RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ 976 Folgen

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.ruv.is

Autor

RÚV

Kategorie

Arts

Podcast-Website

www.ruv.is

Neueste Folge

22. Okt 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Flökkutaugin, andrúmsloft í réttum og streymisveitur 18.01.2024

Flökkusinfónía, samstarfsverkefni Gjörningaklúbbsins og Sinfóníuhljómsveitar íslands, verður frumflutt á myrkum músíkdögum næstkomandi fimmtudag. Við gerð verksins fengu þær Gjörningaklúbbskonur, Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir, tónskáldin Unu Sveinbjarnardóttur og Óla Björn Ólafsson til liðs við sig ásamt einvala liði kvikmyndagerðar­ fólks, dansara, leikara og fimleikafólks. Útkoman verð...

Svipmynd af heimspekingi / Sigríður Þorgeirsdóttir 17.01.2024

Sigríður Þorgeirsdóttir er heimspekingur og prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. Hún lagði stund á fagið í Boston og Berlín þaðan sem hún lauk doktorsprófi 1993 og fjórum árum síðar varð hún fyrst kvenna til að verða fastráðinn kennari í heimspeki við Háskóla Íslands. Á ferli sínum hefur Sigríður leitast við að stunda rannsóknir á heimspeki sem byggir á reynslu og upplifun; lífinu sjálfu. Hú...

Syngjandi stjórnandi, arkitektúr í Afríku og Á bláþræði 16.01.2024

Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir hefur vakið umtalsverða athygli undanfarin misseri. Ekki aðeins fyrir fiðluleik og söng, heldur einnig fyrir hljómsveitarstjórn, og kannski ekki síst fyrir að blanda þessu tvennu saman, söng og hljómsveitarstjórn. Við ræðum við þessa ungu tónlistarkonu í þætti dagsins. Einnig fáum við pistil frá Hildigunni Sverrisdóttur, arkitekt, sem að þessu sinni fjallar um það s...

Venjulegir staðir, Kannibalen og Árstíðirnar 15.01.2024

Í Gerðarsafni var fyrsti fasi sjónlistasýningarinnar Venjulegir staðir opnaður um síðustu helgi. Venjulegir staðir er sýning þar sem sjónarhorn ljósmyndarinnar er kannað með verkum sem vísa í staðleysur, hversdagsleika og brenglun hans. Við ræðum við ljósmyndarann Ívar Brynjólfsson og sýningarstjórann Brynju Sveinsdóttur í þættinum. Einnig fáum við að heyra hvað Trausta Ólafssyni finnst um nýtt ís...

Glæpur og refsing, Árstíðirnar og Pan Afrikan Peoples Arkestra 11.01.2024

Í janúar mun Gunnar Þorri Pétursson, þýðandi og sjálfstætt starfandi fræðimaður bjóða upp á leiðsagnarnámskeið á Hótel Holti um bókina Glæpur og refsing eftir Fjodor Dostojevskíj. Við tökum Gunnar tali um bókina og höfundinn í þætti dagsins. Við fáum líka við til okkar þær Snædísi Lilju Ingadóttur og Valgerði Rúnarsdóttur sem frumsýna nýtt íslenskt dansverk í Borgarleikhúsinu um næstu helgi. Verki...

Svipmynd af skáldi / Gerður Kristný 10.01.2024

Í dag verður dregin upp svipmynd af skáldi sem nýverið hlaut viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins, Gerði Kristnýju. Gerður Kristný ólst upp í Háaleitishverfinu og stefndi á að verða myndlistarmaður eða jafnvel barnaskólakennari þegar hún yrði stór. Barnaskólakennari sem gæfi út barnabækur. Því frá unga aldri hafði hún gaman að því að semja vísur og sögur. Gerður lærði frönsku og bókmennta...

Á eigin fótum, Fay Weldon 09.01.2024

Um liðna helgi var leikverkið Á eigin fótum frumsýnt í annað sinn í Þjóðleikhúsinu. Verkið var fyrst sýnt 2017 í Tjarn­ar­bíói og hlaut það árið til­nefn­ingu til Grímu­verðlaun­a sem barna­sýn­ing árs­ins. Leikstjórinn Agnes Wild og búninga- og leikmyndahönnuðurinn Eva Björg Harðardóttir verða gestir okkar í þætti dagsins. Einnig rifjum við upp ársgamla umfjöllun um Fay Weldon þar sem þær Dagný K...

Frá Innri-Fagradal, Ida Pfeiffer, heimspekipistill 08.01.2024

Í þætti dagsins ræðum við áhrif lita, leit að fegurð, skynjun handan rökhugsunar, skilgreiningar listasögunnar og margt fleira sem á sér stað í málverkinu, með Sigrúnu Hrólfsdóttur, en sýning hennar Frá Innri-Fagradal í Gallerí Gróttu lýkur um næstu helgi. Einnig kynnum við okkur Idu Pfeiffer sem ferðaðist um Ísland árið 1885 og heimspekingurinn Freyja Þórsdóttir snýr aftur með nýja pistlaseríu. U...

Auður Haralds, Skærlitað gúmmulaði og Edda 04.01.2024

Skærlitað gúmmulaði nefnist sýning sem verður á gallerý-vegg verslunarinnar Havarí í álfheimum um helgina. Páll Ivan frá Eiðum stendur að baki sýningunni. Við tökum hann tali um sýninguna og gervigreind í þætti dagsins. Auður Haralds rithöfundur og blaðamaður lést á Landsspítalanum við upphaf þessa árs. Við minnumst Auðar með því að endurflytja viðtal Þorgerðar E Sigurðardóttur við hana um Hvunnda...

Svipmynd af tónlistarmanni / Samúel Jón Samúelsson 03.01.2024

Samúel Jón Samúelsson, tónlistarmaður, er Reykvíkingur sem hóf tónlistarnám sitt á Ísafirði. Þar komst hann í kynni við básúnuna sem hefur fylgt honum síðan. Það var svo í Tónmenntarskóla Reykjavíkur sem hann kynntist því að spila með hljómsveit, nokkuð sem honum finnst að allir menn ættu einhvertíman að upplifa. Hann lauk kennaraprófi frá FÍH árið 1999 og einleikaraprófi ári síðar, og hefur starf...

Auglýsingahlé, Satanvatnið og Stella Blómkvist 02.01.2024

Ein stærsta myndlistarsýning ársins stendur nú yfir í þrjá daga á auglýsingaskiltum borgarinnar. Verkefni þetta nefnist Auglýsingahlé og er samstarf Billboard ehf., Y gallerý og Listasafns Reykjavíkur. Sýningin sem nú stendur yfir nefnist Ummyndanir og er úr smiðju Haralds Jónssonar myndlistamanns. Við ræðum við Harald í þætti dagsins. Metal ballettinn Satanvatnið er í sýningu um þessar mundir í T...

Áramótauppgjör 28.12.2023

Víðsjá og Lest fara saman yfir árið 2023

Svipmynd: Anna Þorvaldsdóttir 27.12.2023

Endurflutt svipmynd af tónskáldinu Önnu Þorvaldsdóttur

Duft, Aksturslag innfæddra og María mey 21.12.2023

Skáldsagan Duft; söfnuður fallega fólksins, sem Bergþóra Snæbjörnsdóttir sendi frá sér á dögunum hverfist um líf Veróniku og ber truflaðra fjölskyldu hennar saman við vafasaman sértrúarsöfnuð. Í þætti dagsins mun Kristín María Kristinsdóttir, einn af bókmenntarýnum Víðsjár, segja frá verkinu. Gréta Sigríður Einarsdóttir, annar bókmenntarýnir þáttar er einnig á mælendaskrá. Í þetta skiptið rýnir hú...

Bókmenntaleyndarmál 20.12.2023

Árið 2014 skrifaði Bragi Ólafsson nóveluna Bögglapóststofan og fékk hana gefna út af leigufélaginu Gamma Capital Management. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma sökum þess að bókin rataði ekki í bókabúðir né bókasöfn heldur var henni aðeins dreift til starfsfólks og viðskiptavina fyrirtækisins. Bragi mæti í þáttinn og rifjar upp. Þetta sama ár var Framtíðarbókasafnið sett á stofn í Osló en það...

Far heimur, far sæll, Satanvatnið, DJ Bambi 19.12.2023

Rithöfundurinn Ófeigur Sigurðsson gaf nýverið út skáldsöguna Far heimur, far sæll. Mýrarauða bók um hið alræmda Kambsrán sem gerðist á suðurlandsundirlendinu á 19. Öld. Skáldsaga Ófeigs miðlar áhrifum glæpasagna og vestra á afar ljóðrænan hátt en rannsakar umfram allt veru okkar í heiminum, í gegnum sterkar náttúrulýsingar á hinu innra og ytra. Ófeigur verður gestur okkar í dag. Metal ballettinn S...

Serótónínendurupptökuhemlar, annáll um sviðslistir og Móðurást: Oddný 18.12.2023

Afhverju líður okkur ömurlega einn daginn en frábærlega þann næsta? Á hverju veltur afstaða okkar til lífsins og hver er tilgangurinn með þessu öllu? Þessar og fleiri spurningar kvikna í huga Reynis, aðalpersónu Serótónínendurupptökuhemla, nýjustu skáldsögu Friðgeirs Einarssonar. Við ræðum við Friðgeir um Reyni og tilgang lífsins í þætti dagsins. Einnig fara þær Nína Hjálmarsdóttir og Eva Halldóra...

Harbinger lokar, Kind og Ævintýrið 14.12.2023

Gallerí Harbinger við Freyjugötu 1 lokar innan skamms eftir nær tíu ára starfsemi. Steinunn Önnudóttir segir það hafa verið gefandi en um leið lýjandi að reka galleríið meðfram öðrum störfum, og nú sé komið að því að skella í lás. Við ræðum við Steinunni í þætti dagsins. Við fáum einnig heimsókn frá Þresti Helgasyni en í sumar gangsetti hann bókaútgáfuna Kind, lítið forlag sem hefur sérstakan áhug...

Svipmynd af rithöfundi / Guðrún Eva Mínervudóttir 13.12.2023

Guðrún Eva Mínervudóttir byrjaði að skrifa sögur eftir að hafa lent á vergangi í Feneyjum sem unglingur. Eftir ævintýralega leit að gistingu endaði hún óvænt í risherbergi með fögru útsýni þökk sé gæsku húsfrúarinnar. Upplifunin leiddi hana á slóðir skáldskaparins sem hún hefur ekki yfirgefið síðan. Guðrún Eva gaf út sína fyrstu skáldsögu Sóley sólu fegri í aðeins 10 eintökum, 1998, og þá síðustu...

Höre den Podcast Víðsjá in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet