RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: www.ruv.is
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
Farsímasamband ekki öryggiskerfi almennings 12.11.2026 18:32
Íbúar í dreifbýli segja farsímasamband hafa versnað verulega eftir að slökkt var á 2G og 3G kerfunum í júní. Sambandsleysið hefur áhrif á öryggi fólks, atvinnurekstur og daglegt líf. Fjarskiptastofa viðurkennir að samband gæti hafa versnað sumstaðar en batnað annarstaðar. Stofnunin hefur takmarkaðar heimildir til inngripa. Niðurstöður umfangsmikilla mælinga á útbreiðslu farsímasambands liggja fyri...
Samherjagátan 2019-2025 11.11.2026 19:00
Skattgreiðslur til íslenska ríkisins vegna viðskipta Baldvins Þorsteinssonar og systur hans Kötlu Þorsteinsdóttur með hlutabréf í útgerðarfélaginu Samherja á árunum 2019 til 2025 nema samtals um 7,2 milljörðum króna. Baldvin Þorsteinsson, forstjóri og annar stærsti hluthafa Samherja, svarar spurningum fréttastofu um þessi viðskipti og skattgreiðslur vegna þeirra. Um miðjan maí vorið 2020 var sagt...
Bankarnir hagnast vel á meðan deilt er um bankaskatt 10.11.2026 14:58
Stóru viðskiptabankarnir þrír - Íslandsbanki, Arion banki og Landsbankinn - birtu um mánaðarmótin uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Kvika banki fylgdi síðan í síðustu viku. Þegar litið er til stóru bankanna þriggja sést að þeir skiluðu samanlagt um 79 milljörðum króna í hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins. Í þætti dagsins er sjónum beint að stöðu og hagnaði bankanna - og deilum um bankaskatt....
Umræðan um sölu ríkiseignar í Laugarási 09.11.2026 11:29
Íslenska ríkið hafði til skoðunar að selja tilteknum lækni 370 fermetra íbúðarhús í Laugarási í Bláskógabyggð með sérstakri heimild sem óskað var eftir með breytingum á fjárlögum í fyrra. Beiðnin um söluna á húsinu kom frá heilbrigðisráðuneytinu, Það sem er óvenjulegt við málið er að til stóð að ríkið seldi þetta einbýlishús beint til læknisins án auglýsingar á opnum markaði. Sveitarstjórinn í Blá...
Það sem kom í ljós í viðskiptum Ólafs í Samskipum 06.11.2026 19:00
Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli í síðustu viku. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ólafssonar fjárfestis í þessu skipafyrirtæki sem hann hefur verið kenndur við í áratugi. Sonur Ólafs og nafni, Ólafur Örn Ólafsson, heldur hins vegar áfram sem forstjóri Samskipa eftir kaup spænska fyrirtækisins. Fjallað er um sögu eignarhalds Ólafs...
Týndi kafli Thorsaranna 04.11.2026 16:22
Fyrir tuttugu árum var heilu upplagi af bók Guðmundar Magnússonar sagnfræðings um Thorsaranna, fargað og ný og breytt útgáfa prentuð. Útgefandi bókarinnar vildi ekki að fjallað yrði um fyrrverandi eiginmanni konu sinnar en óskaði í staðinn eftir umfjöllun um sig og son sinn. Þannig breytt kom bókin út. Guðmundur Magnússon hefur nú gefið bókina út í sínu upprunalegi handriti. En hvað var svona viðk...
Ríkið leigir hjúkrunarrými fyrir níu milljarða í Urriðahvarfi 03.11.2026 16:00
Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Samningurinn var gerður þann 9. september árið 2024, rúmum einum mánuði áður en boðað var til þingkosninga um haustið 2024. Eigendur hússins eru að hluta til þeir sömu og þeir sem eiga einkarekna heilbrigðisfyrirtækið Heilsuvernd sem svo gerði annan samning við...
Heimsókn utanríkisráðherra til Kína 02.11.2026 15:45
Í þætti dagsins ræðum við aukin samskipti og viðskipti Kína og Íslands, og afstöðu íslenskra stjórnvalda til Taívan. Utanríkisráðherra fundaði í lok síðustu viku með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Beijing, þar sem hún var í opinberum erindagjörðum í vikunni. Rætt er við Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands.
Menn með dóma fyrir glæpi sem starfa við barnavernd 30.10.2026 18:00
Í Noregi og Svíþjóð hafa komið upp mál þar sem einstaklingar með tengsl við undiheimana og glæpasamtök hafa unnið hjá og jafnvel stýrt einkareknum fyrirtækjum sem sinna barnavernd og börnum með fjölþættan vanda. Í Noregi í lok ágúst sögðu fjölmiðlar frá því að einstaklingar með tengsl við glæpaheiminn í landinu ynnu hjá eða stýrðu sextán barnaverndarfyrirtækjum á tilteknu svæði í Noregi. Norska ef...
Líður landsbyggðin fyrir fækkun lögregluembætta? 29.10.2026 15:36
Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem hefur fallið í grýttan farveg í dreifðari byggðum landsins. Þar hefur fólk áhyggjur af samþjöppun valds og að ákvarðanir um þeirra heimahaga verði teknar af lögreglustjórum í mörg hundruð kílómetra fjarlægð. Lögreglustjórar s...
Tíðindamikil byrjun nýja meirihlutans i Reykjavík 28.10.2026 16:30
Nýi meirihlutinn í borgarstjórn hefur hafið störf af miklum krafti síðustu mánuði. Uppsagnir á fjölda starfsfólks, niðurskurður á þjónustu á Borgarbókasafninu, fyrirhuguð einkavæðing Ljósleiðarans og umræður um einkarekstrarvæðingu á Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er meðal þeirra mála sem ratað hafa í fréttir á síðustu vikum. Rætt er um þessa byrjun nýja meirihlutans við prófessorinn Evu Heiðu Önn...
Tíðindaleysi á þingi 27.10.2026 15:15
Óvenju lítið hefur verið að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Rætt er við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, um stöðu mála.
Sjö ára baráttu lauk í Hæstarétti 26.10.2026 16:59
Um miðjan mánuðinn féll dómur Hæstarétti Íslands í máli sem Elva Björk Haraldsdóttir höfðaði Gegn tryggingafélaginu Verði. Málið getur haft fordæmisgildi fyrir námsmenn og efnaminna fólk sem lendir í slysum og þarf að fá vinnu- og tekjutap sitt bætt vegna örorku. Með þessum dómi lýkur sjö ára ferli í lífi Elvu Bjarkar sem hófst eftir að hún hafði lent í bílslysi í Reykjavík. Ágreiningurinn í máli...
Tekjur rithöfunda rýrna 23.10.2026 17:44
Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Internetið, samfélagsmiðlar og hljóðbækur hófu innreið sína en skila ekki tekjum í sama mæli og prentuð eintök. Tekjur höfunda hafa rýrnað, hvort sem þær eru vegna bóksölu, listamannalauna, útlána á bókasöfnum eða annarra verkefna.
Rifrildið um jarðir og laxveiðiár Jim Ratcliffes 22.10.2026 21:00
Í byrjun vikunnar kom upp umræðu um enska fjárfestinn Jim Ratcliffe og umsvif hans á Íslandi sem landeiganda og leigutaka laxveiðiáa. Þetta var eftir að lögfræðingurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Herdís Þorgeirsdóttir tjáði sig um hann í færslu á Facebook. Þar talaði hún meðal annars um hvað Ratcliffe væri stór jarðaeigandi á Íslandi. Bubbi Morthens tónlistarmaður blandaði sér í þessa um...
Gagnrýni á viðvaranakerfi Veðurstofunnar 21.10.2026 17:01
Djúp haustlægð gekk yfir landið í síðustu viku. Hvellurinn á Siglufirði reyndist meiri en búist var við og töluvert tjón varð á húsum, bílum og lausamunum í bænum. Í kjölfar veðursins voru lagðar á borð áleitnar spurningar um viðbragð og viðvaranir - þeirra á meðal hvort Veðurstofan ætti að gefa út fleiri staðbundnar litakvarðaðar viðvaranir. Rætt er við Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðing, Jóhann...
Sveitarstjórinn á Laugum í viðskiptum við skreiðarfyrirtæki 20.10.2026 18:30
Sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit, Katrín Sigurjónsdóttir, er eigandi fyrirtækis sem selur Samherja skreiðarpoka og þurrkgrindur fyrir skreiðarþurrkun útgerðarfyrirtækisins á Laugum í sveitarfélaginu. Fiskþurrkun Samherja er stærsti einkarekni atvinnurekandinn á Laugum með um 20 starfsmenn. Viðskipti fyrirtækis Katrínar, sem heitir Samleið ehf., við Samherja hafa staðið yfir í mörg ár, líka þegar h...
Mótmæli og óeirðir í Frakklandi 19.10.2026 17:52
Í þætti dagsins förum við til Frakklands þar sem ekkert lát er á mótmælum og óeirðum. Rætt er við Torfa Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands, og Kristínu Jónsdóttur, sem er búsett í París.
Rígurinn á milli kók og pepsí í ljósi rannsóknar Samkeppniseftirlitsins 16.10.2026 17:59
Hvort er betra, kók eða pepsí? Þetta er ein af þessum spurningum sem sjálfsagt margir hafa skoðun á. Rígurinn á milli þessara sykruðu gossrykkja er langvinnur og sögulegur, bæði hér á Íslandi sem og annars staðar. Í áratugi hafa íslensku fyrirtækin sem framleiða þessa drykki verið á sitt hvorum pólnum í köldu stríði. Þetta eru Ölgerðin og fyrirtækið sem lengst af hét Vífilfell en heitir nú CCEP. S...
Samkeppnin á tímum lífeyrissjóðanna 15.10.2026 15:59
Einstaka lífeyrissjóðir eru eigendur í fyrirtækjum sem á sama tíma eiga að vera keppinautar á markaði. Undir er matvara, bensín, bankastarfsemi og fjarskiptaþjónusta, svo fátt eitt sé nefnt. Prófessor segir þetta áhyggjuefni en framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs segir það fela í sér kosti. Lífeyrissjóðir eftirláta öðrum stjórn skráðra fyrirtækja sem þeir eiga stóra hluti í. Óháðar nefndir sjái um að g...
Ölgerðin í ÁTVR: „Ríkið í Ríkinu“ 14.10.2026 19:29
Ölgerðin hefur verið til umfjöllunar í fréttum síðustu daga út af húsleit Samkeppniseftirlitsins hjá fyrirtækinu út af meintri misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur fjallað ítarlega um þessi meintu brot. Ölgerðin er orðið að risa á drykkjarvöru- og matvörumarkaði á Íslandi. Sala áfengra drykkja frá Ölgerðinni nemur um helmingi af allri sölu áfengis hjá ÁTVR. Þetta...
Sjálfkeyrandi bílar ryðja sér til rúms 13.10.2026 18:37
Í dag beinum við sjónum okkar að sjálfkeyrandi bílum. Rætt er við Rósu Guðbjartsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, Björn Kristjánsson, bílasérfræðing og ráðgjafa hjá FÍB, og Þórhildi Elínu Elínardóttur hjá Samgöngustofu. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Tímakaup Wolt-sendla 12.10.2026 15:59
Þegar talað er um tímakaup Wolt-sendla á Íslandi er ekki verið að tala um tímakaup í sömu merkingu og flestir leggja í þetta orð. Tímakaup Wolt-sendla er tengt því hversu margar sendingar þeir fá beiðnir um að fara og hversu margar þeir samþykkja. Wolt sendlar geta fengið 0 krónur á tímann þrátt fyrir að þeir séu að keyra um merktir Wolt, skráðir inn í kerfið þar sem þeir fá sendingar og bíða efti...
Glæpur og refsing í Manchester City 09.10.2026 20:00
Stærð og umfang hneyklisins í kringum fótboltaliðið Manchester City stækkar dag frá degi með nýjum fréttum af málinu. Ólíkar hugmyndir hafa til dæmis komið fram á opinberum vettvangi um hvaða afleiðingar hneykslið muni hafa fyrir fjárfestingar auðmanna frá Abu Dhabi í Bretlandi. Verður eigandi Manchester City, Sheik Mansour, núna svo fúll að hann muni vilja hætta öllum viðskiptum í Bretlandi eða m...
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály