Linda Pétursdóttir

Podcastið með Lindu Pé

Education IS ↓ Επεισόδια: 298

Podcastþættir Lindu Pé sem er master lífsþjálfi. Linda kennir konum að uppfæra hugarfarið, umbreyta sjálfsmynd sinni- og ná árangri. Nánari upplýsingar: www.lindape.com

Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: lmlp.libsyn.com

Δημιουργός

Linda Pétursdóttir

Κατηγορία

Education

Ιστοσελίδα του podcast

lmlp.libsyn.com

Τελευταίο επεισόδιο

7 Οκτ 2026

Πού να ακούσεις;

Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομα

Τα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast

Κατέβασέ το από το Google Play Δωρεάν εγκατάσταση Android σχεδόν 10 εκατ. λήψεις · βαθμολογία 4,8 iOS σύντομα

Επεισόδια

95. Að njóta vegferðarinnar 22.08.2022

Eitt af því sem ég hef tekið eftir bæði með sjálfa mig og konurnar sem ég er að þjálfa er að við höfum sögu um að markmiðasetning sé alvarlegur hlutur. Okkur þarf að vera dauðans alvara og við þurfum að vera tilbúnar að gefa allt upp á bátinn sem okkur hefur fundist gaman og gott. Sérstaklega þegar markmiðið snýst um þyngdarstjórnun. En hvað ef að það þarf alls ekki að vera svona alvarlegt og   gæ...

94. Heilsuvika! 6 Stólpar heilsu 15.08.2022

Heilsuvika samanstendur af sex stólpum sem eru: Tilfinningaleg heilsa. Fjárhagsleg heilsa. Félagsleg heilsa. Andleg heilsa. Næringarleg heilsa og líkamleg heilsa. Í þættinum ræðum við Dögg um mikilvægi þess að sinna öllum þessum heilsustólpum til þess að upplifa vellíðan og jafnvægi í lífinu. Heilsuvika er sér námskeið sem verður í september, og er stútfull af fróðleik sem gefur þér tækifæri til a...

93. Hvaða kona ert þú? 08.08.2022

Lífsþjálfarnir Linda Pé og Dögg ræða hér saman um hvernig þær nýta sér sjálfar lífsþjálfun í þeirra daglega lífi. Þær koma inn á mikilvægi þess að temja sér að halda dagbók og skrifa niður markmið sín og taka fyrirfram teknar ákvarðanir um það hvaða kona þær eru. Við mannfólkið búum yfir þeim eiginleika að geta hugsað um hugsanir okkar og það eru frábærar fréttir því við getum alltaf breytt hugsun...

Magasínið Lífið með Lindu Pé. 07.08.2022

NÝJUNG!  Ég kynni með stolti nýtt vikulegt magasín! Magasínið Lífið með Lindu Pé.  Alla sunnudaga . Ég hef ástríðu fyrir því að hjálpa konum að bæta líf sitt og ævistarf mitt hefur verið tileinkað heilsu og vellíðan kvenna. Því ákvað ég að bæta við nýjung í vörumerkið mitt Lífið með Lindu Pé, rafrænu magasíni. LÍFIÐ MEÐ LINDU PÉ: Podcastið - Prógrammið - Magasínið. Magasínið er mikilvægur hluti af...

92. Áskoranir varðandi þyngdartap 01.08.2022

Þú ert of þung vegna þess að þú borðar einhverra hluta vegna meiri mat en líkaminn þarf á að halda sem eldsneyti og hann geymir umframmagnið í formi fitu. Það er mikilvægt fyrir þig að komast að sannleikanum um það hvers vegna þú ert of þung og hvers vegna þú borðar of mikið. Vertu virkilega heiðarleg varðandi hvaða ástæður liggja að baki. Það er mikilvægt að þú stillir þig inn á að vera forvitin,...

91. Svona virkar heilinn þinn 25.07.2022

Sem lífsþjálfi pæli ég mikið í heilanum og ég hef mestan áhuga á því hvernig hann hefur áhrif á hugsanir okkar og tilfinningar og hvernig það hefur svo áhrif á lífshætti okkar. Til að skilja mannlega hegðun og eðlishvatir er mikilvægt að átta sig á því að heilinn starfar á tvo vegu þegar kemur að hugsunarferli. Ég vil skipta þeim tveimur hlutum heilans, sem hafa gríðarleg áhrif á daglegt líf okkar...

90. Kvíði, ótti og streita 18.07.2022

Hvað finnst þér um að upplifa neikvæðar tilfinningar? Veitirðu þeim viðnám eða forðastu þær? Í þessum þætti ætlum við að fara yfir hvernig við getum brugðist við þegar neikvæðar tilfinningar byrja að ná tökum á líkamanum. Það sem við þurfum að átta okkur á er að heilinn í okkur er upprunalega forritaður til að upplifa ótta í lífsbaráttunni en við höfum þróast í gegnum tíðina og nú á dögum er ótti...

89. Hormón og þyngdartap 11.07.2022

Þegar kemur að svengd skipta þrjú hormón höfuðmáli. Insúlín er lang mikilvægast og svo eru það ghrelin og leptin.  Hormón ákvarða hversu oft við verðum svöng, hvernig við geymum fitu, hvernig við brennum henni og hvenær við verðum södd. Insúlín, leptín og ghrelin eru þau hormón sem við ætlum að kynna okkur í þessum þætti og mikilvægi þess að skilja áhrif þeirra þegar við erum að vinna að þyngdarta...

88. Að gera erfiðu hlutina 04.07.2022

Stundum þegar ég er að þjálfa konurnar mínar fæ ég að heyra að það sé svo erfitt að gera eitthvað. Í mínum huga er það akkúrat ástæðan fyrir því að við eigum að gera hlutina. Mig langar að tala um þetta í dag. Af hverju við eigum að gera erfiða hluti. Einhverra hluta vegna segjum við okkur stundum að hlutir eigi eftir að verða erfiðir og við látum það draga úr okkur. Eins og við eigum skilið að ha...

87. Talan á vigtinni 27.06.2022

Eitt það erfiðasta sem við gerum þegar við erum að létta okkur er að stíga á vigtina. Það er gjarnan eitt af okkar eitruðustu samböndum. Við förum að trúa því að talan á vigtinni stjórni okkur. Við verðlaunum okkur fyrir að léttast og við borðum til að refsa okkur fyrir að léttast ekki. Okkur er kennt að vigtin sé djöfullinn sjálfur og stundum langar okkur hreinlega að mölva hana. En  það eina sem...

86. Breytingaskeiðið. Ráð frá ljósmóður. 20.06.2022

Hitakóf, svefnvandamál, beinþynning, kvíði, þunglyndi, vöðvarýrnun, þurr húð, nætursviti, hárlos, skapbreytingar, sársaukafullt kynlíf og minni kynlífsáhugi eru allt einkenni breytingaskeiðsins.  Þetta eru einkenni sem margar  okkar og þar með ég sjálf , upplifum þegar við erum á besta aldri. Breytingaskeiðið er náttúrlegur hluti af lífinu en getur reynst mörgum erfitt tímabil að ganga í gegnum. H...

85. Stórkostlegt ferðalag Sigríðar 13.06.2022

„Mér fannst ég of feit, of þung og var með lítið sjálfstraust . Ég hef verið að burðast með lítið sjálfsmat frá því ég var barn. Nú hef ég lært að sleppa því sem ég hef verið að burðast með í tugi ára og mér hefur ekki liðið svona vel í áratugi. Það er heilagur sannleikur." Sigríður Sigmundsdóttir (Sirrý) er í spjalli við Lindu og ætlar að deila reynslu sinni með okkur í þessum þætti. Sirrý segist...

84. Hvað ertu að hugsa? (hluti 2 af 2) 06.06.2022

Við höldum áfram að skoða hvað það er sem framkallar líðan okkar, pælum í því af hverju við upplifum okkur sem fórnarlömb og hvernig við getum breytt því. Læturðu annað fólk eyðileggja daginn fyrir þér? Viltu breyta ákveðnum niðurstöðum í lífi þínu? Ef þú vilt breyta líðan þinni og niðurstöðu í lífi þínu skaltu læra hugsunastjórnun. Þú gerir það með því að temja þér Hugsa – Líða – Gera hringrásina...

83. Hvað ertu að hugsa? (hluti 1 af 2) 30.05.2022

Ef þú vilt gera breytingar á lífi þínu skaltu hlusta. Ég tek hér fyrir það tól sem ég nota sjálf alla daga og hef notað til að gera miklar breytingar á lífi mínu, og líðan, síðastliðin ár. Huga-líða-gera hringrásin er magnað tól sem við notum í lífsþjálfun í LMLP prógramminu . Þú getur notað það fyrir hvaða þátt lífs þíns sem er, til þess að búta til nýja niðurstöðu. Ef þú vilt breyta því hvernig...

82. Velgengnisskömm 23.05.2022

Veistu hvað velgengnisskömmm er? Við höldum áfram að ræða velgengni út frá hinum ýmsu sjónarhornum, nú í þriðja og síðasta þætti velgengnisseríunnar. Mér finnst mikilvægt að við konur ræðum velgengni og skoðum opinskátt allar hliðar á velgengni. Gestur minn er Þórdís Jóna Jakobsdóttir ráðgjafi. Þórdís er opinská og ræðir þetta út frá sinni eigin reynslu og vinnu sinni í prógramminu LMLP. NÁNARI UP...

81. Vinir og velgengni 16.05.2022

Við höldum áfram að ræða velgengni og nú með áherslu á vini og velgengni.  Hefurðu pælt í því hvort að þinn nánasti vinahópur gleðjist með þér þegar þér vegnar vel? Eða reyna þeir að draga úr þér? Ég hef persónulega upplifað að vinkona réði ekki við þegar mér fór að vegna vel aftur. Í stað þess að upplifa öfund þegar öðrum gengur betur en þér, hvað með að snúa því við og skoða hvað það sé sem þig...

80. Gjaldþrot til velgengni 09.05.2022

Ég ræði við þig á persónulegum nótum í þessum þætti þar sem ég opna fyrir lífsreynslu mína tengda því að ganga í gegnum gjaldþrot.   Eftir að hafa nýverið tekið við verðlaunum í Bandaríkjunum fyrir velgengni í viðskiptum langar mig að deila með þér hvernig ég fór frá gjaldþroti til velgengni á aðeins 7 árum. Dögg lífsþjálfi í LMLP spyr mig út í þetta. Ástæðan fyrir því að ég ákvað að deila þessari...

79. Sambönd og samskipti (hluti 2 af 2) 02.05.2022

Við höldum áfram þar sem frá var horfið úr seinasta þætti að tala um sambönd og samskipti.  Ég ætla að segja þér frá nálgun lífsþjálfunar á sambönd og búðu þig undir að þetta er töluvert ný nálgun miðað við það sem þú hefur eflaust vanist fram til þessa. NÁNARI UPPLÝSINGAR: 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuá...

78. Sambönd og samskipti (hluti 1 af 2) 25.04.2022

Í þessum þætti ætla ég að tala um sambönd og samskipti. Þetta er reyndar það veigamikið efni að það verður í tveimur þáttum, þessum og þeim næsta. Ég ætla að segja þér frá nálgun lífsþjálfunar á sambönd og búðu þig undir að þetta er töluvert ný nálgun miðað við það sem þú hefur eflaust vanist fram til þessa. NÁNARI UPPLÝSINGAR: 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu?...

77. Sykur og áhrif hans á þig 18.04.2022

Það er við hæfi að tala um sykur eftir sykurát heillar þjóðar um páskana en sykur er eitt af aðgengilegustu og mögulega skaðlegustu matvælum sem til eru og hann leynist víða.  Mikil sykurneysla getur aukið hættuna á ýmsum sjúkdómum og haft neikvæð áhrif á margt fleira sem þú lærir um í þessum þætti. Þú færð ennfremur 5 ráð til þess að minnka sykurát. Þáttur stútfullur af ráðum svo þú getir minnkað...

Viltu fara niður um 4 kg? 13.04.2022

Ertu tilbúin að fara niður um amk. 4 kíló? Þá skaltu hlusta. • Nýjung í mai! [Einkanámskeið]  Niður um 4 kíló. • Ímyndaðu þér hvernig þér mun líða í lok mai, eftir að hafa tekið tíma til að sinna sjálfri þér, borða hollt og fá lífsþjálfun? Sjáðu fyrir þér þá konu. Hún bíður þín. • Þú munt fara niður um 4 kg. Ég verð einka-lífsþjálfinn þinn og þú lærir nýja aðferð til að losa þig við aukakílóin, ti...

76. Gæðasvefn og heilbrigður heili 11.04.2022

Þessi þáttur er fullur af ráðum! 3 ráð til að öðlast gæðasvefn og Dr. Zaninovich heilaskurðlæknir og vinur minn gefur okkur nokkur ráð að heilbrigðum heila. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. Einkanámskeið í mai Niður um 4 kg. Lífsþjálfun og mataræði. LMLP  Skráðu þig í prógrammið Lífið með Lindu Pé. Sefurðu á silki? Luxe By Linda Sil...

75. Ekki rétti tíminn til að grennast? 04.04.2022

Margar okkar kannast líklegast við það að langa að grennast en finnast aldrei vera rétti tíminn í það. Við vitum að það verður erfitt og mikil vinna og teljum okkur trú um að nú sé einfaldlega ekki rétti tíminn. Í þessum þætti ætla ég að fjalla um af hverju þetta gerist og hvernig best er að takast á við þetta. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis...

74. Hvað áttu að borða fyrir frískara útlit? 28.03.2022

Allt um fegurðarfæðu. Í þætti dagsins ætla ég að fræða þig með aðstoð næringaþerapista um þá fæðu sem við mælum með að þú borðir fyrir frískara útlit, og ennfremur hvaða fæðu þú skalt sleppa.  Hvað áttu að borða og hvað áttu EKKI að borða fyrir frískara útlit? 3 fæðutegundir sem rýra fegurð. 3 fæðutegundir sem auka fegurð.   Þetta er upptaka úr „Bjútíseríu" minn á Instagram, ef þú vilt horfa á vid...

73. Matarkúrar og þyngdartap 21.03.2022

Ég ætla að deila með þér af hverju ég ákvað að kenna þyngdartap, hvað liggur þar á bakvið.  Einnig tek ég fyrir matarkúra og 3 meginatriði sem fólk hefur út á matarkúra að setja.   Nánari upplýsingar: Heimasíða Lindu  Prógrammið Lífið með Lindu Pé Komdu endilega á Instagram og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þessum þætti @lindape Ef þú ert með spurningu handa mér, sendu mér þá endilega skilaboð...

Άκου το podcast Podcastið með Lindu Pé στο Replaio

Ραδιόφωνο και podcast σε μία εφαρμογή - δωρεάν, χωρίς εγγραφή. Εγκατάστησέ την σήμερα και μη χάσεις την πρεμιέρα

Κατέβασέ το από το Google Play

Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS