Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2926 Folgen

Podcastþættir Fótbolta.net

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: fotbolti.net

Autor

Fotbolti.net

Kategorie

Sports

Podcast-Website

fotbolti.net

Neueste Folge

13. Okt 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Uppbótartíminn - Breiðablik rústaði toppslagnum 18.08.2026

Það var aldrei spurning í toppslagnum í Bestu deild kvenna þar sem Breiðablik fór í Kaplakrika og vann þar þægilegan sigur. FH var sigurstranglegra liðið fyrir leikinn en Blikarnir gerðu ótrúlega vel og eru núna með þriggja stiga forystu á toppnum. Rætt var ítarlega um þennan stórleik í Uppbótartímanum í dag. Guðmundur Aðalsteinn settist niður í Coke stúdíóinu með Arnari Páli Garðarssyni og Snæbjö...

Enski boltinn - Það á að vera gaman að horfa á Liverpool 18.08.2026

Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst næstkomandi föstudag. Liverpool tók þá ákvörðun eftir síðasta tímabil að reka Arne Slot og ráða Andoni Iraola og núna hefst áhugaverður kafli hjá félaginu. Það á að vera skemmtilegt að horfa á Liverpool en það var ekki raunin að mestu leyti undir stjórn Slot. Stuðningsmenn vonast til að það verði breyting á því undir stjórn Iraola....

Harkið - VÖK sýningin 18.08.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í sautjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3. deild: 07:30 Uppgjör 2. deild: 42:58 Spá: 01:27:52 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

38 umferðir - Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag 18.08.2026

Þriðji þátturinn af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á samfélagsskildinum, helstu leikmönnum sem þeir eru að íhuga fyrir umferð 1 og fóru yfir liðin sín eins og þau líta út í dag, þó vissulega muni margt breytast...

Innkastið - Rokk og ról í Vesturbæ 17.08.2026

Innkastið eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Maggi Hödd, Magnús Haukur Harðarson. Sex marka jafntefli á fullum Meistaravöllum, Víkingar stöðvuðu göngu FH, Fram vann Stjörnuna, KA og Valur gerðu átta marka jafntefli, ÍA vann í Eyjum og Þór tapaði fyrir vængbrotnu Keflavíkurliði.

Útvarpsþátturinn - Gluggadómar, fyrirliðinn í Krikanum og enski að byrja 15.08.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Skoðað er hvaða félög gerðu bestu hlutina í sumarglugganum, hitað upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni, rætt um Evrópuleiki Víkings og Vals og Lengjudeildin skoðuð. Í seinni hluta þáttarins er Ísak Óli Ólafsson fyrirliði FH á línunni og Daníel Geir Moritz ræðir um enska boltann sem er að rúlla af stað...

Enski boltinn - Næsta skref hjá Aston Villa eftir Evróputitilinn 14.08.2026

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Þeir Jón Haukur Baldvinsson og Bjarni Gaukur Sigurðsson komu í Coke stúdíóið til að ræða um sitt uppáhalds félag, Aston Villa. Aston Villa vann Evrópudeildina á síðustu leiktíð og fer núna aftu...

Enski boltinn - Chelsea fór úr mesta lúðanum í mesta töffarann 12.08.2026

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Í dag er komið að því að heyra frá stuðningsmönnum Chelsea, þeim Stefáni Marteini og Haraldi Erni. Þeir mættu í Coke stúdíóið og fóru yfir stöðu mála. Xabi Alonso er tekinn við stjórnartaumunum...

38 umferðir - Yfirferð yfir öll 20 liðin í deildinni og skoðum liðsuppstillingar með og án Haaland 12.08.2026

Annar þátturinn af 38 umferðum er kominn út en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á öllum 20 liðunum í deildinni og fóru yfir tvær mismunandi uppstillingar hvor sem þeir sjá fyrir sér að stilla upp í fyrstu umferð, eitt lið með Haaland og eitt lið...

Harkið - Slagsmál í Mosó 12.08.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í sextándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. uppgjör 3.deild: 11:17 uppgjör 2.deild: 44:06 Spá:01:28:28 Gatorade bikarinn: 01:33:52 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Innkastið - KR getur orðið Íslandsmeistari 10.08.2026

Innkastið eftir 18. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestasérfræðingur er Gunnar Jarl Jónsson. KR vann stórskemmtilegan stórleik gegn Fram, Víkingar slökuðu á og töpuðu niður forystu, Akureyrarliðin sitja í fallsætum, Stjörnumenn unnu tíu Keflvíkinga og Valur vann Breiðablik.

Uppbótartíminn - Gleði í neðri hlutanum 10.08.2026

Magnús Haukur og Arnar Páll settust niður í hljóðver og fóru yfir 15. umferð Bestu deildar kvenna, spáðu í spilin fyrir komandi umferð og ræddu Evrópuævintýri Blika. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

Enski boltinn - Getur Man Utd barist um titilinn í ár? 10.08.2026

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Í dag er komið að heyra hvað stuðningsmenn Manchester United hafa að segja. Grétar Óskarsson og Orri Freyr Rúnarsson mættu í Coke stúdíóið. Michael Carrick er að fara inn í sitt fyrsta heila tí...

Útvarpsþátturinn - Stefán Páls og Siggi Raggi 08.08.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í beinni á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltavikuna og það sem er framundan. Sérstakur gestur er Stefán Pálsson. Hitað er upp fyrir komandi leiki í Bestu deildinni, þá sérstaklega stórleik Fram og KR sem verður á mánudag. Einnig er rætt um Luton og St. Pauli. Í seinni hluta þáttarins er Sigurður Ragnar Eyjólfsson á línunni frá Færeyjum en hann hefur veri...

Enski boltinn - Lífið eftir Guardiola 07.08.2026

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Við byrjum á Manchester City sem endaði í öðru sæti á síðasta tímabili en City hefur gengið í gegnum miklar breytingar í vetur. Pep Guardiola umbreytti félaginu öllu en hann er núna horfinn á b...

38 umferðir: Nýtt hlaðvarp Fótbolta.net um draumaliðsleik enska boltans 06.08.2026

38 umferðir er nýtt hlaðvarp fotbolta.net um Fantasy Premier League, draumaliðsleik enska boltans. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Fyrsti þáttur tímabilsins fór í loftið í dag. Fantasy Premier League nýtur gríðarlegra vinsælda á Íslandi þar sem yfir 25 þúsund Íslendingar spila leikinn. Albert og Sindri munu vera með þátt eftir allar 38 umferðir tímabilsins, greina frá því...

Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri 05.08.2026

Innkastið eftir 17. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn fara yfir leikina og alla helstu fréttamolana þar í kring. Deildin er að spilast á mjög áhugaverðan hátt. Eru KA og ÍBV á leiðinni niður? Það er nóg að gerast á skrifstofu Íslandsmeistara Víkings.

Útvarpsþátturinn - Slagsmál og Schram með skikkju 31.07.2026

Verslunarmannahelgin 2026. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er áfram í sumarútgáfu, frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta. Besta deildin, Evrópuleikirnir, Lengjudeildin og í lokin er farið yfir í erlenda fótboltann. Það var slegist í Keflavík, Valur komst áfram í Evrópu og Þróttur vann toppslag Lengjudeildarinnar.

Harkið - Great escape? 30.07.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í fimmtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. uppgjör 3.deild: 9:20 uppgjör 2.deild: 33:30 spá: 01:02 Gatorade bikarinn: 01:08 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson

Uppbótartíminn - Stór félög í bullandi vandræðum 29.07.2026

Þrettán umferðir eru búnar í Bestu deild kvenna og það er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört komu sér fyrir í hljóðveri og fóru yfir umferðina. Það eru stór félög í vandræðum í deildinni, það er svakalegur pakki að myndast í neðri hlutanum og á toppnum eru tvö lið jöfn. Hvað gerist áður en glugginn lokar. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

Innkastið - Stefnir í trylltan dans í neðri hlutanum 27.07.2026

Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Páll eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Er komin einhver hræðsla í liðin? Akureyrarslagurinn olli vonbrigðum, Stjörnumenn hörmulegir gegn Skagamönnum og Aron Einar átti stutt innlit.

Harkið - Þrennu VÖK 27.07.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í fjórtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 06:00 Uppgjör 2.deild: 36:55 Spá: 01:10 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Útvarpsþátturinn - Bikartöfrar, Evrópustig og Akureyrarslagur 24.07.2026

Þátturinn er aftur frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir allt það helsta. Hver er bestur í Bestu?, bikargleði Mosfellinga, öflug Evrópuvika, spennandi Akureyrarslagur framundan og er 64 liða HM kannski málið eftir allt saman?

Harkið - Draugavíti í Mosfellsbæ 22.07.2026
Uppbótartíminn - FH óstöðvandi og til skammar fyrir Val 21.07.2026

Uppbótartíminn snýr aftur eftir stutt sumarfrí. Rætt er um umferðina sem var að klárast í Bestu deildinni en ótrúleg úrslit áttu sér stað á Hlíðarenda og í Kaplakrika í kvöld. Valur og Víkingur eru í fallsæti og það er væntanlega mikið fundað hjá þessum félögum þessa dagana. Á hinum enda töflunnar eru FH og Breiðablik í góðum gír, og þá sérstaklega FH-ingar sem eru óstöðvandi fyrir framan markið u...

Höre den Podcast Fotbolti.net in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet