RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: www.ruv.is
Πού να ακούσεις;
Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομαΤα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast
Επεισόδια
Manchester City-hneykslið snýst um miklu meira en fótbolta 08.10.2026 19:59
Hneykslið í kringum enska fótboltaliðið Manchester City hefur verið nær stöðugt í fjölmiðlum víða um heim síðastliðna viku. Stærð þessa skandals hefur magnast upp frá því að málið kom fyrst upp í lok september og er nú líka orðið að pólitísku og viðskiptalegu hneyksli sem teygir anga sína frá Englandi til arabíska furstadæmisins Abu Dhabi. Rætt er við Sigrúnu Davíðsdóttur, blaðamann og stjórnmálas...
Nýtt vígbúnaðarkapphlaup þegar afvopnunar er minnst 07.10.2026 15:36
Um helgina verða liðin 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða þar sem skref voru stigin í átt að afvopnun. Þessara tímamóta er nú víða minnst – á sama tíma og útgjöld til varnar- og hernaðarmála eru aukin. Í þætti dagsins beinum við sjónum að nýju vígbúnaðarkapphlaupi á tímum þar sem árangur í afvopnun er rifjaður upp. Rætt er við Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði, og Eirík Bergmann, prófessor...
Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu 06.10.2026 15:23
Í þætti dagsins fjöllum við um aðgengi almennings að íslenska dómskerfinu, sér í lagi hjá héraðsdómum á landsbyggðinni. Fréttastofa RÚV og aðrir fjölmiðlar hafa ítrekað orðið að ganga á eftir birtingum dóma og oft gengið erfiðlega að fá upplýsingar um réttarhöld. Héraðsdómur Norðurlands eystra birti tuttugu og níu dóma í sumar, eftir að fréttastofa gerði athugasemd við vinnulag dómstólsins. Sumir...
Baráttan um Brasilíu 05.10.2026 15:49
Við förum til Brasilíu í þætti dagsins þar sem forsetakosningar fóru fram í gær. Hægrisinnaði öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro, fékk flest atkvæði, rúm 47 prósent gegn rúmum 45 prósentum sitjandi forseta, Luiz Inácio Lula da Silva, leiðtoga Verkamannaflokksins. Hvorugur fékk hreinan meirihluta og þess vegna verður kosið aftur eftir tæpar þrjár...
Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur 02.10.2026 16:49
Er hægt að banna fólki með þroskahömlun að taka ákvarðanir sem geta valdið því skaða? Um þetta er fjallað í þætti dagsins en þar er rætt við Guðmund Ármann Pétursson, formann Þroskahjálpar, og Guðrúnu Valgerði Stefánsdóttur, prófessor emiritus í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands. Einnig er rætt um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og stöðuna í réttindabaráttu Þroskahjálpar sem...
Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur 01.10.2026 15:54
Er hægt að banna fólki með þroskahömlun að taka ákvarðanir sem geta valdið því skaða? Um þetta er fjallað í þætti dagsins en þar segir Ásta María Jensen frá syni sínum sem hefur þyngst mikið eftir að hann flutti frá henni. Starfsfólk í þjónustukjarnanum sem hann býr í vísí í reglur sem kveði á um sjálfsákvörðunarrétt hans og því myndi það teljast nauðung að banna honum að borða meiri mat. Þetta er...
Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum 30.09.2026 18:59
Dæmi eru um að Íslendingar hafi tapað tugum milljóna á ástarsvikum. Þetta eru svik sem oft eru kennd við Nígeríusvindl. Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn og yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að fólk sætti sig oft við þessi svik og vilji jafnvel ekkert endilega að fólk rannsaki þau. ,,Fólki er oft sama um peninginn af því það eignaðist v...
Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk 29.09.2026 16:11
Við förum til Hafnarfjarðar í þætti dagsins þar sem bærinn hefur hafið samstarf við Stólpa um uppbyggingu á nýju tímabundnu hverfi - fyrir erlent starfsfólk sem kemur hingað til lands í skemmri tíma - við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg, rétt við Vellina. Gert er ráð fyrir allt að 130 húsum og um 260 íbúðum sem verða um 35 fermetrar. Töluverð ólga hefur þó verið í bænum vegna áformanna. Nú hafa...
Fordæmisgildi tveggja hæstaréttardóma fyrir bókun 35 28.09.2026 15:23
Prófessor í lögfræði í Háskólanum í Reykjavík, Gunnar Þór Pétursson, segir að hæstaréttardómur sem féll í máli Önnu Bryndísar Einarsdóttur taugalæknis sendi skilaboð til Alþingis um að frumvarp um bókun 35 verði samþykkt á Alþingi og innleidd með réttum hætti í íslensk lög. Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur haft á stefnuskránni að höfða mál gegn Íslandi fyrir að hafa ekki innnleitt bókun 35 með ré...
Konan á bak við sögulegt dómsmál í Hæstarétti 25.09.2026 17:00
Anna Bryndís Einarsdóttir taugalækni voru í vikunni dæmdar skaðabætur frá íslenska ríkinu í Hæstarétti Íslands vegna þess að hún fékk skertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði þegar hún flutti til Íslands frá Danmörku árið 2019. Anna Bryndís hefði átt að fá hærri fæðingarorlofssjóðsgreiðslur í Danmörku þar sem hún var í sérnámi í læk nisfræði og hafði unnið sem læknir og unnið sér inn réttindi til...
Skreiðarþurrkunin á Laugum og Nígeríuviðskipti Íslands 24.09.2026 18:00
Í síðustu viku var sagt frá því í fréttum að fiskþurrkun Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit á Norðurlandi hefði lokað tímabundið. Þetta var í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem felldi niður starfsleyfi fiskþurrkunarinnar Fiskþurrkun hefur verið rekin á Laugum frá árinu 1980, lengi undir merkjum Útgerðarfélags Akureyringa en nú er reksturinn orðinn hluti af útgerðarri...
Heimir Hallgrímsson í miðju stormsins 23.09.2026 14:36
Í þætti dagsins eru sjónum beint að deilum um leiki Írlands og Ísraels. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, stendur í miðju stormsins. Rætt er við Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamann, og Stefán Pálsson, sagnfræðing og sparkspeking.
Wolt-væðingin á Íslandi 22.09.2026 19:46
Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin fjalla um notaði félagið eingöngu til að fá greitt frá Wolt. Félag mannsins var stofnað árið 2023 en varð gjaldþrota árið 2025. Í gögnunum kemur jafnframt fram að fleiri en einn sendill hafi fengið greitt fyrir vinnu sína...
Ástæður og áhrif verkfalls flugvirkja 21.09.2026 13:51
Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Fundur í deilunni fyrir helgi reyndist árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Rætt er um stöðu viðræðna og mögulega lagasetningu stjórnvalda við Aldísi Guðnýju Sigurðardóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðing í samningatækni. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Rannsóknin á lögreglustjóranum eftir þorrablótið 18.09.2026 15:20
Þorrablót Flateyringa komst í fréttir síðasta vetur. Vikuna eftir það fluttu fjölmiðlar fréttir af því að kvartað hefði verið undan hegðun Helga Jenssonar, lögreglustjóra á Vestfjörðum, á þorrablótinu til Nefndar um eftirlit með lögreglu Fjallað er um mál Helga í þætti dagsins og rætt við Kolbrúnu Benediktsdóttur varahéraðssaksóknar um nefndina sem hefur eftirlit með störfum lögreglu. Umsjón: Grét...
Microsoft verði eini kúnni gagnaversins á Bakka 17.09.2026 15:20
Bandaríska stórfyrirtækið Microsoft er fyrirhugaður viðskiptavinur gagnaversins á Bakka við Húsavík sem mögulega mun rísa þar. Verkefnið var kynnt á fundi á Húsavík á þriðjudaginn. Í umfjöllun í fréttum um þetta gagnavert hefur komið fram að alþjóðlegt fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtæki sem heitir Akur DC muni byggja gagnaverið og að búið sé að tryggja samning við ónafngreindan viðskiptavin. Sam...
Ótengdir og óvirkir lífeyrissjóðir 16.09.2026 17:30
Hvenær er maður hæfur til að eiga banka? Hvernig geta menn verið ótengdir eigum sínum og jafnvel sér sjálfum á Íslandi? Hvers vegna virðast svokallaðar hlutfallstölur, það er að segja hversu stóran eignarhlut fjárfestar eiga í bönkum, þýða annað hér á Íslandi en víðast hvar annars staðar.? Þessu ætlum við að reyna að svara, í það minnsta velta upp í þætti dagsins. Lýður Guðmundsson, annar svokalla...
Herör gegn hraðtísku 15.09.2026 17:29
Í dag beinum við sjónum okkar að hraðtísku - og þeirri ákvörðun franskra stjórnvalda að setja sérstakt gjald á hverja flík sem tengist hluta þess iðnaðar. Rætt er við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna, og Jóhannes Bjarka Urbancic Tómasso...
Roma-fólk í sögu Íslands 14.09.2026 15:39
Fyrstu skjalfestu heimildirnar um komu Roma-fólks til Íslands eru frá því í byrjun tuttugustu aldarinnar. Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur hefur stundað rannsóknir á sögu Roma-fólks hér á landi. Hann er þátttakandi í rannsóknarverkefni um þessa sögu þar sem hún er tengd við samtímann. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Svikin í Alicante 11.09.2026 15:00
Íslenskir ferðamenn hafa stigið fram og lýst reynslu sinni af því að hafa verið sviknir í viðskiptum með leiguhúsnæði í Alicante á Spáni. Fyrirtækið sem um ræðir heitir Sammlind og eigandi þess Samúel Jón Samúelsson. Fólkið hefur lýst því hvernig það borgaði mörg hundruð þúsund eða jafnvel milljónir fyrir leiguíbúðir sem það fékk svo aldrei. Gögn frá spænskum yfirvöldum og fréttir í þarlendum fjöl...
Umdeildu hafmeyjarbrotin sem enduðu sem stofustáss 10.09.2026 15:01
Tvö vegleg brot úr verkinu Hafmeyjunni eftir Nínu Sæmundsson eru þessa dagana til sýnis á Listasafni Reykjanesbæjar. Brotin hafa varðveist eftir að listaverkið var sprengt í loft upp á nýársnótt 1960. Á sýningunni kemur fram að brotin séu í einkaeigu en þó eru þau skráð sem eign Listasafn Reykjavíkur. Í Þetta helst verður sögð saga brota af einu umdeildasta listaverki Íslands, hvernig það var uppg...
MAST fjarlægir búfé af sveitabæ í Eyjafirði í þriðja sinn 09.09.2026 15:00
Matvælastofnun fjarlægði mörg hundruð dýr af sveitabænum Brimnesi í Eyjafirði í sumar vegna vanhirðu og slælegrar meðferðar. Bæði var um að ræða kindur, hross og hrúta segir bóndinn á bænum, Arnar Gústafsson. Hann segir stofnunina meðal annars hafa fjarlægt 450 kindur, 26 hrúta og 36 hross. Kindurnar voru færðar í sláturhús um helgina, segir Arnar, og hrútunum var lógað og þeir notaðir í moltu seg...
Fyrsta skrefið í að draga úr vægi verðtryggingar 07.09.2026 14:18
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Vikulokunum á laugardaginn að frumvarp um að draga úr vægi verðtryggingar verði lagt fram í haust. Rætt er við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, um áhrif þess að takmarka lengri verðtryggð lán og setja skilyrði um lágmarks eigna...
Fjárfestar deila um hlutabréfaviðskipti í Sýn 04.09.2026 14:56
Félag Reynis Grétarssonar, Gavia Invers, stærsta hluthafi Sýnar hefur stefnt eiganda félagsins Ursus hf, Heiðar Guðjónssyni. Heiðar Guðjónsson er fyrrverandi forstjóri Sýnar og áður stjórnarformaður, sem lét af störfum og seldi allan hlut sinn í Sýn árið 2022 fyrir 2,2 milljarða króna. Félag Grétars, Gavia, keypti hlut Heiðars. Reynir Grétarsson og meðeigendur hans í Gavia telja að Heiðar hafi ley...
Eitt stærsta skattamál Íslandssögunnar: Gæti krafið bílaleigur um 25 milljarða 03.09.2026 14:41
Eitt stærsta mögulega skattamál Íslandssögunnar er nú á borði skattayfirvalda. Skatturinn hefur sent nokkrum bílaleigum hér á landi bréf og sagt þeim frá því að til skoðunar sé að krefja einhverjar þeirra um virðisaukaskatt af tekjum þeirra vegna sölu á vátryggingum aftur í tímann. Ef Skatturinn endurákvarðar skattgreiðslur þessara bílaleiga getur heildarupphæðin numið allt að 25 milljörðum króna....
Παρόμοια podcast
Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS