Jón Knútur Ásmundsson

Malbik endar

Society IS ↓ 4 Folgen

Ég heiti Jón Knútur Ásmundsson. Ég er ljóðskáld, trommari, fjölskyldu- og skrifstofumaður á Reyðarfirði. Þetta hlaðvarp er persónuleg skrásetning hugmynda, samtala og athugana. Í þáttunum tala ég við fólk sem mér þykir áhugavert, velti fyrir mér fólki og samfélaginu, lífinu fyrir austan og stundum bara því sem er ofarlega í huganum hverju sinni. Hér er ekkert fast form eða fyrirfram ákveðin dagskrá. Malbik endar er fyrst og fremst gert fyrir mig sjálfan en öðrum er velkomið að hlusta.

Autor

Jón Knútur Ásmundsson

Kategorie

Society

Podcast-Website

podcasters.spotify.com

Neueste Folge

19. Apr 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

04 - Anna Berg Samúelsdóttir 19.04.2026

Anna Berg Samúelsdóttir býr á Reyðarfirði. Hún er að vinna í sjálfri sér eins og við ættum öll að vera að gera. Hún gerir það m.a. á samfélagsmiðlum en þar talar hún við „sjálfið sitt“ eins og hún orðar það og leyfir öðrum að sjá og heyra. Ég hélt í mörg ár að Anna Berg væri frænka mín en hún er það ekki. Það skiptir ekki máli. Við hittumst og áttum gott spjall um andlegu málin. Fórum á trúnú. Ég...

03 - Eva Jörgensen 14.03.2026

Viðmælendur mínir í þættinum eru tveir að þessu sinni. Í fyrsta lagi ræði ég við Evu Jörgensen, mannfræðing á Stöðvarfirði en seinna í þættinum ræði ég við Kimi Tayler, listamann, uppistandara og brauðbakara á Stöðvarfirði. Kimi og Eva búa saman á Stöðvarfirði og reka „Brauðdaga deighús“ sem er fyrsti - og hingað til sá eini - kostandi þessa hlaðvarps.

02 - Karitas Harpa Davíðsdóttir 14.02.2026

Viðmælandi minn er tónlistarkonan Karitas Harpa Davíðsdóttir. Við spjölluðum um daglegt líf á Reyðarfirði og æskuárin, en Karitas ólst upp sín fyrstu ár sem meðlimur í mormónakirkjunni. Við ræddum einnig söngvarakeppnina „The Voice Ísland“, sem hún sigraði fyrir nokkrum árum og varð landsfræg fyrir vikið.

01 - Hlynur Sveinsson 02.02.2026

Í fyrsta þætti Malbik endar ræði ég við Hlyn Sveinsson í Neskaupstað. Hlynur er sannkallaður landstólpi og lykilmaður í Neskaupstað. Sá sem mætir þegar eitthvað þarf að gerast og græjar hluti sem enginn annars gerir. Ég sagði honum - og meinti það - að hann ætti að vera á borgaralaunum. Getum við farið af stað með undirskriftarlista? Hlynur er á tímamótum. Hættur í vinnunni en veit ekki hvað hann...

Höre den Podcast Malbik endar in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet