Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía

Video rekkinn

Tv IS ↓ 131 episoder

Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars. Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó. Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans:https://www.facebook.com/videorekkinn

Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: videorekkinn.podbean.com

Forfatter

Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía

Kategori

Tv

Podcastens hjemmeside

videorekkinn.podbean.com

Seneste episode

2. nov. 2026

Hvor kan du lytte?

Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snart

Podcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts

Hent den på Google Play Installer gratis Android næsten 10 mio. downloads · 4,7+ i bedømmelse iOS snart

Episoder

#130 Óvæntur liðsauki, Sóli Hólm í viðtali og Iceguys: The Movie (2026) 02.11.2026

Í þætti dagsins berst Hildi óvæntur liðsauki í umræðunni um ágæti myndarinnar Fjord. Þungamiðja þáttarins er þó umfjöllun um myndina Iceguys: The Movie, sem frumsýnd var í síðustu viku. Okkur til halds og trausts í þeirri umræðu er enginn annar en Sóli Hólm, annar handritshöfunda myndarinnar.

#129 Kynjaskipt salerni, Fjord(2026) og Clayface (2026) 26.10.2026

Video Rekka-tvíeykið fór aftur tvisvar í bíó þessa vikuna, annars vegar á Fjord í Bíó Paradís og hins vegar á Clayface í Smárabíói. Það er varla hægt að segja að myndirnar tvær eigi mikið sameiginlegt, annað en að báðar hafa leikstjóra, leikara og handrit. Meira um það í nýjasta þætti Video Rekkans.

#128 Arnór kemur í viðtal, AKA Saltkeisarinn, Hope(2026) Street fighter (2026) 19.10.2026

Í þessari viku fór Video Rekka tvíeykið tvisvar í bíó annarsvegar á suður kóresku myndina Hope og síðan á tölvuleikjamyndina Street Fighter. En við fáum einmitt aðstoð frá góðum gest, honum Arnóri AKA Saltkeisaranum, einum stjórnanda FGCiceland til að kryfja Streetfighter myndina og leikina með okkur. 

#127 Óþolandi fólk í bíó, viðtal við Rósu Magnúsdóttir, Heart of the Beast (2026) The Brink of War (2026) 12.10.2026

Í þætti dagsins tökum við fyrir viðfangsefni sem er mörgum Íslendingum í fersku minni, þegar Gorbatsjov og Reagan hittust í Höfða árið 1986. Önnur myndin sem við fjöllum um, The Brink of War, fjallar einmitt um hvað gerðist á bak við luktar dyr í Höfða í október 1986. Til að varpa enn frekar ljósi á kalda stríðið og mikilvægi fundarins fengum við Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði við Háskól...

#126 Onslaught (2026), Coyote vs ACME (2026) og Digger (2026) 05.10.2026

Í þætti dagsins er eiginlega bara bíó. Við fjöllum um B+ myndina Onslaught, 80´s splatter thriller (ný mynd samt 😂 )sem engin aðdáandi slíkra mynda ætti að láta framhjá sér fara. Við fjöllum um Coyote vs ACME, eina skemmtilegustu fjölskyldumynd ársins.  Síðast ekki síst fjöllum við um Digger, mynd sem virðist ætla að tvístra fólki í tvær fylkingar, meistarastykki eða hörmung! :) ATH það er algjör...

#125 Borðaskipulag MH, The Invite (2026) og Primetime (2026) 28.09.2026

Í þætti dagsins fáum við til okkar góða gesti, en það eru MH-ingarnir Ragnheiður Gréta og Egill Arnarsson. Við fáum aðeins að skyggnast inn í MH lífið, fáum að kynnast borða skipulaginu og hvort týpuálagið sé mikið. En mestum tíma verjum við í að fjalla um bíómyndina Primetime. En sökum þess að aðeins þáttastjórnendur höfðu farið á The Invite í vikunni fékk hún aðeins minna rými en hún átti skilið...

#124 Sérstakur gestur Óskar Styrmir - Resident Evil (2026) 21.09.2026

Í þætti vikunnar fjöllum við um nýjustu Resident Evil-myndina, sem kom út fyrir skemmstu. Við treystum okkur ekki ein í þetta verkefni og fengum því mesta tölvuleikjasérfræðing sem við þekkjum í þáttinn til að hjálpa okkur að kryfja málin.

#123 Viðtal við Höskuld, leikstjóra Hvar er draumurinn og Pressure (2026) 14.09.2026

Það er af nógu að taka í þessum nýjasta þætti Video Rekkans. Við byrjum þáttinn á stuttu viðtali við Höskuld Þór Jónsson, leikstjóra Hvar er draumurinn, en við fjölluðum einmitt um þá mynd í síðasta þætti. Við fjöllum einnig stuttlega um heimildarmyndina Þetta er ekkert mál sem nú fagnar 20 ára afmæli og er af því tilefni aftur komin í bíó. En mestum tíma verjum við í umfjöllun okkar um hina stórk...

#122 Aftur næstum bara bíó og Tony (2026) og Hvar er draumurinn? (2026) 07.09.2026

Þetta er orðið að nær vikulegum viðburði hjá okkur að skella sér tvisvar í bíó, og að þessu sinni tókum við fyrir Tony, sem fjallar um eitt sumar í lífi lífskúnstnersins Anthony Bourdain. Svo var ekki verra að hin myndin sem við sáum var ný, íslensk söngvamynd með lögum Sálarinnar hans Jóns míns, Hvar er draumurinn? En meira um þetta allt saman í nýjasta þætti Video Rekkans.

#121 Eiginlega bara bíó, Motor City (2026) og Um tímann og vatnið (2026) 31.08.2026

Að þessu sinni tekur Video Rekka tvíeykið fyrir tvær mjög ólíkar myndir sem voru frumsýndar í vikunni. Annars vegar Motor City, sem er tilraun til að gera 90mín hasarmynd án þess að talað sé í myndinni, hinsvegar fórum við á frumsýningu á nýrri íslenskri heimildarmynd, Um tímann og vatnið.

#120 Menningarnótt, berjamó og The End of Oak Street (2026) 24.08.2026

Í þætti dagsins ræðum við nýafstaðna Menningarnótt, haustið sem er að fara að byrja og pökkun í ferðatösku.  En mestu tíma verjum við í að fjalla um myndina The End of Oak Street, en þar til aðstoðar fáum við Bíófíkilinn Kjartans Rúnarsson. ATH að það koma spoilers frá 38 mínútu. 

#119 Í andakt yfir dumbung sólmyrkvans og One Night Only (2026) 17.08.2026

Í þætti dagsins ræðum við stóru mál vikunnar sem nú er að líða, sólmyrkvann, Stjörnu-Sævar og ESB. Hildur er með stutt íslenskunámskeið fyrir Ragga og að lokum fjöllum við um rómantísku gamanmyndina One Night Only, en við höfðum sitthvað um hana að segja.

#118 Verslunarmannahelgi, Hinsegin dagar og Mamma Mia (2008) 10.08.2026

Ekkert messufall í dag, bara smá sein, en í þessum extra stutta þætti ræðum við heima og geima eins og vanalega. Endilega kíki á þetta. En mynd vikunnar er Mamma Mia sem við fórum á í Bíó Paradís :) 

#117 Bæjarhátíðir, útilegur og Spider-Man: Brand New Day (2026) 03.08.2026

í þætti dagsins ræðum við útilegur, bæjarhátíðir og margt annað. En fyrst og fremst ræðum við nýjustu Marvel myndina Spider-Man: Brand New Day.  Í lok þáttar förum við yfir það allra nauðsynlegasta sem þú þarft að horfa á áður en næsta Marvel veisla dettur í hús Doomsday.  

#116 Bæjarhátíðir, Bíó Paradís og Muriel's Wedding(1994) 27.07.2026

Það var engin bíómynd frumsýnd á Íslandi í nýliðinni viku þannig Video rekka tvíeykið skellti sér á föstudagspartísýningu í Bíó Paradís og kultklassíkina Muriels Wedding.

#115 Bæjarhátíðir og meistaraverkið The Odyssey (2026) 20.07.2026

Í þætti dagsins höldum við yfirferð okkar um bæjarhátíðir áfram, við ræðum stóra tröppumálið en mestu tíma verjum við í hina epísku ræmu, The Odyssey.

#114 Bæjarhátíðir 2 kafli, ESB og Evil Dead Burn (2026) 13.07.2026

Í þætti dagsins ræðum við um þegar frægir hitta fræga, bæjarhátíðir um land allt næstu helgi. Við ræðum evrópusambandið á mjög grunnan máta en mestum tíma verjum við að ræða um nýjustu Evil dead myndina Evil Dead Burn.

#113 HM hornið, bæjarhátíðir og Minions & Monsters (2026) - 5.7.2026, 18.21 06.07.2026

Í þætti dagsins förum við á dýptina um bæjarhátíðir sem eru haldnar um allt land. Við ræðum HM í fótbolta og tölum svo smá um nýjustu Minions myndina, Minions & Monsters. Þetta er svona meira bæjarhátíðarþáttur þessa vikuna frekar en kvikmyndahlaðvarp 😂  

#112 Bæjarhátíðir og Supergirl (2026 29.06.2026

Í þætti dagsins ræðum við bæjarhátíðir á Íslandi af mikilli ástríðu, aðallega af því að okkur finnst myndin sem við ræddum svo afspyrnu leiðinleg. En svona er þetta: nýr mánudagur, nýr þáttur

#111 HM í fótbolta, Cruise er góður maður og The Furious (2026) 22.06.2026

Í þætti dagsins tölum við um 17 júní, æsta aðdáendur, HM í fótbolta og eina rosalegustu kung fu mynd sem þetta tvíeyki hefur nokkurn tíma séð. 

#110 Stöð 2 heimili, útilegur, Obsession og Disclosure day (2026) 15.06.2026

Sérstakur samstarfsþáttur með Bíófíklum — og við erum tvöfalt fleiri en venjulega, svo við tökum okkur tvöfalt meiri tíma! Á dagskrá eru tjaldstæði, bíóhús og Obsession, en stærsta málið er nýjasta Spielberg-myndin, Disclosure Day!

#109 Listgjörningar, frægðarsól Jóhannes Hauks og Masters of the Universe (2026) 08.06.2026

Í þætti dagsins ræðum við listgjörninga, hetjur samtímans og hetju hvíta tjaldsins — He-Man! Mynd vikunnar er Masters of the Universe .

#108 Láréttur tjáningardans, BBQ hátíð, Útskriftir og Backrooms (2026) 01.06.2026

Í þætti dagsins fjöllum við um Listahátíð í Reykjavík, grillhátíð í Reykjavík, útskriftir í Reykjavík en svo sögur af landsbyggðinni.  Að lokum fjöllum við um sálræna tryllinginn sem er Backrooms.

#107 Á Magnús Hlynur heima í Landanum?- kosningaloforð, sól og The Mandalorian and Grogu (2026) 25.05.2026

Í þætti dagsins fjöllum við um nýliðnar kosningar og greinum ástandið aðeins. Við fjöllum einnig um mikilvægi sólarinnar og hversu vel Magnús Hlynur passar inn á Landann, sumir segja meira að segja að Landinn hafi verið stofnaður honum til höfuðs á sínum tíma. Að lokum fjöllum við um hina stórskemmtilegu Star Wars mynd The Mandalorian and Grogu, mynd sem ætti ekki að svíkja neinn. 

#106 Stjórnmál, landsbyggðarlíf og In the Grey (2026) 18.05.2026

Eftir óvænt hlé tökum við aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið! Í þætti dagsins ræðum við lífið síðustu vikurnar og förum yfir samskipti systkina. Við gerum kosningabaráttu undanfarinna daga góð skil og að lokum ræðum við nýjustu mynd Guy Ritchie, In the Grey – en þar er mikið um fallegt fólk í fallegum fötum! :)

Lyt til podcasten Video rekkinn i Replaio

Radio og podcasts i én app - gratis og uden tilmelding. Installer i dag, og gå ikke glip af lanceringen

Hent den på Google Play

Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.