Halli

Labbitúr

Arts IS ↓ 31 Folgen

Labbitúr er podcast þar sem Halli fer í labbitúr með skapandi einstaklingum.

Autor

Halli

Kategorie

Arts

Podcast-Website

www.buzzsprout.com

Neueste Folge

11. Nov 2025

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Labbitúr: Ragga Gísla 11.11.2025

Ragga Gísla um feimnina, höggborinn, Grýlurnar og að setja mótlæti á færiband út í geiminn Ragnhildur Gísladóttir hefur verið ein af skærustu stjörnum íslenskrar tónlistar í áratugi – bæði sem sólólistamaður og með hljómsveitum á borð við Brunaliðið, Grýlurnar og Stuðmenn. Hún hefur sungið þjóðhátíðarlög, samið tilraunakennd verk og lifað í takt við tónlistina nánast frá því hún man eftir sér. Í v...

Labbitúr: Ólafur Egilsson 04.11.2025

Óli Egils um áfengi, Bubba, fjölskylduna og leikinn sem lögmál Ólafur Egill Egilsson hefur komið víða við – sem leikari, leikstjóri og handritshöfundur. Hann hefur leikið í klassískum kvikmyndum eins og Einkalífi , skrifað og leikstýrt á sviðum borgarinnar og nýlega snert hjörtu landsmanna með verkinu Níu líf Bubba , sem hann skrifaði og setti á svið í Þjóðleikhúsinu. Í viðtali við Halla fer hann...

Labbitúr: Friðgeir Einarsson 28.10.2025

Friðgeir Einarsson hefur komið víða við á íslenskum menningarpalli síðustu ár – sem leikari, leikstjóri, rithöfundur og skaupshöfundur. Í nýjasta þætti Labbitúrs ræðir hann við Halla um það að vilja stjórna öllu… en líka sleppa takinu. Og að skrifa sér hlutverk sem eru svolítið gremjuleg . Eins og hann segir sjálfur: „ Ég er kannski bara í svona góðri æfingu að nota einhverja svona karakterbresti...

Labbitúr: Bragi Valdimar 21.10.2025

Bragi Valdimar Skúlason hefur verið hluti af lífi þjóðarinnar í meira en tvo áratugi. Með skop, söng, framkomu á skjá og smekkleysu að eigin sögn. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hann um götur borgarinnar með Halla þar sem þeir ræða allt frá þungarokki og jólalögum yfir í íslenskuna og gervigreind. Það sem byrjaði sem tæknitilraun um aldamótin hefur á undarlegan hátt þróast í eitt vinsælasta jóla...

Labbitúr: Sigtryggur Baldursson 14.10.2025

Sigtryggur Baldursson hefur lifað tónlistarlífi sem fæstir geta státað af. Hann var einn af stofnmeðlimum Sykurmolana, sveit sem setti Ísland á heimskortið þegar hún hitaði meðal annars upp fyrir U2 á sínum tíma. Í dag sinnir hann starfi hjá Tónlistarmiðstöðinni, leiðir verkefni sem styðja íslenska tónlist um allan heim og segir tónlistarbransann bæði fallegan og óútreiknanlegan. Halli  gekk með S...

Labbitúr: Edda Björgvinsdóttir 07.10.2025

Edda Björgvinsdóttir, ein ástsælasta og áhrifamesta leikkona landsins, tók þátt í nýjasta þætti hlaðvarpsins Labbitúr þar sem hún gekk um götur Reykjavíkur með Halla. Þar ræðir hún opinskátt um leiklistina, sorgina, ástina, húmorinn – og að orkan sé loksins komin aftur. „ Ef hláturinn er ekki í lífinu þá á að ná í hann .“ Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá...

Labbitúr: Ingvar E. Sigurðsson 30.09.2025

Ingvar E. Sigurðsson, einn virtasti leikari Íslandssögunnar, rölti nýverið með Halla meðfram sjónum. Þar deilir hann dýrmætum viskuperlum, myndrænum líkingum og persónulegum sögum af löndum og farsælum ferli á sviði, í þáttum og kvikmyndum. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þe...

Labbitúr: Ásgeir Trausti 22.09.2025

Ásgeir Trausti er einn af ástsælustu tónlistarmönnum Íslands, bæði heima og erlendis. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hann með Halla um götur Reykjavíkur og spjallar opinskátt um ferilinn, fjölskylduna, streaming-kerfið og draumana sem enn lifa. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsý...

Labbitúr: Saga Garðarsdóttir 15.09.2025

Saga Garðarsdóttir er ein ástsælasta leikkona og uppistandari þjóðarinnar. Hún hefur náð einstökum árangri í sviðslistum og grínheiminum með sinn persónulega, hráa og oft hjartnæma stíl. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hún með Halla um vesturbæinn og spjallar hispurslaust um fjölskyldulíf, frægð og sjálfstraustið sem fylgir sviðinu – og hvað það er erfitt að semja brandara. Komdu í Labbitúr með H...

Labbitúr: Baltasar Kormákur 09.09.2025

Baltasar Kormákur þarf vart að kynna. Hann er líklega þekktasti kvikmyndaleikstjóri Íslandssögunnar, með feril sem spannar íslenskar kvikmyndir, stórmyndir frá Hollywood og eigin kvikmyndaver – RVK Studios – sem hefur sett Ísland á heimskort kvikmyndagerðar. Í þessum þætti labbar hann með Halla um stúdíóið sem sem hann byggði og fer yfir ævi, áhrif og ólíka fasa í sínum stórbrotnu ferli. Komdu í L...

Labbitúr: Elísabet Ronaldsdóttir 02.07.2025

Elísabet Ronaldsdóttir hefur unnið að sumum stærstu kvikmyndum síðari ára. Hún hefur klippt myndir á borð við John Wick, Atomic Blonde, Deadpool 2, Bullet Train og nýverið Fall Guy og Nobody 2.  Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hún um götur Reykjavíkur með Halla og ræðir um kvikmyndagerð, fjölskyldulíf og hvernig það er að standa bak við tjöldin í Hollywood. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem ska...

Labbitúr: Mugison 25.06.2025

Í nýjasta þætti Labbitúrs rölta Halli og tónlistarmaðurinn Mugison saman um götur Reykjavíkur.  Mugison, sem heitir réttu nafni Örn Elías Guðmundsson, segir frá óvenjulegum uppruna listamannsnafnsins síns, fyrstu skrefum í tónlist og hvernig lífið hefur tekið stakkaskiptum í gegnum árin. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppi...

Labbitúr: Benedikt Erlingsson 18.06.2025

Benedikt Erlingsson, leikari, leikstjóri og rithöfundur, er nýjasti gesturinn í Labbitúr með Halla. Þeir félagar röltu saman um götur miðbæjarins, í samtali sem flæddi milli listrænnar sköpunar, fjölskyldusögu, gamansemi og tilverunnar sjálfrar – í anda þáttarins þar sem hugmyndir og orð fylgja gönguskrefum. Benedikt, sem hóf feril sinn í grínþáttunum Fóstbræður árið 1997 og hefur síðan þá vakið a...

Labbitúr: Gerður Kristný 11.06.2025

Í þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Halli til sín rithöfundinn Gerði Kristný. Gerður hefur verið einn afkastamesti og virtasti rithöfundur landsins undanfarin ár og gefið út ekki aðeins bækur heldur ljóð, leikrit og annað efni.  Verk hennar eru kennd bæði í grunn- og framhaldsskólum og hefur hún hlotið ótal viðurkenningar innan sem utan landsteina, nú síðast Norsku Alfred Anderson-Ryssts bókm...

Labbitúr: Bubbi Morthens 04.06.2025

Í þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Hallitil sín tónlistar- og alhliðalistamanninn Ásbjörn “Bubba” Morthens. Bubbi hefur verið einn fremsti tónlistarmaður þjóðarinnar alveg frá útgáfu sinnar fyrstu plötu, Ísbjarnarblús, árið 1980. Hann hefur ekkert gefið eftir á undanförnum 45 árum enda fáir sem jafnast á við útgefinn lagafjölda og segist Bubbi enn semja eitthvað á hverjum degi. Viðtalið býðu...

Labbitúr: Hafsteinn Gunnar Sigurðsson 28.05.2025

Í þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Halli til sín leikstjórann og handritshöfundinn Hafstein Gunnar Sigurðsson. Hafsteinn hefur á undanförnum árum stimplað sig inn sem einn fremsti leikstjóri landsins með verk á borð við París Norðursins og Undir Trénu á ferilskránni ásamt því að vinna til 16 verðlauna. Samtal þeirra er mjög skemmtilegt og dregur fram krefjandi heim upprennandi kvikmyndargerð...

Labbitúr: Lóa Hjálmtýsdóttir 21.05.2025

Í þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr Halli til sín listakonuna Lóu Hjálmtýsdóttur. Það er nánast ómögulegt að setja aðeins einn hatt á Lóu en hún er í tónlist, teiknar myndasögur, málar og margt fleira.  Í þessum þætti eiga þessir vinir mjög skemmtilegt spjall sem fer um víðan völl um allt og ekkert. Þau ræða stofnun sundlaugagarða á Íslandi, breytingu á svartsýnu viðhorfi og hve lengi hún hefur v...

Labbitúr: Erpur Eyvindarson 14.05.2025

Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Halli til sín tónlistarmanninn Erp Eyvindarson, betur þekktan sem BlazRoca. Í þessu einlæga og skemmtilega spjalli rifja þeir upp feril Erps, áhrif hans á íslensku rappsenuna, og hvernig ferðalög og dýralíf hafa mótað lífsviðhorf hans. Erpur byrjaði snemma að feta sig inn á brautina sem hefur gert hann að einum af mikilvægustu listamönnum Íslands. Hann rif...

Labbitúr: Andri Snær Magnason 07.05.2025

Í nýjasta þætti Labbitúrs ræðir Halli við rithöfundinn Andra Snæ Magnason, sem hefur verið í fremstu röð íslenskra listamanna í yfir tvo áratugi. Í opinskáu samtali lýsir Andri Snær hvernig sköpunarferlið getur verið þunglamalegt, stundum nánast óbærilegt – en jafnframt gefandi og nauðsynlegt. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara o...

Labbitúr: KK 30.04.2025

Í nýjasta þætti Labbitúrs fær Halli til sín einn fremsta tónlistarmann þjóðarinnar, Kristján Kristjánsson sem er mun betur þekktur undir listanafni sínu KK. Hann hefur verið virkur tónlistarútgefandi frá árinu 1991 og unnið til tveggja verðlauna á íslensku tónlistarverðlaununum.  Þessi jarðbundni listamaður lítur ekki stórt á sjálfan sig og gerir lítið úr afrekum sínum þó hann viðurkenni að njóta...

Labbitúr: Halldóra Geirharðsdóttir 09.04.2025

Í nýjasta þætti Labbitúrs fær Halli til sín einn ástsælasta leikara þjóðarinnar, Halldóru Geirharðsdóttur. Halldóra hefur um áratugaskeið verið stórt nafn í íslenskri leiklist og kvikmyndagerð – allt frá Englum alheimsins til Konu fer í stríð .  Í viðtalinu fer hún yfir langan og litríkann feril, en einnig yfir persónuleg tímamót í lífi sínu og nýjar áherslur. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem s...

Labbitúr: Ari Eldjárn 02.04.2025

Ari Eldjárn einn vinsælasti grínisti Íslands fyrr og síðar er viðmælandi vikunnar í Labbitúr með Halla. Í þættinum fara þeir félagar hvernig hann slysaðist hálfpartinn í Uppistandið, þá sem hafa veitt Ara innblástur og hvernig lífið breyttist eftir útgáfu Pardon my Icelandic uppistandsins á Netflix. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórlei...

Labbitúr: Gunnar Hansson 26.03.2025

Í nýjasta þætti Labbitúrs með Halla, ræðir leikarinn Gunnar Hansson um líf sitt og störf í leiklist, bæði á Íslandi og í samanburði við önnur lönd. Hann lýsir starfi leikarans hérlendis sem bæði krefjandi og einstaklega fjölbreyttu.  Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hu...

Labbitúr: Auður Jónsdóttir 19.03.2025

Í þætti vikunnar af Labbitúr í stjórn Haralds “Halla” Þorleifssonarer gesturinn Auður Jónsdóttir. Auður er metsölurithöfundur og blaðamaður sem hefur gefið út 15 skáldsögur, smásögur og barnabækur utan fjölda greina fyrir Heimildina. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bókina sína Fólkið í kjallaranum . Í þættinum fer Auður yfir æsku sína og leiðina sem leiddi til farsæls ferils sem rithö...

Labbitúr: Árni Rúnar 12.03.2025

Í nýjasta þætti Labbitúrs ræðir Halli við tónlistarmanninn Árna Rúnar Hlöðversson, einn af stofnendum FM Belfast. Árni hefur verið lykilmaður í íslensku raftónlistarsenunni í rúm tuttugu ár, en FM Belfast vakti fyrst athygli á Iceland Airwaves árið 2006. Síðan þá hefur bandið verið þekkt fyrir orkuríka sviðsframkomu og einstakan stíl sem blandar saman rafpoppi, danstónlist og óbilandi gleði. Komdu...

Höre den Podcast Labbitúr in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet