Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: fotbolti.net
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
Enska hringborðið - Krísufundur Norður-Lundúna 09.11.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson var einn í fiskabúrinu og tók á móti íþróttafréttamanninum Einari Erni Jónssyni, stuðningsmanni Arsenal, og Ingimar Helga Finnssyni, stuðningsmanni Tottenham. Haldinn var krísufundur um gang mála hjá þessum tveimur liðum. Hallgrímur Indriðason, formaður Liverpool-klúbbsins, ræddi svo um húllumhæ klúbbsins fyrir stórleikinn á Spot.
Fantabrögð - 11. umferð - Lengi lifi Lundstram! 05.11.2019
Nú fer hver að verða síðastur að verða sér út um pláss á Lundstram vagninum. Þessi 4 milljóna demantur var maður umferðarinnar og er klárlega Fantasy leikmaður ársins hingað til. Manchester United náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Norwich, Mané heldur áfram að draga vagninn fyrir Liverpool og Tammy og Vardy sóknarlínan er málið. Við förum yfir Aguero málið, breytingar fyrir næstu umferð og f...
Innkastið - Brasilíubakverðir Liverpool og Emery grettur 04.11.2019
Brjáluð boltahelgi að baki og Elvar og Daníel fara yfir gang mála í Evrópu-Innkastinu. Bayern er búið að sparka stjóranum og ýmis sæti í ensku deildinni eru farin að hitna enn frekar. Endalausar endurkomur Liverpool, City í kröppum dansi, magnaður Ben Foster, sagan endalausa hjá United,...
Rúnar Páll á leið inn í sjöunda tímabilið sem aðalþjálfari Stjörnunnar 02.11.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var gestur og ræddi ítarlega við Elvar Geir og Tómas Þór. Rúnar er á leið í sitt áttunda tímabil í þjálfun meistaraflokks Stjörnunnar og í sjöunda árið sem aðalþjálfari. Í skemmtilegu og áhugaverðu viðtali ræðir Rúnar um starf sitt í Garðabænum. vonbrigðin að hafa ekki náð Evrópusæti, leikmannamál, ævintýrin í Ev...
Jón Páll fer kokhraustur til Ólafsvíkur 02.11.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jón Páll Pálmason, nýr þjálfari Víkings í Ólafsvík, var í viðtali frá Noregi. Jón Páll tekur við af Ejub Purisevic sem unnið hefur frábært starf hjá félaginu en hann fer fullur sj&aacu...
Fótboltafréttirnar - Kolbeinsmálið og Xhaka í veseni 02.11.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um helstu fótboltafréttirnar sem eru til umræðu á kaffistofum landsins. Elvar sagði frá því sem hann hafði heyrt varðandi mál Kolbeins Sigþórssonar en hann komst í fré...
Innkastið - Furðuleg hegðun fyrirliða og vítavesen 28.10.2019
Fjörug helgi er að baki í ensku úrvalsdeildinni og í Evrópu innkasti vikunnar ræddi Magnús Már Einarsson við Jóhann Skúla Jónsson stuðningsmann Manchester United og Jóhann Má Helgason stuðningsmann Chelsea.
Fantabrögð - 10. umferð - Leicester lestin farin af stað 27.10.2019
LOKSINS, LOKSINS! Loksins, eftir 3 slæmar Fantasy umferðir í röð fengum við skemmtilega umferð! Leicester vann sögulegan 0-9 útisigur þar sem Vardy og Perez skoruðu þrennur. Góðkunningjar Fantasy, þeir Salah og Sterling, skoruðu báðir og sóknarleikur Man Utd lifnaði við. Á meðan er Aguero orðinn bekkjarmatur og Aubameyang klikkaði í þriðja leiknum í röð. Við fórum yfir allt það helsta og skoðuðum...
Óli Kristjáns fer yfir stöðu FH og framtíð íslenska boltans 26.10.2019
Ólafur Kristjánsson var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 í dag. Þar var Ólafur í löngu spjalli við þá Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson. Ólafur fór yfir nýliðið tímabilið hjá FH...
Arnór Ingvi ræðir sturlaða toppbaráttu og Counter-strike 26.10.2019
Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason var í spjalli hjá Tómasi Þór Þórðarsyni og Benedikt Bóas Hinrikssyni í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 í dag.
Sævar Péturs útskýrir lægðina á leikmannamarkaðinum 26.10.2019
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag.
Heimavöllurinn: Getum við gert fleiri stelpur óstöðvandi? 24.10.2019
Það er rífandi stemmning á Heimavellinum í dag. Þær fréttist bárust í dag að jólabókin í ár er klár. Það er bókin Óstöðvandi sem þar landsliðsfyrirliðinn Sara Björk segir frá ferlinum innan sem utan vallar. Við fáum til okkar Magnús Örn Helgason sem skrifaði bókina og ræðum allt sem að henni kemur.
Fantabrögð - 9. umferð - Einu sinni VAR 22.10.2019
Einu sinni var gaman í Fantasy. Einu sinni spiluðu leikmenn eins og Aguero og Salah og skoruðu jafnvel ef vel lá á þeim. En nú erum við að treysta á 4M varnarmenn til að bjarga umferðunum hjá okkur, viku eftir viku. Nú sitjum við heima hjá okkur undir sæng og biðjum þess að verða ekki fórnarlömb Pep roulette í enn eitt skiptið. Að Liverpool haldi hreinu. Að Pukki nái einu marki í viðbót áður en vi...
Innkastið - Stig á Old Trafford gull eða glapræði? 21.10.2019
Nýtt Evrópu-Innkast þar sem farið er yfir helgina í ensku úrvalsdeildinni og önnur tíðindi Evrópuboltans. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz tóku þáttinn upp eftir að Arsenal, lið Daníels, hafði tapað gegn nýliðum Sheffield United. Rætt var um stöð...
Enska hringborðið - Sóli Hólm formaður Liverpool samfélagsins 19.10.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það er svo sannarlega tilefni til að rífa enska hringborðið fram á gólfið enda risaslagur í enska boltanum á sunnudag. Manchester United tekur á móti toppliði Liverpool en Sóli Hólm, skemmtikraftur og formaður Liverpool samfélagsins á Íslandi, mætti í útvarpsþáttinn. Elvar Geir og Magnús Már ræddu við Sóla um komandi leik og það helsta sem er í gangi í ensku...
Freysi svaraði spurningum um stöðu mála hjá landsliðinu 19.10.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari ræddi við Elvar Geir og Magnús Má um ýmislegt tengt íslenska landsliðinu. Margt áhugavert kom fram.
Öryggisstjóri KSÍ: Við og UEFA fylgjumst vel með þróuninni í Tyrklandi 19.10.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þann 14. nóvember mætast Tyrkland og Ísland í undankeppni EM í Istanbúl. Eins og allir vita voru mikil læti í kringum viðureign þessara liða á Laugardalsvelli fyrr á árinu og Íslendingar urðu fyrir netárásum. Nú standa Tyrkir í hernaði í Sýrlandi og leikmenn landsliðsins fögnuðu að hermannasið í liðnum landsleikjaglugga þó talað sé um að ekki eigi að blanda...
Fantabrögð - Aukaþáttur - Við þurfum að ræða um Kevin 16.10.2019
Það var ýmislegt hægt að ræða í sérstökum aukaþætti af Fantabrögðum. Landsleikjahlé afstaðið, Vardygate hneykslið og Alisson mættur aftur. Aron og Gylfi fóru í samkvæmisleik þar sem þeir prófuðu að stilla upp liðum ef þeir væru að taka Wildcard núna og ræddu um komandi umferð. Hverjir eru að snúa til baka eftir meiðsli? Hvern á að setja sem fyrirliða? Á að spila Lundstram?
Heimavöllurinn - Efnilegastar í heimsókn 15.10.2019
Það er nóg um að vera á Heimavellinum í dag. Unglingalandsliðskonurnar Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir kíkja í heimsókn og fara yfir undanriðilinn hjá U19 og næstu verkefni, sigurleikur A-landsliðsins í Lettlandi er ræddur og hitað upp fyrir risastóra Meistaradeildarslaginn á morgun þegar Breiðablik tekur á móti stórliði PSG. Það er svo ekki hægt að sleppa því að fara aðei...
Innkastið - Treystum á pulsuleikinn í mars 14.10.2019
Landsliðs-Innkast beint úr Laugardalnum. Elvar Geir, Tómas Þór, Gunni Birgis og Magnús Már fóru yfir stöðu mála eftir sigurinn gegn Andorra. Farið var yfir leikinn og þýðingu hans. Í þættinum var einnig rætt um nýjustu þjálfaratíðindin í ísl...
Kristinn Kjærnested sleppir stjórnartaumunum hjá KR 12.10.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 12. október. Kristinn Kjærnested kom í heimsókn og ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór. Kristinn tilkynnti í vikunni að hann ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku hjá KR. Hann hefur verið &iac...
Þjálfaramálin og landsliðshringborð - Rýnt í frammistöðu Íslands 12.10.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 12. október. Rætt var um þjálfaramálin í íslenska boltanum og þá var sérstakt landsliðshringborð þar sem tapleikurinn gegn Frakklandi var gerður upp. Möguleikarnir voru skoðaðir og rýnt í frammistöðu...
Miðjan - Arnór Sig í sérstökum landsliðsþætti 10.10.2019
Magnús Már Einarsson ræðir við landsliðsmanninn unga Arnór Sigurðsson, leikmann CSKA Moskvu, í sérstakri landsliðsútgáfu af Miðjunni þessa vikuna. Arnór skaust almennilega fram á sjónarsviðið í fyrra en hann hefur verið að gera góða hluti með CSKA Moskvu í Rússlandi. Eftir viðtalið spjalla Magnús og Elvar um komandi landsleik gegn Frökkum.
Innkastið - Draumahelgi Liverpool og martröð Tottenham 07.10.2019
Það var fjörug umræða í Evrópu-Innkastinu í þessari viku og góðir gestir mættu í heimsókn. Tottenham stuðningsmenn vilja gleyma síðustu viku sem fyrst en liðið tapaði 7-2 gegn Bayern Munchen og 3-0 gegn Brighton. Þeir Hjálmar Örn Jóhannsson, Jóhann Alfreð Kristinsson og Ingimar Helgi Finnsson létu sig þó hafa það að mæta í Innkastið og ræða þessa hrikalegu viku hjá sínum mönnum í Tottenham. Liverp...
Fantabrögð 8 - Besti Fantasy spilari landsins kíkir í heimsókn 06.10.2019
Þetta tímabil í Fantasy Premier League hefur heldur betur verið erfitt og því miður varð engin breyting á því í 8. umferðinni. Því var brugðið á það ráð að fá besta Fantasy spilara landsins - Theodór Inga Pálmason í heimsókn, fara yfir sögu hans og strategíu í Fantasy sem og auðvitað yfirstandandi tímabil. Helstu fyrirliðar klikkuðu og var þar helst um að kenna City mönnum eins og Sterling og Ague...
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály