Samband íslenskra sveitarfélaga
Ráðhúsið
Hlaðvarp um sveitarstjórnarmál.
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: radhusid.podbean.com
Автор
Samband íslenskra sveitarfélaga
Категорія
Сайт подкасту
Останній епізод
15 жов 2026
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
07. Farsældarráð: raunverulegt hreyfiafl eða bara blaður? - Hjördís Eva Þórðardóttir 14.08.2025 28:48
Gestur Ráðhússins er Hjördís Eva Þórðardóttir verkefnastjóri farsældar barna hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Í þættinum verður fjallað um stofnun og tilgang farsældarráða landshluta í þágu farsældar barna.
06. Viljandi villt: á að sleppa slættinum? - Jón Kristófer Arnarson 10.07.2025 32:44
Gestur Ráðhússins er Jón Kristófer Arnarson, garðyrkjustjóri Múlaþings og er rætt við hann um verkefnið Viljandi villt sem gengur út á það að leyfa villtum gróðri að spretta á vel völdum grænum svæðum til að styðja við líffræðilega fjölbreytni, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og jafnvel spara pening.
05. Til hvers er vinnuskóli sveitarfélaga? - Ólafur Bergur Ólafsson 03.07.2025 20:35
Gestur Ráðhússins er Ólafur Bergur Ólafsson, forstöðumaður vinnuskóla Reykjanesbæjar, þar sem fjallað er um þau miklu tækifæri er felast í þátttöku ungmenna í vinnuskólum.
04. Fasteignaskattur orkumannvirkja: hvers virði er virkjun? - Bryndís Gunnlaugsdóttir 11.06.2025 25:24
Í þetta skiptið ræða Bryndís Gunnlaugsdóttir og Finnur Ricart Andrason eitt heitasta málið í samráðsgátt stjórnvalda um þessar mundir – áform um að afnema undanþágu rafveitna frá fasteignamati. Þetta hljómar kannski frekar tæknilegt, en áhrifin gætu orðið veruleg fyrir sveitarfélög víða um land til aukinna tekna og eins og útfærslan er núna gæti þetta aukið tekjur allra sveitarfélaga. Spurningunum...
03. Hvernig gengur sveitarfélögum í úrgangsmálum? - Freyr Eyjólfsson 05.06.2025 31:23
Í þessum þætti er rætt við Frey Eyjólfsson, verkefnastjóra fræðslu og kynningarmála hjá Sorpu um stöðu úrgangsmála hjá sveitarfélögum landsins. Farið er yfir þær breytingar sem hafa orðið á undanförnum árum á flokkunarkerfi landsins í kjölfar þess að hringrásarlögin tóku gildi um áramótin 2023, hvaða árangur hefur náðst og hvaða áskoranir sveitarfélögin standa nú frammi fyrir í því að stuðla að hr...
02. Hvað þýða breytingar á Jöfnunarsjóði fyrir sveitarfélögin? - Árni Sverrir Hafsteinsson 19.05.2025 26:51
Fyrir Alþingi er til umfjöllunar frumvarp um breytingar á jöfnunarsjóði. Hvað þýða þessar breytingar fyrir sveitarfélögin? Árni Sverrir Hafsteinsson, sérfræðingur hjá innviðaráðuneytinu í málefnum Jöfnunarsjóðs, fer yfir markmið frumvarpsins og áhrif á sveitarfélög með okkur.
01. Hvað er Sambandið? - Arnar Þór Sævarsson 19.05.2025 15:20
Fyrsti þáttur af Ráðhúsinu, hlaðvarpi Sambands Íslenskra sveitarfélaga er kominn í loftið. Gestur þáttarins er Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambandsins, sem fer yfir starfsemi Sambandsins og helstu verkefni.
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали