RÚV Hlaðvörp

Krakkaheimskviður

Kids IS ↓ 96 Folgen

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar. Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir Ritstjórn: Birta Björnsdóttir, Karitas M. Bjarkadóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: shows.acast.com

Autor

RÚV Hlaðvörp

Kategorie

Kids

Podcast-Website

shows.acast.com

Neueste Folge

17. Okt 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Allt um Nóbelsverðlaunin 11.10.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviðu beinum við sjónum okkar að Nóbelsverðlaununum. Hvað eru þau eiginlega, hverjir eru vinningshafar Íslands og hver fá þau þetta árið? Allt um Nóbelsverðlaunin í þætti dagsins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Gervigreindarráðherra í Albaníu 04.10.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas nýjasta ráðherra Albaníu, sem er gervigreindarforrit. Hvað er gervigreind eiginlega, hvernig virkar hún og hvernig getur hún verið ráðherra? Hafsteinn Einarsson, dósent við Háskóla Íslands, svarar þeim spurningum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Vaxandi andúð gegn innflytjendum og eru einhverjar jákvæðar fréttir? 27.09.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða reynum við að svara spurningunum hvers vegna Ástralir og Bretar hafa haldið stóra mótmælafundi síðustu helgar og hvað mótmælendurnir vilja? Í seinni hluta þáttarins leitum við svo uppi jákvæðar fréttir úr heimsmálunum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Óeirðir og valdaskipti í Nepal 20.09.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða eru óeirðir og valdaskipti í Nepal til umfjöllunar. Fyrir hverju börðust nepalskir mótmælendur og hvernig er hægt að kjósa forsætisráðherra á Discord? Karitas kafar í aðdraganda óeirðanna, hvað það var sem gerðist og hvernig framhaldið í Nepal verður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þingkosningar í Noregi 13.09.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas nýafstaðnar þingkosningar í Noregi ásamt fréttamanninum Hallgrími Indriðasyni. Kjötbolluvísitala, krakkakosningar og kosningakerfi Norðmanna eru helstu umfjöllunarefni þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Fyrsti þáttur vetrarins og helstu fréttir sumarsins 06.09.2025

Í þessum fyrsta Krakkaheimskviðuþætti vetrarins fer Karitas yfir helstu fréttir sumarsins með aðstoð fréttamannsins Birtu Björnsdóttur. Verkefnalisti Trumps, staðan á Gaza og ritstjóraskipti Vogue eru meðal þess sem þátturinn í dag beinir sjónum sínum að. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Ofsaveður og umhverfismál 14.06.2025

Í þessum síðasta Krakkaheimskviðuþætti vetrarins langar Karitas að komast að því af hverju ofsaveður og fellibyljir heita mannanöfnum og hvernig óveður myndast. Henni til aðstoðar er veðurfræðingurinn Katrín Agla Tómasdóttir. Í seinni hluta þáttarins er umhverfis- og aðgerðarsinninn Greta Thunberg í aðalhlutverki. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Forsetakosningar í Póllandi 07.06.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fjallar Karitas um Pólland og nýafstaðnar forsetakosningar þar í landi. Henni til halds og trausts er fréttamaðurinn Margrét Adamsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hraðtíska, ofneysla og fatafjöllin sem við hendum 31.05.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða er hraðtískuheimurinn og ofneysla mannanna til umfjöllunar. Karitas ræðir við Ester Öldu, sérfræðing hjá Umhverfis- og orkustofnun og Gunnar Dofra hjá Sorpu um hvað það er sem við hendum, hvernig við getum hent minna og hvað verður um fötin sem við viljum ekki lengur nota. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Bakslag í réttindabaráttu trans fólks 24.05.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fjöllum við um aðför að réttindum trans fólks. Hvers vegna er verið að banna trans konum að keppa í íþróttum og hver ræður hvaða klósett fólk má nota? Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir eru gestir þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Saga Indlands og Pakistan 17.05.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fjallar Karitas um átökin um Kasmír-héraðið. Hvað er að gerast milli Indlands og Pakistan og hver er saga þessara tveggja landa? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Eurovision-upphitun Krakkaheimskviða 10.05.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða hitar Karitas upp fyrir komandi Eurovision-viku með aðstoð þeirra Gunnu Dísar, þular Eurovision þetta árið og Sigga Gunnars, útvarpsmanns og fyrrum kynni Söngvakeppninnar. Hvernig gengur hópnum úti og hvað er svona merkilegt við Eurovision? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

80 ár frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar í Evrópu 03.05.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða rýnir Karitas í seinni heimsstyrjöldina, en í næstu viku eru 80 ár frá lokum stríðsins í Evrópu. Hvað var merkilegt við þetta stríð og hvað getum við lært af því? Vera Illugadóttir, dagskrárgerðarkona á Rás 1, er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Skjálftarnir í Mjanmar 26.04.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas jarðskjálftana sem urðu í Mjanmar í lok mars og hverjar afleiðingar þeirra urðu. Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdarstjóri Rauða krossins á Íslandi gefur innsýn inn í björgunaraðgerðir og samstarf erlendra björgunarsveita við herforingjastjórnina í landinu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Súkkulaðiskortur og súkkulaðiát á páskum 17.04.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas hinn svokallaða súkkulaðiskort. Hvaða áhrif hefur hann á páskana og hvers vegna borðum við súkkulaðiegg á páskadag? Forstjóri Nóa Siríus, Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, útskýrir hvernig framleiðsla páskaeggja virkar og hvað er svona merkilegt við íslensk páskaegg.   Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hvað eru tollar og tollastríð? 12.04.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða kafar Karitas ofan í stærstu fréttir vikunnar: Tolla Trump. Henni til aðstoðar eru fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson og fréttamaðurinn Birta Björnsdóttir. Hvað eru tollar, af hverju eru allir að tala um þá og hvaða áhrif hefur þetta nýjasta útspil Bandaríkjaforseta? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Kosningar í hinum ýmsu löndum 05.04.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas kosningar í fjórum löndum, Þýskalandi, Grænlandi, Kanada og Noregi, með aðstoð fréttamannanna Odds Þórðarsonar og Hallgríms Indriðasonar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Uppruni eftirnafna og staða þeirra í Færeyjum 29.03.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas eftirnöfn. Af hverju eru Færeyingar í auknum mæli að breyta eftirnöfnum sínum og hvernig virka eftirnöfn almennt? Í þætti dagsins skoðum við mismunandi nafnahefðir milli landa og hvernig þær breytast í tímans rás. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Asil og staðan í Gaza 22.03.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas hvað er að gerast á Gaza og hvernig er að vera barn þar? Við kynnumst líka hinni 18 ára Asil sem er frá þessu stríðshrjáða svæði en býr nú á Íslandi.  Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Einbirnisstefnan í Kína 15.03.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas fólksfækkun í Kína. Lengi vel mátti bara eignast eitt barn þar í landi en nú hafa stjórnvöld þurft að breyta því. Af hverju er það?  Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Heimsmeistaramótið í skíðagöngu 08.03.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fer Karitas á heimsmeistaramótið í skíðagöngu í Þrándheimi. Með henni í þættinum í dag er íþróttafréttamaðurinn Gunnar Birgisson, sem er ansi fróður um íþróttina, enda var hann sjálfur í landsliðinu í skíðagöngu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Trump um Grænland og meira NATO 01.03.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða svarar Karitas seinni tveimur spurningunum frá 6. bekk í Brekkuskóla sem að þessu sinni velta fyrir sér hugmyndum Trumps um að kaupa Grænland og framtíð NATO. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Flugslysið í Washington 22.02.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða svarar Karitas fyrstu hlustendaspurningunni. Hún kemur frá 6. bekk í Brekkuskóla sem vill vita hvað gerðist þegar farþegaþota og herþyrla skullu saman í Washington í lok janúar með þeim afleiðingum að 67 manns létust. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þjóðhátíðardagur Sama og uppruni Valentínusardagsins 15.02.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur Sama, þjóðflokkinn sem byggir norður-Noreg, Svíþjóð, Finnland og Rússland en þjóðhátíðardagur Sama var 6. febrúar. Í seinni hluta þáttarins höldum við okkur við dagatalið og skoðum uppruna Valentínusardagsins, sem var á föstudaginn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Verðlaunahátíðir og leðurblökur 08.02.2025

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðuðm við verðlaunahátíðir í Bandaríkjunum með fréttakonunni Ingibjörgu Söru Guðmundsdóttur. Síðustu helgi fór ein sú virtasta fram, tónlistarverðlaunin Grammy, þar sem Íslendingurinn Víkingur Heiðar Ólafsson fékk fyrstu verðlaunin sín. Í seinni hluta þáttarins kynnum við okkur leðurblökur og heyrum frá dýraáhugakonunni Veru Illugadóttur. Hosted on Acast. See acas...

Höre den Podcast Krakkaheimskviður in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet