Heimildin

Heimildin - Hlaðvörp

News IS ↓ 302 Folgen

Hlaðvarp Heimildarinnar

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: heimildin.is

Autor

Heimildin

Kategorie

News

Podcast-Website

heimildin.is

Neueste Folge

25. Okt 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Flækjusagan: Versta mamma sögunnar 26.01.2025

Illugi Jökulsson uppgötvar að þótt æskilegt sé að konur fái að ráða þá geta kvenskörungar stundum verið einum of.

Eitt og annað: Vilja banna Bandidos 26.01.2025

Dönsk stjórnvöld vilja með lögum banna Bandidos-samtökin, sem í mörgum löndum eru skilgreind sem glæpasamtök. Réttarhöld þar sem tekist er á um hvort Bandidos-samtökin verði bönnuð í Danmörku hófust í síðustu viku.

Flækjusagan: Keisaraynjan sem hvarf 19.01.2025

Illugi Jökulsson nefnir sögulegt dæmi um meinloku sem mennirnir eru haldnir.

Eitt og annað: Draumurinn um Grænland: „Make Greenland great again“ 19.01.2025

Fátt hefur vakið meiri athygli að undanförnu en yfirlýsingar Donalds Trump um Grænland og áhuga hans á því að komast þar til áhrifa, jafnvel með hervaldi. „Make Greenland great again”, sagði forsetinn tilvonandi í ræðu með stuðningsfólki sínu. Trump er ekki fyrsti forseti Bandaríkjanna sem hefur lýst áhuga á að ná yfirráðum á Grænlandi.

Flækjusagan: Sú fagra kemur í heimsókn 12.01.2025

Fyrir nokkrum árum fannst gröf Nefertítíar drottningar í Egiftalandi. Það reyndist minna í gröfinni en upphaflega var talið en þessi pistill var skrifaður áður en það kom fyllilega í ljós. En hver var sú góða drottning?

Eitt og annað: Söguleg stund í Danmörku 08.01.2025

Þeir Danir sem settust við sjónvarpstækin klukkan sex á gamlársdag sáu strax að eitthvað var breytt. Friðrik konungur kom gangandi inn í móttökuherbergið, settist við borð og hóf lesturinn. Þetta var söguleg stund. Í fyrsta sinn sem nýr konungur ávarpaði dönsku þjóðina í nýársávarpi.

Flækjusagan: Dýrlingurinn með hnútasvipuna 05.01.2025

Illugi Jökulsson veltir fyrir sér þeirri aðkallandi spurningu hvernig geimverum myndi lítast á nýjasta dýrling kaþólsku kirkjunnar.

Flækjusagan: Káti kóngurinn og dapra drottningin 29.12.2024

Illugi Jökulsson veltir fyrir sér barneignum bresku konungsættarinnar – því allt snýst það vesin um viðhald stofnsins!

Eitt og annað: Tólf ára fangelsi fyrir fjársvik 29.12.2024

Þyngsti dómur sem fallið hefur fyrir fjársvik í Danmörku var kveðinn upp í bæjarrétti í Glostrup í síðustu viku. Sá dæmdi, Sanjay Shah, er talinn hafa svikið jafngildi 180 milljarða íslenskra króna úr danska ríkiskassanum. Hann segist hafa nýtt glufu í skattakerfinu og hefur áfrýjað dómnum.

Móðursýkiskastið #5: „Barn­ið bara kvald­ist og kvald­ist“ 28.12.2024

Í hvert sinn sem Hrund Ólafsdóttir heyrir frásagnir mæðra rifjast upp fyrir henni sárar minningar af því þegar dóttir hennar veiktist og Hrund þurfti að grátbiðja lækni mánuðum saman um að senda hana í myndatöku á höfði. Ragnhildur Þrastardóttir hefur umsjón með þáttaröðinni. Halldór Gunnar Pálsson hannaði stef og hljóðheim þáttanna. Þátturinn í heild sinni er aðeins aðgengilegur áskrifendum Heimi...

Samtal við samfélagið #8: Ópera eða þungarokk? - Áhrif smekks á viðhorf annarra til okkar 26.12.2024

Hefur smekkur okkar áhrif á hvernig aðrir meta okkur? Mads Meier Jæger, prófessor við Kaupmannahafnarskóla, svaraði þeirri spurningu á fyrirlestri sem hann flutti nýlega á vegum félagsfræðinnar og hann ræddi rannsóknir sínar í spjalli við Sigrúnu í kjölfarið. Því hefur oft verið haldið fram að meiri virðing sé tengd smekk sem telst til hámenningar (t.d. að hlusta á óperur eða kunna að meta ostrur)...

Flækjusagan: Hvað hefði Jesú gert? 22.12.2024

Illugi Jökulsson kannar hvort rétt sé að Jesú hafi alltaf tekið pól umburðarlyndis og góðvilja í hæðina.

Eitt og annað: „Assad er í hópi þeirra sem eiga flesta óvini í veröldinni“ 22.12.2024

Bashar al-Assad átti ekki margra kosta völ þegar uppreisnarmenn voru um það bil að taka völdin í Sýrlandi fyrir skömmu. Íran og Rússland voru nefnd sem hugsanlegir áfangastaðir hans og svo fór að Vladimír Pútín bauð einræðisherranum og nánustu fjölskyldu hans að dveljast í Rússlandi, af mannúðarástæðum.

Tuð blessi Ísland #8: Valkyrjur Stefáns Ingvars 20.12.2024

Gestur Tuðsins í dag er meintur grínisti, Stefán Ingvar Vigfússon. Við ræðum græna vegginn við Álfabakka, Valkyrjustjórnina sem Stefán heldur að muni ekki lifa kjörtímabilið, líf listamannsins og og fleira og fleira og fleira. Þemalag þáttarins er Grætur í hljóði með Prins Póló. Gleðilega hátíð.

Á vettvangi: Einmanaleiki: Á vettvangi einmanaleikans 20.12.2024

Einmanaleikinn er áberandi á aðventunni og í þessum aukaþætti af Á vettvangi koma fram sögur af ísköldum einmannaleika á Íslandi. Í seinni hluta þáttarins kom fram ráð um það hvað við getum gert til að berjast gegn einmannaleikanum og sjá fólkið í kringum okkur.

Þjóðhættir #60: Jólaljósin – Jólaþáttur Þjóðhátta 17.12.2024

Þátturinn er með jólalegu sniði að þessu sinni, við beinum sjónum okkar að ljósinu og myrkrinu á þessum tíma ársins enda jólin oft kölluð hátíð ljóssins.

Samtal við samfélagið #7: Menntun og ójöfnuður 16.12.2024

Samtal við samfélagið, hlaðvarp félagsfræðinnar, snýr aftur eftir langt hlé. Við kynnum David Reimer, prófessor í félagsfræði og menntavísindum, en hann er gengin til liðs við hlaðvarpið. Í þessum þætti spjallar hann við Michelle Jackson, dósent í félagsfræði við Stanford háskólann í Bandaríkjunum. Hún er í ráðgjafanefnd stórs evrópsks rannsóknarverkefnis sem David leiðir og var í heimsókn hér á l...

Flækjusagan: Af hverju sigraði okkar tegund 15.12.2024

Illugi Jökulsson fjallar hér um frumsögu mannsins og bendir á að listir komu á undan bissniss!

Eitt og annað: Ósætti um fæðubótarefni fyrir mjólkurkýr 15.12.2024

Dansk-sænska mjólkurvinnslan Arla hefur sætt harðri gagnrýni breskra neytenda eftir að fyrirtækið tilkynnti að frá og með áramótum yrðu, í tilraunaskyni, breytingar á fóðri mjólkurkúa. Breytingunni er ætlað að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem kýrnar gefa frá sér.

Tuð blessi Ísland #7: Kosningarnar sem flestir unnu 12.12.2024

Loksins er komið að löngu tímabæru kosningauppgjöri Tuðsins. Allir sem náðu inn á þing virðast sigurvegarar og bara þau sem þurrkuðust út töpuðu. En hver fær að mæta í jólaglögg Alþingis? Þemalag þáttarins er Grætur í Hljóði eftir Prins Póló.

Þjóðhættir #59: Hundamenning á Íslandi 10.12.2024

Gestur þáttarins er Ingibjörg Sædís þjóðfræðingur en hún lauk nýverið meistararannsókn sinni í þjóðfræði og beindi þá sjónum sínum að hundamenningu á Íslandi.

Móðursýkiskastið #2: „Það var ekki hlustað á mig“ 08.12.2024

„Það erf­ið­asta var að það var ekki hlustað á mig þeg­ar ég sagði: Það er eitt­hvað óeðli­legt í gangi,“ seg­ir Sigrún Lilja Guð­jóns­dótt­ir, sem gekk í gegn­um mjög erf­iða fæð­ingu með eft­ir­mál­um á borð við lífs­hættu­leg­an blóð­missi, sýk­ingu, að­gerð og fæð­ing­ar­þung­lyndi. Hún kall­ar eft­ir því að bet­ur sé hlustað á kon­ur sem segja frá óeðli­leg­um sárs­auka og að neyð­ar­þjón­ust...

Flækjusagan: Njósnarinn, prinsinn og hið helvíska sæluríki 08.12.2024

Illugi Jökulsson segir frá rithöfundi sem fordæmdi meðferð á þrælum en studdi þó þrælahald, og öðrum mótsögnum í sögu Súrínam.

Eitt og annað: Græða á grísum 08.12.2024

Danskir svínabændur selja árlega milljónir lifandi smágrísa til margra Evrópulanda. Grísirnir eru eftirsóttir og dönsk sláturhús geta ekki keppt við erlenda kaupendur sem bjóða hærra verð. Þýskaland og Pólland eru stærstu kaupendurnir.

Móðursýkiskastið #1: Kallaðar ímyndunarveikar og áhyggjurófur 07.12.2024

Ein var kölluð fíkill þegar hún lýsti óbærilegum líkamlegum kvölum. Síðar voru verkir hennar útskýrðir með kvíða. Önnur var sögð ímyndunarveik. Sú þriðja áhyggjurófa. Dóttir hennar, sem var með ógreint heilaæxli, fékk sama viðurnefni. Sögur þessara kvenna, kvenna sem hafa mætt daufum eyrum innan heilbrigðiskerfisins, eru sagðar í nýjum hlaðvarpsþáttum Heimildarinnar: Móðursýkiskastinu. Ragnhildur...

Höre den Podcast Heimildin - Hlaðvörp in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet