RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: www.ruv.is
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Byggingaréttur sem verðmæt markaðsvara 11.05.2026 17:20
Pétur Ármannsson arkitekt skrifaði nýlega grein sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann gagnrýndi veitingu byggingaréttar til lóðahafa hér á landi á þeim forsendum að litið væri á þennan byggingarétt sem eign viðkomandi. Hann kallaði slíka veitingu byggingaréttar ,,gjafakvóta”. Hvað á Pétur við þessu? Rætt er við hann í þætti dagsins og gagnrýni hans sett í samhengi við bensínstöðvalóðina á Egils...
Flókin meirihlutamyndun í borginni 08.05.2026 16:12
Við höldum áfram umræðu um sveitarstjórnarmál í þætti dagsins - enda stutt í kosningar - og rýnum í dag í mögulegan meirihluta í borginni út frá skoðanakönnunum og kosningaprófi RÚV, sem opnað var almenningi í upphafi vikunnar. Rætt er við Stíg Helgason, ritstjóra kosningaumfjöllunar RÚV, og Hafstein Einarsson, nýdoktor í stjórnmálafræði. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Flugmaður ræðir um fyrirhuguð kaup Icelandair á flugrekstarleyfi á Möltu 07.05.2026 16:14
Flugmaðurinn Ágúst Håkansson starfaði hjá Icelandair í 43 ár, frá því 1983 og þar til í febrúar á þessu ári. Hann hefur skrifað grein um fyrirætlanir Icelandair að fjárfesta í flugrekstrarleyfi á Mötlu. Hann mu birta greinina á næstunni í fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Ágúst segir í greininni og viðtali við Þetta helst að helsta ástæðan fyrir Möltuviðskiptum Icelandair sé lík...
Lífeyrisskuldbindingar sveitarfélaga 06.05.2026 15:17
Við höldum áfram umræðu um sveitarstjórnarkosningarnar sem verða í næstu viku - og beinum nú sjónum sérstaklega að rekstri sveitarfélaganna sem nokkuð er deilt um í aðdraganda kosninga. Sveitarfélög hafa verið að birta ársreikninga fyrir síðasta ár og eitt og annað hefur vakið athygli, þar á meðal áhrif lífeyrisskuldbindinga. Rætt er við Sögu Guðmundsdóttur, aðalhagfræðing Sambands íslenskra sveit...
Undanþágurnar sem Ísland getur fengið frá ESB um fiskinn í sjónum 05.05.2026 19:59
Í viðtali við breska viðskiptablaðið Financial Times í lok apríl sagði Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, að ambandið gæti boðið Íslandi undanþágur frá fiskveiðistefnu sambandsins til að flýta fyrir umsóknarferli Íslands að sambandinu. Álíka skýr skilaboð frá stjórnendum sjávarútvegsmála hjá Evrópusambandinu hafa ekki komið frá þeim nýlega. Costas Kadis sagði orðrétt að klárlega v...
Sjálfkjörið í fjórum sveitarfélögum 04.05.2026 14:47
Ljóst er að engar kosningar verða til sveitarstjórnar í Snæfellsbæ, Vopnafjarðarhreppi, Kjósarhreppi og Tjörneshreppi í næstu viku því yfirkjörstjórnum barst aðeins einn framboðslisti í þessum sveitarfélögum. Rætt er við Evu Marín Hlynsdóttur, prófessor og sérfræðing í sveitarstjórnarmálum, Auði Kjartansdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Snæfellsbæ, Írisi Eddu Jónsdóttur, oddvita Sterkrar stoð...
Leitin að kaupverði Sóltúns 30.04.2026 11:46
Í lok nóvember í fyrra samþykkti embætti Skattsins að heimila eigendum fyrirtækisins Öldungs hf., sem er móðurfélag hjúkrunarheimilisins Sóltúns, að lækka hlutafé þess og greiða tæplega 1.2 milljarða króna út til hluthafanna. Hjúkrunarheimilið er nær alfarið fjármagnað af íslenska ríkinu. Hjúkrunarheimilið Sóltún og rekstrarfélag þess Öldungur hf. voru til umfjöllunar í Þetta helst í gær vegna ran...
Rannsóknin á viðskiptunum með Sóltún 29.04.2026 15:19
Rannsókn stendur yfir hjá lögreglunni á Suðurnesjum á viðskiptum með hjúkrunarheimilið Sóltún árið 2009. Rannsóknin byggir á kæru frá fyrrverandi eiganda og eins stofnanda hjúkrunarheimilisins Sóltúns, Jóhanni Óla Guðmundssyni. Hann telur, samkvæmt kærunni sem fréttastofa hefur undir höndum, að tveir af núverandi eigendum Sóltúns hafi gerst sekir um meint fjársvik með því að hafa ekki greitt umsam...
Tímamót í maraþonsögunni 28.04.2026 14:52
Stórtíðindi í hlaupaheiminum verða til umfjöllunar í dag. Sebastian Sawe varð um helgina fyrstur manna til að hlaupa maraþonhlaup á undir tveimur klukkustundum þegar hann kom fyrstur allra í mark í Lundúnamaraþoninu á einni klukkustund, 59 mínútum og 30 sekúndum. Rætt er við Arnar Pétursson, margfaldan Íslandsmeistara í hlaupum, og Steinunni Þórðardóttur, lækni. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Þess vegna var Samkeppniseftirlitið ekki hlynnt samruna Kviku og Arion 27.04.2026 15:46
Arion banki og Kvika gáfu það út um miðjan mánuðinn að ekkert yrði af fyrirhuguðum samruna bankanna tveggja. Bankarnir höfðu átt í forviðræðum við Samkeppniseftirlitið um þennan mögulega samruna. Samkvæmt tilkynningum frá bönkunum var ákveðið að hætta viðræðunum vegna afstöðu Samkeppniseftirlitsins til mögulegs samruna sem fram kom í forviðræðunum. En hver var afstaða Samkeppniseftirlitsins til þe...
Staða prentsmiðjunnar á Íslandi 24.04.2026 13:58
Í dag beinum við sjónum okkar að stöðu prentsmiðja og prentiðnaðar á Íslandi í ljósi gjaldþrots Ísafoldar sem greint var frá í vikunni. Rætt er við Georg Pál Skúlason, formann Grafíu, sem áður hét Félag bókagerðarmanna, og Önnu Leu Friðriksdóttur, sem er formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Gagnrýnin á eftirlitsleysi með íslenskum fósturheimilum 22.04.2026 16:00
Umræðan um fósturheimili sem hefur átt sér stað í samfélaginu síðastliðna tvo mánuði hefur leitt til þess að börn sem hafa dvalið á slíkum heimilum hafa gagnrýnt skort á eftirliti hjá barnaverndaryfirvöldum. Þetta á bæði við um þá sem dvöldu á fósturheimilinu Bakkakoti á Suðurlandi, sem fréttaskýringaþátturinn Kveikur sagði frá í byrjun febrúar, og eins um fólk sem dvaldi á öðrum heimilum eins og...
Deilt um einkunnagjöf í skólakerfinu 21.04.2026 15:02
Um fátt er meira deilt þessa dagana en námsmat í grunnskólum - og þá sérstaklega einkunnaskalann - sem nú stendur til að breyta úr bókstöfum aftur í tölustafi. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, boðaði breytingar á einkunnakerfi í grunnskólum á þingi Kennarasambands Íslands í síðustu viku. Rætt er við Amalíu Björnsdóttur, prófessor við menntavísindasvið, og Sigurð Sigurðsson, framkvæmdastj...
Móðir segir sögu sonar síns sem bjó á Gauksstöðum 20.04.2026 15:49
Í þættinum í dag er rætt við Helenu Ósk Ævarsdóttur, móður drengs sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði á Suðurnesjum sem unglingur. Hann hét Daníel Snær Jónasson og bjó á Gauksstöðum þegar hann var 16 til 17 ára gamall á árunum 2013 til 2014. Helena segir um að afleiðingar af búsetunni á Gauksstöðum fyrir son hennar hafi ekki verið góðar. Hún segir að Daníel hafi orðið fyrir andlegu ofbel...
Vaxtarmörk í ljósi sveitarstjórnarkosninga 17.04.2026 15:59
Við höldum áfram að ræða sveitarstjórnarmál - í þetta skiptið vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins - en umræða um mörkin verður fyrirferðameiri í aðdraganda kosninganna 16. maí. Rætt er við Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum stígur fram 16.04.2026 15:59
Facebook-færsla eiganda fósturheimilisins Gauksstaða í Garðinum í vikunni reitti nokkra af þeim sem bjuggu á fósturheimilinu sem börn og unglingar til reiði. Eigandi fósturheimilisins heitir Jón Steinar Konráðsson. Í Þetta helst í dag segir einn maður og tvær konur sem dvöldu á fósturheimilinu frá upplifun sinni. Einn af þeim var ósáttur við færsluna er Burkni Þór Sveinsson sem bjó á fósturheimili...
Má stjórnmálaflokkur heita hvað sem er? 15.04.2026 15:48
Það styttist í sveitarstjórnarkosningarnar sextánda maí og línur eru nú að skýrast hvað framboðin varðar. Og í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að nöfnum á stjórnmálaflokkum. Má flokkur heita hvað sem er? og eru ákveðnar stefnur og straumar þegar kemur að slíkum nöfnum? Viðmælendur: Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri landskjörstjórnar, og Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill. Umsj...
Ríkið þurfi að taka þátt í bæta eftirlit með fósturheimilum 14.04.2026 17:00
Framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur segir að bæta þurfi eftirlit ríkisins með fósturheimilum hér á landi. Framkvæmdastjórinn, Þyrí Halla Steingrímsdóttir, segir ekki gott að sveitarfélögin eigi að hafa eftirlit með sjálfum sér heldur ætti eftirlit með fósturheimilunum að vera hjá ríkinu. Þyrí Halla Steingrímsdóttir ræðir við Þetta helst um nýtt frumvarp til laga um barnavernd sem nú er í ums...
100 milljarða stefnan gegn Samherja í London 13.04.2026 15:21
Skoska fyrirtækið Restitution Litigation Limited vinnur að því fyrir hönd namibíska ríkisins að reyna að endurheimta peninga í Namibíumálinu frá Samherja. Fyrirtækið hefur höfðað mál gegn Samherja fyrir breskum dómstólum og vill allt 120 milljarða króna í skaðabætur. Forstjóri Restitution, Katherine Mulhern, segir að stefnan byggi á því að Samherji hafi með meintum spilltum og meintum ólögmætum hæ...
Hugmyndin um samevrópskan her 10.04.2026 15:44
Hugmyndin um sameiginlegan her Evrópusambandsins er til umfjöllunar í Þetta helst í dag. Rætt er við Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Bogi hjá Icelandair svarar spurningum um Möltuviðskiptin 09.04.2026 16:10
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að ekki standi til að fara að ráða starfsfólk til flugfélagsins í gegnum starfsmannaleigur á Möltu. Mörg flugfélög stundi þetta til að spara sér kostnað. Hann segir enga tiltekna skýringu á því af hverju Icelandair eigi nú í viðræðum um að kaupa bara 49 prósent í félagi Play á Möltu sem er með þarlent flugrekstrarleyfi. Fjölmörgum spurningum er ósvara...
Viðskipti Icelandair á Möltu og áhyggjur starfsfólks 08.04.2026 15:18
Tilkynning flugfélagsins Icelandair um möguleg kaup á 49 prósenta hlut í maltversku félagi Play fyrir páska hefur vakið upp áhyggjur og kallað fram spurningar hjá mörgum í starfsliði Icelandair. Þetta á við um flugmenn, flugfreyjur, flugvirkja sem og aðra starfsmenn. Meira en 3000 starfsmenn vinna hjá Icelandair og er fyrirtækið einn stærsti vinnustaður landsins. Haft var eftir Boga Nils Bogasyni,...
Sögulegt fylgistap Framsóknarflokksins 07.04.2026 15:45
Í dag beinum við sjónum okkar að stöðu og sögu Framsóknarflokksins í ljósi nýjasta þjóðarpúls Gallups sem var birtur á skírdag. Fylgi Framsóknarflokksins minnkar um nær tvö prósentustig milli kannana og stendur nú í 4,7 prósentum, en þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn mælist utan þings. Hann fengi engan mann kjörinn ef gengið yrði til kosninga nú. Viðmælendur: Sigurður Pétursson, sagnfræðingur...
Vilja að Þorgerður Katrín leysi ræðismann Íslands undan skyldum sínum 01.04.2026 13:30
Samtök aðgerðasinna sem berjast gegn herforingjastjórninni í landinu Myanmar í Asíu vilja að íslensk stjórnvöld afturkalli nýlega skipun ræðismanns fyrir Ísland í landinu. Ræðismaðurinn heitir Ko Ko Latt og telja samtökin að hann vinni með herforingjastjórninni og hjálpi til við að fjármagna. Samtökin kalla sig Justice for Myanmar eða Réttlæti fyrir Myanmar og sendu þau bréf með þessari kröfu til...
Hvers vegna hækkuðu aðrir seðlabankar ekki vexti? 31.03.2026 16:02
Í þætti dagsins erum sjónum beint að því hvað aðrir seðlabankar eru að gera hvað varðar stýrivexti. Rætt er við Eirík Ragnarsson, hagfræðing í Þýskalandi, og Sigríði Benediktsdóttur, hagfræðing við Columbia háskóla í Bandaríkjunum. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали