Myntkaup

Hlaðvarp Myntkaupa

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: myntkaup.is

Autor

Myntkaup

Kategorie

Business

Web podcastu

myntkaup.is

Nejnovější epizoda

26. zář 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Morgan Stanley kynnir til leiks BTC kauphallarsjóð á bestu kjörum markaðarins 04.04.2026

Í þessum þætti er rætt um nokkurn veginn óbreytt ástand markaðarins. Allir markaðir virðast um þessar mundir hanga á ummælum Trumps um framgang átakanna í Íran og virðast hver ummæli sveifla mörkuðum í báðar áttir. Eins og rafmyntafjárfestar hafa fengið að venjast virðast góðar fréttir hreyfa takmarkað við markaðnum eins og sakir standa, en það verður að teljast stórfrétt að Morgan Stanley, einn s...

Hræðsla markaðarins mælist aftur öfgakennd - Villandi fréttaflutningur af Clarity frumvarpinu? 28.03.2026

Síðastliðinn föstudag bárust jákvæðar fréttir af framgangi Clarity frumvarpsins þess efnis að það yrði brátt samþykkt án þess að takmarka rétt crypto fyrirtækja til að greiða viðskiptavinum vexti á stöðugleikamyntir. Markaðurinn brást við með talsverðum hækkunum þvert yfir helstu rafmyntir. Nokkrum dögum síðar kom í ljós að þessar fréttir stóðust ekki nánari skoðun og gengu hækkanirnar til baka og...

Seðlabankinn í Bandaríkjunum heldur stýrivextum óbreyttum og viðrar áhyggjur um efnahagshorfur 21.03.2026

Í þessum þætti halda þeir félagar áfram að fjalla um bjarnarmarkaðinn. Í vikunni átti sér stað klassískt "bear market pump" þegar BTC fór í 76k, sem var síðan selt rakleiðis niður aftur. Fjallað er um afstöðu Seðlabankans í Bandaríkjunum um framtíðarhorfur í efnahagsmálum, Michael Saylor og Strategy, önnur BTC "Treasury" fyrirtæki, og margt fleira.

Bjartsýni á markaðnum eykst lítillega - Er meiri sársauki í vændum? 14.03.2026

Fear and Greed mælikvarðinn hefur verið fastur vikum saman í "Extreme Fear" en mælist nú í um 30, eða "Fear". Sannleikurinn er þó áfram sá að Bitcoin og rafmyntamarkaðurinn í heild sinni er ekki sannfærandi og virðist sem margir reikni með því að botninn sé ekki að baki enn. Björn og Kjartan eiga samtal um hvernig þetta blasir allt við þeim, ásamt því að fara yfir helstu frétti...

Trump tjáir sig um Clarity Act og setur pressu á þingið - Bitcoin reynir aftur að komast yfir 70k 07.03.2026

Í þessum þætti fjalla þeir félagar einkum um Clarity Act og ummæli Trump, en hann birti þráð í vikunni þar sem hann sagði að þingið verði að samþykkja Clarity Act og hundsa kröfur banka þar í landi um að rafmyntafyrirtækjum verði meinað að greiða vexti af stöðugleikamyntum. Sömuleiðis var frétt um að Trump hefði fundað með Brian Armstrong, forstjóra Coinbase. Þessi þáttur er fyrsti sinnar tegundar...

Er risinn Jane Street arkitektinn að bjarnarmarkaðnum eða er verið að hengja bakara fyrir smið? 28.02.2026

Í vikunni sem er að líða bárust fregnir af málshöfðun gegn markaðsrisanum Jane Street fyrir meint lögbrot sem eiga að hafa verið ein helsta ástæðan fyrir verðhruni Terra Luna árið 2022. Samhliða þeim fréttum skapaðist umfjöllun á X og víðar þess efnis að Jane Street hefði markvisst keyrt verð Bitcoin niður með daglegri sölu gífurlegs magns af Bitcoin, sem hefði hætt frá og með málsókninni. Bitcoin...

Hvað þarf að gerast til að Bitcoin fangi athygli markaðarins á ný? 21.02.2026

Fremur tíðindalítið var á rafmyntamörkuðum síðastliðna viku og litlar hreyfingar voru á gengi helstu rafmynta. Stærstu tíðindin eru áframhaldandi stigmögnun í deilum Bandaríkjanna og Íran og virðist sem óhjákvæmilegt sé að til einhverra stríðsátaka komi. Mestur hluti þessa þáttar fór þó í samræður um þær gríðarlegu tækniframfarir sem hafa átt sér stað undanfarið á sviði gervigreindar og er sú tilg...

Er Bitcoin að glíma við tilvistarkreppu? 14.02.2026

Bjarnarmarkaðurinn heldur áfram að sannreyna tilvist sína en rafmyntir, margar hverjar, glíma við spurningar um hvernig þær réttlæta tilvist sína sem tækni og eignaflokkur. Ef Bitcoin er áhættuvörn eða eign sem er til þess fallin að verja verðmæti yfir lengri tíma af hverju er myntin þá um 50% niður á meðan gull hefur átt methækkanir að baki undanfarið? Hvernig nákvæmlega er bálkakeðjutæknin að fa...

Bitcoin fellur undir 60K - Meira en 50% lækkun frá októbermánuði 07.02.2026

Segja má að söguleg hræðsla hafi heltekið rafmyntamarkaði síðustu daga. Eftir látlausar lækkanir á gengi BTC niður fyrir 70.000$ fyrstu dagana í febrúar fylgdi fimmtudagurinn, 5. febrúar, eftir með svæsnu verðfalli og fór Bitcoin niður fyrir 60.000$ um stutta stund, í um 59.800$. Solana fór um skamma hríð undir 70$ og sömu sögu mátti segja um flestar aðrar rafmyntir. Hræðsla mældist í 5 í Fear &am...

Trump heldur ræðu í Davos - Heitir því að USA verði "Crypto Capital of the world" 24.01.2026

Í þessum þætti ræða þeir félagar, Björn og Kjartan, um áframhaldandi lægð á rafmyntamörkuðum. Enn ríkir óvissa um lögmæti tolla Trumps, en reiknað var með niðurstöðu Hæstaréttar í þeim efnum um miðjan janúar. Þeirri niðurstöðu hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma, en almennt er búist við að hún muni liggja fyrir í febrúar. Þá hafa áhyggjur um efnahagsmál og stýrivexti í Japan enn á ný vaknað m...

Sakamálarannsókn hafin gagnvart Jerome Powell - Eru alvarlegir brestir í CLARITY Act? 17.01.2026

Í þessum þætti var sjónum einkum beint að tveimur viðfangsefnum. Annars vegar er rætt um nýhafna sakamálarannsókn gagnvart Jerome Powell vegna óhemju mikils kostnaðar á endurbótum við byggingu seðlabankans. Hins vegar er rætt um áhyggjur sem hafa verið opinberaðar, meðal annars af hálfu Brian Armstrong, forstjóra Coinbase, vegna CLARITY frumvarpsins sem markaðurinn hefur bundið miklar vonir við að...

Stórsigur fyrir Strategy og Bitcoin - Morgan Stanley sækir um þrjá kauphallarsjóði fyrir rafmyntir 10.01.2026

Morgan Stanley Capital International (MSCI) hefur ákveðið að hætta við áform sín um að útiloka Strategy og önnur sambærileg félög frá helstu vísitölum sínum. Þetta verður að teljast stórsigur fyrir markaðinn í heild sinni enda hafa margir verið þeirrar skoðunar að þessi áform hafi verið einn helsti drifkraftur hrunsins eftirminnilega, 10. október síðastliðinn. Athygli vekur að á sama tíma tilkynni...

Árið 2025 gert upp - Hvað ber árið 2026 í skauti sér? 03.01.2026

Í þessum þætti gera þeir félagar, Björn og Kjartan, upp árið sem var að líða. Var 2025 eingöngu ár vonbrigða eða er hægt að tala um einhverja sigra sem skiptu máli? Hvað þarf að gerast á þessu ári til þess að það einkennist af sigrum í stað vonbrigða? Einnig er farið yfir skemmtilega tölfræði um hlaðvarpið sjálft og hlustendum færðar kærar þakkir fyrir árið sem var að líða.

Miklar áhyggjur fjárfesta af stýrivaxtahækkun í Japan - Er þetta stormur í vatnsglasi? 20.12.2025

Í þessum þætti er meðal annars fjallað um 25 punkta stýrivaxtahækkun í Japan og eru vextir þar í landi nú þeir hæstu í 30 ár, en þó aðeins 0,75%. Fjárfestar hafa miklar áhyggjur haft af stýrivaxtahækkuninni, enda orsakaði slík hækkun einn versta dag síðustu ára í ágúst í fyrra. Margt fleira er þó fjallað um, bæði af jákvæðum og neikvæðum toga, til að mynda er farið yfir fyrsta árið hjá Donald Trum...

Seðlabankinn í USA lækkar stýrivexti um 25 punkta - Bitcoin heldur áfram að ströggla við 90k 13.12.2025

Í þessum þætti er rætt um stýrivaxtalækkun í USA, en eins og spár gerðu ráð fyrir voru þeir lækkaðir um 0,25%. Þrátt fyrir lækkun er rafmyntamarkaðurinn áfram lágstemmdur og hræðsla er enn ráðandi tilfinning á markaðnum. Í þessum þætti var einnig rætt talsvert um hvernig rétt væri að meta fyrsta ár Trump í forsetaembættinu með tilliti til rafmynta. Þá var einnig vikið að stöðu Strategy og fjallað...

$11T risinn Vanguard gefur grænt ljós á crypto - Hver verða áhrifin? 06.12.2025

Markaðurinn heldur áfram að vera heldur lágstemmdur en Bitcoin strögglar við að halda sér yfir 90k. Miklar áhyggjur hafa skapast um hvort Strategy verði mögulega þvingað til að selja hluta af BTC forða sínum. Þeir félagar, Kjartan og Björn, fjalla um þetta mál og komast að þeirri niðurstöðu að líklega sé ekki grundvöllur fyrir þessum áhyggjum eins og sakir standa. Á hinn bóginn tók markaðurinn vel...

Nautin vakna til lífsins og keyra Bitcoin yfir 90k - Mun Seðlabanki Bandaríkjanna liðka fyrir mörkuðum í desember? 29.11.2025

Í þessum þætti halda þeir félagar, Björn og Kjartan, áfram að ræða sveiflur síðustu vikna og greina þær frekar. Einnig er fjallað um áhugaverðar fréttir sem hafa ekki farið hátt, en eru þó sannarlega mikilvægar. Sjónarmiðum um að hið versta sé að baka er teflt fram og rök færð fyrir því, meðal annars að fastlega er gert ráð fyrir stýrivaxtalækkun í USA í desember og að fyrir liggur að seðlabankinn...

Bitcoin í frjálsu falli - Nautin virðast lömuð af hræðslu. Hvar er botninn? 22.11.2025

Í þessum þætti halda þeir félagar, Björn og Kjartan, áfram að ræða látlausar lækkanir rafmyntamarkaðarins, en Bitcoin var hársbreidd frá því að falla undir 80.000$ í vikunni. Megináhersla var lögð á að greina ástæður þessa verðhruns, en óhætt er að segja að fæstir greinendur hafi séð eitthvað í líkingu við þetta fyrir. Ýmsar tilgátur hafa þó verið settar fram og var fjallað um nokkrar af þeim og l...

Hið opinbera í USA hefur starfsemi á ný - Crypto markaðurinn heldur áfram á hraðri niðurleið 15.11.2025

Eftir lengstu lokun í sögu hins opinbera í Bandaríkjunum tók það aftur til starfa á miðvikudaginn, eftir 43 daga lokun. Langflestir markaðsgreinendur gerðu ráð fyrir að markaðir myndu bregðast við með hækkunum en raunin varð þvert á móti. Bitcoin féll aftur undir 100k og í þetta skiptið kröftuglega, eða niður í 94.000$. Þá fór Ethereum nálægt 3.000$ og Solana fór undir 140$. Í þættinum þá halda þe...

Bitcoin fellur undir 100k og ofsafengin hræðsla grípur um sig 08.11.2025

Óhætt er að segja að nautin hafi mátt muna fífil sinn fegurri á rafmyntamarkaðnum undanfarnar vikur og glæstar vonir rafmyntafjárfesta um síðasta fjórðung þessa árs hanga á bláþræði eftir látlausar lækkanir. Bitcoin er í þessum rituðu orðum rétt tæplega 102.000$ eftir rúmlega 20% fall frá toppnum og lítur út fyrir að 100k múrinn gæti fallið aftur á næstu dögum. Þá hafa aðrar rafmyntir farið mun ve...

Stýrivextir lækkaðir um 25 punkta í USA - Powell varar þó við bjartsýni um frekari lækkanir 01.11.2025

Í þessum þætti er fjallað um ákvörðun Seðlabanka Bandaríkjanna um að lækka stýrivexti um 0,25 prósentustig, niður í 3,75-4,00% og af hverju markaðurinn brást skömmu síðar við með talsverðum lækkunum. Þá er vikið að samskiptum Bandaríkjaforseta og forseta Kína sem markaðurinn fylgist grannt með og farið yfir það hvort vænta megi samkomulags milli ríkjanna þar sem Bandaríkin slaka á tollum gagnvart...

Ætlar Seðlabanki Bandaríkjanna að taka rafmyntum opnum örmum? 25.10.2025

Bitcoin hefur haldið velli sæmilega vel, 100k múrinn hefur haldið samfleytt frá verðfallinu 10. október síðastliðinn. Einn stjórnarmeðlimur í stjórn Seðlabanka Bandaríkjanna flutti ræðu í byrjun vikunnar þar sem hann fjallaði mjög jákvætt um crypto markaðinn og bálkakeðjutæknina og hefur markaðurinn brugðist vel við. Þá náðaði Donald Trump CZ, fyrrverandi forstjóra Binance í vikunni og hafa verið...

Mesta hrun í sögu rafmyntamarkaðarins - Er bjarnarmarkaður skollinn á? 18.10.2025

Á föstudagskvöldið 10. október síðastliðinn, í kjölfar þess að Donald Trump tilkynnti á Truth Social að vænta mætti 100% tolla á Kína, átti sér stað einhver svakalegasti atburður í sögu rafmyntamarkaðarins. Bitcoin stóð af sér storminn ágætlega og hélt velli yfir 100.000$ genginu og að einhverju leyti má segja það sama um Ethereum og Solana, þótt gengi þeirra mynta hafi lækkað talsvert meira. Aftu...

Var 126.000$ BTC toppurinn? 11.10.2025

Þessi þáttur var tekinn upp í hádeginu, föstudaginn 10. október 2025. Fyrr í vikunni hafði Bitcoin náð nýjum hæðum í rétt rúmlega 126.000$. Kvöldið eftir að þátturinn var tekinn fékk rafmyntamarkaðurinn, og þá sér í lagi aðrar rafmyntir en Bitcoin, að kynnast allra hrottalegustu dýfu síðari tíma eftir tilkynningu Trumps um 100% tolla á Kína. Þegar þetta er ritað hefur markaðurinn jafnað sig talsve...

Bergþór Másson - Bitcoin: Sannleikur, sameiningarkraftur og sanngirni 04.10.2025

Í þessum þætti tók athafnamaðurinn, Bergþór Másson, hús á okkur og við áttum gott samtal. Bergþór hefur vakið mikla athygli í fjölmiðlum undanfarið fyrir hugrakka ákvörðun um að selja fasteign sína og kaupa Bitcoin í staðinn, en hann fjallaði meðal annars um þá ákvörðun í þættinum Ísland í dag. Í þættinum rekur Bergþór bakgrunn sinn og sögu og fer yfir hvað varð til þess að hann komst að þeirri ni...

Poslouchej podcast Hlaðvarp Myntkaupa v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály