Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Flugvarpið

News IS ↓ Epizody: 176

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: soundcloud.com

Autor

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Kategorie

News

Web podcastu

soundcloud.com

Nejnovější epizoda

4. lis 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,7+ iOS už brzy

Epizody

#76 – Gjaldþrot Flugakademíu Íslands – Jón B. Stefánsson 23.04.2024

Rætt er við Jón B. Stefánsson stjórnarformann Keilis og Flugakademíu Íslands um gjaldþrot Flugakademíunnar. Jón fer yfir stöðuna varðandi uppgjör fyrrverandi nemenda við skólann og áætlanir um uppgjör þeirra skulda en sumir eiga enn inni peninga fyrir óflogna flugtíma. Hann segir það vinnulag að láta nemendur greiða fyrirfram fyrir flugnámið hafi reynst félaginu um megn þegar aðsóknin í skólann mi...

#75 – Þarfasti þjónninn - Þristurinn DC-3, 80 ára – 1. hluti. 18.04.2024

Samantekt um hina sögufrægu flugvél DC-3 á Íslandi í tilefni af 80 ára afmæli fyrstu vélar af þeirri gerð, sem nú er varðveitt á Flugsafni Íslands. Í þessum þætti er farið yfir atriði úr sögu Þristsins á Íslandi og birt eru viðtalsbrot úr kvikmyndinni Íslenskir atvinnuflugmenn við flugstjórana Snorra Snorrason, Henning Bjarnason og Geir Gíslason. Einnig er rætt við Sverri Þórólfsson flugstjóra um...

#74 – Lifandi saga flugsins varðveitt og kynnt - Flugsafn Íslands - Steinunn María Sveinsdóttir 06.04.2024

Rætt er við Steinunni Maríu Sveinsdóttur safnstjóra Flugsafns Íslands. Flugsafnið hefur vaxið og dafnað á síðustu árum og stór verkefni blasa við á næstunni, en safnið fagnar 25 ára afmæli í vor. Steinunn segir hér frá fjölmörgum áhugaverðum verkefnum til þessa og hvernig ætlunin er að þróa starf safnsins enn frekar í þá átt að ekki eingöngu að varðveita muni og sögu heldur einnig að opna heim flu...

#73 – Þyrluflugið í örum vexti - vannýtt tæki m.a. til sjúkraflutninga – Reynir Freyr Pétursson 19.03.2024

Reynir Freyr Pétursson þyrluflugstjóri og flugrekstrarstjóri HeliAir Iceland ræðir um stöðu þyrluflugs á Íslandi og tækifærin framundan. HeliAir Iceland er nýtt fyrirtæki sem sinnir margs konar spennandi verkefnum í að flytja bæði fólk og vörur fyrir innlenda og ekki síst erlenda kúnna. Reynir Freyr hefur áratuga reynslu af þyrluflugi hérlendis og fer m.a. yfir erfiða samkeppni á þessum markaði se...

#72 – Icelandair í góðri stöðu til sóknar, en breytinga þörf í KEF - Guðmundur Hafsteinsson 09.03.2024

Guðmundur Hafsteinsson stjórnarformaður Icelandair Group fer hér vítt og breitt yfir málefni Icelandair og áskoranir í rekstri félagsins. Aðalfundi Icelandair er nýlokið þar sem Guðmundur var endurkjörinn formaður stjórnar. Hann segir félagið mjög vel í stakk búið til að takast á við spennandi tíma framundan og grípa tækifærin sem gefast. Farið er yfir flotamálin, gengi félagsins á markaði og harð...

#71 – Ágjöf en aldrei uppgjöf – Mýflug/Ernir, Sjúkraflugið o.fl. – Leifur Hallgrímsson 18.01.2024

Rætt er við Leif Hallgrímsson sem á einstaka sögu í flugrekstri á Íslandi. Hann stofnaði Mýflug árið 1985 til að sinna, útsýnis- leigu- og kennsluflugi frá flugvellinum í Reykjahlíð – í sinni heimasveit. Það hafa verið mikil tíðindi í rekstri Mýflugs síðustu misserin. Félagið keypti um þriðjungshlut í flugfélaginu Erni og um síðustu áramót missti Mýflug samning um sjúkraflug við ríkið, sem verið h...

#70 – Icelandair aldrei stærra en 2023 – Airbus, ráðningar, cadettar og eldgos – Linda Gunnarsdóttir 29.12.2023

Linda Gunnarsdóttir yfirflugstjóri Icelandair segir hér frá met umsvifum félagsins á þessu ári og fyrirhugaðri stækkun. Boeing vélum verður fjölgað fyrir næsta sumar og þjálfun er að hefjast á Airbus á næstu vikum. Linda ræðir ráðningar á flugmönnum, cadet prógram og hvernig félagið reynir að takast á við ýmis krefjandi verkefni sem komið hafa upp á þessu ári.

#69 – Nautn að laga það sem var bilað – flugvirki og fallhlífarstökkvari – Hannes S. Thorarensen 22.12.2023

Rætt er við Hannes S. Thorarenssen flugvirkja sem unnið hefur fyrir fjölda íslenskra og erlendra flugfélaga í gegnum árin. Hann var í áratug bæði flugvirki og flugmaður á DC 3 í landgræðsluflugi og er enn að sinna viðhaldi á Þristinum þótt vélin sé nú eingöngu safngripur. Hannes segir hér frá sínum merkilega ferli í fluginu og einstakri sögu af því þegar hann stökk úr fallhlíf á Grænlandi til að ú...

#68 RFA nýr flugskóli – þarf samstarf allra til að efla atvinnuflugskennslu – Hjörvar og Bragi 20.11.2023

Rætt er við flugmennina og feðgana Hjörvar Hans Bragason og Braga Sigþórsson sem nú reka Flugskóla Reykjavíkur (RFA.) Skólinn er nú sá eini sem kennir til atvinnuflugmannsréttinda hérlendis eftir að Flugakademía Keilis hætti rekstri. Þeir segja það alls ekki sjálfgefið að þessi rekstur gangi nema gott samstarf náist við flugfélögin, stjórnvöld og lánastofnanir. Rætt er um ýmis mál sem tengjast flu...

#67 – PLAY í plús á Q3 – vetur nálgast og hægja á vexti - Birgir Jónsson 03.11.2023

Rætt er við Birgi Jónsson forstjóra Play í tilefni af árshlutauppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung 2023 þar sem félagið skilar í fyrsta sinn hagnaði eftir skatta. Flugfélagið Play hefur stækkað hratt, er með 10 flugvélar í rekstri og krefjandi vetur framundan þar sem spáð er taprekstri fyrir árið í heild. Farið er yfir stöðu félagsins og rýnt í nokkra þætti úr árshlutauppgjörinu. Þá er fjallað um bro...

#66 – Frábær Q3 og horfur góðar - basl í fraktinni – Bogi Nils Bogason 20.10.2023

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair fer yfir stöðu félagsins eftir öflugt uppgjör 3. ársfjórðungs og horfurnar framundan. Icelandair skilaði yfir 11 milljörðum króna í hagnað eftir skatta á 3. ársfjórðungi og bókunarstaða í farþegafluginu er góð. Fraktstarfsemin gengur hins vegar illa og áskorun verður að snúa þeim rekstri á réttan kjöl. Þá blasa við ýmsar kostnaðarhækkanir og áskoranir í rekst...

#65 – Flugmannaskortur yfirvofandi? - The Mentour Pilot – Petter Hörnfeldt 14.10.2023

Rætt er við Petter Hörnfeldt sem heldur úti viðamikilli útgáfu á youtube til að kynna og fræða áhorfendur um flugmál. Petter var gestur á Reykjavik Flight Safety Symposium á vegum ÖFÍA þar sem hann fór yfir stöðuna og horfur framundan út frá flugmannsstarfinu. Hann telur yfirvofandi mikinn skort á flugmönnum á allra næstu árum og segir frá því hvernig hann telur að flugfélögin og skólar þurfi að m...

#64 – RFSS – Flugnám, fíkniefnaskimanir og kulnun – Högni Björn Ómarsson 07.10.2023

Rætt er við Högna Björn Ómarsson flugstjóra og ritara FÍA í tilefni af Reykjavík Flight Safety Symposium, ráðstefnu ÖFÍA sem haldin verður í sjöunda sinn nú október. Á dagskrá ráðstefnunnar í ár verða margir áhugaverðir fyrirlesarar sem fjalla munu um fjarturna, flugnám og flugkennslu, streitu og kulnun, fíkniefnaskimanir og losunarheimildir. Högni gerir hér lítillega grein fyrir fyrirlesurum og s...

#63 – Loftlagsmál og orkuskipti lykilatriði í rekstri næstu árin – Heiða Njóla Guðbrandsdóttir 21.09.2023

Rætt er við Heiðu Njólu Guðbrandsdóttur aðstoðarframkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair um umfang rekstrarins á nýliðnu sumri og áætlanir félagsins um vöxt á næsta ári. Heiða Njóla fer einnig yfir nýjustu tækni sem er að halda innreið sína í orkuskiptum í fluginu, einkum með notkun vetnis og sjálfbæru þotueldsneyti, sem gæti skipt sköpum í rekstri flugfélaga á næstu árum. Hún skýrir einnig f...

#62 – Flughátíð í Reykjavík 3. júní “23 – Listflugmenn, fólkið og flugvélarnar 31.08.2023

Samantekt frá flugdeginum á Reykjavíkurflugvelli 3. júní 2023. Rætt er við nokkra sem komu að skipulagningu og dagskrá hátíðarinnar m.a. listflugmennina Snorra Bjarnvin Jónsson og Luke Penner. Fjölmargir gestir nýttu tækifærið til að skoða gamlar og nýjar flugvélar, sjá ýmsan búnað sem tilheyrir flugvallarekstri og fræðast um leið um flugið, en þetta var í fyrsta sinn í 4 ár sem flugdagur er haldi...

#61 – Forystumaður í fluglækningum á Íslandi – Þengill Oddsson 24.08.2023

Rætt er við Þengil Oddsson yfirlækni á heilbrigðisskor Samgöngustofu, en hann á að baki magnaðan áratuga feril í bæði flugi og lækningum og er sá sem leitað er til þegar upp koma vafamál varðandi heilbrigðisvottorð fyrir flugáhafnir. Þengill sinnir alþjóðlegu samstarfi fyrir hönd Íslands og þekkir vel hvaða mál eru þar helst til umræðu og hvaða breytingar eru í farvatninu eins og varðandi hámarksa...

#60 – Ásókn í flugnám hrundi - 4 byrjuðu í janúar og áhugi að aukast á ný - Óskar Pétur Sævarsson 12.05.2023

Rætt er við Óskar Pétur Sævarsson forstöðumann Flugakademíu Íslands um stöðu atvinnuflugnáms í dag og horfurnar framundan. Á kóvid tímanum hrundi aðsókn í atvinnuflugnám hérlendis eins og víðar um heim. Nú þegar atvinnugreinin er að taka all hressilega við sér á nýjan leik gæti blasað við skortur á sérhæfðu starfsfólki sem fylgir auknum umsvifum flugfélaganna. Óskar Pétur telur nauðsynlengt að kom...

#59 – Airbus vann Boeing í keppninni um Icelandair – Bogi Nils Bogason 05.05.2023

Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um þá ákvörðun félagsins að semja við Airbus í stað Boeing varðandi endurnýjun flugflotans. Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um kaup á allt að 25 Airbus XLR vélum og er ætlunin að innleiðing á LR vélum byrji árið 2025. Bogi ræðir einnig afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi, horfurnar framundan og ýmsar áskoranir sem við blasa.

#58 – Tekjur Play og Iceair hækka – eftirspurnin mikil - Co2 skatturinn kemur – Hans Jörgen Elnæs 26.04.2023

Rætt er við norska fluggreinandann Hans Jörgen Elnæs um stöðu og horfur á evrópskum flugmarkaði og einkum stöðu íslensku flugfélaganna Icelandair og Play. Tekjur þeirra og sætanýting hefur verið afar góð síðustu mánuði og íslensku félögin hafa líkt og fleiri verið að auka verulega framboð á ferðum og kynna nýja áfangastaði. Hans Jörgen segir allt útlit fyrir að eftirspurnin eftir flugi á Atlantsha...

#57 – EDA Live – „Lucky“ með blóðbragð í munni og rák í brók – Einar Dagbjartsson 17.04.2023

Rætt er við Einar Dagbjartsson flugstjóra frá Grindvík sem á skrautlegan og merkilegan feril í fluginu og lífinu almennt. Einar segir frá uppvextinum suður með sjó og hvernig hann leiddist út í að læra atvinnuflugið sem hann hefur starfað við í um 40 ár með hléum. Einar hefur barist við bakkus og sigrast á þunglyndi og liðsinnir í dag öðrum sem glíma við erfiðleika af þeim toga. Þátturinn var teki...

#56 – Skortur á starfsfólki gæti hamlað vexti – kynna þarf og efla flugnám – Matthías Sveinbjörnsson 24.03.2023

Rætt er við Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélags Íslands um uppganginn sem nú er í fluginu eftir nokkur mögur ár. Fyrirtækin eru farin að keppa um starfsfólk, einkum í sérhæfðari störfin. Aðsókn að námi tengdu flugi minnkaði í heimsfaraldrinum og gæti dregið dilk á eftir sér. Fjallað er um byltinguna sem er að verða í orkuskiptum í fluginu og yfirvofandi kolefnisskatt á flugleiðina til l...

#55 - Fyrsta flugkona Íslands – ruddi brautina en fékk ekki tækifæri - Erna Hjaltalín 27.02.2023

Fjallað er um Ernu Hjaltalín fyrstu flugkonu Íslands sem talin er ein merkasta kona íslenskrar flugsögu. Hún var önnur af sínum kynsystrum til að taka einliðaflugpróf, en fyrsta konan til að taka einkaflugmannspróf, atvinnuflugmannspróf og til að fá réttindi loftsiglingafræðings. Skyggnst er í gamlar og takmarkaðar heimildir um Ernu frá uppvaxtarárum hennar á Siglufirði og hennar baráttu lýst í st...

#54 – Forstjóri og flugstjóri á umrótartímum; Arnarflug – Íslandsflug o.fl. – Gunnar Þorvaldsson 26.01.2023

Gunnar Þorvaldsson flugstjóri og fyrrum framkvæmdastjóri er gestur í þætti #54, en hann hefur haft aðkomu að óvenju mörgum flugfélögum á sínum langa ferli. Fyrst með stofnun Austurflugs á Egilsstöðum ásamt vini sínum Sigurði Aðalsteinssyni og í framhaldinu hjá Loftleiðum, Flugstöðinni h.f, Air Viking, Arnarflugi og Íslandsflugi. Gunnar tæpir hér á nokkrum atriðum á löngum og stórmerkilegum ferli o...

#53 – Vertíð í þjálfun - metfjölgun flugáhafna Iceair – Guðmundur Tómas Sigurðsson 19.01.2023

Rætt er við Guðmund Tómas Sigurðsson ábyrgðarmann þjálfunar flugáhafna hjá Icelandair um vertíðina sem nú stendur yfir. Útlit er fyrir met í fjölda þeirra sem fara í þjálfun á þessu ári hjá félaginu og 3 flughermar í Hafnarfirði anna ekki þörfinni þegar mest lætur. Guðmundur Tómas segir hér frá áhugaverðri starfsemi í þjálfunarsetrinu í Hafnarfirði, áskorunum framundan og væntanlegri mönnunarþörf...

#52 – Andleg heilsa, peer support og áhrif covid – Jóhann Pétur Wium Magnússon 10.01.2023

Rætt er við Jóhann Pétur Wium Magnússon flugsálfræðing um andlega heilsu þeirra sem starfa við flugið og kröfur þar um. Aukin umræða og vitund um nauðsyn andlegrar hreysti hefur breytt miklu á allra síðustu árum og samhliða hefur reglum verið breytt til að skapa þeim sem glíma við andlega vanlíðan úrræði til að leita sér hjálpar. Fjallað er um m.a. „peer support programs“ og áhrif Covid faraldursi...

Poslouchej podcast Flugvarpið v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály