Bíófíklar Hlaðvarp
Bíófíklar
Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
Se7en (1995) 05.12.2024 1:09:51
Baldvin Z kvikmyndagerðarmaður hefur um árabil sótt mikinn innblástur í verk stórmeistarans David Fincher. Spennutryllirinn Seven (e. Se7en) er þar einna mesti áhrifavaldurinn enda stórmerkileg (og stórmerkilega hvöss) ræma sem hefur aldeilis fest sig í sögubókum kvikmyndanna síðan. En þó laumulega. Baldvin og Tommi ræða þennan glæsilega tangó af stílíseringu og minimalisma í handritinu sem hér bl...
Space Jam (1996) 29.11.2024 1:48:57
Atli Viðar Þorsteinsson, plötusnúður með meiru og oft kenndur við nafnið Atli Kanill, er sestur við míkrafóninn að sinni og færir sterk rök fyrir menningarlegu mikilvægi stoltu “cash-grab” myndarinnar Space Jam. Hér snýr ofurstjarnan Michael Jordan bökum saman við teiknimyndafígúrur til að bjarga dægurmálapersónum frá gráðugum braskara sem svífst einskis til að snara þær í viðbjóðslegan skemmtigar...
Saló (1975) & Space Buddies (2009) 25.11.2024 1:57:47
Hvers vegna?!... Svona í alvöru. Það er góð spurning. Upp kom sú áskorun í miðjum Gladiator II þætti að þyrfti að taka fyrir hina alræmdu og vægast sagt umdeildu kvikmynd, Saló o los 120 días de Sodoma. Sökum þess hversu mikil áskorun þykir að þrauka gegnum þá ógeðfelldu mynd, var eflt til enn stærri áskorunar að para þessa þjáningarperlu við ruslmynd um krútthvolpa í geimnum. Hvor er átakanlegri...
Gladiator II (2024) 19.11.2024 1:05:03
Heilagur draugur Maximusar! Það er komið framhald af stórmyndinni og jafnvel Óskarsmyndinni Gladiator frá árinu 2000. Lengi vel hefur verið hvíslað um að vaða í framlenginguna en Ridley Scott stóðst á endanum ekki freistinguna og tjaldar heilmiklu til með Gladiator II. Bíófíklarnir Kjartan og Tómas fengu til sín Atla Sigurjónsson kvikmyndagerðarmann til að ræða fyrri myndina, seinni myndina, nashy...
The Exorcist (1973) 13.11.2024 1:32:55
Hvenær er rétti aldurinn til að horfa á þessa andsettu stórsnilld og andstyggilega frábæru klassík? Kjartan hefur allavega náð þeim aldri þar sem hann hafði aldrei horft á The Exorcist, fyrr en á dögunum. Rétt fyrir tökur... Friðrik Önfjörð lagði Kjartani þá heimavinnu að kynna sér þessa kvikmynd með ferskum augum og þeir Tommi veita hafsjó af fróðleik um þessa tímamótakvikmynd frá William Friedki...
Little Shop of Horrors (1986) 07.11.2024 1:07:42
Ævar Þór Benediktsson hefur alltaf haft sérstakan stað í nördahjarta sínu fyrir Litlu hryllingsbúðinni. Ævar er nýjasti gestur Bíófíkla en þeir Tómas fara grannt í gegnum Auði tvö og hennar ævintýri í kvikmynd sem að mati gests eldist hreint fullkomlega. Þá fara þeir líka út í alls konar nostalgíu, íslenskar talsetningar, furðuleg samningsmál og hvað það var sem kom Ævari á þá leið sem hann er á í...
Get Out (2017) 31.10.2024 1:03:30
Jordan Peele setti veröldina á hliðina með fyrstu kvikmynd sinni, Get Out, og réttilega svo, enda splunkuný hlið á grínaranum góða sem lengi var kenndur við dúóið Key & Peele. Engu er heldur tilsparað með stór eða hlaðin málefni, og Peele tekst á við drungalega undir- og yfirtóna rasisma með gómsætum hætti. Það er svo margt og mikið til að ræða við þessa óvenjulegu hrollvekju þar sem þó er sja...
The Substance (2024) 23.10.2024 2:23:14
Íris Árnadóttir, hryllingsnörd og söngnemi, er sest í stúdíóið með Kjartani og Tómasi til að ræða um og rýna í eina umtöluðustu (og að mati margra ógeðfelldustu) kvikmynd ársins. Demi Moore og Margaret Qualley sýna báðar nýjar, beittari og djarfari hliðar á sér í stálhressum body-horror um útlitsdýrkun, frægð, einkennilega líkamsrækt og subbulega karlmenn. Þessi vægast sagt villta útrásarmynd eft...
From Dusk till Dawn (1996) 11.10.2024 51:50
Októbermánuður er tími drungalegra bíómynda eða hryllings af hvaða tegundar sem er og partímyndin From Dusk till Dawn er fínasta tilefni til Hrekkjavökugláps. Þessi subbulegi en eiturhressi bræðingur frá þeim Robert Rodriguez og Quentin Tarantino hefur einkennilegan strúktúr og Kjartan fékk verulega að kynnast því þegar hann horfði á myndina í fyrsta skiptið. Það sama á við um okkar gest að sinni,...
Strange Darling (2023) 06.10.2024 49:05
Fílar þú Tarantino-myndir með hnífbeittum viðsnúningi? Þá eru býsna góðar líkur að Strange Darling haldi þér við sætið þitt. Verst er þó að erfitt er að tala um myndina án þess að kafa dýpra í hana og spilla fyrir, en bíófíklarnir Kjartan og Bríet Birgisdóttir hvetja hlustendur að kíkja á Strange Darling sem allra fyrst - og vera síðan með í umræðunni. Stuð skal það vera! Efnisyfirlit: 00:00 - Án...
Joker: Folie à Deux (2024) 06.10.2024 1:23:52
Bíófíklar hefja göngu sína með sprelli og þeir Kjartan og Tómas skelltu sér á eina umtöluðustu og án efa umdeildustu stórmynd þessa árs, Joker: Folie à Deux! Eftir miklar vinsældir fyrri myndarinnar er aldeilis öllu tjaldað til í framhaldinu og meira að segja hefur hin ofurhæfileikaríka Lady Gaga bæst við leikhópinn til að deila sviðinu með Joaquin (e. ‘Wah-keen’) Phoenix. Þá rifja Bíófíklar einni...
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály