Mat Menn
Matmenn
Davið og Bjartur fara yfir allt sem tengjast matreiðslu á léttu nótunum og fær hlustendur til að fræðast og skella uppúr á sama tíma. Þættirnir verða gefnir út á hverjum föstudegi og eru þeir bæði í mynd og hljóði. Viðmælendur eru af ýmsum toga og koma þeir allir að mat á einn eða annan hátt. Þarna verður rætt við matreiðslumenn, þjóna, bakara, kjötiðnaðarmenn, slátrara, buttler, kennara, bændur, hótelstjórnendur, veitingamenn, þekkt fólk úr þjóðfélaginu og svo mætti lengi telja. Nóg er af sögum úr bransanum, og ætlum við að deila þeim með ykkur
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
#28 - Kjartan Vídó 16.09.2025 59:52
Kjartan Vídó er viðmælandi númer 28 hjá Matmönnum. Kjartan er einn af stofnendum The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum, sem er handverksbrugghús og ölstofa. Fyrirtækið var stofnað af Kjartani og vini hans, Jóhanni Guðmundssyni, árið 2012. Bræður þeirra, Hlynur Vídó og Davíð Guðmundsson, komu upphaflega inn í teymið og þar af leiðandi var nafnið The Brothers Brewery valið. Kjartan er yfir sölu- og...
#27 - Sigurður Gíslason 09.09.2025 1:12:38
Sigurður Gíslason er viðmælandi Matmanna að þessu sinni. Sigurður, eða Siggi Gísla eins og hann er oftast kallaður, er þaulreyndur matreiðslumaður og eigandi farsæla og vinsæla veitingastaðarins Gott í Vestmannaeyjum ásamt eiginkonu sinni, Berglindi Sigmarsdóttur. Hann er þekktur fyrir heilnæma matargerð, en þau hjónin hafa lagt mikla áherslu á að bjóða upp á hollan og heimatilbúinn mat. Allar só...
#26 - Gísli Mattías Auðunsson 02.09.2025 1:03:30
Gísli Matthías Auðunsson er viðmælandi Matmanna að þessu sinni. Gísli Matt eins og hann er oftast kallaður er matreiðslumaður, athafnamaður og talsmaður íslenskrar matarmenningar. Hann er þekktastur fyrir að hafa stofnað og rekið veitingastaðinn Slippinn í Vestmannaeyjum ásamt fjölskyldu sinni, en staðurinn hefur notið mikilla vinsælda og hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir nýstárlega matreiðslu...
#25 - Núllarinn 23.08.2025 1:07:29
Viðmælandi Matmanna að þessu sinni er Guðjón Þór Guðmundsson sem útskrifaðist árið 2001 sem matreiðslumaður, en hann lærði á Óðinsvé og í Viðey. Guðjón er matreiðslumeistari, viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri og eigandi fyrirtækis Núllarinn. Núllarinn er íslensk vefverslun sem sérhæfir sig í sölu á óáfengum drykkjum. Í versluninni er að finna fjölbreytt úrval af vörum, þar á meðal óáfenga bjóra...
#24 - Bara við tveir 15.08.2025 46:37
Matmenn koma hér sterkir inn og segja frá komandi uppákomum og plönum næstu mánuði. Davíð Hanssen og Bjartur Birkisson lýsa hér spenningi sínum yfir komandi viðburðum og skemmtilegar bransasögur slæðast með í þessu brosmilda spjalli þeirra. Hrist verður upp í þáttunum með nokkrum nýjungum á næstunni og gaman væri að fá að heyra í áheyrendum. Sendið endilega skilaboð á Matmenn Podcast á Facebook eð...
#23 - Yesmine Olsson 08.08.2025 1:20:04
Gestur 23. þáttar Matmanna er Yesmine Olsson en hún er matreiðslubókahöfundur, dansari, danshöfundur, einkaþjálfari og veitingamaður. Yesmine, sem er fædd á Srí Lanka en ólst upp í Svíþjóð, hefur búið á Íslandi í rúm 20 ár. Hún hefur haft mikinn áhuga á mat og matreiðslu frá unga aldri og hefur gefið út fjórar matreiðslubækur sem sumar hverjar hafa fengið alþjóðleg verðlaun. Yesmine hefur einnig h...
#22 - Erlendur Eiríksson 01.08.2025 1:04:13
Erlendur Eiríksson er fjölhæfur maður og með margþættan feril, en Davíð og Bjartur fengu Erlend til sín í heimsókn í 22. þátt Matmanna, þar sem hann mætti með smakk af einstaklega góðum grænkeraostum. Erlendur er faglærður matreiðslumeistari, flugmaður, leikari og með meistaragráðu í lögfræði svo eitthvað sé upp talið. Hann lærði kokkinn á Lækjarbrekku árin 1992 til 1995, og hefur unnið á fjölda v...
#21 - Jón Örn Stefánsson 24.07.2025 1:19:02
Jón Örn Stefánsson sem er þekktur matreiðslumeistari og eigandi Kjötkompaní mætir hér til leiks í 21. þátt Matmanna. Jón er fæddur á Ísafirði 28. apríl 1965 og flutti snemma til Hafnarfjarðar. Hann stofnaði Kjötkompaní í september 2009 og rekur nú þrjár verslanir (í Dalshrauni í Hafnarfirði, á Grandagarði og á Bíldshöfða) og einnig (kjötvinnslu og stóreldhús). Kjötkompaní er sælkeraverslun sem sér...
#20 - Valdís Ósk Margrétardóttir 18.07.2025 1:35:11
Valdís Ósk Margrétardóttir er tuttugasti viðmælandi Matmanna. Valdís er þriggja barna móðir og afskaplega skemmtileg, hún er faglærður framreiðslumaður og hefur starfað sem slíkur í mörg ár. Hún hefur unnið sem þjónn á Fosshótel Reykjavík og Gamla Bíó sem dæmi, en í dag er hún eigandi og framkvæmdarstjóri fyrirtækisins Viðburðarþjónar, en þar eru 70 manns á skrá og er fyrirtækið í sífelldum vexti....
#19 - Kristinn Bjarnason 11.07.2025 1:36:44
Kristinn Bjarnason er nítjándi viðmælandi okkar Matmanna, en hann er tveggja barna faðir og einn af eigendum North West Restaurant & Guesthouse í Víðigerði, þar sem hann og fjölskyldan hafa verið iðin við að byggja upp starfsemina undanfarinn 14 ár. Víðigerði er staðsett við Þjóðveg 1 í Víðidal í Húnaþingi vestra og hefur uppgangur staðarins kostað bókstaflega blóð,svita og tár. Þau vildu f...
#18 - Túri Hard Rock 04.07.2025 1:16:15
Arthur Pétursson matreiðslumeistari, yfirkokkur á Hard Rock Cafe Reykjavík og skáti í húð og hár er átjándi viðmælandi Matmanna. Arthur eða Túri eins og hann er betur þekktur, var yfirkokkur á stærsta Hard Rock stað í heimi sem staðsettur er í Orlando á Flórída. Sá staður tekur 1.040 manns í sæti og er sölumetið þar hvorki meira né minna en 11.800 máltíðir á einum degi. Áður en haldið var til B...
#17 - Rósakaffi 27.06.2025 56:39
Viðmælendur okkar í þessum sautjánda þætti Matmanna, eru hjónin Jóna Sigríður Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur og Guðmundur Magnús Níelsen garðyrkjumaður. Jóna er frá Vopnafirði þar sem hún ólst upp við bakstur í hópi kvennfélagskvenna og nýtir sér reynslu sína þaðan í fyrirtækinu sínu í dag sem ber heitið Rósakaffi og er í Hveragerði. Rósakaffi býður upp á kökuhlaðborð alla sunnudaga milli kl.14-...
#16 - Vilhjálmur Sveinn Guðmundsson 20.06.2025 1:09:38
Villi meistara kokkur er sextándi viðmælandi Matmanna að þessu sinni, en skírnarnafn hans er Vilhjálmur Sveinn Guðmundsson frá Reykjavík. Ferillinn hans byrjaði sem sextán ára piltur á Einar Ben í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann hóf samning sinn í matreiðslu til tveggja ára og kláraði svo seinni tvö árin á Hilton Hótel. Villi útskrifaðist með sveinsbréfið árið 2012 og fór svo að starfa á stöðum á b...
#15 - Simmi Vill 13.06.2025 1:48:01
Sigmar Vilhjálmsson , oftast kallaður Simmi Vill er fimmtándi viðmælandi Matmanna. Hann er mikill frumkvöðull, hefur skemmtilega sköpunargáfu og nóg af skoðunum á flestum málum. Simmi hefur verið iðinn við frumkvöðlastörf árum saman, eða allt frá því hann lauk skólagöngu sinni við Menntaskólann á Egilsstöðum. Í dag fæst hann við fyrirtækin Eldum gott, Mamma Mía, Kjötborðið, Brauðfélagið og Mínigar...
#14 - Ólöf Ólafsdóttir 06.06.2025 1:00:59
Ólöf Ólafsdóttir konditor er fjórtándi viðmælandi Matmanna. Ólöf lærði á sínum tíma hjá Hafliða Ragnarssyni í Mosfellsbakarí og eftir það fór hún að læra konditorinn hjá ZBC Zeland Business College í Danmörku. Ólöf var hluti af kokkalandsliðinu 2024 sem vann til glæsilegra verðlauna á Ólympíuleikunum (gull í Chef's Table, gull í Restaurant of Nations og þriðja sætið All Over). Þessi kraftakona...
#13 - Áslaug Ragnarsdóttir Thorarensen 30.05.2025 1:01:54
Áslaug Ragnarsdóttir Thorarensen er þrettándi viðmælandi okkar Matmanna. Hún lærði heimspeki í Oslóarháskóla, og er einnig uppeldis-og menntunarfræðingur frá Háskóla Íslands. Til að fjölga skírteinunum aðeins meira, fór hún líka í Make up og Beauty skólann í Reykjavík þaðan sem hún útskrifaðist sem förðunarfræðingur. Áslaug er eigandi og framkvæmdastjóri fiskvinnslunnar Djúpið sem staðsett og star...
#12 - Adam Helgason 23.05.2025 1:00:22
Í tólfta þætti Matmanna fengum við Adam Karl Helgason í skemmtilegt spjall. Adam sem er mikill matgæðingur, er best þekktur fyrir TikTok klippurnar sínar um mat og veitingastaði. Hann vinnur að frumkvöðlastarfi í fyrirtæki sem hann er meðeigandi að og ræðir meðal annars við okkur um það og það hvernig honum tókst að verða sá áhrifavaldur sem hann er orðinn í dag. Honum Adam er margt til lista...
#11 - Gabríel Kristinn Bjarnason 16.05.2025 1:01:15
Gabríel Kristinn Bjarnason er nýkrýndur kokkur ársins 2025 og er ellefti viðmælandi MatManna. Gabríel hefur verið iðinn við kokkakeppnir hérlendis og erlendis frá unga aldri, hann er einnig í kokkalandsliðinu og hefur gríðarlegan metnað til að komast í gullið í næstu heimsmeistara keppni. Í dag starfar hann hjá fyrirtækinu Fastus sem sölumaður, en Gabríel lærði á Geira Smart Restaurant. Að undan...
#10 - Siggi Pylsumeistari 09.05.2025 1:01:19
Sigurður Haraldsson er marg verðlaunaður kjötiðnaðarmeistari og einn af lífseigustu mönnum bransans, hann er tíundi viðmælandi Matmanna og hefur frá mörgu að segja. Siggi, eins og hann er gjarnan kallaður,rekur og á kjötvinsluna Kjötpól og einnig kjötbúðina Pylsumeistarann við Laugarlæk í Reykjavík, þar sem áhersla er lögð á gæðavörur og handverk í fremstu röð. Siggi hefur unnið til tuga verðlaun...
#9 - Beggi Bakari 02.05.2025 1:10:41
Ingibergur Sigurðsson er bakari og Íslandsmeistari í glímu, hann er níundi viðmælandi Matmanna og hefur frá ýmsu að segja. Beggi eins og hann er oftast kallaður, rekur og á Reykjavík Bakarí sem er heildsölu og framleiðslu bakarívinnsla. Þar er bakað fyrir veisluþjónustu fyrirtæki og bakarí. Beggi hefur starfað á Grand Hótel Reykjavík í tæplega 9 ára og sá um allan bakstur í því bakarí, einnig sá...
#8 - Jón Gísli Jónsson 25.04.2025 1:03:26
Jón Gísli Jónsson er viðmælandi Matmanna í þessum áttunda þætti okkar. Hann er faglærður kjötiðnaðarmaður og vinnur í dag sem verslunarstjóri hjá Kjötkompaní á Höfða. Hann er einnig landsliðs fyrirliði í kjötiðn en liðið er nýbúið að keppa í heimsmeistara kennini í París í þeirri grein. Jón Gísli útskrifaðist frá Menntaskóla Kópavogs árið 2015. Í dag heldur hann úti instagram síðunni @theicela...
#7 - Heiðrún Vínkona 18.04.2025 1:04:06
Heiðrún Mjöll Jóhannesdóttir er viðmælandi Matmanna í þessum sjöunda þætti okkar. Hún er faglærður framreiðslumaður og/eða þjónn eins og svo oft er sagt. Hún hefur lokið WSET 3 (Wine & Spirit Education Trust) og hefur margra ára reynslu í veitingageiranum. Í dag rekur hún, ásamt vinkonu sinni Brynhildi, fyrirtækið Vínvísar (vinvisar.is) þar sem þær mæta með vínsmökkun til fólks og fræða þáttt...
#6 - Snædís Xysa Mae Jónsdóttir 11.04.2025 49:51
Gestur Matmanna að þessu sinni er hin margverðlaunaði matreiðslumeistari Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, sem er nýtekin við sem yfirmatreiðslumaður á Fröken Reykjavík Kitchen og Bar. Hún er einnig þjálfari íslenska landsliðsins í matreiðslu. Snædís er sú yngsta sem hefur hlotið Cordon bleu orðu hjá Klúbbi matreiðslumeistara á Íslandi. Hún er í raun svakaleg afrekskona sem hefur mikinn keppnisferil að...
#5 - Jóhann Butler 04.04.2025 1:47:41
Jóhann Gunnar Arnarson sem kemur frá Akureyri er viðmælandi Matmanna. Í þessum þætti er farið yfir, hvað í ósköpunum butler gerir? Hann Jóhann útskrifaðist úr brytaskólanum „The International Butler Academy“ í Hollandi, sem sér hirðum konungsfjölskyldna í Hollandi, Jórdaníu og Sádi-Arabíu fyrir butler, ásamt því að reka öfluga ráðningarþjónustu.„Skólinn er rekinn í suðurhluta Hollands, rétt hjá Ma...
#4 - Emil Hallfreðsson 28.03.2025 42:17
Gestur Matmanna er að þessu sinni Emil Hallfreðsson fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta og einn af eigendum Olifa. Hér er rætt um líf Emils á Ítalíu og vörurnar sem hann flytur inn til landsins. Spurningin er, hefur Emil lent í ítölsku mafíunni og hver er uppáhalds maturinn hans, kanski Bjúga?
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet