Linda Pétursdóttir

Podcastið með Lindu Pé

Education IS ↓ Επεισόδια: 298

Podcastþættir Lindu Pé sem er master lífsþjálfi. Linda kennir konum að uppfæra hugarfarið, umbreyta sjálfsmynd sinni- og ná árangri. Nánari upplýsingar: www.lindape.com

Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: lmlp.libsyn.com

Δημιουργός

Linda Pétursdóttir

Κατηγορία

Education

Ιστοσελίδα του podcast

lmlp.libsyn.com

Τελευταίο επεισόδιο

7 Οκτ 2026

Πού να ακούσεις;

Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομα

Τα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast

Κατέβασέ το από το Google Play Δωρεάν εγκατάσταση Android σχεδόν 10 εκατ. λήψεις · βαθμολογία 4,8 iOS σύντομα

Επεισόδια

117. Mistök fortíðar 25.01.2023

„ Framtíðin ræðst af því sem þú gerir í dag " - Mahatma Ghandi Eitt af því mikilvægasta sem ég kenni í LMLP prógramminu mínu er að við látum fortíðina ekki spá fyrir um framtíðina. Við látum mistök fortíðar ekki spá fyrir um hvernig okkur á eftir að vegna í framtíðinni. Við erum alltaf bara einni ákvörðun frá því að breyta lífi okkar og þá ákvörðun er hægt að taka í dag. Dagurinn í dag er sá dagur...

116. Þú laðar að þér það sem þú ert 18.01.2023

Þú laðar að þér það sem þú ert, en ekki það sem þú vilt.  Núna í byrjun árs þegar ég hvet ykkur til að setja ykkur markmið er svo mikilvægt að skilja þessa setningu.  Hún útskýrir í grófum dráttum allt sem ég kenni.  Í þætti dagsins ætla ég að útskýra þetta hugtak nánar og hvetja ykkur til að opna huga ykkar fyrir því sem það felur í sér - því það getur breytt lífi ykkar til hins betra.      NÁNAR...

115. Það sem kom mér mest á óvart 11.01.2023

„Það sem kom mér mest á óvart" Þetta er upptaka af beinni útsendingu í Facebookgrúppuni Taktu skrefið þar sem þið heyrið hvað konur úr LMLP prógramminu hafa að segja um reynslu sína og árangur. Hlustaðu á hvað kom þeim mest á óvart. ATH: Skráningu í LMLP prógrammið lýkur. Þú hefur til og með 15. janúar að skrá þig.  Skráðu þig með því að smella hér https://www.lindape.com/skramig   Aðgangsgluggi L...

Við lokum-síðasti séns! 09.01.2023

Það lokar fyrir nýskráningar í LMLP prógrammið ! Nú er rétti tíminn til að gera breytingar á lífi þínu.  Aðgangsglugginn í LMLP er opinn til og með 15.janúar . Þá er hægt að skrá sig í prógrammið en eftir það lokast fyrir nýskráningar og opnast ekki aftur fyrr en síðar á árinu. Nýjar aðildarkonur í prógramminu fá sérstaka aðstoð til að koma sér af stað nú í upphafi árs og konurnar sem hafa verið l...

114. Markmiðavika 04.01.2023

Margir eiga í mjög flóknu sambandi við markmiðasetningu og hafa jafnvel gefist upp á að setja sér markmið. Sagan er orðin of löng af óuppfylltum markmiðum og vantrúin og sjálfsefinn hafa náð yfirhöndinni. Stundum viljum við ekki setja okkur markmið af ótta við vonbrigðin sem við upplifum þegar við náum þeim ekki. Þetta kalla ég að upplifa vonbrigðin fyrir fram og ég mæli aldrei með því. Í þessum þ...

113. Brot af því besta árið 2022 28.12.2022

Á tímamótum sem þessum finnst mér við hæfi að líta um öxl og rifja upp það fjölbreytta efni sem við höfum tekið fyrir hér í podcastinu á líðandi ári. Njóttu þess að hlusta á brot af því besta úr þáttunum árið 2022.   NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök verða meða...

112. Lágmarksviðmið 21.12.2022

Í dag ætla ég að tala um mjög kröftugt hugtak sem ég kenni í LMLP prógramminu mínu sem kallast lágmarksviðmið. Þegar við ætlum að gera breytingar í lífinu okkar, hverjar sem þær eru, kemur frumheilinn okkar til með að mótmæla. Þessi hluti heilans er þannig hannaður að hann vill aldrei gera breytingar. Markmið hans er að halda okkur á lífi og hann trúir því að ástæða þess að við séum á lífi í dag s...

111. Hvað á ég að borða um hátíðirnar? 14.12.2022

Ég er alin upp við ekta íslenskan jólamat en matarhefðir mínar hafa breyst mjög mikið síðan í æsku. Jólin eru risastór kveikja fyrir ofát hjá mörgum. Við höldum gjarnan að það séu allar veislurnar og matarboðin sem gera það svona erfitt fyrir okkur að léttast en það er ekki rétt og ég tek það fyrir í þessum þætti. Ef þú vilt breyta til á jólunum, prófa nýjan og bragðgóðan mat sem er líka hollur  o...

110. Gjafir til framtíðarsjálfsins 07.12.2022

Nútímasálfræði byggir æ meira á mætti framtíðarsýnar. Í lífsþjálfun vinnum við mikið með hugtak sem við köllum framtíðarsjálfið og í þessum þætti legg ég fyrir þig fimm spurningar sem aðstoða þig við að búa til skýrari framtíðarsýn. Ég hvet þig til að svara þessum spurningum. Skýr framtíðarsýn minnkar hættuna á því að við föllum fyrir skammtímaánægju sem hefur langtíma neikvæðar afleiðingar.   Jól...

Jólagjafaleikurinn er hafinn! 01.12.2022

Jólagjafaleikur Lindu Pé dagana 1.-14.desember. Vinningur dreginn út á hverjum degi. HVERNIG TEKUR ÞÚ ÞÁTT? 1). Vertu áskrifandi og virkur lesandi af magasíninu Lífið með Lindu Pé. Smelltu hér: https://mailchi.mp/lindape.com/magasinid 2). Fylgdu Lindu á Instagram, á 2 stöðum: Smelltu hér til að fylgja: https://www.instagram.com/lindape/ og svo einnig hér https://www.instagram.com/lindape.official/...

109. Rómantík um jólin 30.11.2022

Í þessum þætti tala ég á persónulegum nótum og ræði framtíðarsjálfið og rómantík. Jólin eru uppáhaldsárstíminn minn. Þegar kemur að því að skipuleggja tíma minn á þessum árstíma er mín uppáhalds hugsun: Hvernig vil ég að mér líði 1. janúar? Síðan tek ég ákvarðanir út frá þeirri líðan. Hvað þarf ég að gera til að mér líði svona vel og sé stolt af sjálfri mér í lok árs? Ég tek ákvarðanir og stend me...

108. Fjórar ástæður þess að þú borðar of mikið 23.11.2022

Í dag langar mig að tala um fjórar ástæður þess að við borðum of mikið. Ef við gætum fengið matarplan til að fara eftir og við færum alltaf 100% eftir því værum við ekki með aukakíló. Allar könnumst við líklega við að hafa byrjað á einhverjum kúr sem lofaði góðu og við bundum miklar vonir við að hann skilaði okkur árangrinum sem við óskuðum eftir. En einhverra hluta vegna gekk okkur samt svo erfið...

107. 3 holl ráð á aðventu 14.11.2022

Í þessum þætti færðu þrjú einföld ráð til að vera hollari á aðventunni. Hér færðu verkfæri til að takast á við aðventuna til að ÞÚ getir verið öðruvísi í sömu gömlu aðstæðunum. Nú er tíminn til að hætta að láta utanaðkomandi aðstæður hafa áhrif á líðan þína. Þú mun gera og hugsa aðra hluti en þú ert vön og leiða þig í átt að vellíðan.    Linda og Ásthildur næringarráðgjafi í LMLP gefa hér þrjú hol...

106. Ætlar þú að missa af þessu? 09.11.2022

Ef þú vilt bæta líf þitt á einn eða annan hátt skaltu hlusta! Linda og Dögg segja þér hér frá öllu því fjölbreytta efni sem stendur þér til boða í LMLP prógramminu. Framundan er ótrúlega spennandi efni sem við erum að fara að kenna, bæði nú í lok árs og í byrjun næsta árs og í þættinum segjum við frá því. Það er engin kona sem getur sagt, „Það er ekkert þarna fyrir mig" . Dæmi um það efni sem þú f...

105. Minn hefðbundni vinnudagur 02.11.2022

Hvernig er hinn hefðbundni vinnudagur hjá lífsþjálfa í eigin fyrirtæki? Hvernig gengur einstæðri móður að halda jafnvægi á milli vinnu og fjölskyldulífs? Í þessum þætti svarar Linda persónulegum spurningum, meðal annars um það hvernig dagurinn hennar gengur fyrir sig,  hvernig hún hleður batteríin og gerir sér glaðan dag og hvernig hugmyndin um magasínið Lífið með Lindu Pé kviknaði - og svo ýmisle...

104. Konur og peningar 26.10.2022

Ég hef unnið með konum í yfir þrjátíu ár. Ég trúi að konur séu konum bestar og ég er sannkallaður feministi.   Ég trúi á kraft kvenna og mun halda áfram að hvetja konur til dáða og að fylgja draumum sínum eftir.   Í  síðustu  þáttum hef ég verið að opna á nýja umræðu sem mér hefur fundist þörf á í heimi kvenna.   Ég hef rætt um peninga og fjárhagslega farsæld. Ég hef nefnilega tekið eftir því að þ...

103. Farsæld eða hamingja? 19.10.2022

Það sem mig langar að afhjúpa í þættinum er annars vegar trú okkar um hamingju og hins vegar fjárhagslega farsæld. Oft er eins og við trúum annað hvort að þetta tvennt haldist algjörlega í hendur - þ.e. að til þess að upplifa hamingju þurfum við að eiga fullt af peningum - eða öfugt, að þetta tvennt geti engan veginn farið saman. Fólk með peninga sé aldrei hamingjusamt og kunni ekki að meta það se...

102. Fjármál og farsæla konan 12.10.2022

Peningar skipa stóran sess í lífi okkar allra en samt er eins og það sé einhvers konar tabú að tala um þá. Þetta finnst mér sérstaklega þetta eiga við um konur. Það virðist oft minna gagnrýnt og eðlilegra að karlar ræði um peninga og fjárhaglega stöðu en þegar konur tala um eigin fjárhag og skoðanir á peningum. Þessu viðhorfi þarf að breyta - og ég vil leggja mitt af mörkum. Við eigum allar einhve...

101. Laus við 26 kíló: Árangurssaga Ingunnar 05.10.2022

Ingunn L Hannesdóttir hefur barist við aukakílóin frá 14 ára aldri og prufað allt mögulegt en í fyrsta sinn í yfir 40 ár hefur hún náð varanlegum árangri. Hún hefur byggt sig upp andlega og losað sig við 26 kíló með sjál f svinnu í LMLP prógramminu. Og ekki nóg með það, þá hefur eiginmaður henna r tileinkað sér fræðin sem hún lærir hjá Lindu og losað sig við annað eins.     Á einu ári eru hjónin 5...

100. Sterk sjálfsmynd þrátt fyrir áföll 28.09.2022

Ofbeldi, áfallastreituröskun og gjaldþrot. Hvað gerir maður þegar ævistarfið og allt veraldlegt hverfur? Ásgeir Páll útvarpsmaður situr við stjórnina í þessum þætti og tekur viðtal við Lindu og spyr hana út í lífsgöngu hennar, áföll sem hún hefur farið í gegnum og hvernig hún hefur haldið sjálfsmynd sinni sterkri. Hann spyr hana líka hvers vegna hún ákvað að beina lífi sínu á nýja braut og gerast...

99. 10 daga leiðarvísir -fyrir þig og heimilið 19.09.2022

Í þætti dagsins ætla ég að gefa þér fullkominn 10 daga leiðarvísir til að gíra þig í gang að bættum lífsstíl. Ég ætla að hjálpa þér að undirbúa þig- og heimilið þitt fyrir breyttan lífsstíl. Því það er ljóst að þegar þú ert að breyta um lífsstíl, þá gengur það svo mikið betur ef þú undirbýrð og skipuleggur þig vel á öllum sviðum; ekki síst heima fyrir. Slepptu öllu rugli sem þú hefur heyrt og held...

98. Af hverju að fasta? 12.09.2022

Það að fasta með hléum getur haft margvísleg áhrif á líkamann. Rannsóknir hafa sýnt fram á fjölmarga jákvæða heilsufarslega þætti föstu. Í þessum þætti spjöllum við Ásthildur sem er ljósmóðir, næringarráðgjafi og aðstoðarmanneskjan mín um kosti föstu og hvernig fasta með hléum hefur persónulega bætt líf okkar beggja. - - -  Hvernig myndi þér líða   ef sjálfsmynd þín væri sterk, aukakílóin væru hor...

97. Frelsið í skipulaginu 05.09.2022

Flestir vita að það væri gott að plana hlutina betur, að vera skipulagaðri en gera það samt ekki. Þetta er svipað og með líkamsrækt. Það vita flestir að það væri gott fyrir þá að stunda líkamsrækt en gera það samt ekki. Ég trúi því að við fáum að hanna lífið okkar. Að við fáum að taka ákvarðanir sem leiða okkur þangað sem við viljum fara. Til þess að gera það þurfum við að tileinka okkur að gera p...

Heilsuvika! 31.08.2022

Flest fæðumst við heilsuhraust en um leið og við eigum samskipti við veröldina, annað fólk og nýjar aðstæður, leggst ákveðinn hjúpur ofan á heilsu okkar. Stundum er það ótti. Stundum eru það á áhyggjur og stundum er það löngunin eftir staðfestingu á því að við séum nógu góð eða samþykki annarra. Stundum leggjast á okkur hjúpar eftir áföll eða frá umhverfinu. En burtséð frá því hvaðan þeir koma er...

96. Þarmaheilsa 29.08.2022

Heilsan, bæði líkamleg og andleg hefst í þörmunum. Starfsemi þarmanna hefur meiri áhrif á okkur heldur en að við gerum okkur grein fyrir. Að hlúa vel að góðgerlunum okkar hefur víðtík áhrif á heilsuna sem dæmi: Styrkir ónæmiskerfið, heilbrigðari húð, getur komið í veg fyrir hina ýmsu sjúkdóma og síðast en ekki síst, bætt andlegt heilbrigði. Í þættinum spjalla ég við Ásthildi en hún starfar sem ljó...

Άκου το podcast Podcastið með Lindu Pé στο Replaio

Ραδιόφωνο και podcast σε μία εφαρμογή - δωρεάν, χωρίς εγγραφή. Εγκατάστησέ την σήμερα και μη χάσεις την πρεμιέρα

Κατέβασέ το από το Google Play

Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS