Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: fotbolti.net

Autor

Fotbolti.net

Kategorie

Sports

Web podcastu

fotbolti.net

Nejnovější epizoda

8. říj 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Peningarnir og HM í Rússlandi - Björn Berg fer yfir málin 22.10.2017

FIFA mokgræðir á meðan löndin sem halda stórmót stórtapa. Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Íslandsbanka, heimsótti útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Björn er mikill sérfræðingur þegar kemur að peningamálum í boltanum. Rætt var um kostnaðinn við að halda stórmót í fótbolta og hvernig horfurnar eru fyrir Rússland á næsta ári, þar sem við Íslendingar verðum. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þó...

Gústi Gylfa: Litlar breytingar í Kópavoginum 21.10.2017

„Þetta eru búin að vera 10 ár samtals í Grafarvoginum, frábær tími og ég fer sáttur," sagði Ágúst Gylfason, sem var ráðinn þjálfari Breiðabliks á dögunum, í samtali við Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson í útvarpsþættinum Fótbolta.net á X-inu 977. „Ég hlakka til að hitta strákana og byrja að æfa, við gerum það fljótlega í nóvember. Það er góð aðstaða í Kópavoginum og hópurinn er frábær,"...

Hræringarnir í Pepsi - Elvar og Tom skoða málin 21.10.2017

Markaðurinn hér á landi hefur verið líflegur og í vikunni sem er að ljúka hefur verið nóg af tilkynningum og fréttamannafundum. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fóru yfir helstu tíðindi í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Innkastið - Manchester býður upp á iðnað og listir 18.10.2017

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru mættir í Evrópu-Innkastinu eftir smá hlé. Meistaradeildin og enska úrvalsdeildin voru helsta umræðuefnið þetta kvöldið en einnig var rætt um ítalska boltann, umspilið fyrir HM og fleira.

Mennirnir bak við tjöldin - „Hef sótbölvað í mörgum ferðum" 16.10.2017

Íslenska landsliðið náði því merkilega afreki fyrir viku síðan að tryggja sér sæti á HM í Rússlandi. Starfslið íslenska landsliðsins er ekki fjölmennt en það er skipað einstaklingum sem hafa lagt á sig svefnlausar nætur til að aðstoða strákana okkar.

Jónas Guðni: Ánægjulegt að sjá unga Keflvíkinga í stórum hlutverkum 16.10.2017

„Þegar ég kom aftur í Keflavík var hugsunin að hjálpa liðinu aftur upp og svo ætlaði ég að hætta. Það tókst ekki á fyrsta tímabilinu en það tókst núna og ég er feginn að þurfa ekki að pína mig í annað tímabil," sagði Jónas Guðni Sævarsson í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 á laugardaginn.

Einkunnir Íslands - Hver var bestur í undankeppninni? 15.10.2017

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson gerðu upp magnaða undankeppni HM í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Íslendingar náðu að vinna sterkan riðil sinn og tryggja sér farseðilinn á HM í Rússlandi. Elvar og Tómas fóru yfir meðaleinkunnir leikmanna Íslands í undankeppninni og komust að því hver var besti leikmaður okkar liðs í riðlinum.

Ray Parlour: Sé Arsenal ekki skáka Manchester 14.10.2017

Ray Parlour, fyrrum leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, var gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net. Parlour varð þrívegis Englandsmeistari með Arsenal og fjórum sinnum bikarmeistari. Hann lék alls 339 leiki fyrir félagið á árunum 1992–2004. Eftir ferilinn hefur Parlour unnið við fjölmiðlastörf og í spjallinu var talað um Arsenal í dag og baráttuna í ensku úrvalsdeildinni, horft var til baka á g...

Tryggvi Páll um Liverpool - Man Utd: Tveir tímar sem maður fær ekki aftur 14.10.2017

Markalaust jafntefli var niðurstaðan í leik Liverpool og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Tryggva Pál Tryggvason blaðamann og stuðningsmann Manchester United og gerðu upp leikinn.

Innkastið - Við erum á leiðinni Rússland! 09.10.2017

Gleðivíman er allsráðandi í Innkastinu í kvöld. Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Tryggvi Guðmundsson fengu sér sæti strax og leik Íslands og Kosóvó lauk. Það verður að viðurkennast að það hafi verið farið hingað og þangað í Innkastinu að þessu sinni enda erfitt að halda skipulagi þegar gleðin er svona mikið við völd. Ísland er á leiðinni til Rússlands!

Þjálfarakapallinn í Pepsi-deildinni skoðaður 07.10.2017

Það hefur verið fréttaflóð varðandi þjálfaramálin í Pepsi-deildinni að undanförnu. Tvö lið hafa skipt um þjálfara, tvö lið eru án þjálfara og sæti einhverra þjálfara eru í óvissu. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már ræddu um þær hræringar sem eru í gangi í þjálfaramálunum og fóru yfir ýmsar sögusagnir sem hafa verið í gangi.

Veglegt landsliðshringborð - Addi Grétars gestur 07.10.2017

Það var boðið upp á landsliðsveislu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson mættu í gasklefann með stigin þrjú sem unnust í Tyrklandi. Þeir þrír voru á leiknum gegn Tyrklandi en mættu í þáttinn örfáum klukkustundum eftir að hafa lent á Keflavíkurflugvelli. Góður gestur mætti til þeirra, sjálfur Arnar Grétarsson þjálfari og fyrrum lan...

Innkastið - Rýnt í risaleikinn í Eskisehir 05.10.2017

Eftir að hafa skoðað leikvanginn í Eskisehir og fylgst með æfingu íslenska landsliðsins fengu Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson sér sæti fyrir utan hótelið og tóku upp nýtt Innkast. Rýnt er í komandi leik, líklegt byrjunarlið, helstu stjörnur Tyrkja og ýmislegt fleira. Tyrklandsforseti, bænaköll og skordýr koma meðal annars við sögu!

Innkastið - Tyrkland í dag frá Antalya 03.10.2017

Innkastið að þessu sinni er sent út frá Antalya í Tyrklandi þar sem íslenska landsliðið býr sig undir risaleikinn gegn heimamönnum sem fram fer á föstudagskvöld. Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is, var með Elvari Geir Magnússyni og Magnúsi Má Einarssyni í Innkastinu. Rætt var um æfingu íslenska liðsins í dag, meiðslaáhyggjurnar, möguleika varðandi byrjunarliðið, stöðuna í riðlinum og fleira.

Matti Villa: Ég er enginn lúxus leikmaður 03.10.2017

Matthías Vilhjálmsson var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann er staddur hér á landi um þessar mundir en þar heldur hann áfram að vinna í að koma sterkur til baka eftir meiðsli, þau fyrstu alvarlegu á hans ferli. Matti er þrítugur og hafði leikið glimrandi vel með norska stórliðinu Rosenborg þegar hann meiddist í æfingaleik. Hann byrjaði viðtalið á að segja frá aðdraganda meiðslana.

Býst við ærandi hávaða 02.10.2017

„Það verður 100% hávaði. Það er mjög gott að við spiluðum í Tyrklandi fyrir tveimur árum og það er gott að búa að þeirri reynslu. Það var ærandi hávaði í þeim leik og ég býst við svipuðu andrúmslofti núna," sagði Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsmaðurinn reyndi, í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Pepsi-Partí: Öðruvísi uppgjör og verðlaun veitt 30.09.2017

Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson héldu Pepsi-partí í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Það má segja að sérstakt lokahóf deildarinnar hafi verið haldið og óhefðbundin verðlaun veitt á færibandi! Þetta var allt á léttu nótunum. Hver var vallarþulur ársins? Aðstoðarþjálfari ársins? Vonbrigði ársins? Furðulegasta atvik ársins?... og svo mætti áfram telja!

Innkastið - Púlsinn tekinn á Liverpool 25.09.2017

Martin Sindri Rosenthal, stuðningsmaður Liverpool, var gestur í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Þetta er síðasti þáttur fyrir landsleikjahlé. Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon ræddu við Martin um Liverpool og þá var einnig farið yfir önnur helstu tíðindi úr enska boltanum og komandi leikir í Meistaradeildinni skoðaðir.

Innkastið - Víða þörf á naflaskoðun eftir sumarið 25.09.2017

Næstsíðasta umferð Pepsi-deildarinnar fór fram í gær. KR mistókst að vinna Fjölni og því ljóst að FH og Stjarnan fara í Evrópukeppnina. ÍBV og Víkingur Ólafsvík eru í fallhættu fyrir lokaumferð. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson fóru yfir leikina í Innkastinu.

Börkur: Fleiri en bara ég og Óli í félaginu 24.09.2017

Börkur Edvardsson, formaður Vals, ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Börkur er að sjálfsögðu í skýjunum eftir að Valsmenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn síðasta sunnudag og býst Börkur við því að partí aldarinnar verði á Hlíðarenda um næstu helgi þegar titlinum verður fagnað.

Haukur Páll og Gaui Lýðs gefa skemmtilega innsýn í lífið í Val 23.09.2017

Íslandsmeistararnir Haukur Páll Sigurðsson og Guðjón Pétur Lýðsson voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þessir mögnuðu miðjumenn gáfu skemmtilega innsýn inn í lífið í Val. Sögðu frá samsetningu hópsins, hvernig titlinum var fagnað og opinberuðu að það er oft mikill hiti á æfingum liðsins!

Jón Þór: Skelfileg tilfinning að upplifa þetta í faðmi fjölskyldunnar 23.09.2017

Skagamenn féllu úr Pepsi-deildinni á fimmtudaginn án þess að spila. Þar sem Fjölnir vann FH varð ljóst að ÍA leikur í Inkasso-deildinni á næsta ári. Jón Þór Hauksson tók við þjálfun ÍA í síðasta mánuði og vonast til þess að fá traustið til að halda áfram með liðið eftir tímabilið.

Elvar og Tómas hita upp fyrir næstsíðustu umferð Pepsi 23.09.2017

Næstsíðasta umferð Pepsi-deildar karla verður leikin á morgun sunnudag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoðuðu leikina og baráttuna framundan. Enn er ekki ljóst hvaða lið fellur með ÍA og Evrópubaráttan er opin. Þá er spurning hvort Andri Rúnar Bjarnason slái markametið?

Ítalski boltinn - Lazio 19.09.2017

Í dag verður fjallað um bláhvíta höfuðborgarliðið Lazio. Fjallað verður um hina margrómuðu tengingu við fasismann, byssuóða ítalíumeistara og svo að sjálfsögðu goðsagnir sem allir kannast við. Sérstaklega einn lágvaxinn framherja með sínu einkennandi st...

Innkastið - Leiðast hönd í hönd í Manchester 18.09.2017

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir enska boltann í Evrópu-Innkastinu. Halldór Marteinsson af raududjoflarnir.is var sérstakur gestur og Manchester United sérstaklega til umfjöllunar.

Poslouchej podcast Fotbolti.net v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály