TBR
Tbr Listinn
Íslenskt bókahlaðvarp
Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: sites.libsyn.com
Δημιουργός
TBR
Κατηγορία
Ιστοσελίδα του podcast
Τελευταίο επεισόδιο
5 Οκτ 2026
Πού να ακούσεις;
Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομαΤα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast
Επεισόδια
Jólaþáttur! 22.12.2025 1:31:39
Alma og Anna Karen taka smá spjall um jólin og bækur. Fjóla er því miður fjarri góðu gamni en við óskum henni góðra jóla þar sem hún er stödd! Anna Karen stjórnar þessum þætti með sterkri hendi og spyr Ölmu nokkrar spurningar sem hún svo sjálf svarar líka. Gott spjall um allt tengt jólunum og eins og svo oft með þessar stöllur fer spjallið um víðan veg, kannski of víðann en samt ekki. VVið ósku...
Heimsins besti dagur í helvíti - Viðtal 15.12.2025 1:50:48
Fjóla sest niður með Lilju Ósk Snorradóttur í einlægu spjalli um upplifun hennar af veikindum í kjölfar höfuðáverka. En Lilja skrifaði og gaf út bókina Heimsins besti dagur í helvíti þar sem hún segir frá þessu ferli. Bókin er einlæg og hrá með persónulegri frásögn þar sem engin glansímynd er til staðar. Þessi bók á fullt erindi inn á hvert heimili og er virkilega mikilvæg til að vekja athygli á s...
Jólabókaflóðið 08.12.2025 1:05:59
Fjóla veik, Anna Karen þunn og Alma með rugluna. Þetta getur ekki verið nema góður þáttur! Hér förum við yfir nokkrar bækur úr jólabókaflóðinu, þær sem við erum sérstaklega spenntar fyrir eða höfum þegar lesið og elskum! (Einnig kemur Alma með eilítið skemmtiatriði, en við skulum ekkert vera að tala um það...) Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlist...
Sesselía Ólafs - Silfurberg 01.12.2025 1:08:29
Alma oog Fjóla fengu til sín frábæran gest en hún Sesselía Ólafs kom til okkar til að ræða nýju og fyrstu bókina sína Silfurberg. Frábært spjall um bókina, listina og Ölmu að fangirl-a. Við mælum innilega með þessari bók í jólapakkann í ár! Þið finnið Sesselíu á þessum samnfélagsmiðlum; Tiktok; sesseliao Insta; sesseliao Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta...
Dóra og Alma spjalla! 24.11.2025 59:44
Í þessum þætti fær Alma til sín góða gesti, þó önnur taki virkari þátt í umræðunni. Mæðgurnar Dóra og Emma kíkja æí heimsókn og hjálpa Ölmu með þáttinn þar sem að Anna Karen og Fjóla eru fjarri góðu gamni. Tala Alma og Dóra um allskonar bóka-, og Dóru, tengda hluti og dálítið mikið um Bóksölu stúdenta, sem stendur þeim báðum nú frekar nærri! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TB...
Afmælisþáttur Önnu Karenar! 17.11.2025 1:01:27
Nú fer að líða að afmælinu hennar Önnu Karenar svo að hún fékk að taka algjöra stjórn á þessum þætti! Við förum hér yfir hvað við myndum velja af hlutum sem Anna Karen setur fram fyrir okkur. Stundum erum við mjög sammála og stundum erum við mjög ósammála, en gerist það ekki á bestu bæjum? Hvað myndir þú velja? Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlist...
Jólafólin - Viðtal 11.11.2025 1:07:51
Í þætti vikunnar fengum við góða gesti í stúdíó til okkar. Feðginin og þjóðfræðingana Dagrúnu og Jón. En þau voru rétt í þessu að gefa út bókina "Gömlu Íslensku Jólafólin" þar sem þau hafa rýnt í gamlar heimildir og fræði um sögu jólasveina á Íslandi, segja frá jólasveinum sem við ef til vill vissum ekki af ásamt því að segja frá sögu Grýla og Leppalúða mun nánar en áður hefur tíðkast Þetta er vir...
Hryllingsbækur! 27.10.2025 1:10:21
Alma og Anna Karen ræða nokkrar bækur sem gaman er að taka í október og nóvember! Bækurnar sem við tölum um eru eftirtaldar; A Short Stay in Hell - Steven L. Peck Graveyard shift - M.I. Rio The Haar - David Sodergren Gone to See the River Man - Kristopher Triana What moves the Dead - T. Kingfisher Something Wicked This way Comes - Ray Bradbury Hare House - Sally Hinchcliff The Other Side of the...
Viðtal - Júlía Margrét 20.10.2025 1:19:46
Í þessum þætti fengum við hana frábæru Júlíu Margréti rithöfund í heimsókn og tókum spjall um lífið og tilveruna! Snertum við aðeins á verkunum sem hún hefur skrifað, hvað hún ætlar sér á næstunni og fræðumst aðeins um hvaða tölvuleiki hún hefur spilað. Alveg yndislegt spjall og heiður að fá hana til okkar! Þið getið fundið Júlíu a instagram; julimargret Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;...
Blood Sisters - Vanessa Lillie 13.10.2025 1:09:42
Í þættinum í dag tókum við fyrir bók eftir indigenous höfund vegna Indigenous day! Bókin Blood Sisters eftir Vanessu Lillie varð fyrir valinu og höfum við mikið um hana að segja! Endilega skellið ykkur á hana og látið okkur vita hvað ykkur finnst! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
Kindred - Octavia E. Butler 06.10.2025 1:08:29
Í þættinum í dag förum við yfir mánaðarbók september en það er engin önnur en Kindred eftir Octaviu E. Butler! Við förum yfir hversu snilldarlega þessi bók er skrifuð og hversu góðir karakterar og sögusviðið er. Næsta mánaðarbók er svo; Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
Afmælisþáttur Fjólu! 29.09.2025 56:12
Afmælisþáttur Fjólu er lentur! Og það er ekki við öðru að búast en að hún troði Taylor Swift inn í heilan þátt! Hversu vel þekkir þú Taylor Swift? En hvernig ertu í Shakespeare? Alma er sett í heita sætið og þarf að giska hver á tilvitnuna, Swift eða Shakespeare? Að auki förum við aðeins yfir hvaða bækur Taylor hefur lesið í, hvaða verk hún hefur vitnað í og aðeins í nokkra textana hennar. Fjó...
Nornaþáttur! 22.09.2025 1:13:07
Alma og Fjóla setjast niður og ræða um nornir og kukl! Fara þær um alla heima og geima, frá skáldsögum og alveg í sjálfshjálparbækur, já þið lásuð þetta rétt! Sjálfshjálparbækur! Bókalisti yfir þær bækur sem koma við sögu í þættinum; Practical Magic - Alice Hoffman Sleewfoot: A Tale of Bewitchery - Brom The Spellshop - Sarah Beth Durst Threadneedle - Cari Thomas Where the Dark Stands Still - A....
Viðtal - Birta Ósmann og Skriða Bókaútgáfa 15.09.2025 1:21:59
Í þessum þætti fáum við Birtu Ósmann í heimsókn en hún er sjálfstætt starfandi rithöfundur, ljóðskáld, þýðandi og myndlistarkona. Ekki nóg með það heldur er hún einnig eigandi Skriðu bókaútgáfu! Tökum við spjall við hana um heima og geyma og fræðumst, bæði um hana og bókaútgáfuna. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn Þið finnið Skriðu á þessum...
Caught Up - Navessa Allen með Birtu Blanco 08.09.2025 1:23:21
Alma og Fjóla fengu Birtu í heimsókn til að ræða bókina Caught Up eftir Navessu Allen en það er nýjasta bókin í Into Darkness seríunni. Við spjöllum um allt á milli himins og jarðar með bókina og fáum nýja sýn inn í bæði hana og karakteranna í henni útfrá þekkingu Birtu. Eins og vanalega er alveg æðislegt að fá Birtu í heimsókn og erum við henni mjög þakklátar fyrir að koma og taka þessa umræðu me...
Íslenskuþýddar tilvitnanir 01.09.2025 1:32:03
Stelpurnar taka saman nokkrar tilvitnanir úr bókum sem þær hafa lesið og íslensku þýða þær, öllum náttúrlega til mikillar gleði! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
Within These Wicked Walls - Lauren Blackwood 25.08.2025 1:26:00
Stelpurnar taka fyrir bók mánaðarins en hún er engin önnur en Within These Wicked Walls eftir Lauren Blackwood. Eins og vanalega er STÓR höskuldarviðvörun á þessum þætti minnum á að grúska í bókina áður en þið hlustið á þáttinn ef þið viljið ekki renna blint í sjóinn með okkur. Við erum alalr frekar sammála með þessa bók en tengjum þó við hana á mismunandi hátt! Næsta bók er svo; Kindred eftir O...
The Knight and the Moth - Rachel Gillig 18.08.2025 1:01:10
Fjóla og Anna Karen setjast niður og spjalla um nýju uppáhalds bókina okkar! Alma er því miður fjarri góðu gamni en hún klippir þó þáttinn og vill koma á framfæri að hún er ekki sammála um orðið ufsagrýla, það er cute! Við mælum eindregið með að næla ykkur í þessa og lesa, jafnvel áður en þið hlustið á þáttinn því að það er STÓR höskuldarviðvörun í gangi hjá TBR listanum í þessum þætti. Þið fi...
Aðdáendaval! 12.08.2025 1:05:23
Tæknilegir örðuleikar urðu til þess að þessi þáttur þurfti að vera tekin upp aftur og koma einum degi seinna en vanalega og biðjumst við innilegrar afsökunar á því. Við förum yfir aðdáandaval fyrir nokkrar bækur í þessum þætti og erum bæði mjög sammála og mjög ósammála með valið hjá hvor annarri.. Bækurnar sem við aðdáendavöldum fyrir voru eftirfarandi; Kvikasilfur Rafmagnslaust Slátrarinn og Sv...
Sería 2! Hraðaspurningar 04.08.2025 58:44
Loksins erum við komnar úr sumarfríi og fögnum við því með því að fara yfir víðan völl og svörum nokkrum hraðaspurningum (ekki svo hröðum þó) um lesturinn okkar núna yfir sumarið! Við erum svo spenntar að fara inn í haustið með ykkur, glaðar og kátar eftir gott sumarfrí! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
Ring Shout - P. Djélí Clark 28.07.2025 1:05:51
Alma og Fjóla spjalla saman um bók mánaðarins! Bókin Ring Shout kom okkur svo á óvart og náði okkur algjörlega. Við gætum talað endalaust um þessa bók. Það er auðvitað RISASTÓR HÖSKULDARVIÐVÖRUN á þessum þætti! Ágúst bókin okkar er svo; Within These Wicked Walls - Lauren Blackwood
The Deep - River Solomon, Daveed Diggs, William Hutson, Jonathan Snipes. 01.07.2025 1:02:08
Alma og Fjóla fara saman yfir bók júní mánaðar, en það er engin önnur en The Deep! Auðvitað er risastór HÖSKULDARVIÐVÖRUN á þessum þætti! Skemmtileg saga um hafmeyjur og skemmtilegt verkefni sem þessi bók er partur af. Bækur, saga og tónlist! Júlí bókin okkar er svo Ring Shout - P. Djélí Clark.
A Song Below Water - Bethany C. Morrow 02.06.2025 50:32
Í þættinum í dag ræðum við um bók maí mánaðar en að þessu sinni kemur hann ekki síðast mánudaginn í mánuðinum sínum þar sem viðtalið við Karen tók framúr þessum þætti. Við höldum að þetta sé fyrsta mánaðarbókin okkar sem við vorum ekki alveg nógu sáttar með. Við kláruðum þó allar bókina og gátum rætt helling um hana. HÖSKULDARVIÐVÖRUN er svo sannarlega á þessum þætti! Júní bókin okkar er svo T...
Viðtal; Karen C.P. McDermott - Partur 2 28.05.2025 1:16:34
Hér kemur svo seinni parturinn af viðtalinu okkar við hana frábæru Karen! Það var algjör draumur í dós að fá hana til okkar að ræða bækurnar sem hafa heltekið okkur síðasta árið. (Við minnum aftur á að LESA bækurnar því þið munið ekki sjá eftir því!) Thank you so much Karen! Hvar getið þið fundið Karen? Insta; karencpmcdermott heimasíða; karencpmcdermott.com Facebook; Karen C.P. McDermott, Aut...
Viðtal; Karen C.P. McDermott - Partur 1 26.05.2025 1:08:14
Það er loksins komið að því!! Við höfum beðið svo lengi eftir því fá hana elsku Karen til okkar í smá spjall um The Last Triumvirate seríuna en við féllum allar kylliflatar fyrir sögunni og karakterunum. Einnig er risastór bónus hvað hún Karen er bara algerlega frábær og einstök kona! Við gætum ekki mælt meira með bókunum hennar og höfum verið ansi háværar með það þrátt fyrir að við munum hlaupa...
Παρόμοια podcast
Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS