RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ 985 Folgen

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.ruv.is

Autor

RÚV

Kategorie

Arts

Podcast-Website

www.ruv.is

Neueste Folge

22. Okt 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Freyjufest, Dáin heimsveldi, fjall og lúðrasveit 17.01.2023

Litla-Sandfell er eins og nafnið gefur til kynna ekki stórt fell á íslenskum eða erlendum mælikvarða en það er samt eftirsótt. Við hugum að jarðefnavinnslu og lúðrasveitartónlist hér eftir stutta stund, óvæntum tengslum þarna á milli sem hafa komið fram í fjölmiðlaumfjöllun bara alveg á síðustu dögum. Jazzpíanóleikarinn Sunna Gunnlaugsdóttir segir jazzheiminn vera mjög karllægan, það halli á konur...

Hildur Hákonardóttir 16.01.2023

Síðastliðinn laugardag, 14.janúar, var opnuð á Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á verkum Hildar Hákonardóttur. Sýningin, sem kallast Rauður þráður, er afrakstur rannsóknar sýningarstjórans, Sigrúnar Hrólfsdóttur. Hildur hefur á löngum ferli fjallað um málefni samtíma síns, og nýtt myndlistina, og þá fyrst og fremst vefnað, í pólitíska og femíníska baráttu. Hún hefur einnig fjallað um náttúruna og gil...

Rauður þráður Hildar Hákonardóttur, Vincente Lusitano, Tugthúsið 12.01.2023

Næstkomandi laugardag, 14 janúar, opnar á Kjarvalstöðum yfirlitssýning á verkum myndlistarkonunnar Hildar Hákonardóttur. Hildur hefur á löngum ferli fjallað um málefni samtíma síns, kynjapólitík, stéttapólitík, og utanríkispólitík en auk þess um náttúruna og gildi hennar fyrir manneskjuna. Hildur hefur lifað og fjallað um umbreytingartíma, samfélagslega og hugmyndafræðilega en einnig umbreytingart...

Hildigunnur Birgisdóttir og handknattleikur 11.01.2023

Í desember var tilkynnt að Hildigunnur Birgisdóttir myndlistarkona verður okkar næsti fulltrúi á Feneyjartvíæringnum. Frá því að Hildigunnur útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2003 hefur hún haldið fjölda samsýninga og einkasýninga, en í dag er hún á mála hjá i8 gallerí. Á ferli sínum hefur Hildigunnur rannsakað hugmyndir okkar um notagildi, fegurð og sannleika og þau kerfi sem liggja að baki öl...

Fay Weldon, Hvíta tígrisdýrið 10.01.2023

Breski rithöfundurinn Fay Weldon lést í síðustu viku, 91 árs að aldri. Rithöfundurinn sem kafaði í samskipti kynjanna og blæbrigði kynjapólitíkur með beittan stíl að vopni. Weldon talaði með verkum sínum inn í kvennabaráttu sjöunda og áttunda áratugarins, er ein af röddum þess sem kallað hefur verið annarar bylgju femínismi, og hafa bækur hennar stundum verið kallaðar sjálfbjargarbækur fyrir konur...

Ráðningar stjórnenda í menningarstofnanir, Ég lifi enn - sönn saga 09.01.2023

Talsverð umræða hefur skapast á síðustu mánuðum og misserum um stöðuveitingar og tilfærslur æðstu stjórnenda menningarstofnanna landsmanna og svo er enn. Deilt hefur verið á orðalag í auglýsingum og er nýjasta dæmið auglýsing um rektorsstöðuna við Listaháskóla Íslands. Við reifum þessi mál og ræðum við Þórunni Sigurðardóttur og Karl Ágúst Þorbergsson í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á rýni E...

Hvíta tígrisdýrið, prentaraverkfallið 1923 og tónlist frumbyggja 05.01.2023

Samskipti barna og fullorðinna, sem og feluleikurinn sem oft á sér stað í fjölskyldum er eitthvað sem hefur lengi verið sviðshöfundinum Bryndís Ósk Ingvarsdóttir hugleikið. Bryndís frumsýnir um helgina nýtt leikverk í Borgarleikhúsinu. Hvíta tígrísdýrið er fantasíuverk fyrir alla fjölskylduna, sem fjallar um þrjú börn sem búa uppi á háalofti undir ógnarstjórn Konunnar með kjólfaldinn. Þeim hefur v...

GJörningalist á stríðstímum, Svipmynd af Magnúsi Jóhanni 04.01.2023

Magnús Jóhann Ragnars­son, píanó­leikari, tón­skáld og upptökustjóri, hefur tekið þátt í að semja og útsetja margt af því vin­sælasta í ís­lensku popp­tón­listar­senunni síðustu ár. Hann hefur gefið út þrjár sólóplötur, Pronto, Without listening og Skissur, og auk þess plötuna Án tillits í samstarfi við Skúla Sverrisson bassaleikara og Tíu íslensk sönglög í samstarfi við GDRN. Þar að auki hefur ha...

Auglýsingahlé, Dorothy Iannone, Mátulegir 03.01.2023

Upplýsingar og sjálfsmyndir eru fyrirbæri sem skilgreina samtíma okkar, að mati myndlistarmannsins Sigurðar Ámundasonar, en hann sýnir um þessar mundir teikningar á auglýsingaskiltum borgarinnar. Frá því að nýja árið hófst hafa verk Sigurðar yfirtekið ljósaskilti og í stað auglýsinga sjáum við nú merkingarlaus vörumerki sem túlka ekkert og hafa ekki upp á neitt að bjóða nema kannski sjálf sig. Sig...

Auglýsingahlé, Dorothy Iannone, Mátulegir 03.01.2023

Upplýsingar og sjálfsmyndir eru fyrirbæri sem skilgreina samtíma okkar, að mati myndlistarmannsins Sigurðar Ámundasonar, en hann sýnir um þessar mundir teikningar á auglýsingaskiltum borgarinnar. Frá því að nýja árið hófst hafa verk Sigurðar yfirtekið ljósaskilti og í stað auglýsinga sjáum við nú merkingarlaus vörumerki sem túlka ekkert og hafa ekki upp á neitt að bjóða nema kannski sjálf sig. Sig...

Höre den Podcast Víðsjá in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet