Gunnar Smári Egilsson
Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: rauda-bordid.simplecast.com
Автор
Gunnar Smári Egilsson
Категорія
Сайт подкасту
Останній епізод
11 жов 2026
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Rauða borðið 25. júní - Reynsluboltar 25.06.2025 51:37
Brot úr Rauða borðinu 25. júní 2025 Reynsluboltar Ragnheiður Davíðsdóttir, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson ræða það sem hæst ber og tala af reynslu. Við komum við á Alþingi og út í heimi. Af nógu er að taka þessa dagana. Það virðist vera langt í hinu árlegu sumargúrku.
Rauða borðið 25. júní: Utanríkisstefna, reynsluboltar, þingmaður, þjóðin, sumartónleikar og aktivismi 25.06.2025 4:52:41
Miðvikudagur 25. júní Utanríkisstefna, reynsluboltar, þingmaður, þjóðin, sumartónleikar og aktivismi Við hefjum leik með viðbrögðum formanns utanríkismálanefndar Alþingis við tíðindum dagsins í Haag. Pawel Bartoszek bregst við tíðindum um að langflest NATO-ríki greiða 5 prósent af þjóðarframleiðslu til varnamála og framlög Íslands stóraukast. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur gagnrýnir valkyrj...
Rauða borðið 24. júní - Einkamál 24.06.2025 44:58
Brot úr Rauða borðinu 24. júní Einkamál Þórunn Marel Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri einkaskjalasafna í Þjóðskjalasafni Íslands og Ólafur Arnar Sveinsson, sagnfræðingur, ræða um einkaskjalasöfn.
Rauða borðið 24. júní - Vitund um ofbeldi 24.06.2025 25:36
Brot úr Rauða borðinu 24. júní Vitund um ofbeldi Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundins ofbeldis, ræðir um Vitund um ofbeldi og útflutning á ofbeldismönnum.
Rauða borðið 24. júní - Kvennahreyfing 24.06.2025 36:07
Brot úr Rauða borðinu 24. júní Kvennahreyfing Helga Þórsdóttir safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar og Hanna Styrmisdóttir sérfræðingur í stefnumótun og sýningarstjórn segja Gunnari Smára frá einkasýningu palestínsku listakonunnar Larissa Sansour á safninu, sem fjallar um áföll sem erfast og fortíð sem myrkrar framtíðina, svo fátt eitt sé nefnt.
Rauða borðið 24. júní - Niðurlæging þingmanna 24.06.2025 56:46
Brot úr Rauða borðinu 24. júní Niðurlæging þingmanna Stjórnarandstaða Miðflokks, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks niðurlægir lýðræðið með orðum sínum og atferli þessa dagana. Þetta segir doktor Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur. Hann bregst við þeirri spurningu hvað stjórnarandstaðan á Alþingi sé að pæla þessa dagana við Rauða borðið ásamt framsóknarmanninum Halli Magnússyni, Ástu Guðrún...
Rauða borðið 24. júní - Áföll og list 24.06.2025 41:59
Brot úr Rauða borðinu 24. júní Áföll og list Helga Þórsdóttir safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar og Hanna Styrmisdóttir sérfræðingur í stefnumótun og sýningarstjórn segja Gunnari Smára frá einkasýningu palestínsku listakonunnar Larissa Sansour á safninu, sem fjallar um áföll sem erfast og fortíð sem myrkrar framtíðina, svo fátt eitt sé nefnt.
Rauða borðið 24. júní - Alþjóðalög í stríði 24.06.2025 49:14
Brot úr Rauða borðinu 24. júní Alþjóðalög í stríði Bjarni Már Magnússon lagaprófessor svarar Gunnari Smári hvort Bandaríkin og Ísrael hafi brotið alþjóðalög með árásum sínum á Íran og framið stríðsglæpi. Hefur Íran allan rétt á að svara fyrir sig?
Rauða borðið 24. júní - Lýðræði, ofbeldi, alþjóðalög, áföll, list, kvennahreyfing og einkaskjalasöfn 24.06.2025 4:31:05
Þriðjudagur 24. júní Lýðræði, ofbeldi, alþjóðalög, áföll, list, kvennahreyfing og einkaskjalasöfn. Við hefjum Rauða borð kvöldsins á umræðu um stjórnarandstöðu Miðflokks, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem niðurlægir lýðræðið með orðum sínum og atferli þessa dagana, eða svo segir doktor Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur og í samræðu við Björn Þorláks ræða þau málið, framsóknarmaðurinn...
Rauða borðið, 23. júní, 2025. Íran, Grænland, hægrið, friðurinn, handbók helgihaldsins og Kúrdar 23.06.2025 4:42:48
Mánudagur 23. júní Rauða borðið, 23. júní, 2025. Íran, Grænland, hægrið, friðurinn, handbók helgihaldsins og Kúrdar Við hefjum Rauða borðið á umræðu um stríðið í Íran. Kjartan Orri Þórsson Mið-Austurlandasérfræðingur og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræða við Gunnar Smára um árásir herja Ísraels og Bandaríkjanna á Íran. Við pælum því næst í norðurslóðum. Friðrika Hjördís Geirsdóttir, framkvæmdast...
Synir Egils: Sumarþing, upplausn, heimstyrjöld og sveitarstjórnir 22.06.2025 2:31:56
Sunnudagurinn 22. júní Synir Egils: Sumarþing, upplausn, heimstyrjöld og sveitarstjórnir Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þeir Helgi Seljan blaðamaður, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og ræða fréttir og stöðu samfélagsins á miðju sumr...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Daníel Magnússon 21.06.2025 2:01:53
Laugardagur 21. júní Helgi-spjall: Daníel Magnússon Daníel Magnússon myndlistarmaður, vélstjóri og stólasmiður ræðir um listina, dugnaðinn og drykkjuna, foreldra sína og annað venjulegt fólk sem hefur mótað hann.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 25 20.06.2025 1:21:49
Föstudagur 20. júní Vikuskammtur: Vika 25 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Valgerður Þ. Pálmadóttir rannsóknarsérfræðingur í hugmyndasögu, Hafdís Helga Helgadóttir útvarpskona, Vigdís Halla Birgisdóttir leikkona og Andrés Skúlason verkefnastjóri hjá Landvernd og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af loftárásum, málþófi, sumri og nýjum tækifærum.
Rauða borðið 19. júní Kvennabarátta, vekni, náttúruspeki, handverk, brids og kvæðakór 19.06.2025 3:15:50
Fimmtudagur 19. júní Kvennabarátta, vekni, náttúruspeki, handverk, brids og kvæðakór Við hefjum leik með umfjöllun um konur og kúrda. Í dag, nítjánda júní á hátíðis- og baráttudegi kvenna á Íslandi setur Ögmundur Jónasson kvenréttindabaráttuna á Íslandi í samhengi við baráttu Kúrda fyrir tilverurétti sínum. Kúrdískar konur hafa verið í fararbroddi baráttunnar og Ögmundur segir einnig frá fyrirlest...
Rauða borðið 18. júní - Vg, pólitík, Íran, heimsendi, vinstrið og samræmd próf 18.06.2025 5:32:22
Miðvikudagur 18. júní Vg, pólitík, Íran, heimsendi, vinstrið og samræmd próf Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður, segir Birni Þorláks að spilling og valdsækni áhrifafólks innan VG, ekki síst Svandísar Svavarsdóttur, skýri bágt gengi flokksins undanfarið. Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði upplýsir Björn að traust til Alþingis sé að aukast frá því sem verið hefur. Hilmar...
Mánudagur 16. júní: Íran og Ísrael, Striplab og njósnir, blaðamennskan, Víkingahátíð og listir 16.06.2025 3:57:21
Mánudagur 16. júní: Íran og Ísrael, Striplab og njósnir, blaðamennskan, Víkingahátíð og listir Við hefjum Rauða borðið á spjalli við Kjartan Orra Þórsson, Miðausturlandafræðing og sérfræðing í málefnum Írans. Hann ræðir við Gunnar Smára um stríðsátök milli Ísraels og Íran og íranska þjóðerniskennd sem á sér mörg þúsund ára rætur. Ari Logn og Renata Sara Arnórsdóttir, aktívistar í Rauðu regnhlífinn...
Synir Egils 15. júní - Málþóf, mótmæli. loftárásir og skautun 16.06.2025 2:34:01
Sunnudagurinn 15. júní Synir Egils: Málþóf, mótmæli. loftárásir og skautun Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi, Benedikt Jóhannesson tölfræðingur og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða um málþóf á Íslandi, átö...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Gnarr 14.06.2025 3:19:30
Laugardagur 14. júní Helgi-spjall: Gnarr Jón Gnarr segir okkur frá föður sínum og móður, frá föðurnum á himnum, húmor og pólitík, hugrekki sínu og hugsunarleysi, tímanum þegar hann tapaði sér og gildi þess að tala ekki of mikið um hlutina.
Vikuskammtur 13. júní: Jovana Pavlović, Birgitta Jónsdóttir, Steinunn Rögnvaldsdóttir og Jón Gísli Harðarson 13.06.2025 1:33:03
Vikuskammtur 13. júní Jovana Pavlović mannfræðingur, Birgitta Jónsdóttir skáld, Steinunn Rögnvaldsdóttir kynjafræðingur og Jón Gísli Harðarson rafvirkjameistari.
Rauða borðið 12. júní - Kulnun skólamanns, Ný Sýn, gegn rasisma, breytt Bandaríki og skipulagsmál 13.06.2025 3:04:57
Fimmtudagur 12. júní Kulnun skólamanns, Ný Sýn, gegn rasisma, breytt Bandaríki og skipulagsmál Við hefjum leik á uppgjöri Valgarðs Más Jakobsssonar, skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, en hann berskjaldar sig og lýsir einkennum kulnunar í starfi og hvað þurfti að gerast til að hann rambaði á rétta hillu á ný. Björn Þorláksson ræðir við Valgarð. Það eru vendingar á fjölmiðlamarkaði og hefu...
Rauða borðið 11. júní: Flugvöllurinn, hafið, reynsluboltar, glæpasamtök, huldufólk og umbylting í læknavísindum 11.06.2025 4:35:36
Miðvikudagur 11. júní Flugvöllurinn, hafið, reynsluboltar, glæpasamtök, huldufólk og umbylting í læknavísindum Daði Rafnsson hjá samtökunum Hljóðmörk sem berjast gegn óþarfa flugumferð á Reykjavíkurflugvelli og Ólafur Hjálmarsson hljóðverkfræðingur ræða við Björn Þorláks stöðu vallarins, vítaverða og vaxandi hljóðmengun og alvarlegt atvik í gærkvöld. Flugvallarvinir hafa hótað fólki sem vill minnk...
Rauða borðið 10. júní - Herinn til LA, Thunberg, Trump, Grímur, lífeyrissjóðir og gervigreind 10.06.2025 4:27:52
Þriðjudagur 10. júní Herinn til LA, Thunberg, Trump, Grímur, lífeyrissjóðir og gervigreind Dröfn Ösp Rozas ræðir við Maríu Lilju um mótmælin í LA sem hún segir að sé mikilvægt að kalla ekki óeirðir. María Lilja ræðir við Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, lögmann og formann Siðmenntar um fleyið Madleen sem stöðvuð var með nauðsynlegar vistir fyrir utan Gaza stendur. Hilmar Þór Hilmarsson...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Drífa 07.06.2025 2:18:14
Laugardagur 7. júní Helgi-spjall: Drífa Drífa Snædal, talskona Stígamóta og fyrrverandi forseti ASÍ, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, VG og Kvennaathvarfsins segir okkur frá baráttunni, hinu persónulega í pólitíkinni og pólitíkinni í hinu persónulega, frá æsku og uppruna og hversu lengi hún var að finna sig og hvað hún vildi taka sér fyrir hendur. Og um sósíalismann sem hún drakk í sig me...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 23 06.06.2025 1:06:50
Föstudagur 6. júní Vikuskammtur: Vika 23 Það verður líf og fjör í Vikuskammtinum að þessu sinni þegar þau Helga Þórey Jónsdóttir, menningarfræðingur og kennari, Steinunn Gunnlaugsdóttir, myndlistamaður og Atli Bollason, listamaður mætast við Rauða borðið hjá Maríu Lilju. Að þessu sinni verður farið ítarlega í menningarviðburði, störf þingsins, fordóma í samfélaginu, Gaza, Oscar og ríkisborgararétt...
Rauða borðið 5. júní: Lagatækni eða mannúð, Evrópumál, auðmagn, persónuvernd, útlendingar og víðerni 05.06.2025 4:01:25
Rauða borðið, fimmtudaginn 05. júní: Mannúð og stjórnsýsla, Evrópuáhugi vinstri manns, auðmagn, persónuvernd, útlendingahatur og víðerni eru á dagskrá í kvöld Við hefjum leik á samtali Björns Þorlákssonar við Henry Alexander Henrysson heimspeking og sérfræðing í siðferðislegum álitamálum rsem rökæðir mál Oscars hins kólumbíska ásamt Hauki Arnþórssyni stjórnsýslufræðingi. Þeir eru ekki alveg á einu...
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали