RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: www.ruv.is
Hvor kan du lytte?
Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snartPodcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts
Episoder
Alex Jones og málaferlin vegna Sandy Hook 09.08.2022 20:00
Bandaríski samsæriskenningasmiðurinn Alex Jones var nýverið dæmdur til að greiða foreldrum drengs sem var myrtur í skotárásinni í Sandy Hook bætur. Jones hafði fullyrt ítrekað í þáttum sinum, sem fjöldi manns fylgir, að árásin á skólann hefði ekki gerst, að foreldrar barnanna sem þar létust væru leikarar og að allt hefði þetta verið skáldað upp af djúpríkinu til að taka byssur af bandarískum almen...
Það gýs ekki bara á Íslandi 08.08.2022 20:19
Þessa stundina, mánudaginn 8. ágúst 2022, eru um það bil 25 eldfjöll að gjósa í heiminum. Eitt gýs á Íslandi en sex eru spúandi í Indónesíu. Það er meira að segja eldgos í gangi á Suðurskautslandinu. Í Þetta helst dagsins skoðum við gjósandi heimskortið, fræðumst um mengun af völdum eldfjalla og lítum aðeins aftur til hryllingsins í Bandaríkjunum 1980 þegar eldkeilan í Washingtonríki sprakk með hr...
Afdrifarík heimsókn en engin tilviljun 05.08.2022 19:37
Nancy Pelosi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings fór til Taívan. Stutt heimsókn sem hefur reynst sérstaklega afdrifarík. Kínverjar eru sármóðgaðir og reiðir og Taívanir óttast um öryggi sitt. Var þetta með ráðum gert? Hvers vegna ættu Bandaríkjamenn að vilja rugga bátnum gagnvart Kína með þessum hætti? Hvaða skilaboðum er verið að koma á framfæri? Hver gæti fórnarkostnaðurinn verið?
Einkaþotur: Bráðmengandi bruðl eða sjálfsagður munaður ríkra? 04.08.2022 18:18
Það er einkaþotuskortur í heiminum. Reykjavíkuflugvöllur er fullur af þeim, enda lenda þar um tvö hundruð stykki á mánuði þegar mest er og gert er ráð fyrir að nærri því 900 einkaþotur lendi þar í ár. Ef eigendur, eða leigjendur, einkaþotnanna vilja staldra hér við á landinu í einhvern tíma þarf að greiða stæðisgjald - það er ókeypis fyrstu sex tímana, en svo byrjar mælirinn að tikka. En einkaþotu...
Þægilegar en skaðlegar blautþurrkur 03.08.2022 20:25
65 tonnum af blautþurrkum er sturtað niður í klósett landsmanna á ári hverju. Þær eyðileggja fráveitukerfi, skapa ærin fjárútlát og menga umhverfið. Farið er yfir hvers vegna og hvernig í þætti dagsins.
Síkvik jörð Reykjanesskagans í gegn um tíðina 02.08.2022 19:59
Jörð skelfur á Reykjanesskaganum. Þúsundir jarðskjálfta mælast nú á hverjum sólarhring, langflestir meinlausir þó, en nokkrir vel snarpir. Myndir hafa dottið af veggjum, dósir úr hillum, börn vakna af værum blundi og kaffivélasvæðin eru aftur farin að einkennast af nokkuð einhæfum spurningum eins og fannstu skjálftann, eða vaknaðirðu í nótt. Og er það vel. Fólk hefur lýst hrinunni í nótt sem þeirr...
Hið alltumlykjandi njósnahagkerfi sem fáir sjá 29.07.2022 18:29
Við þurfum að tala um njósnahagkerfið, stendur á heimasíðu Neytendasamtakanna. Netið hefur umbylt lífi okkar á undraskömmum tíma. Við erum nánast sítengd og höfum allar heimsins upplýsingar við höndina, eða réttara sagt við fingurgómana í gegnum allskyns snjallforrit og vefsíður sem við fyrstu sýn virðast flestar hverjar vera ókeypis notendum. Við leitum á Google, Google leitar á okkur. Við notum...
Dramadrottningin í Dyngjufjöllum rumskar 28.07.2022 18:39
Askja er vöknuð af værum blundi, segja vísindamenn. Hún náði ekki alveg hundrað árum Þyrnirósarinnar, en nokkuð nálægt því. Sextíu ár eru frá síðasta gosi í Öskju, en næstum því 150 ár eru frá því að hún var með svakaleg læti. Land hefur risið um 35 sentímetra við Öskju á síðasta ári, sem er alveg slatti, og vísindamenn segja að þessi þróun bendi til þess að kvika sé að safnast saman undir henni....
Vafasöm hegðun vararíkissaksóknara 27.07.2022 19:01
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari er enn og aftur búinn að koma sér í klandur vegna hegðunar sinnar á samfélagsmiðlum. Nú síðast fullyrti hann að hælisleitendur ljúgi til um kynhneigð sína til að fá að vera á Íslandi. Hver lýgur sér ekki til bjargar? spurði vararíkissaksóknararinn. Hann spurði reyndar líka hvort það væri skortur á hommum á Íslandi. Uppi varð fótur og fit, eðlilega, og dó...
Bretar halda Júróvisjon með úkraínsku ívafi 26.07.2022 19:31
Bretar halda Júróvisjon, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, á næsta ári, þrátt fyrir að hafa lent í öðru sæti í keppninni í ár. Sigurþjóðin, Úkraína, hefur því miður öðrum hnöppum að hneppa heldur en að halda keppnina, þó að forsetinn hafi gefið það út þegar úrslitin urðu ljós að það væri helst það sem hann vildi gera - halda júróvisjon í Maríopol - borg sem er í dag vart þekkjanleg sem slík....
Alþjóðlegt neyðarástand vegna apabólu 25.07.2022 21:06
16.000 manns hafa nú greinst með apabólu í heiminum, í 75 löndum og fimm hafa dáið af völdum sjúkdómsins. Níu hafa greinst á Íslandi samkvæmt nýjustu fréttum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsti um helgina yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna faraldursins. Vísindamenn segja veiruna mun flóknari heldur en margar aðrar sem heimsbyggðin er að fást við. Algengast er að bólur og sár komi fram á útlim...
Furðulegar hitabylgjur í Evrópu 22.07.2022 19:54
Hitabylgjurnar sem hafa geisað í Evrópu í sumar hafa kostað þúsundir lífið, brennt heimli fólks, garða, skóga, tún og hæðir. Heilu bæjarfélögin hafa verið rýmd af fólki og dýrum til að bjarga lífi þeirra. Hitinn fór upp í 40 til 43 gráður sumsstaðar í Evrópu í júní, mest þá í Frakklandi, þar sem fjöldi hitameta féllu. Önnur bylgja skall svo á Evrópu um miðjan júlí og hún er enn í gangi, sem teygði...
Kíkirinn sem getur ferðast aftur í tímann 21.07.2022 20:03
Það eru um það bil tvö þúsund milljarðar vetrarbrauta í okkar sýnilega alheimi. Hver og ein vetrarbraut er með marga milljarða stjarna. Við, jarðarbúar, búum á einni slíkri stjörnu. Í Þetta helst í dag ætlum við að líta út í geim, langt upp í himininn og út um allt, næstum því til upphafs tímans. James Webb sjónaukinn, nýjasta tryllitæki geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, var ekki búinn að...
Manndrápsfílar á Indlandi (e) 20.07.2022 18:08
Við lítum aðeins aftur til Indlands í dag. Katrín Ásmundsdóttir kannaði svolítið sértakt mál þaðan. Mál sem fór eins og eldur í sinu um internetið, og vakti upp flóknar spurningar um samvist manna og dýra á 21. öldinni. Fíll réðst á og traðkaði niður sjötuga konu þar sem hún sótti vatn í brunn. Konan lést af sárum sínum, en fíllinn sneri aftur þegar bálför hennar fór fram, kastaði líkinu til og tr...
Kynlíf íslenskra ungmenna 19.07.2022 18:25
Þriðjungi færri fimmtán ára stúlkur stunda kynlíf nú en í upphafi aldar hér á landi. Þetta leiða niðurstöður alþjóðlegrar rannsóknar á heilsu og lífskjörum skólabarna í ljós. Rannsóknin hefur verið gerð hér á landi á fjögurra ára fresti síðan 2006, með tilstyrk Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar. Rannsóknin nær til fjölda landa í Evrópu og Norður Ameríku. Spurt er út í alls konar þætti í lífum...
Manngerðar floteyjar í Kínahafi (e) 18.07.2022 18:19
Í þætti dagsins ætlum við að líta aftur til Kína með Katrínu Ásmundsdóttur. Leiðir ríkja heims til að auka við völd sín og umsvif eru margar og fjölbreytilegar. Ein leið er að auka við yfirráðasvæði sitt - færa út kvíarnar. En það getur verið erfitt og dýrt, kostað stríð, alþjóðaátök, mannfall og eyðileggingu. Sum ríki hafa því leitað nýrra og frumlegri leiða. Eins og Kína, sem hefur - undanfarin...
Gagnaverin sem fóðra símafíknina 15.07.2022 18:26
Við erum öll sítengd. Það er okkar nýi veruleiki, eða hann er jafnvel ekkert svo nýr lengur. Fræðimenn segja snjallgræjurnar vera orðnar framlengingu sjálfsins - símann hina nýju hægri hönd líkamans. Þau eru fá augnablikin sem við erum ótengd, erum ekki í símanum, spjaldtölvunni, fartölvunni, vinnutölvunni, með snjallúrið á okkur, fyrir framan snjallsjónvarpið eða nettengd í gegnum spinninghjólið....
Sjarmerandi svikahrappar 14.07.2022 18:15
Svikahrappar og loddarar leynast víða. Það mætti að minnsta kosti ætla miðað við allt afþreyingarefnið sem er í boði um þá: bíómyndir, hlaðvarpsseríur, Netflix-þáttaraðir, heimildamyndir og bækur - framboðið virðist endalaust. Vinsældir þessa fólks hafa sjaldan eða aldrei verið meiri en einmitt þessi misserin, fólk virðist njóta þess að fylgjast með þeim sem svíkja, ljúga og blekkja, villa á sér h...
Lúsmýið sem flestir, en ekki allir, hafa áhuga á 12.07.2022 19:26
Það er miður júlí. Þá er oft við hæfi að líta til náttúrunnar og kannski helst þeirra hliða hennar sem hafa áhrif á okkur mannskepnuna. Flest höfum við verið bitin af agnarsmáum flugum undanfarin ár, sérstaklega kannski síðustu tvö sumur þegar við komumst illa af landi brott út af svolitlu. Lúsmý fannst fyrst hér sumarið 2015 - í Kjósinni. Þessi litli vargur hefur ekki verið mikið rannsakaður. Það...
Riða í mönnum og dýrum 11.07.2022 19:07
Riðuþolinn sauðfjárstofn verður ræktaður, er fyrirsögn fréttaskýringar í nýjasta tölublaði Bændablaðsins. Nú hefur verið staðfest að nærri 130 íslenskar kindur bera ákveðnar arfgerðir, eru þannig byggðar í genunum, að þær eru verndaðar gegn riðu. Það á að rækta sauðfjárstofn sem er ónæmur gagnvart riðu og gera það hratt. Þetta helst skoðar hvað er fram undan í riðufrírri sauðfjárrækt á Íslandi og...
Boris Johnson: Sagan, staðan og arfleifðin 08.07.2022 17:42
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er búinn að segja af sér sem leiðtogi breska Íhaldsflokksins. Hann hættir sem forsætisráðherra í haust, þó að í þessu tilviki sé haust að einhverju leiti teygjanlegt hugtak. Johnson hefur stýrt Bretlandi í þrjú ár og er líklega einn litríkasti og umdeildasti stjórnmálamaður sem Bretland hefur átt. Það er mögulega eitt af því fáa sem er óumdeilanlegt þegar...
Framtíð kornræktar á Íslandi 07.07.2022 18:21
Mikilvægi innlendrar kornræktar hefur aukist verulega undanfarin ár. Stjórnvöld hafa lofað að skoða leiðir til að efla innlenda matvælaframleiðslu til að tryggja fæðuöryggi landsins sem verður brothættara með hverju árinu - hvort sem það er stríðsrekstri, smitsjúkdómafaröldrum eða hamfarahlýnun að kenna. Tilraunastjóri Landbúnaðarháskóla Íslands segir í Þetta helst að íslenska landbúnaðarkerfið sé...
Íslensku Michelin-stjörnurnar 06.07.2022 18:38
Ísland getur nú státað sig af tveimur veitingastöðum sem bera Michelin-stjörnu og eru þar með í hópi tæplega þrjú þúsund veitingastaða um allan heim. Langflestir staðirnir eru, eðli málsins samkvæmt, í Frakklandi en stjörnunum hefur verið að fjölga á Norðurlöndunum undanfarinn áratug. Norðurlöndin eru sögð brautryðjendur í sjálfbærri matargerð og slík viðurkenning var veitt hérlendum veitingastað...
Vendingar í máli Emmett Till 05.07.2022 18:31
Það eru liðin 67 ár frá því að Emmett Till, þá 14 ára gömlum, var rænt, hann pyntaður og loks myrtur á hrottafenginn hátt af tveimur mönnum. Tilefnið voru ásakanir ungrar konu um að drengurinn hefði flautað á hana og hegðað sér á óviðeigandi hátt gagnvart henni, í verslun hennar og mannsins hennar. Atvikið átti sér stað í Suðurríkjunum. Á tímum sem einkenndust af kynþáttahatri, -ofbeldi og misskip...
Morðin í Field's í Kaupmannahöfn 04.07.2022 18:20
Þrjú eru látin og fjögur liggja alvarlega særð á sjúkrahúsi eftir að ungur, danskur maður hóf skothríð með riffli í Fields-verslurnarmiðstöðinni frægu. Lögreglan telur manninn hafa verið einan að verki, en viðbúnaðarstig í borginni hefur verið hækkað, viðburðum aflýst og fólk er beðið um að hafa varann á. Tvö sem dóu voru einungis sautján ára gömul, sá þriðji var á sextugsaldri. Morðinginn birti ó...
Lignende podcasts
Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.