt með að ná endum saman og þeim sem eiga auðvelt með það, og munar yfirleitt tugum prósenta. Embættið telur niðurstöðurnar benda til þess að ójöfnuður til heilsu og vellíðanar fari vaxan...

Fólk sem var á Gauksstöðum gagnrýnir tímaramma rannsóknar 24.06.2026

Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði er ósátt við að tímarammi rannsóknar íslenska ríkisins á fósturheimilum nái ekki lengra fram í tímann en til ársins 2002. Tímamörk rannsóknarinnar miðast við gildistöku nýrra barnaverndarlaga þetta ár. Lög um rannsóknarnefndina voru samþykkt á Alþingi nú í júní. Fósturheimilið Gauksstaðir var starfandi í bænum Garði á Suðurnesjum á árunum 2009 til...

Þingveturinn að baki 23.06.2026

Á föstudaginn lauk Alþingi störfum þennan þingvetur og þingmenn héldu í sumarfrí. 188 frumvörp voru lögð fram og af þeim urðu 105 að lögum, 83 voru óútrædd og eitt ekki samþykkt. Rýnt er í stöðu mála með Viktori Orra Valgarðssyni, doktor í stjórnmálafræði. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Barátta frumbyggjanna við forseta Argentínu 22.06.2026

Kona sem tilheyrir samfélagi frumbyggja í suðurhluta Argentínu og berst gegn landnámi argentínska ríkisins í landinu var stödd hér á Íslandi í síðustu viku sem gestur á ráðstefnu sem fór fram í Háskóla Íslands. Konan heitir Moira Millán og tilheyrir ættbálki sem heitir Mapuche. Moira hefur setið í fangelsi vegna þessarar baráttu sinnar og segist vera í lífshættu og hafa fengið líflátshótun. Hún bý...

Άκου το podcast Þetta helst στο Replaio

Ραδιόφωνο και podcast σε μία εφαρμογή - δωρεάν, χωρίς εγγραφή. Εγκατάστησέ την σήμερα και μη χάσεις την πρεμιέρα

Κατέβασέ το από το Google Play

Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS