Selma Hafsteinsdottir

Allt um ættleiðingar

Kids IS ↓ 30 Folgen

Þetta podcast er um allt sem tengist ættleiðingu og þeim stórkostlega heimi. Ég heiti Selma og er sjálf hluti af þessum heimi þar sem ég og maðurinn minn ættleiddum son okkar frá Tékklandi árið 2016. Ættleiðingarheimurinn á hug minn allan, þetta er heimur sem ég vil að sé sýnilegri og umræðan opin um allt sem tengist ættleiðingum. Í þessu podcasti verða sagðar ættleiðingarsögur, reynslusögur og allskonar fróðleikur um þennan stórkostlega ættleiðingar heim!

Autor

Selma Hafsteinsdottir

Kategorie

Kids

Podcast-Website

rss.com

Neueste Folge

4. Mai 2024

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Mæðginin Maya Jill Einarsdóttir og Friðrik Agni Árnasson - Maya er fyrsta ættleidda barnið á Íslandi og Friðrik gerði þættina um móður sína sem heita; Ugla sat á kvisti, móðuróður 04.05.2024

Friðrik Agni Árnasson og Maya Jill Einarsdóttir Maya er fyrsta ættleidda barnið sem kom til Íslands frá Indlandi árið 1969 og sonur hennar Friðrik gerði útvarpsþætti um söguna hennar Mayu en þættirnir eru tveir og heita: Ugla sat á kvisti: Móðuróður Þættirnir segja alla söguna hennar Mayu og gerir Friðrik þetta lista vel með því að flétta inn sögu ömmu sinnar inn í sögu Mayu. En Maya var ættleitt...

Fanney Ýr Gunnlaugsdóttir - Ættleidd frá Sri lanka 04.05.2024

Fanney Ýr Gunnlaugsdóttir - Er ættleidd frá Sri Lanka En árið 2021 hóf hún leitina af uppruna sínum og sú saga er hreint út sagt ótrúleg. Eftir tvegga vikna leit fannst blóðmóðir hennar og hafa þær verið í góðu sambandi alveg síðan þá, fyrst í gegnum síma og facetime og seinna fór hún í ferðalagið til Indlands og hitti blóðfjölskyldu sína. Fanney er móðir og býr á Akranesi ásamt eigin manni sínum....

Sigurður Hólm Gunnarsson - ráðgjafi hjá Sjónarhóli - talar um einelti, Sjónarhól, baráttuna við þunglyndi, ofsakvíða ofl. 11.03.2024

Sigurður var lagður í mikið og langvarandi einelti í grunnskóla, á þeim tímum var hugtakið einelti varla til og lítið sem ekkert gert í þeim málum. Hann hefur notað sína erfiðu lífreynslu til þess að hjálpa öðrum í gegnum tíðina, en afleiðingar eineltis fylgja manni ævilangt. Hann gaf út heimildarmyndina Einelti helvíti á jörðu árið 2002 sem notuð er ennþá sem fræðsluefni í skólum.  Sigurður...

Gunnar Dan Wiium og konan hans ættleiddu dóttur sína frá Indlandi í gegnum Danska ættleiðingarstofu 09.03.2024

Gunnar og konan hans bjuggu í Danmörku og fóru í gegnum ættleiðingarferlið þar í landi. Þau ættleiddu dóttur sína frá Indlandi árið þegar hún var um þriggja ára gömul. Í þættinum ræðum við um söguna þeirra, ferðalagið til Indlands og þær hindranir og áskoranir sem áttu sér stað í ferðalaginu. Við tölum um baráttu hans við fínkisjúkdóm, Breytingaskeið karla og kanóbíóða olíur til að styðja við taug...

Svava Brooks - Stofnandi Blátt áfram samtök um forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum, hún er TRE leiðbeinandi og ráðgjafi. 01.03.2024

Svava Brooks er löggiltur TRE® þjálfari þar sem hún vinnur með líkamann, taugakerfið og áföll. Hún er einnig Reiki heilurnar meistari og Yoga kennari. Svava átti erfiða æsku, hún lennti í kynferðisofbeldi að hálfu stjúpföður sínum. Hún segir okkur sögu sína og hvernig hún nýtti þessa hræðilegu lífsreynslu til góðs með því að stofna samtökin Blátt áfram með því markmiði að vekja athygli á kynferðis...

Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir - er ættleidd frá kína og segir sína sögu 29.02.2024

Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir Var ættleidd frá Kína þegar hún var aðeins 14 mánaða gömul. Í dag er hún 21 árs og er að læra Íslensk fræði við háskóla Íslands Í þættinum förum við út um allar trissur, hún segir sína ættleiðingarsögu og uppruna, æskuárin, tölum um fordóma á íslandi og margt fleira Hrafnhildur er háskólanemi, ótrúlega einlæg og skemmtileg

Berglind Ósk Þórólfsdóttir - segir sína sögu 29.02.2024

Berglind Ósk Þórólfsdóttir og Friðrik maðurinn hennar hafa verið á biðlista eftir barni frá Tékklandi í nokkurn tíma. Þau eiga tvö börn fyrir og hefur barneignarferlið ekki verið dans á rósum. Þau hafa því miður átt átakalega reynslu á biðlista í Tékklandi, þau voru pöruð við barn og rétt áður en þau áttu að fara út til Tékklands að sækja draumabarnið en þá var pörunin tekin tilbaka. ástæðan fyrir...

Jónína Sigurðardóttir - uppeldisfræðingur og menntunarfræðingur - Við ræðum um skólaforðun ofl. 09.02.2024

Jónína Sigurðardóttir er verkefnastjóri á menntavísindasviði háskóla íslands Hún er uppeldis og menntunarfræðingur og hefur m.a. Starfað sem ráðgjafi fyrir börn og fjölskyldur vegna skólaforðunar. Í þættinum ræðum við um skólaforðun og leiðir til aðstoðar í þeim efnum. Við tölum um forvarnastarf ungmenna, kulnun, leiðir til betrunnar  og margt fleira. Jónína er geislandi gleðisprengja, hún er...

Kristín Skjaldardóttir ættleiddi son sinn frá Indlandi árið 2006 02.02.2024

Kristín Skjaldardóttir og maðurinn hennar ættleiddu son sinn frá Indlandi árið 2006. Það hefur ansi mikið breyst í ættleiðingarferlinu síðan þá og það var virkilega áhugavert að heyra hvernig ættleiðingin fór fram á þessum tíma. Hún segir okkur alla sólarsöguna um draumin þeirra að verða foreldrar sem síðan rættist, hún talar um fyrirbura einkenni barna og hvernig það getur haft gífuleg áhrif á ba...

Nýtt ár - Allskonar hugleiðingar um stöðu mála í ættleiðingarheiminum í dag. 02.02.2024

Ég ræði aðeins stöðu mála í ættleiðingarheiminum og tala um m.a. lífið á biðlista eftir barni ofl.

Ásmundur Einar Daðason - mennta- og barnamálaráðherra 11.07.2023

Ásmundur Einar Daðasson mennta og barnamálaráðherra brennur fyrir málefnum barna og velferð þeirra. Hann hefur sjálfur upplifað erfið uppvaxtarár og áföll í æsku. Hans framtíðarsýn á kerfinu hér á landi er sú að kerfið grípi börnin fyrr þannig að allir aðilar sem koma að barninu vinni saman að því markmiði að styðja við barnið og fjölskyldur þeirra. Þrepakerfið er nýtt kerfi og enn í þróun. Þrepak...

Steffi Gregersen - og maðurinn hennar ættleiddu þrjár systur frá Tékklandi árið 2015. Steffi segir þeirra mögnuðu sögu. 22.06.2023

Steffi Gregersen og maðurinn hennar ættleiddu þrjár systur frá Tékklandi árið 2015. Leiðin þeirra að barneignum var heldur betur löng og skrautleg og þegar litið er tilbaka á heildarmyndina þá púslaðist lífið þeirra saman á þann veg sem þeim var ætlað. Dásamlegu stelpurnar fengu þau í hendurnar þegar þær voru 5, 6 og 7 ára gamlar. Steffi er Flugmaður á þotu en vinnur núna á Flugdeild hjá Landhelgi...

Helga Pálmadóttir - segir sína sögu 09.06.2023

Helga Pálmadóttir og maðurinn hennar ættleiddu strákinn sinn frá Tékklandi í miðju Covid árið 2020 og var hann þá 3 ára gamall. Helga segir frá því þegar hún kynntist manninum sínum sem átti þá von á barni og varð hún þannig skyndilega móðir lítillar stúlku. hún talar um ferðalagið úti, heimkomuna, systkynakærleikinn og margt, margt fleira. Helga er hjúkrunarfræðingur og lýðheilsufræðingur og með...

Hulda Sólrún Guðmundsdóttir - Segir sína sögu 14.05.2023

Hulda Sólrún Guðmundsdóttir hefur farið tvisvar til Tékklands að ættleiða börnin sín. Hulda segir frá sögunni þeirra í svo mikilli einlægni. Strákinn eignaðist hún þegar hann var ný orðinn fjögurra ára gamall og stelpuna eignaðist hún stuttu seinna og var hún 3 ára gömul. Hún segir frá foreldrahlutverkinu eins og það er án allrar glansmyndar. Hún talar um muninn á barnaheimilunum, aðbúnaðinum þar...

Halldóra Lind Guðlaugsdóttir - segir þeirra mögnuðu sögu 01.05.2023

Halldóra Lind Guðlaugsdóttir og maðurinn hennar eiga fjóra stráka, en barneignarferlið þeirra hefur verið ansi skrautlegt og sagan þeirra er vægast sagt mögnuð. Þau hófu ættleiðingarferlið og voru á biðlista úti í Tékklandi, en innsæið hennar Halldóru vísaði veginn í aðra átt. Þau fóru fósturfjölskyldu leiðina og fengu fyrsta strákin sinn í hendurnar þegar hann var 5 mánaða, nokkrum árum síðar fen...

Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir - Tvö heimili - Tölum m.a. um tengsl, velferð barna, samsipti foreldra á tveimur heimilum, ræðum leiðir til að róa taugakerfið og margt fleira! 21.04.2023

Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir er félagsráðgjafi og starfar sem teymisstjóri í ráðgjafar og meðferðarteymi á geðheilsumiðstöð barna, ásamt því að vera ráðgjafi og eigandi Tveggja heimila. Ragnheiður er reynslubolti í faginu að starfa með börnum og fjölskyldum þeirra, hún hefur mikinn áhuga á tengslum og tengslahegðun. Hún gjörsamlega brennur fyrir réttindum barna og velferð þeirra. Ragnheiður er m...

Anna Sigrún Jóhönnudóttir - segir þeirra mögnuðu sögu! 15.04.2023

Anna Sigrún Jóhönnudóttir og maðurinn hennar ættleiddu tvíburra frá Tékklandi árið 2017 þegar þau voru 20 mánaða gömul. Hún segir frá ferðalaginu til Tékklands, sjokkinu með símtalið um tvíburra, öðru sjokki með óvæntri óléttu nokkrum árum síðar. hún talar um heilsufar missi vegna álags og hvernig heilsan hrundi eftir að hafa farið áfram á hnefanum og hundsað viðvörunarmerkin. Hún segir frá því hv...

Unnur Björk Arnfjörð - Ættleiddi þrjá stráka frá Tékklandi - hún segir frá þeirra mögnuðu sögu 06.04.2023

Unnur Björk Arnfjörð og maðurinn hennar ættleiddu þrjá bræður frá Tékklandi, þeir voru þá orðnir 2, 3,5 og 5 ára gamlir á barnaheimilinu Most. Aðlögunin tók tíma og bjuggu þau nýbakaða fjölskyldan saman á barnaheimilinu í 16 daga og hafa þau hjónin því mjög mikla innsýn inn í þennan erfiða veruleika sem ættleiddu börnin okkar koma frá. Ferðalagið þeirra var ansi skrautlegt og þurftu þau m.a. Að bú...

Ása Nishanthi Magnúsdóttir - segir sína mögnuðu sögu 02.04.2023

Ása Nishanthi Magnúsdóttir er ættleidd frá sri lanka og var eins mánaða gömul þegar hún kom til landsins. Hún hefur farið í leitina að upprunanum en leitin bar því miður engann árangur. Nú er komið í ljós að ættleiðingarskjölin hennar eru fölsuð og engin leið fyrir hana að vita um uppruna sinn. Ása hefur gegnið í gegnum mikil áföll á sinni lífsleið, hún segir frá lífi sínu og öllum áskorunum. Ása...

Svandís Sigurðardóttir - og maðurinn hennar ættleiddu strákinn sinn frá Tékklandi sem var þá hjá fósturfjölskyldu. 23.03.2023

Svandís Sigurðardóttir og maðurinn hennar Jóhann Már Andersen fóru til Tékklands í miðju Covid að sækja strákinn sinn sem var þá hjá fósturfjölskyldu. Hún segir frá þeirra ættleiðingar sögu og það var virkilega áhugavert að heyra hvernig aðlögun fer fram þegar maður ættleiðir frá fósturfjölskyldu, en það er verið að reyna að innleiða þessa aðferð hjá tékklandi í dag og langtíma stefnan er að afnem...

Laila Björnsdóttir - Ættleiddi son sinn frá Togo 12.03.2023

Laila ættleiddi strákinn sinn frá Togo - hún segir frá sinni vegferð að eignast draumabarnið sitt en sú vegferð hefur verið ansi átakanleg. En hún segir frá því hræðilega áfalli þegar hún missti dóttur sína, komin 40 vikur á leið og þurfti að fæða andvana barn. Hún segir frá ferðalaginu til Togo og frá yndislega stráknum sem hún eignaðist og öllum tilfinninga rússíbananum sem fylgir ættleiðingarfe...

Brynja Dan Gunanrsdóttir - Segir frá sínu lífi - leitin að upprunanum 03.03.2023

Brynja Dan segir frá sinni sögu, leitina að upprunanum, eftirmála leitarinnar, pólitíkina, loppulífið, móðurhlutverkið og margt fleira! Hún hefur gengið í gegnum mikla erfiðleika á stuttri ævi en viðhorf hennar til lífsins er einstakt og notar hún tækifærin sín og platform til góðs. Hún brennur fyrir velferð barna og hefur það frá móður sinni sem deildi sömu ástríðu. Brynja er algert ofurkvendi, r...

Heiða Þorleifsdóttir - Segir frá ættleiðingarferlinu í Kína - ættleiðingarþunglyndi - PMTO tengslamiðuð foreldrafærni 27.02.2023

Heiða Þorleifsdóttir ættleiddi dóttur sína frá Kína þegar hún var 18 mánaða gömul, fyrir átti hún dóttur sem kom með í ferðalagið mikla sem var þá 7 ára. Hún segir frá ferðalaginu til Kína og hvernig ættleiðingin fór fram þar í landi, hún segir frá áskorunum og tengslamynduninni og lífinu eftir ættleiðinguna. Hún segir okkur frá ættleiðingarþunglyndi og ritgerð sem hún gerði um það málefni árið 20...

Ragnheiður Helgadóttir - segir frá sinni sögu og hennar vegferð að verða móðir 20.02.2023

Ragnheiður er ættleidd frá Sri Lanka. Hún segir frá sinni sögu hvernig fjölskyldan sameinaðist. Hún talar um æskuna sína og lífið. Hún hefur heldur betur þurft að ganga í gegnum dimma dali til þess að verða móðir sjálf en hún talar um ófrjósemina og hennar vegferð að verða móðir. Ragnheiður er ótrúlega einlæg og smitar út frá sér jákvæðni og björtu hugarfari.

Ásta Bjarney Elíasdóttir - segir frá sínum sögum 20.02.2023

Ásta Bjarney hefur farið tvisvar sinnum til Tékklands að ætlteiða börnin sín tvö. Hún segir frá sínum ferðalögum. Hún er fyrsta einhleypa konan sem fékk leyfi til að ættleiða frá Tékklandi. Hún segir frá í mikilli einlægni frá sínum ferðalögum að sækja drauma börnin sín sem voru orðin nokkuð vel stálpuð þegar þau voru pöruð saman. Strákurinn var á barnaheimili í Most og var 5 ára gamall. Nokkrum á...

Höre den Podcast Allt um ættleiðingar in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet