Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: fotbolti.net

Autor

Fotbolti.net

Kategorie

Sports

Web podcastu

fotbolti.net

Nejnovější epizoda

8. říj 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Ofursunnudagur framundan - Hlustaðu á upphitun 09.12.2017

Það er sannkallaður Ofursunnudagur í enska boltanum framundan. Liverpool mætir Everton og Manchester United mætir Manchester City. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við tvo helstu sérfræðinga útvarpsþáttarins um enska boltann. Tryggvi Páll Tryggvason skoðaði leikinn á Old Trafford og Kristján Atli Ragnarsson ræddi um leikinn á Anfield.

Fótboltafréttir vikunnar með Elvari og Tómasi 09.12.2017

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net var á sínum stað á X977 en Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson héldu um stjórnartaumana. Í fyrsta hluta þáttarins var farið yfir fótboltafréttir vikunnar. Baráttan um gullknöttinn, Meistaradeildin, landsliðið í fótbolta og íslenskir leikmenn á faraldsfæti komu við sögu.

Innkastið - Ensk yfirtaka í Meistaradeildinni 06.12.2017

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz hittast í hverri viku og ræða um Evrópufótboltann í Innkastinu. Þátturinn að þessu sinni var tekinn upp eftir að riðlakeppni Meistaradeildarinnar lauk.

Freysi: Ótrúlega skemmtilegt þegar Argentína kom upp 03.12.2017

„Ég er núna í Osló," sagði Freyr Alexandersson þegar Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon heyrðu í honum hljóðið í beinni útsendingu í Útvarpsþættinum Fótbolta.net á X977 í gær. Freyr er landsliðsþjálfari kvenna en hann starfar líka sem leikgreinandi hjá karlalandsliðinu.

HM-hringborð - Drátturinn og allt sem honum tengist 02.12.2017

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson stýrðu sérstökum HM þætti á X977 í dag. Gestur þáttarins var Arnar Grétarsson, fyrrum landsliðsmaður. Þór Bæring var á línunni frá Rússlandi og rætt var um HM dráttinn þar sem Ísland fór í riðil með Argentínu, Króatíu og Nígeríu.

Innkastið - Enda þeir sem hinir ósigruðu? 30.11.2017

Það er komið að Evrópu-Innkastinu. Daníel Geir Moritz er fjarri góðu gamni þessa vikuna en Elvar Geir fékk Magnús Má og Gunnleif Gunnleifsson til að fara yfir enska boltann. Gunnleifur er stuðningsmaður Manchester City og fær toppliðið vænan sess í þætti dagsins. Þá myndaðist skemmtileg umræða um endurkomu Sam Allardyce.

Heimir Hallgríms: Alla dreymir um að lyfta bikarnum á HM 28.11.2017

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari vonast eftir því að Íslendingar muni panta sér ferðir til Rússlands í hrönnum þegar ljóst verður á föstudag hvar keppnisstaðir landsliðsins verða. Beðið er með mikilli eftirvæntingu eftir því að dregið verður í riðla á föstudaginn, klukkan 15:00 að íslenskum tíma.

Pepsi-pælingar með Hödda Magg 27.11.2017

Heilmikil umræða skapaðist varðandi umgjörð og annað í Pepsi-deildinni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Döpur mæting áhorfenda var einnig til umræðu. Eftir að Jón Rúnar Halldórsson var í viðtali í upphafi þáttarins mætti Hörður Magnússon, umsjónarmaður Pepsi-markanna, og sagði meðal annars sína skoðun á því hvort auknar sjónvarpsútsendingar hafi neikvæð áhrif á mætingu.

Jón Rúnar kom í útvarpsþáttinn og ræddi um íslenskan fótbolta 26.11.2017

Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi þar um sóknarmöguleika í íslenskum fótbolta, dræma mætingu á völlinn, samtökin ÍTF, fjölmiðlaumfjöllun um Pepsi-deildina, liðsstyrk FH-inga og fleira.

Innkastið - Slökkviliðsmaður og Liverpool-skellur 22.11.2017

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz snúa aftur í Evrópu-Innkastinu eftir landsleikjahlé. Enski boltinn og Meistaradeildin eru áberandi í þættinum.

Leiðin til Rússlands - Alfreð og Hannes fara yfir undankeppni HM 20.11.2017

Hér er sérstök útgáfa af Innkastinu, hljóðvarpsþætti Fótbolti.net. Þátturinn var tekinn upp í Katar nýlega en þar var Ísland í landsliðsverkefni. Elvar Geir Magnússon ræddi við sóknarmanninn Alfreð Finnbogason og markvörðinn Hannes Þór Halldórsson. Farið var yfir leiðina á HM í Rússlandi, undankeppnin var skoðuð leik fyrir leik og hugurinn látinn reika aðeins inn í framtíðina.

Landsliðsvalið - Baráttan um að komast til Rússlands 19.11.2017

Íslenska landsliðið tapaði gegn Tékklandi og gerði jafntefli við heimamenn í tveimur vináttulandsleikjum í Katar í liðnu landsleikjahléi. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoðuðu málin í útvarpsþættinum Fótbolti.net og fóru yfir baráttuna um að vera í landsliðshópnum fyrir HM í Rússlandi.

Óli Kristjáns kominn heim - Mætti í útvarpsþáttinn 19.11.2017

Það urðu kaflaskil hjá FH þegar Ólafur Kristjánsson var ráðinn þjálfari þjálfari liðsins. Æfingar eru farnar af stað hjá Hafnarfjarðarliðinu sem hefur verið sigursælasta lið landsins um margra ára skeið. Ólafur mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977.

Valtýr Björn pirraður út í Ventura og Tavecchio 18.11.2017

Íþróttafréttamaðurinn Valtýr Björn Valtýsson er stundum kallaður guðfaðir ítalska boltans á Íslandi. Valtýr hefur um margra ára skeið fylgst vel með ítölsku deildinni og lýst henni í sjónvarpi.

Elvar Geir í beinni frá Katar - Sérstakt land í Persaflóanum 11.11.2017

Elvar Geir Magnússon, annar ritstjóra Fótbolta.net, er staddur í Katar að fylgjast með íslenska landsliðinu í landsleikjahléi. Katar er land í Persaflóanum sem er hreinlega gjörólíkt Íslandi þrátt fyrir að Katarar séu svipað margir og Íslendingar.

Litla spurningakeppnin - Hlustaðu á þriggja manna úrslitakeppnina 11.11.2017

Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks, er sigurvegarinn í litlu spurningakeppninni sem hefur staðið yfir á Fótbolta.net undanfarnar vikur. Hvert félag úr Pepsi-deildinni sendi einn fulltrúa í spurningakeppnina. Úrslitaeinvígið fór fram í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 í dag.

Pepsi-yfirferð með Tómasi og Magga 11.11.2017

Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson skoðuðu fótboltafréttir vikunnar úr Pepsi-deildinni á X977 í dag. Þar voru helstu leigubílasögurnar skoðaðar og farið yfir félagaskipti vikunnar.

Ferðalag á HM í Rússlandi - Boltaspjall með Lúðvíki Arnarsyni 06.11.2017

Lúðvík Arnarson hjá Víta Sport kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Hann ræddi við Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz um fyrirhuguð ferðalög til HM í Rússlandi og fótboltaferðir Íslendinga erlendis. Einnig var rætt um Heimi Guðjónsson og færeyska fótboltann og íslenska landsliðið í fótbolta.

Enska hringborðið - Fyrsta fjórðungsuppgjörið 04.11.2017

Það var boðið upp á veglegt enskt hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon stýrði umræðum og við hringborðið voru Daníel Geir Moritz, stuðningsmaður Arsenal, Kristján Atli Ragnarsson, stuðningsmaður Liverpool og Tryggvi Páll...

Innkastið - Mourinho og allir höfðu rangt fyrir sér 31.10.2017

Evrópufótboltinn var til umræðu í Innkastinu. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir málin. Enska úrvalsdeildin og Meistaradeildin voru í aðalhlutverki en einnig var kíkt til Ítalíu, Þýskalands og Spánar. Jose Mourinho og samskipti hans við stuðningsmenn Manchester United voru til umræðu og skoðað það sem sérfræðingarnir voru með rangt fyrir tímabilið.

Þórður Inga: Fjölnishjartað ekki eins afgerandi í sumar 30.10.2017

Þórður Ingason, markvörður og fyrirliði Fjölnis, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þar ræddi hann meðal annars um liðið tímabil en í sumar hafnaði Fjölnir í 10. sæti Pepsi-deildarinnar.

Enska hringborðið - Gustar á Goodison Park 28.10.2017

Það hefur gustað vel á Goodison Park í upphafi tímabils. Illa gengur hjá liðinu, Gylfi hefur ekki náð að sýna sínar bestu hliðar og Ronald Koeman var látinn taka pokann sinn. Haraldur Örn Hannesson, formaður íslenska Everton klúbbsins, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Halli rætti við Elvar Geir og Tómas Þór um gang mála.

Pepsi-pælingar með Elvari og Tómasi 28.10.2017

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoðuðu fótboltafréttir vikunnar úr Pepsi-deildinni á X977 í dag. Heimir Guðjóns í Færeyjum, nóg að gera hjá ÍBV og Gary Martin fór aftur til Lilleström.

Innkastið - Varnarmenn vaða í villu 23.10.2017

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir helgina í enska boltanum í Evrópu-Innkasti vikunnar. Þeir brugðu á leik og völdu úrvalslið úr ensku úrvalsdeildinni þar sem aðeins mátti taka einn fulltrúa úr hverju liði. Rætt var um brottrekstur Ronald Koeman og fle...

Bjöggi Stef: Var orðið leiðinlegt að mæta á æfingar 23.10.2017

Björgvin Stefánsson, nýr sóknarmaður KR, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 um helgina. Björgvin var á dögunum kynntur í Frostaskjólinu.

Poslouchej podcast Fotbolti.net v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály