RÚV Hlaðvörp
Stakkaskipti
Alls eru rúmlega 22 þúsund nemendur í þeim 30 framhaldsskólum sem eru starfandi á Íslandi. Menntamálayfirvöld hafa staðfest tæplega 400 mismunandi námsbrautir hjá þessum skólum og lítið samræmi er á milli skóla. Þetta torveldar gerð námsefnis þar sem enginn er að kenna það sama. Viðmælendur í fyrsta þættinum eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Atli Harðarson, Guðrún Helga Ástríðardóttir, Hildur Ýr Ísberg, Matthildur Ársælsdóttir og Svanhildur Svavarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
7. þáttur: Virði íslensks stúdentsprófs 30.11.2025 43:00
Borið hefur á því að stúdentsprófin uppfylli ekki kröfur sem erlendir háskólar gera eftir að að námið var stytt í þrjú ár. Fjarnám, samræmi og ósamræmi milli skólaeinkunna og mikilvægi þess að nýta tæknina til góðra verka. Viðmælendur í þættinum eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Árni Ólason, Eyrún Arnardóttir, Guðjón Hreinn Hauksson, Hjálmar Gíslason, Magnús Þorkelsson, Matthildur Ársæls...
6. þáttur: Við erum alls konar 23.11.2025 42:45
Við erum alls konar og skólakerfið á að spegla þennan fjölbreytileika. Nemendum á starfsbrautum framhaldsskólanna hefur fjölgað gríðarlega undanfarinn áratug sem og nemendum með erlendan bakgrunn. Nánast allir halda áfram námi að loknum grunnskóla og það getur verið áskorun að mæta öllum. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Askur Örn Margrétarson, Árni Ólason, Berglind Halla Jónsdóttir, Eyrún Arnardót...
5. þáttur: Kennaramenntun og faggreinar 16.11.2025 42:37
Það vantar faggreinakennara í ýmsum greinum, þar á meðal í svonefndum STEM-greinum. Vandamálið er að það er of fátt ungt raungreinafólk sem lítur á framhaldsskólann sem sinn framtíðarvinnustað. Viðmælendur í fimmta þætti eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Harðarson, Freyja Hreinsdóttir, Guðjón Haukur Hreinsson og Gunnlaugur Magnússon. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
4. þáttur: Það vantar húsnæði 09.11.2025 42:42
Stjórnendur framhaldsskóla segja það áskorun að koma öllum fyrir sem stunda þar nám. Kennsla fer jafnvel fram í gámum og geymslum og þetta getur haft þau áhrif að færri sæki í verknám en annars væri. Nemendur sem ekki uppfylla inntökuskilyrði á verknáms-, starfsnáms- eða stúdentsbrautir velja framhaldsskólabraut. Viðmælendur í fjórða þætti eru: Berglind Halla Jónsdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Guðr...
3. þáttur Námsmat og námsefni 02.11.2025 42:59
Námsmat og námsefni eru stór hluti af starfi innan framhaldsskólakerfisins. Félagslífið er líka mikilvægur hluti af framhaldsskólanum. Gervigreindin er tækni sem ryður sér hratt til rúms í menntakerfinu líkt og annars staðar. Á sama tíma eiga ýmsar námsbrautir undir högg að sækja. Viðmælendur í þriðja þætti Stakkaskipta eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Hildur Ýr Ísberg, Hjálmar Gíslason...
2. þáttur Er skólakerfið á villigötum? 26.10.2025 42:55
Vegna þess hversu opin aðalnámskrá framhaldsskóla er þá er framhaldsskólum nánast í sjálfsvald sett hvaða hvaða námsefni er kennt og hvaða hæfni nemendur þurfa að sýna til þess að ljúka námi. Engu að síður kemur fram í námskránni að í kjarnagreinum skuli námsmat í lokaáföngum til stúdentsprófs taka mið af viðmiðunarprófum sem ráðherra lætur í té eða viðurkennir. Þessu ákvæði er ekki framfylgt. Við...
1. þáttur: Samræmi lítið sem ekkert 19.10.2025 41:59
Alls eru rúmlega 22 þúsund nemendur í þeim 30 framhaldsskólum sem eru starfandi á Íslandi. Menntamálayfirvöld hafa staðfest tæplega 400 mismunandi námsbrautir hjá þessum skólum og lítið samræmi er á milli skóla. Þetta torveldar gerð námsefnis þar sem enginn er að kenna það sama. Viðmælendur í fyrsta þættinum eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Atli Harðarson, Guðrún Helga Ástríðardóttir, H...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet