Heimildin

Heimildin - Hlaðvörp

News IS ↓ 302 Folgen

Hlaðvarp Heimildarinnar

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: heimildin.is

Autor

Heimildin

Kategorie

News

Podcast-Website

heimildin.is

Neueste Folge

25. Okt 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Þjóðhættir #61: Lundar, geirfuglar og sjálfsmynd þjóðar 30.04.2025

Gestur þáttarins er Katla Kjartansdóttir, doktorsnemi í menningarfræði við Háskóla Íslands. Katla segir frá leið sinni í þjóðfræðina og meistaranámi í þjóðernisfræðum við Edinborgarháskóla en þjóðernisfræðin er systurfag þjóðfræðinnar þar sem alþjóðasamskipti og þjóðernissjálfsmyndir eru veigamikill þáttur.

Eitt og annað: Ólátabelgurinn á Amalienborg 27.04.2025

Átján ára afmæli þykir að öllu jöfnu ekki ástæða til mikilla hátíðahalda. Öðru máli gegnir þó ef um er að ræða danska prinsessu. Isabella, dóttir dönsku konungshjónanna, er orðin 18 ára og komin í tölu fullorðinna.

Eitt og annað: Sendu skip til Grænlands 13.04.2025

Hinn 10. apríl 1940, daginn eftir að Þjóðverjar hernámu Danmörku, sendi bandaríska strandgæslan skip til Grænlands. Um borð voru James K. Penfield, nýútnefndur ræðismaður, og fulltrúi Rauða krossins. Síðar það sama ár hreyfði varautanríkisráðherra Bandaríkjanna hugmyndinni um bandarískar herstöðvar í landinu. Áhugi Bandaríkjamanna á Grænlandi er sem sé ekki nýr af nálinni.

Flækjusagan: Njósnarinn á Hotel Klomser: Mesti njósnari 20. aldar? 30.03.2025

Á út­mán­uð­um 2024 birt­ust í Heimildinni nokkr­ar Flækj­u­sög­ur um upp­haf fyrri heims­styrj­ald­ar sumar­ið 1914. En við þá sögu komu ýms­ir óvænt­ir að­il­ar og á óvænt­an hátt. Hér segir frá einum sérkennilegum anga málsins.

Eitt og annað: Hafa sofið á viðbúnaðarverðinum 30.03.2025

Danir hafa algjörlega látið undir höfuð leggjast að skipuleggja aðgerðir og undirbúning, ef vandi steðjar að borgurum landsins, til dæmis vegna stríðsátaka. Nú líta þeir til Svía sem hafa árum saman skipulagt slíkan viðbúnað.

Flækjusagan: Stórveldi Atatürks 23.03.2025

Ill­ugi Jök­uls­son fjallar um Mu­stafa Kemal Atatürk sem var stór­merk­ur stjórn­mála­mað­ur í Tyrklandi og sann­kall­að­ur „fað­ir Tyrkja“. En nú þeg­ar Er­dog­an for­seti ætl­ar að stíga næsta skref og koma Tyrkj­um aft­ur í hóp stór­velda ger­ir hann það ekki síst með því að snið­ganga arf­leifð Atatürks.

Flækjusagan: Donald Trump: Afinn var innflytjandi og rak hóruhús 16.03.2025

Donald Trump virðist óstöðvandi. En hvaðan kemur þessi maður?

Eitt og annað: Rauðu póstkassarnir og frímerkin hverfa 16.03.2025

Um næstu áramót hættir danski pósturinn að taka á móti og dreifa bréfum eins og hann hefur gert í rúm 400 ár. Ástæðan er sú að bréfasendingar hafa að miklu leyti lagst af og tekjurnar af þjónustunni að sama skapi dregist saman. Rauðu póstkassarnir og frímerkin hverfa.

Á vettvangi: Bráðamóttakan #7: Hver mínúta mikilvæg 14.03.2025

Í neyðartilvikum getur hver mínúta skilið á milli lífs og dauða - sérstaklega þegar um hjartastopp er að ræða. Þegar hjartahnoð hefst strax aukast lífslíkur sjúklingsins verulega. Þrátt fyrir þetta treysta sumir sér ekki til að veita aðstoð á vettvangi á meðan sjúkrabíll er á leiðinni á vettvang. Í seinni hluta þáttarins ræðum við mikilvægi þess að kunna fyrstu hjálp og hvernig rétt viðbrögð allra...

Flækjusagan: „Við brenndum, drápum, lögðum allt í rúst“ 09.03.2025

Frakkar fóru fram með hrottaskap og grimmd í Alsír. Skiptir það máli á vorum dögum?

Eitt og annað: Kaupið, kaupið, kaupið 09.03.2025

Danir og Norðmenn ætla að stórefla samvinnu í varnar- og öryggismálum. Forsætisráðherrar landanna lýstu þessu yfir á fundi sem haldinn var í Ósló í síðustu viku. Báðar þjóðir ætla að stórauka fjárveitingar til varnarmála. Kaupið, kaupið, kaupið voru fyrirmæli danska forsætisráðherrans til yfirmanna hersins.

Á vettvangi: Bráðamóttakan #6: Sprittgát á göngunum 07.03.2025

Stundum þarf starfsfólk bráðamóttökunnar að fjarlægja sprittbrúsa af göngum bráðamóttökunnar svo sjúklingar komist ekki í alkóhólið. Oft eru vandamál við komu þessara sjúklinga - andleg vanlíðan. Í þættinum er kafað ofan í erfið tilfelli sem tengjast andlegri vanlíðan og alvarlegum afleiðingum áfengisdrykkju og vímuefnaneyslu. Þá koma fram ráð til fólks sem líður illa og hvað við sem samfélag getu...

Tuð blessi Ísland #10: Milljón dollara spurningin um varnarsamning Íslands 05.03.2025

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að ákveðnu marki skiljanlegt þegar Trump segi að Evrópa þurfi að gera betur en það sé ótrúlegt að sjá hvað er að gerast í heiminum. „Erum við að horfa upp á umpólun í alþjóðakerfinu?“ segir hann. Þó telji hann matið í Washingtonborg enn það að varnir á Íslandi séu mikilvægar fyrir varnir Bandaríkjanna sjálfra. Það þurfi hins vegar að horfa víð...

Flækjusagan: Tsar Bomba 02.03.2025

Illugi Jökulsson rifjar upp að tilraunir með kjarnorkuvopn eru ekkert grín.

Á vettvangi: Bráðamóttakan #5: Full meðferð að endurlífgun 28.02.2025

Öldrunarlæknir hvetur fjölskyldur til að ræða meðferðartakmarkanir og óskir aldraðra ástvina þegar kemur að endurlífgun og þáttastjórnandi fylgir aldraðri móður sinni eftir í alvarlegum veikindum. Í þættinum fjöllum við einnig um flæði eldra fólksins um ganga bráðamóttökunnar og hvað það getur verið hættulegt fyrir þennan hóp að dvelja lengi á bráðamóttökunni. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kri...

Tuð blessi Ísland #9: Dramatískir dagar í Sambandinu 24.02.2025

Tuð Blessi Ísland er snúið úr dvala enda er pólitíkin komin á fullt á mörgum vígstöðum. Nýr borgarstjórnarmeirihluti, deilur innan stjórnar Sambandsins og landsfundur Flokks fólksins, sem beðið hefur verið í áraraðir, eru til umræðu í þættinum. Sérstakur gestur er Valur Grettisson, blaðamaður á Heimildinni, sem hefur fjallað um öll þess mál í liðinni viku. Umsjónarmaður þáttarins er Aðalsteinn Kja...

Flækjusagan: Furðulegasti herforingi sögunnar 23.02.2025

Illugi Jökulsson ætlaði ekki trúa sínum eigin augum þegar hann las orð dýrlings kaþólsku kirkjunnar.

Eitt og annað: Leiðist að lesa 23.02.2025

Einungis 14 prósent danskra barna á aldrinum 9 til 12 ára hafa ánægju af lestri. Flestum í þessum aldursflokki leiðist að lesa og sjá ekki tilganginn. Ýmislegt hefur verið gert til að auka áhuga barna á lestri en það virðist ekki duga. Danski menntamálaráðherrann segir þetta mikið áhyggjuefni en sjálfur var hann bókaormur á yngri árum.

Á vettvangi: Bráðamóttakan #4: Einn og hálfur tími um nótt 21.02.2025

Nánast um leið og Jón Ragnar Jónsson bráðalæknir hefur orð á að það sé óvenju rólegt á næturvakt eina helgina dynja áföllin á. Hann hefur rétt komið manni til lífs þegar neyðarbjallan hringir á deildinni.... Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitin hann einstaka innsýn í s...

Flækjusagan: Blóðið í jörðinni við Panipat - Seinni hluti 16.02.2025

Illugi Jökulsson fjallar um tvær orrustur á Indlandi en þessi þáttur er framhald síðasta þáttar.

Eitt og annað: Danskir húsgagnaframleiðendur í bobba 16.02.2025

Danskir húsgagnaframleiðendur hafa ekki margt til að gleðjast yfir þessa dagana. Salan hefur dregist saman um tugi prósenta og betri tíð ekki í augsýn. Ungir kaupendur vilja ódýr húsgögn og notað er vinsælt.

Flækjusagan: Heimsveldi í fjöllunum? - Fyrri hluti 09.02.2025

Illugi Jökul sson fjallar um þá undarlegu tíma þegar Afganistan gerði sig líklegt til að verða stórveldi í Asíu.

Eitt og annað: Þrettán rauðvínsflöskur 09.02.2025

Í febrúar árið 2022 ákváðu tollverðir á Kastrup-flugvelli að skoða nánar tvær ferðatöskur með þrettán flöskum. Eigendur þeirra voru að koma til landsins með flugi og sögðu flöskurnar innihalda rauðvín. Annað kom á daginn þegar tapparnir voru skrúfaðir af.

Flækjusagan: „Hei Hitler, mér datt soldið í hug“ 02.02.2025

Illugi Jökulsson fjallar um múftann í Jerúsalem sem Netanyahu forsætisráðherra Ísraels segir að hafi gefið Hitler hugmyndina að helförinni.

Eitt og annað: Að ákveða framtíð Grænlands 02.02.2025

Nú, þegar styttist í þingkosningar á Grænlandi eru spurningar um framtíð landsins, og hverjir eigi að ákveða hana, fleiri og áleitnari en oft áður. Krafa Grænlendinga um sjálfstæði verður sífellt háværari, ekki síst eftir yfirlýsingar og, að sumra mati, hótanir Bandaríkjaforseta um að Grænland verði hluti Bandaríkjanna.

Höre den Podcast Heimildin - Hlaðvörp in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet