Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: fotbolti.net
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Starfið undir á Laugardalsvelli? 08.09.2026
Sigurjón Jónsson og Arnór Gauti Ragnarsson voru gestir í setti í sérstökum upphitunarþætti fyrir viðureign Aftureldingar og Breiðabliks í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Leikurinn fer fram á föstudaginn og er Sigurjón stuðningsmaður Breiðabliks en Arnór er Mosfellingur sem lék sömuleiðis með Breiðabliki. Farið var yfir leiki liðanna í undanúrslitum, gengi þeirra í sumar og spáð í úrslitaleikinn sjál...
Harkið - Nágrannar en ekki vinir 08.09.2026
Harkið fór yfir stærstu atvikin í 21. umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild:14:42 Uppgjör 2.deild:40:53 Spá:01:17:14 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Uppbótartíminn - Fáránleg spenna þegar deildin skiptist 07.09.2026
Síðasta umferðin í Bestu deild kvenna fyrir skiptingu fór fram í kvöld. Núna er gríðarleg spenna framundan á bæði toppi og botni deildarinnar. Hvaða lið verður Íslandsmeistari og hvaða lið falla? Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Arnar Páll fóru yfir 18. umferðina og sitthvað fleira í Uppbótartímanum. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Enski boltinn - Hver stoppar eiginlega Arsenal? 07.09.2026
Arsenal fór með sigur af hólmi í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni, 2-1 gegn Chelsea. Manchester United fékk rýting í bakið á lokasekúndunni gegn Everton og Alexander Isak skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í sigri gegn nýliðum Ipswich. Tottenham náði í sitt fyrsta stig og Manchester City vann tæpan sigur á nýliðum Coventry. Guðmundur Aðalsteinn fór yfir þessa leiki og helstu sögulínur ás...
Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla 06.09.2026
Innkastið eftir 22. umferð, síðustu umferðina fyrir tvískiptingu. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra. Stjarnan og Valur þurfa að sætta sig við að spila í neðri hlutanum en Keflvíkingar komust í efri hlutann þrátt fyrir tap á Ljósanótt. Farið er yfir alla leikina og einnig rætt um lokaumferð Lengjudeildarinnar sem var á laugardag.
Útvarpsþátturinn - Haukar fljúga upp og lokaumferðir framundan 04.09.2026
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari Hauka er gestur þáttarins en Hafnarfjarðarliðið er komið upp í Lengjudeildina. Lokaumferðir eru framundan um helgina, síðasta umferð fyrir tvískiptingu Bestu deildarinnar og svo ræðst hvaða lið fellur með Ægi úr Lengjudeildinni. Í lok þáttar er sumarglugginn í...
Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál 02.09.2026
Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir 17. umferð Bestu deildar kvenna. Toppliðin tvö hikstuðu bæði, aftur. FH hefur núna fengið tvö tækifæri til að komast á toppinn en ekki nýtt sér þau. Á hinum enda töflunnar er spennan gríðarleg. Þá var rætt um stórt kærumál sem getur haft mikil áhrif á framhaldið í Bestu deildinni. Þátturinn er í boði Atl...
38 umferðir - Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu? 02.09.2026
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta...
Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað 02.09.2026
Það eru fjögur lið með fullt hús stiga eftir tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni. Það eru Arsenal, Chelsea, Manchester City og.. Hull City. Það er óhætt að segja að Hull sé í draumalandi eftir fyrstu tvo leikina en fyrir tímabil var þeim spáð 20. sæti í flestöllum spám. Guðmundur Aðalsteinn fékk því Friðleif Friðleifsson, mikinn Hull stuðningsmann, í heimsókn í Coke stúdíóið í kvöld. Haraldur Örn Ha...
Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu 01.09.2026
Innkastið eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Runólfur Trausti. Þátturinn var tekinn upp strax eftir stórleik KR og Víkings. Fjallað er um leikinn sjálfan og allt í kringum hann. Auðvitað er síðan farið yfir allar helstu sögulínur í kringum hina leiki umferðarinnar.
Harkið - Hiti í 3. deildinni 01.09.2026
Harkið fór yfir stærstu atvikin í tuttugustu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:14 Uppgjör 2.deild:44:48 Spá: 01:29:00 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Kaffispjallið: Blæti fyrir takkaskóm og nýtt tækifæri í KR 01.09.2026
Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, er nýjasti viðmælandi Kaffispjallsins. Líkt og vanalega var farið yfir víðan völl en Nördahornið og Hraðaspurningarnar eru að sjálfsögðu á sínum stað.
Útvarpsþátturinn - Helgin er svo lengi að líða 29.08.2026
Elvar Geir og Benedikt Bóas eru í hljóðveri í þætti dagsins og með þeim er Valur Páll íþróttafréttamaður á Sýn. Hitað verður sérstaklega upp fyrir komandi stórleik í Bestu deildinni, viðureign KR og Víkings á þriðjudag. Aðrir leikir í Bestu deildinni, Lengjudeildin, Infantino og enski boltinn koma svo auðvitað líka við sögu.
38 umferðir - Chelsea kom, Joao og sigraði 26.08.2026
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta...
Enski boltinn - Martraðarbyrjun Man Utd og hver stoppar Arsenal? 25.08.2026
Enska úrvalsdeildin hófst um helgina með látum en fyrstu umferðinni lauk í gærkvöldi. Manchester United og Tottenham fengu martraðarbyrjun, Arsenal lita illviðráðanlega út og það var baulað á Alexander Isak í endurkomunni á St James' Park. Er Chelsea kannski liðið sem mun veita Arsenal mesta samkeppni? Guðmundur Aðalsteinn fékk Eið Orra Ragnarsson og Þorlák Breka Baxter, leikmenn Keflavíkur, í spj...
Uppbótartíminn - Þú varst ekkert að spá þessu 25.08.2026
Síðustu leikir í dag Bestu deild kvenna hafa heldur betur verið óútreiknanlegir margir. Tvö efstu liðin töpuðu og tvö neðstu liðin unnu bæði. Hvað er eiginlega að gerast í þessari deild? Núna eru bara tvær umferðir eftir fram að skiptingu og verður mjög áhugavert að sjá hvernig deildin þróast. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Arnari Páli og Snæbjörtu og fór yfir síðustu leiki ásamt því að ræ...
Harkið - Haukar verða alltaf bestir 25.08.2026
Harkið fór yfir stærstu atvikin í nítjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild:10:00 Uppgjör 2.deild:41:36 Spá:01:18 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Innkastið - Góð skyndiákvörðun og eitrað andrúmsloft 24.08.2026
Innkastið eftir 20. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór. Kaflaskipt fjör í Kópavogi, markaflóð í heimsókn til Akureyrar, Vatnhamar kvaddur, Jón Þór lét allt flakka í viðtali, Lengjudeildarhorn og ýmislegt fleira.
Útvarpsþátturinn - Stórtíðindi í þjálfaramálum og kraftur í Keflavík 22.08.2026
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 22. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt er um stóru fréttirnar í Bestu deildinni. Eiður Smári er tekinn við KA og Stjarnan rak aftur þjálfarann sinn. Jónas Guðni Sævarsson yfirmaður fótboltamála hjá Keflavík er á línunni. Næsta umferð í Bestu er skoðuð og Manchester United tapaði gegn Hull í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn - Arsenal er langlíklegasta liðið 21.08.2026
Arsenal varð Englandsmeistari á síðasta tímabili eftir 22 ára bið. Núna, fyrir komandi keppnistímabil, er Arsenal langlíklegasta liðið til að vinna ensku úrvalsdeildina. El Jóhann og Engilbert Aron, stuðningsmenn Arsenal, mættu í spjall í Coke stúdíóið á dögunum og fóru yfir allt það helsta hjá Englandsmeisturunum. Fyrsti leikur í ensku úrvalsdeildinni er í kvöld þegar Arsenal tekur á móti Coventr...
Kaffispjallið: Ólafsvík, slitið krossband og lyftingar á leikdegi 21.08.2026
Aldís Guðlaugsdóttir, markvörður FH í Bestu deildinni, er án efa ein sú færasta í sínu fagi hér á landi. Hún er nýjasti gestur Kaffispjallsins og fer meðal annars yfir það þegar hún kláraði leik eftir að slíta krossband í hné nokkuð snemma í síðari hálfleik.
Harkið - Sjóðheitir Sindra menn 21.08.2026
Harkið fór yfir stærstu atvikin í átjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:52 Uppgjör 2.deild:40:30 Spá:01:19:15 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Enski boltinn - Ætla að horfa saman á næsta úrslitaleik Tottenham 20.08.2026
Það eru áhugaverðir tímar hjá Tottenham þessa stundina. Eftir tvö mjög erfið tímabil, þá er búið að leggja mikið í leikmannahópinn fyrir komandi tímabil. Roberto De Zerbi er á leið inn í sitt fyrsta heila tímabil sem stjóri liðsins og hann ætlar sér stóra hluti. Spurs var hársbreidd frá falli á síðustu leiktíð, en hvað gera þeir núna? Bogi Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenh...
Enski boltinn - Miklar breytingar hjá Newcastle 19.08.2026
Upphitunin heldur áfram fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn. Núna fáum við að vita meira um stöðuna hjá Newcastle en þar hefur mikið gengið á í sumar. Jón Júlíus Karlsson og Ellert Ingi Hafsteinsson, stuðningsmenn Newcastle, komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og spjölluðu um sitt félag. Þess má geta að Newcastle klúbburinn á Íslandi er með aðalfund sinn 23. ágúst næstkomandi. Hægt...
Uppbótartíminn - Breiðablik rústaði toppslagnum 18.08.2026
Það var aldrei spurning í toppslagnum í Bestu deild kvenna þar sem Breiðablik fór í Kaplakrika og vann þar þægilegan sigur. FH var sigurstranglegra liðið fyrir leikinn en Blikarnir gerðu ótrúlega vel og eru núna með þriggja stiga forystu á toppnum. Rætt var ítarlega um þennan stórleik í Uppbótartímanum í dag. Guðmundur Aðalsteinn settist niður í Coke stúdíóinu með Arnari Páli Garðarssyni og Snæbjö...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet