RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 757 episoder

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: www.ruv.is

Forfatter

RÚV

Kategori

News

Podcastens hjemmeside

www.ruv.is

Seneste episode

1. okt. 2026

Hvor kan du lytte?

Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snart

Podcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts

Hent den på Google Play Installer gratis Android næsten 10 mio. downloads · 4,8 i bedømmelse iOS snart

Episoder

Ferill og fall R Kelly 01.07.2022

Bandaríski tónlistarmaðurinn og stórstjarnan R Kelly var nýverið dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að stýra kynferðisglæpahring, misnota konur og börn kynferðislega, stunda mansal, fjárkúgun og mútur. Það má færa rök fyrir því að þessi þrjátíu ára dómur sé nánast ljóðrænn að því leytinu til að Kelly virðist hafa fengið að stunda níðingsskap sinn svo til óáreittur í einmitt þrjátíu ár, allan sinn fars...

Umdeildar hvalveiðar Íslendinga 30.06.2022

Hvalveiðar Íslendinga eru hafnar á ný eftir fjögurra ára hlé. Hvalveiðimenn segja markaðina betri en áður og vísindamenn fullyrða að stofnarnir standi vel. Nýleg könnun Maskínu fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands sýndi að um tveir þriðju hlutar Íslendinga telja hvalveiðar skaða orðspor landsins og fleiri eru andsnúnir veiðum en fylgjandi. Ferðaþjónustan og náttúruverndarsamtök fordæma þennan fámenn...

Manngerðar eyjur kínverskra stjórnvalda 29.06.2022

Leiðir ríkja heims til að auka við völd sín og umsvif eru margar og fjölbreytilegar. Ein leið er að auka við yfirráðasvæði sitt - færa út kvíarnar. En það getur verið erfitt og dýrt, kostað stríð, alþjóðaátök, mannfall og eyðileggingu. Sum ríki hafa því leitað nýrra og frumlegri leiða. Eins og Kína, sem hefur - undanfarin átta ár eða svo - bara búið til landsvæði þar sem eru engin. Reist hverja ma...

Þungunarrofsdómurinn í Bandaríkjunum 28.06.2022

Rétturinn til þungunarrofs er ekki lengur varinn í stjórnarskrá Bandaríkjanna eftir að nýr Hæstiréttur ógilti rúmlega fimmtíu ára gamlan dóm á jónsmessunni - Roe gegn Wade. Þessi 350 milljóna þjóð fékk þarna enn einn fleyginn á milli sín - Fólk ýmist grætur af gleði eða sorg, yfir því að réttur kvenna til að hafa vald yfir eigin líkama vegur ekki lengur eins þungt og réttur fósturs til þroska. Rík...

Mannskæður jarðskjálfti í Afganistan 27.06.2022

Minnst 1.150 létust og 1.500 slösuðust þegar jarðskjálfti, um sex að stærð, reið yfir suðausturhluta Afganistans aðfaranótt miðvikudagsins. Jarðskjálftar eru ekki óalgengir í Afganistan en þessi er sá mannskæðasti í tvo áratugi. Þar með skall enn eitt stóráfallið á afganskan almenning, það síðasta af fjölmörgum sem dunið hafa yfir síðan stjórn Talíbana tók við völdum í landinu í fyrra. Katrín fer...

Dauðsföllin í Reynisfjöru 24.06.2022

Tugir ferðamanna hafa lent í bráðri lífshættu við Reynisfjöru undanfarin ár og gráðugt Atlantshafsbrimið tekið þar fimm líf síðan 2013. Snúðu aldrei baki í öldurnar, segja heimamenn. Hætta - Danger Lífshættulegar öldur - stendur á stórum skiltum sem taka á móti fólki áður en það röltir af stað í átt að dáleiðandi og óútreiknanlegu brimrótinu. Leiðsögumenn og fjöldinn allur af vefsíðum vara við þes...

Samvist manna og fíla á 21. öldinni 23.06.2022

Fíll réðst á og traðkaði niður sjötuga konu, Mayu Murmu, þar sem hún stóð og sótti vatn í brunn í þorpi í austurhluta Indlands, fyrr í mánuðinum. Konan var flutt á spítala þar sem hún lést af sárum sínum. Fíllinn hafði þó ekki lokið sér af heldur sneri hann til baka þegar bálför hennar fór fram við sérstaka athöfn, kastaði líkinu til og traðkaði á því aftur. Hann lét þó ástvini Murmu, sem þó flúðu...

Umsátrið í Hafnarfirði 22.06.2022

Umsátursástand ríkti í norðurbænum í Hafnarfirði í allan morgun og fram yfir hádegi þegar maður á sjötugsaldri, vopnaður byssu, hóf skothríð af svölum íbúðar sinnar á kyrrstæðan bíl. Leikskóla var lokað af ótta við árásarmanninn og fjölmennt lið lögreglu, sérsveitar og sjúkraliðs kallað á staðinn. Maðurinn kom út úr íbúð sinni skömmu eftir hádegi, eftir að hafa rætt við lögreglu í síma í marga klu...

Ósáttu óperusöngvararnir II 21.06.2022

Íslenska óperan er eiginlega eini starfsvettvangurinn fyrir klassískt menntaða söngvara þessa lands. En óánægjan með stofnunina og hvernig henni hefur verið stjórnað er svo mikil að söngvararnir krefjast þess að stjórnendur víki, almennilegri þjóðaróperu verði komið á laggirnar og að fólk taki þar við taumunum sem hefur menntun og skilning á faginu. Söngvarar setja stórt spurningarmerki við það hv...

Plastbarkalæknirinn sakfelldur í Svíþjóð 20.06.2022

Sænskir dómstólar sakfelldu ítalska skurðlækninn Paolo Macchiarini - plastbarkalækninn - á fimmtudaginn. Hann hlaut skilorðsbundinn dóm fyrir afar umdeildar plastbarkaígræðslur. Læknirinn boðaði nýja tækni í líffæraígræðslum sem hefði getað gjörbylt læknavísindunum - hefði hún bara virkað. Og á meðan sumir - eða kannski nokkuð margir - halda því fram að Macchiarini hafi af ásetningi gert aðgerðirn...

Ósáttu óperusöngvararnir 16.06.2022

Dómsmál óperusöngkonu gegn Íslensku óperunni verða á dagskrá í Þetta helst í dag. Það hefur gustað hressilega um Íslensku óperuna undanfarin misseri vegna vangreiddra launa til söngvara og stjórnunarhátta. Tvö dómsmál hafa farið í gegn um kerfið, harðorðar yfirlýsingar sendar á víxl og óumdeilt er að orðspor þessarar rúmlega fertugu sjálfseignastofnunar beðið hnekki í látunum. Forsvarsmenn Óperunn...

Vitnaleiðslur vegna árásarinnar á þinghúsið 6. janúar 15.06.2022

Um þessar mundir fara fram opinberar vitnaleiðslur rannsóknarnefndar Bandaríkjaþings sem rannsakar árásina á þinghúsið í fyrra. Nefndin sakar Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, um að hafa skipulagt og undirbúið valdaránstilraun hins æsta múgs sem réðst inn í þinghúsið sjötta janúar 2021. Trump hafði þá verið með háværar kenningar um að Demókratar hefðu beitt kosningasvindli í nýafstöðnum...

Mál ónefnda fótboltamannsins, Gylfa Sigurðssonar 14.06.2022

Tæpt ár er liðið frá því að Gylfi Þór Sigurðsson, einn besti knattspyrnumaður íslenskrar fótboltasögu, var handtekinn á heimili sínu í Manchester, grunaður um kynferðisbrot. Á þessum 11 mánuðum hefur Gylfi ekki leikið fótbolta, hvorki með félagsliði sínu Everton né íslenska landsliðinu. Hann sætir farbanni í Bretlandi, sem hefur ítrekað verið framlengt, og er sagður fara huldu höfði í einhvers kon...

Skotárásir IV: Hið illa 13.06.2022

Við höfum fjallað um skotárásir að undanförnu í Þetta helst: árásina í Uvalde í Texas, tíðni skotárása, deilur um vopnaeign, pólitík og tilefni og hvatir að baki slíkum voðaverkum. Í dag ljúkum við þeirri umfjöllun með því að ræða við Sólveigu Önnu Bóasdóttur, prófessor í guðfræðilegri siðfræði við Háskóla Íslands, um hið illa. Illskunni hefur verið kennt um ófá voðaverk. Við spyrjum Sólveigu Önnu...

Umdeildar ófrjósemisaðgerðir II 10.06.2022

Íslenska ríkið hefur greitt skaðabætur til fólks sem var gert ófrjótt án vitundar sinnar eða samþykkis, á grundvelli úreltra laga. Ófrjósemisaðgerðir hafa verið gerðar á að minnsta kosti 50 íslenskum konum án þess að þær veittu fyrir því samþykki, er fram kom í skýrslu sem lögð var fyrir Alþingi og hefur verið rifjuð upp núna í tenglsum við ofbeldið sem Danir beittu grænlenskum stúlkum með getnaða...

Skotárásir III: Hvatinn 09.06.2022

Við höldum áfram umfjöllun okkar um skotárásir í Þetta helst. Í dag ræðum við við Margréti Valdimarsdóttur, doktor í afbrotafræði og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri, og spyrjum hana út í hvatanna og tilefnin að baki skotárásum. Sér í lagi fjöldaskotárásum, eins og þeirri sem átti sér stað í grunnskóla í Uvalde í Texas undir lok síðasta mánaðar. Þar sem maður myrti tuttugu og einn,...

Umdeildar ófrjósemisaðgerðir I 08.06.2022

Fyrsta löglega ófrjósemisaðgerðin á Íslandi var gerð árið 1938, sama ár og lög sem heimiluðu slíkar aðgerðir voru sett. Lögin voru í gildi í tæp 40 ár og voru skráðar 726 ófrjósemisaðgerðir á tímabilinu, nær allar flokkaðar sem vananir, en fjórar voru afkynjanir á körlum til að koma í veg fyrir að þeir brjóti af sér kynferðislega. 120 aðgerðir voru gerðar vegna andlegs vanþroska eða geðveiki þess...

Skotárásir II: Skotvopnalöggjöf 07.06.2022

Við fjöllum áfram um skotárásir í Þetta helst. Í dag einblínum við á skotvopnalöggjöf og eld heitar umræður og deilur um skotvopnaeign í Bandaríkjunum. Hart hefur verið tekist á um málið í áraraðir. Löggjöfin er æði frjálslynd í samanburði við önnur ríki heims og rétturinn til að eiga og bera vopn er verndaður í annarri grein stjórnarskrárinnar, þótt einnig sé deilt um það. Von margra, sér í lagi...

Meiðyrðamál Veðurguðsins 03.06.2022

Við fjöllum um aðdragandann að meiðyrðamáli Ingólfs Þórarinssonar veðurguðs, sem hann tapaði í vikunni fyrir héraðsdómi. Dómurinn virtist koma mörgum að óvörum fyrst um sinn, en síðan hafa lögspekingar margir sammælst um að hann sé í samræmi við, og mögulega til marks um, breytta tíma. Lögmaður Ingólfs vill áfrýja dómnum, sem hún telur rangan. Sunna Valgerðardóttir, nýr liðsmaður Þetta helst, fer...

Skotárásir I: Skotárásin í Uvalde í Texas 02.06.2022

Um miðjan maí myrti átján ára maður tíu og særði þrjá í stórmarkaði í Buffalo í New York í Bandaríkjunum, í árás sem lögregluyfirvöld lýsa sem hreinum og klárum rasískum hatursglæp. Árásarmaðurinn var handtekinn á vettvangi. Skotárásin var þá ein sú mannskæðasta í Bandaríkjunum það sem af er ári - jafnvel þótt hún væri númer 198 á þeim rúmlega nítján vikum sem þá voru liðnar af árinu. Það átti þó...

Depp gegn Heard 01.06.2022

Við fjöllum í dag um réttarhöldin í meiðyrðar- og skaðabótamáli bandaríska leikarans Johnny Depp, gegn fyrrum eiginkonu sinni, leikkonunni Amber Heard. Réttarhöldunum er nýlokið, en þau vöktu athygli heimsbyggðarinnar enda var sýnt frá þeim í beinni útsendingu. Guðmundur Björn ræðir við Sonju Sif Þórólfsdóttur, blaðamann á Morgunblaðinu, um þetta flókna mál. Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar...

Hatursorðræða og laga- og réttarkerfið 31.05.2022

Eins og ófá dæmi hafa sýnt að undanförnu er hatursorðræða og -tjáning útbreitt samfélagsmein. Meinsemd sem virðist heldur færast í aukana. Í síðustu viku könnuðum við orsakir hatursorðræðu - báðum Eyrúnu Eyþórsdóttur, lektor í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri og doktor í mannfræði, að varpa ljósi á hvers vegna fólk viðhefur hatursfull ummæli. Í dag ætlum við að beina sjónum okkar að öðrum þ...

Þrír mánuðir frá innrás Rússa í Úkraínu 30.05.2022

Þrír mánuðir eru frá því að Rússar gerðu innrás í Úkraínu. Við fjöllum um stríðið, afleiðingarnar og stöðuna í Úkraínu ásamt Jóni Ólafssyni, prófessor og sérfræðingi í málefnum Rússlands, í Þetta helst í dag. Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.

27.05.2022
Umdeild útlendingalög 25.05.2022

Til stendur að vísa 300 flóttamönnum og hælisleitendum af landi brott. Sú ákvörðun stjórnvalda hefur verið harðlega gagnrýnd, sem og nýtt frumvarp dómsmálaráðherra til útlendingalaga. Við ræðum um málið við Albert Björn Lúðvígsson, lögfræðing, sem þekkir lögin út og inn, en hann telur að breytingatillögurnar séu til þess fallnar að skerða réttindi umsækjenda. Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þa...

Lyt til podcasten Þetta helst i Replaio

Radio og podcasts i én app - gratis og uden tilmelding. Installer i dag, og gå ikke glip af lanceringen

Hent den på Google Play

Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.