Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: fotbolti.net
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
Óli Stefán: Hélt að ég vissi allt 25.10.2016
Óli Stefán Flóventsson stýrði Grindavík upp úr Inkasso-deildinni á liðnu tímabili og mun á næsta ári þjálfa í Pepsi-deildinni í fyrsta sinn. Óli var gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X-inu síðasta laugardag.
Innkastið - Djöflar í drullunni og óvæntir hlutir 24.10.2016
Daníel Geir Moritz, Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fóru yfir boltahelgina í hljóðvarpsþættinum Innkastið en þátturinn er á dagskrá vikulega. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan.
Hvernig hefur gengið hjá okkar mönnum í Noregi? 24.10.2016
Aðeins tvær umferðir eru eftir af norsku úrvalsdeildinni en útvarpsþátturinn Fótbolti.net fékk Andra Júlíusson til að fara yfir hvernig tímabil íslensku leikmennirnir hafa átt. Þrír Íslendingar spila með Rosenborg sem hefur fyrir löngu tryggt sér norska meistaratitilinn með miklum yfirburðum.
Kjartan Henry: Þjálfarinn hlær og öskrar allan daginn 23.10.2016
Nýliðar Horsens í dönsku úrvalsdeildinni hafa verið að gera góða hluti og eru í sjötta sæti af fjórtán eftir fjórtán umferðir. Með liðinu spilar íslenski sóknarmaðurinn Kjartan Henry Finnbogason en hann spjallaði við útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu í gær.
Innkastið - Leiðindi í Liverpool 17.10.2016
Daníel Geir Moritz, Elvar Geir Magnússon og Ingólfur Sigurðsson tóku upp Innkastið eftir leik Liverpool og Manchester United í kvöld. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan.
Næsta U21-landslið? 17.10.2016
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um næstu kynslóð U21-landsliðsins í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 síðasta laugardag.
Farið yfir einkunnir íslensku landsliðsmannana 15.10.2016
Fótbolti.net er með sérstaka einkunnagjöf eftir alla landsleiki Íslands. Nú þegar þremur leikjum er lokið í undankeppninni fóru Elvar Geir og Tómas Þór yfir meðaleinkunnir leikmanna.
„Ekki raunhæft að stefna beint til Evrópu" 15.10.2016
KA-menn eru byrjaðir að undirbúa sitt fyrsta tímabil í efstu deild síðan 2004. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net heyrði í framkvæmdastjóra KA, Sævari Péturssyni, í dag og ræddi við hann um leikmannamarkaðinn og vallaraðstæður.
Innkastið - „Guð minn góður hvað hann var góður" 09.10.2016
Það er komið að fimmta þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið en þátturinn er með óhefðbundnu sniði þar sem landsleikjaveisla er í gangi. Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Tryggvi Guðmundsson fengu sér sæti á Laugardalsvelli eftir sigurinn sannfærandi gegn Tyrklandi í kvöld.
Hjörvar velur þá bestu og mestu vonbrigðin í Pepsi 09.10.2016
Hjörvar Hafliðason sparkspekingur mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í gær og gerði upp Pepsi-deildina á skemmtilegan hátt.
Hjörtur Hermanns: Ekki að fela okkur á bak við afsakanir 08.10.2016
„Það er náttúrulega bara spenningur í loftinu," sagði Hjörtur Hermannsson, fyrirliði U21 árs landsliðs Íslands, í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net nú áðan. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Hjört á hóteli U21-landsliðsins. Framundan er leikur gegn Úkraínu í undankeppni EM og þar er allt undir. Strákarnir í U21 landsliðinu geta með sigri gegn Úkraínu á þriðjudag tryggt sér...
Landsliðshringborð með Bjössa Hreiðars 08.10.2016
Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson sátu við hressandi landsliðshringborð á X-inu FM 97,7 í dag. Á línunni var Sigurbjörn Hreiðarsson og farið var yfir dramatíska sigurinn gegn Finnum.
Innkastið - Tryggvi Guðmunds gerir upp lygilegan leik 06.10.2016
Ísland vann ótrúlega dramatískan sigur gegn Finnlandi á Laugardalsvelli í kvöld. Á 90. mínútu var Ísland undir í leiknum en tvö mörk í uppbótartíma snéru dæminu algjörlega við.
Innkastið - Klukkan er gleði í Liverpool 03.10.2016
Það er komið að fjórða þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið en fótboltahelgin er gerð upp. Við erum að keyra inn í landsleikjahlé en gerum upp helgina í enska boltanum ásamt því að kíka til Spánar, Þýskalands og Nice.
Innkastið - Lokaumferðin og lið ársins 02.10.2016
Pepsi-deild karla lauk í gær. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson skoðuðu lokaumferðina í Innkastinu. Þá var farið yfir lið ársins sem opinberað var í dag.
Pepsi-kryddsíld útvarpsþáttar Fótbolta.net 01.10.2016
Það er lokadagur í Pepsi-deildinni í dag og af því tilefni er hátíðarútgáfa af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson gerðu deildina upp með ýmsum furðulegum flokkum.
Inkasso-umræða: Gleði og vonbrigði í leikslok 01.10.2016
Inkasso-deildinni lauk fyrir viku síðan en í útvarpsþættinum Fótbolti.net var deildin gerð upp á snarpan hátt. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson fóru yfir valið á liði ársins og skoðuðu þau lið sem stóðu ekki undir væntingum.
Vinir í leikskóla og eru Íslandsmeistarar saman 28.09.2016
Böðvar Böðvarsson og Kristján Flóki Finnbogason, leikmenn FH, hafa verið miklir vinir síðan í leikskóla. Í dag eru þeir Íslandsmeistarar saman en þeir voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag.
Innkastið - Hátíð hjá Wenger og Fáskrúðsfirðingum 26.09.2016
Það er komið að þriðja þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið en fótboltahelgin er gerð upp. Í þessum þætti er enski boltinn í brennidepli fyrri hlutann en í þeim síðari er íslenski boltinn til umfjöllunar.
Gummi Steinars skoðar spennandi 21. umferð 24.09.2016
Næst síðasta umferð Pepsi-deildar karla fer fram á morgun en allir leikirnir verða á sama tíma. Það er spennandi umferð framundan en Guðmundur Steinarsson rýndi í umferðina með Elvari og Tómasi í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag.
Addó: Erum tilbúnir fyrir skrefið upp 24.09.2016
Lokaumferð 2. deildar karla fer fram í dag. Það verða hátíðarhöld í Breiðholtinu þar sem ÍR-ingar fá bikarinn fyrir sigur í deildinni eftir leik gegn Aftureldingu. ÍR hefur verið í 2. deild síðan liðið féll úr 1. deild 2012.
Innkastið - Agabönn, Evrópa og þjálfaramál 20.09.2016
Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson gera upp 20. umferð Pepsi-deildarinnar í hljóðvarpsþættinum Innkastið þennan þriðjudaginn. Umferðin var áhugaverð. FH innsiglaði Íslandsmeistaratitilinn og Þróttur féll endanlega. Það er þó enn...
Innkastið - Mourinho-basl og besta lið heims 19.09.2016
Það er komið að öðrum þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið en fótboltahelgin er gerð upp þar sem enski boltinn er í aðalhlverki.
Bestur í 19. umferð: Býst við að fara aftur út eftir tímabilið 17.09.2016
„Ég hef kannski ekki beint svarið við því hver ástæðan er, svona fór þetta bara, en ég á eitt ár eftir og ég býst við því að ég fari aftur út eftir tímabilið," sagði Árni Vilhjálmsson, framherji Breiðabliks, í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Hann var þarna að ræða um dvöl sína hjá Lilleström í Noregi, en hann er í láni hjá Breiðablik út þetta leiktímabil. Árni er leikmaður 19...
Lið 19. umferðar: Toppliðin áberandi 17.09.2016
Efstu þrjú liðin í Pepsi-deildinni skipa stóran sess í úrvalsliði umferðarinnar að þessu sinni. Arnar Grétarsson er þjálfari umferðarinnar eftir 3-0 útisigur Breiðabliks á Val. Árni Vilhjálmsson og Gísli Eyjólfsson eru báðir í liðinu en þeir sáu um markaskorun Blika í leiknum.
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály