Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: fotbolti.net

Autor

Fotbolti.net

Kategorie

Sports

Web podcastu

fotbolti.net

Nejnovější epizoda

10. říj 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Lið 19. umferðar: Toppliðin áberandi 17.09.2016

Efstu þrjú liðin í Pepsi-deildinni skipa stóran sess í úrvalsliði umferðarinnar að þessu sinni. Arnar Grétarsson er þjálfari umferðarinnar eftir 3-0 útisigur Breiðabliks á Val. Árni Vilhjálmsson og Gísli Eyjólfsson eru báðir í liðinu en þeir sáu um markaskorun Blika í leiknum.

EM-partí úr útvarpinu - Sif, Berglind og Guðbjörg 17.09.2016

Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér í gær sæti í lokakeppni Evrópumótsins. Stelpurnar hafa þó ekki náð markmiðum sínum að vinna riðilinn. Framundan er toppslagur gegn Skotlandi á Laugardalsvelli á þriðjudag.

Kristján Atli gerir upp leik Chelsea og Liverpool 17.09.2016

Kristján Atli Ragnarsson á vefsíðunni kop.is var á línunni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Hann fór yfir 2-1 útisigur Liverpool gegn Chelsea ásamt Elvari og Tómasi.

Innkastið - Fallfnykur og Stjörnuströggl 14.09.2016

19. umferð Pepsi-deildarinnar fer fram á einu bretti á morgun en óhætt er að segja að fallbaráttan sé orðin galopin. Í Innkastinu er umferðin skoðuð af fréttariturum Fótbolta.net. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson skoða leikina og stöðu mála.

Innkastið - Fyrsta Evrópuferð tímabilsins 12.09.2016

Það er komið að fyrsta þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið. Síðasta tímabil var einblínt á Meistaradeildina en nú eru nýjar áherslur og þátturinn er á dagskrá vikulega, í upphafi nýrrar vinnuviku.

Matti Villa: Eiginlega of létt 11.09.2016

Matthías Vilhjálmsson og félagar í Rosenborg hafa algjöra yfirburði í norsku úrvalsdeildinni en liðið náði þó ekki að komast í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Matthías Vilhjálmsson, leikmaður Rosenborg, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í gær.

Guðmann: Annar hver maður var grátandi 11.09.2016

„Þetta hefur verið hrikalega skemmtilegt sumar," segir varnarmaðurinn Guðmann Þórisson en hann hefur verið lykilmaður í liði KA á Akureyri sem trónir á toppi Inkasso-deildarinnar. Guðmann var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í gær. KA hefur þegar tryggt sér sæti í Pepsi-deildinni á næsta ári og skiljanlega ríkir mikil gleði í gula hluta Akureyrar.

Tryggvi Páll gerir upp leik United og City 10.09.2016

Hádegisleikurinn í enska boltanum var stórleikur Manchester United og Manchester City. Þar unnu gestirnir í City 2-1 sigur. Fótbolti.net fékk Tryggva Pál Tryggvason á raududjoflarnir.is til að gera leikinn upp. Að hans mati var Paul Pogba stóru vonbrigði leiksins. Hlustaðu á hans sýn á þennan leik í spilaranum hér að ofan.

Gummi Steinars rýnir í komandi leiki í Pepsi 10.09.2016

Guðmundur Steinarsson, sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolti.net, fór yfir 18. umferðina í Pepsi-deildinni í dag. Umferðin hefst í dag með tveimur leikjum. Guðmundur ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór um komandi leiki og er hægt að heyra spjallið í spilaranum hér að ofan. Einnig er rætt aðeins um íslenska landsliðið og ferðalag þess til Úkraínu.

Óli Kristjáns: Mér líður betur í þessum klúbb 05.09.2016

Randers hefur byrjað vel í dönsku úrvalsdeildinni undir stjórn Ólafs Kristjánssonar. Eftir sjö umferðir er Randers með 14 stig, stigi á eftir toppliði Bröndby. Ólafur var í löngu viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net um helgina. „Við höfum verið mjög solid í varnarleik og ekki gefið mikið af færum og mörkum á okkur. Það hefur verið erfitt að spila á móti okkur. VIð höfum fengið næstfæst mörk á ok...

Oliver Sigurjóns: 1-0 ljótur sigur var sanngjarn 03.09.2016

Oliver Sigurjónsson, leikmaður Breiðabliks og U-21 árs liðs Íslands spjallaði við Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag. Hann talaði um 1-0 sigur liðsins á Norður-Írum í gær en liðið er í mjög góðri stöðu eftir sigurinn.

Innkastið - Ástríðubolti í Championship 30.08.2016

Keppni í ensku Championship deildinni er hafin en langt og strangt tímabil er framundan þar. Gunnar Sigurðarson og Viðar Ingi Pétursson eru miklir áhugamenn um Championship deildina. Þeir ræddu við Fótbolta.net um deildina og skoðuðu meðal annars gömul stórveldi sem þar eru. Fjórir íslenskir leikmenn verða í eldlínunni í Championship deildinni í vetur en það eru Aron Einar Gunnarsson (Cardiff), Hö...

Tómas Ingi vill sjá breytingar á reglum um erlenda leikmenn 29.08.2016

Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálfari U21 árs landsliðs karla, vill sjá reglur til að fækka erlendum leikmönnum í Pepsi-deildinni. Tómas Ingi telur að ungir leikmenn séu að tapa alltof miklum spiltíma á því hversu margir erlendir leikmenn eru í deildinni.

Kristinn Freyr: Ég er skapstór og tapsár 28.08.2016

Kristinn Freyr Sigurðsson, miðjumaður Vals, hefur verið á miklu flugi í Pepsi-deildinni og sú staðreynd að hann hefur verið fimm sinnum í röð í úrvalsliði umferðarinnar segir sitt. Kristinn kom í stórskemmtilegt spjall í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7. Kristinn lyfti bikarnum annað árið í röð með Valsmönnum nýlega en eftir þann titil hafa fylgt 7-0 og 4-0 sigrar í deildinni. Kristinn...

Kristján Atli gerir upp leik Spurs og Liverpool 27.08.2016

Hádegisleikurinn í enska boltanum var viðureign Tottenham og Liverpool. Leikurinn endaði 1-1. Fótbolti.net fékk Kristján Atla Ragnarsson á kop.is til að gera leikinn upp.

Gummi Steinars rýnir í komandi umferð í Pepsi 27.08.2016

Guðmundur Steinarsson er sérfræðingur útvarpsþáttar Fótbolta.net í Pepsi-deild karla. Guðmundur var á línunni í hádeginu og rýndi í komandi leiki í deildinni en 17. umferðin hefst í dag.

Innkastið - Game Over í Pepsi 23.08.2016

Leikirnir sex sem voru í 16. umferf eru skoðaðir í hljóðvarpsþættinum Innkastið. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Ingólfur Sigurðsson voru við hljóðnemana að þessu sinni.

Umræða um EM-framlagið í útvarpinu 22.08.2016

Mikil umræða hefur skapast um EM-framlagið sem félög landsins fengu eftir árangur íslenska landsliðsins í fótbolta.

Eyjólfur Héðins: Mætti með samviskubit hvern einasta dag 22.08.2016

Eftir erfiða baráttu við meiðsli síðustu ár er Eyjólfur Héðinsson kominn á gott ról og hefur byrjað síðustu þrjá leiki í Pepsi-deildinni. Ljóst er að margir hefðu gefist upp í sömu stöðu og Eyjólfur var í.

Freyr Alexandersson við Pepsi-hringborðið 21.08.2016

Freyr Alexandersson sat við Pepsi-hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í gær. Hlustaðu á upptöku af yfirferðinni í spilaranum hér að ofan.

Innkastið - Of margir leiðinlegir leikir 16.08.2016

Fjórum leikjum í 15. umferð Pepsi-deildar karla er lokið en þeir eru skoðaðir í hljóðvarpsþættinum Innkastið. Íþróttafréttamennirnir Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson voru við hljóðnemana. Einnig var rætt um bikarúrslitaleik Vals og ÍBV sem fram fór á laugardag.

Bikarúrslitin - Heyrðu í aðstoðarþjálfurunum á leikdegi 13.08.2016

Bikarúrslitaleikur karla fer fram á Laugardalsvelli í dag. Ríkjandi bikarmeistarar í Val og ÍBV eigast við klukkan 16.

Enska Innkastið - Manchester City 11.08.2016

Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst á laugardaginn og Fótbolti.net er þessa dagana að hita upp fyrir deildina.

Enska Innkastið - Chelsea 11.08.2016

Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst á laugardaginn og Fótbolti.net er þessa dagana að hita upp fyrir deildina.

Enska Innkastið - Manchester United 11.08.2016

Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst á laugardaginn og Fótbolti.net er þessa dagana að hita upp fyrir deildina.

Poslouchej podcast Fotbolti.net v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály