Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: fotbolti.net
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
Heimavöllurinn: Októberfest! 06.10.2019
Það er pakkaður þáttur á Heimavellinum í dag. Við förum yfir sambandsslit HK/Víkings, frábæran árangur U19, næsta A-landsliðsverkefni, Evrópu-ævintýri Blika og allar heitustu fréttirnir hér heima. Hvað verður um HK/Víkings leikmennina? Hvaða lið velur Sveindís? Hvaða þjálfarar eru á lausu? Hvað gerir U19 liðið okkar á móti svakalegu liði Spánverja? Geta Blikar strítt Formigu og félögum? Hvaða liði...
Áhugaverð tölfræði úr Pepsi Max-deildinni 05.10.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 5. október. Fjórði hluti. Tómas Þór og Benedikt Bóas skoðuðu nokkra áhugaverða tölfræðipunkta úr liðnu tímabili í Pepsi Max-deildinni.
Tryggvi Páll um hrun Manchester United 05.10.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 5. október. Þriðji hluti. Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu við Tryggva Pál Tryggvason, fréttamann og stuðningsmann Manchester United. Rætt var um hrunið sem hefur orðið innan vallar hjá félaginu undanfarin ár.
Landsliðsumræða - Það sem vantaði í ræðu Hamren 05.10.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 5. október. Annar hluti. Nýr landsliðshópur var opinberaður á föstudaginn en framundan eru heimaleikir gegn Frakklandi og Andorra í undankeppni EM. Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu um fréttamannafund Erik Hamren og hópinn sem valinn var.
Óskar Hrafn um nýtt verkefni sitt hjá Breiðabliki 05.10.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 5. október. Fyrsti hluti. Tómas Þór og Benedikt Bóas spjölluðu við Óskar Hrafn Þorvaldsson, örstuttu eftir að hann hafði verið tilkynntur sem nýr þjálfari Breiðabliks. Óskar segir frá aðdragandanum og t...
Innkastið - Stórveldi hríðfalla í gæðum 02.10.2019
Evrópu-Innkastið er komið í loftið þessa vikuna. Það var frí í síðustu viku í Evrópu-Innkastinu en Elvar og Daníel eru mættir aftur. Rætt var um Meistaradeildarleiki vikunnar, afhroð Tottenham, gæðaleysið í stórleiknum á Old Trafford og ýmislegt fleira t...
Fantabrögð 7. umferð - Gylfi snýr aftur 30.09.2019
Gylfi Tryggvason snýr aftur eftir vel heppnaða ferð til Bandaríkjanna og nær að rífa sig aðeins upp meðan Aron átti erfiða umferð. Aubameyang heldur áfram að skora, sóknarmenn Liverpool klikkuðu á meðan einhverjir nældu sér í heimskuleg rauð spjöld. Þáttastjórnendur gerðu mikið af breytingum og munu sennilega halda því áfram.
Innkastið - Gestagangur í hátíðarútgáfu 28.09.2019
Lokaþáttur Innkastsins í beinni frá Dúllubar í Garðabæ! Góðir gestir og mikið stuð í lokaþætti Innkastsins þetta árið. Magnús Már og Gunni Birgis fengu til sín gullskóhafann Gary Martin, Josip Zeba varnarmann Grindavíkur og Harald Björnsson markvörð Stjörnunnar. Þá komu Benedikt Bóas og Tómas Þór í lokauppgjör.
Útvarpsþátturinn - Öðruvísi verðlaun í Pepsi Max 28.09.2019
Það var öðruvísi uppgjörsþáttur á X977. Pepsi Max-deildin gerð upp og spjallað við góða menn. Tómas Þór, Benedikt Bóas, Magnús Már og Elvar Geir voru í hljóðveri. Góða skemmtun!
Miðjan - Rúnar Kristins í meistaraspjalli 26.09.2019
Rúnar Kristinsson stýrði KR-ingum örugglega til sigurs í Pepsi Max-deildinni í sumar og varð um leið í þriðja skipti Íslandsmeistari sem þjálfari liðsins. Rúnar er gestur vikunnar í Miðjunni þar sem hann fer yfir tímabilið og stóru málin tengd því. Meðal efnis: Lykillinn að titlinum, ummælin um Beiti, aldursumræðan, bakvörðurinn Kennie Chopart, leikbann Björgvins Stefáns, besti liðsandinn, skemmti...
Fantabrögð - Umferð 6 - Hjammi kíkir í spjall um Sterling, skin og skúri 22.09.2019
Gylfi Tryggva var enn fjarverandi svo Aron fékk góða gesti í hús til að fara yfir sjöttu umferðina í Fantasy. Hjálmar Örn skemmtikraftur og Vignir Már Eiðsson, harðasti Arsenal maður landsins, kíktu í hús. Hins vegar var lesin upp yfirlýsing frá Gylfa vegna gengi hans í s&ia...
Innkastið - Þeir bestu verðlaunaðir og afrek á Nesinu 22.09.2019
Tómas Þór, Magnús Már og Elvar Geir í Innkastinu. Fjallað um íslenska boltann, Pepsi Max-deildina og Inkasso-deildina. Úrvalslið tímabilsins var opinberað, besti þjálfarinn, besti leikmaðurinn, besti ungi leikmaðurinn, besti dómarinn og allur pakkinn.
Heimavöllurinn: Úrvalslið og flugeldasýning á Hlíðarenda 22.09.2019
Íslandsmótinu eru lokið og það eru Valskonur sem standa uppi sem Íslandsmeistarar. Þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fara yfir deildina í sumar, opinbera úrvalslið Heimavallarins og velja besta og efnilegasta leikmann mótsins. Þær fá svo til sín góða gesti úr nýbökuðu Íslandsmeistaraliði Vals, þær Elínu Mettu Jensen og Hlín Eiríksdóttur.
Miðvarðapar Íslandsmeistaranna - Finnur og Arnór 22.09.2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. september. Elvar Geir og Tómas Þór fengu til sín góða gesti. Miðvarðapar Íslandsmeistara KR mætti í hljóðver X977. Finnur Tómas Pálmason og Arnór Sveinn Aðalsteinsson eru ólíkir en skemmtilegir karakterar. Þeir gáfu vel af sér í þættinum. Í upptökunni má einnig heyra viðtal við Júlíus Magnússon, leikmann Víkings, en hann var maður leiksins í bikarúrsl...
Inkasso-hornið - Hitað upp fyrir spennuþrungna lokaumferð 19.09.2019
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum lokaþætti er farið yfir stöðuna á toppi og botni deildarinnar þar sem spennan er mikil fyrir lokaumferðina sem fram fer á laugardaginn klukkan 14:00. Fjölnismenn eru búnir að tryggja sér sæti í Pepsi Max-deildinni e...
Innkastið - Meistaraþáttur og þjálfaraslúður 16.09.2019
KR-ingar eru orðnir Íslandsmeistarar og Víkingar bikarmeistarar. Það vantar bara (Staðfest) á að Grindvíkingar fari niður með Eyjamönnum. Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunnar Birgis fara yfir íslenska boltann í Innkastinu. Úrslitaleikur bikarsins, Pepsi Max-deildin, þj...
Miðjan - Víkingar í bikarsigurvímu 16.09.2019
Víkingur R. vann sinn fyrsta stóra titil í 28 ár þegar liðið lagði FH 1-0 í úrslitum Mjólkurbikarsins á laugardaginn.
Innkastið - Liverpool eini hesturinn í hlaupinu? 15.09.2019
Evrópu-Innkastið þessa vikuna er mætt í hús! Elvar og Daníel fóru yfir það helsta sem gerðist í ensku úrvalsdeildinni um helgina og skoðuðu einnig aðrar Evrópudeildir. Það er verið að hóta spennu víða! Gæti Liverpool rúllað yfir ensku deildina á þessu tímabili?
Fantabrögð - Umferð 5 - Pep-rotation byrjar 15.09.2019
Þrátt fyrir að einn leikur væri eftir í umferðinni ákváðu Fantabrögð að henda í uppgjör á sunnudagskvöldi. Gylfi Tryggva ákvað að draga sig í hlé frá þættinum þar sem hann var of reiður til að mæta. Þess í stað ákvað Aron að fá til liðs við sig góðan gest og það var heldur betur ýmislegt til að tala um. Ein óvæntustu úrslit enska boltans frá upphafi, KDB byrjaði á bekknum, Son komst í gang og liði...
Heimavöllurinn: Hvert fer Íslandsmeistaratitillinn? 14.09.2019
Það eru jólin á Heimavellinum um helgina. Stórleikur ársins er á Kópavogsvelli á morgun þegar Breiðablik tekur á móti Val. Tvö bestu liðin. Val dugir jafntefli. Breiðablik verður að vinna. Það er ekki seinna vænna að rýna í leikinn. Daði Rafnsson mætir á Heimavöllinn og rýnir með okkur í leikinn og Pepsi Max deildina. 2.deild er lokið og Völsungur eru meistarar. Við heyrum í fyrirliða Húsavíkurlið...
Útvarpsþátturinn - Bikarúrslit og þjálfarakapall 14.09.2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 14. september. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um íslenska boltann og hituðu upp fyrir bikarúrslitaleik Víkings og FH. Púlsinn var tekinn á aðstoðarþjálfurunum Guðlaugi Baldurssyni hjá FH og Einari Guðnasyni hjá Víkingi.
Innkastið - Leitað að blóraböggli 11.09.2019
Í þættinum er íslenska landsliðið í aðalhlutverki og við gerum upp þennan 4-2 tapleik gegn Albaníu í gær. Skoðum m.a. frammistöðu einstakra leikmann og möguleika okkar í riðlinum. Elvar Geir, Magnús Már og Tómas Þór eru í Innkasti dagsins. Meðal umræðuefna: Vonin enn góð þrátt fyrir úrslitin, Albanía betra lið en margir virðast halda, samfélagsmiðlar grimmir, Hjörtur fær að heyra það, Birkir Már í...
Innkastið - Uppgjör með Freysa eftir skyldusigur í Laugardal 07.09.2019
Innkastið var tekið upp á Laugardalsvelli strax eftir sigur Íslands gegn Moldóvu í undankeppni EM. Magnús Már, Gunni Birgis og Elvar Geir gerðu upp leikinn. Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari mætti í spjall. Meðal umræðuefna: Mark Kolbeins, samkeppnin um markvarðarstöðuna, staða Birkis Más, breyttar aðstæður Arons Einars, frábær frammistaða Ara Freys, óþægilegar fyrstu mínútur leiksins,...
Boltamálin með Gumma Ben - Sögur af Atla og landsliðið 07.09.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðmundur Benediktsson kom í heimsókn í þáttinn og ræddi um helstu fótboltamálin við Elvar Geir og Benedikt Bóas. Minning Atla Eðvaldssonar var heiðruð en Guðmundur þekkti hann vel. Þá var hitað upp fyrir landsli...
Endurvekja lokahófið eftir tímabilið 07.09.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristinn Björgúlfsson frá Leikmannasamtökunum kom í þáttinn og ræddi meðal annars um aðalfund samtakanna sem var haldinn á dögunum. Einnig sagði hann frá endurvakningu á lokahófi eftir tímabilið. Í upptö...
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály