Samband íslenskra sveitarfélaga
Ráðhúsið
Hlaðvarp um sveitarstjórnarmál.
Author
Samband íslenskra sveitarfélaga
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 3, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
27. Húsnæði við hæfi 03.07.2026 30:52
Í þessum þætti af Ráðhúsinu er gestur þáttarins Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambandsins og fjöllum við um nýbirta skýrslu sem ber nafnið Húsnæði við hæfi og er afrakstur starfshóps undir forystu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Hópurinn lagði til breytingar á reglugerð um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk og tillögur að aðgerðum sem hvoru tveggja hefur það markmið að uppfylla þörf fa...
26. Gagnainnviðir: undirstaðan að gagnadrifnum ákvörunum. 19.06.2026 35:45
Í þessum þætti af Ráðhúsinu fjöllum við um uppbygging á gagnainnviðum Sambandsins, þ.e. upplýsingaveitu Sambandsins og gagnalón og hvernig gögn geta nýst sveitarfélögum og Sambandinu í starfi og hagsmunagæslu. Gestir þáttarins eru Sólveig Ástudóttir Daðadóttir, starfsmaður Sambandsins, og Óttar Guðmundsson frá Gangverk, sem er samstarfsaðili Sambandsins í þessari vinnu.
25. Orkuskipti sveitarfélaga: Grípum tækifærin! - Ottó Elíasson 04.06.2026 29:59
Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hann segir okkur frá stóru samstarfsverkefni um orkuskipti á Norðurlandi Eystra og Vestfjörðum (RECET). Við ræðum meðal annars hvernig orkuskipti líta út í samhengi sveitarfélaga, hver ávinningurinn er af orkuskiptum og hvaða afurðir úr RECET verkefninu geta nýst sveitarfélögum um allt land í að stíga sín næstu skref...
24. Eftir kosningar: Þátttaka og næstu skref 22.05.2026 26:01
Í Ráðhúsi vikunnar ræðum við kosningaþátttöku, hvernig persónukjör og nýliðun móta nýtt landslag og fáum nokkrar góðar ráðleggingar frá Bryndísi Gunnlaugsdóttur, lögfræðings hjá Sambandinu, um fyrstu skref eftir að nýr meirihluti hefur verið myndaður.
23. Kosningatips fyrir kjósendur og kjörstjórnir - Ástríður Jóhannesdóttir 12.05.2026 27:36
Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hún fer yfir helstu atriði komandi sveitarstjórnarkosninga. Við ræðum meðal annars framkvæmd kosninganna, hvað kjósendur þurfa að hafa í huga og hlutverk og ábyrgðir kjörstjórna.
22. Stafræn ráðstefna sveitarfélaga 2026 - Sólveig Ástudóttir Daðadóttir 16.03.2026 14:06
Stafræn ráðstefna sveitarfélaga árið 2026 verður haldin þann 25. mars n.k. í Grósku. Í þætti dagsins fáum við Sólveigu Ástudóttur Daðadóttur til að segja okkur frá því helsta sem verður á boðstólnum á ráðstefnunni. Skráningu lýkur föstudaginn 20. mars. https://www.samband.is/vidburdir/stafraen-radstefna
21. Hvað þurfa framboð að hafa klárt fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí? 05.03.2026 28:44
Í þessum þætti fræðir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, okkur um framboðsfrest, meðmælalista og hlutverk kjörstjórna við yfirferð framboða. Við komum líka inn á listabókstaf, persónukjör og listakjör - og hvað gerist ef aðeins einn listi býður sig fram.
20. Hvað felst í Kveikjum neistann—og hvaða lærdóm geta önnur sveitarfélög dregið af reynslu Vestmannaeyja? 19.02.2026 31:42
Hvað felst í Kveikjum neistann—og hvaða lærdóm geta önnur sveitarfélög dregið af reynslu Vestmannaeyja? Í þessum þætti ræðir Bryndís við Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja, og í lokin deilir Íris hagnýtum ráðum til þeirra sem vilja kveikja svipaðan neista heima hjá sér. Hlustaðu núna—og deildu þættinum með einhverjum sem hefur áhuga á skóla- og sveitarstjórnarmálum.
19. Brúum bilið - greining á stöðunni! 03.02.2026 31:59
Í desember 2025 kom út skýrslan "Brúum umönnunarbilið - Skýrsla og tillögur aðgerðarhóps" en aðgerðarhópurinn var skipaður af forsætisráðuneytinu í framhaldi af undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Helga María Pálsdóttir sviðstjóri stjórnsýslusviðs hjá Sambandinu kom að vinnu aðgerðarhópsins og fjallar um helstu tillögur.
18. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur: Árið 2025 gert upp 08.01.2026 30:43
Í þessum fyrsta þætti ársins er árið 2025 gert upp í hagfræðilegum skilningi út frá sjónarhorni sveitarfélaganna Meðal þess sem er rýnt í eru tölur um fólksfjölgun, skattekjur, innviðafjárfestingar, atvinnuleysi, veltu atvinnugreina og gjaldskrárhækkanir.
17. Virk ungmennaráð eða formsatriði? - Ingimar Guðmundsson 18.12.2025 24:49
Virk ungmennaráð eða formsatriði? Í þætti vikunnar er rætt við Ingimar Guðmundsson, verkefnastjóra hjá Sambandinu, um stöðu ungmennaráða og ráðstefnu ungmennaráða sveitarfélaga sem fór fram í byrjun desember.
16. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur: Hvers vegna er 34 milljarða halli á grunnskólarekstri? 09.12.2025 17:42
30 ár eru frá því að sveitarfélögin tóku við rekstri grunnskólanna frá ríkinu og í þætti vikunnar ræðum við söguna, hvers vegna grunnskólar landsins eru reknir með stöðugum halla og hvaða lausnir standa til boða.
15. Hvernig standa sveitarfélögin sig í loftslagsmálum? - Finnur Ricart Andrason 20.11.2025 19:20
Í þætti vikunnar er spurt: Hver er staða sveitarfélaga í loftslagsmálum? Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum hjá Sambandinu fer yfir niðurstöður nýrrar skýrslu um stöðu sveitarfélaga í loftslagsmálum.
14. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur - Er ekki vitlaust gefið? 06.11.2025 23:15
Gestur Ráðhússins er Saga Guðmundsdóttir aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga en hún hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtilega pistla undir nafninu Sögustund. Í nýjasta pistli Sögu var fjallað um rekstur sveitarfélaga og að hann sé að jafnaði erfiður og gangi verr en í flestum samanburðarlöndum.
13. Samtal við formann Sambandsins: Milljarðar í stafrænu málin - Jón Björn Hákonarson 23.10.2025 27:53
Gestur Ráðhússins er enginn annar en Jón Björn Hákonarson, formaður Sambandsins. Við tökum stöðuna á sveitarstjórnarstiginu almennt og verkefnum Sambandsins framundan en aðal umræðuefnið er ný skýrsla um fjárfestingar hins opinbera í stafrænum innviðum og stafrænni þjónustu. Meðal þeirra spurninga sem við reynum að svara eru: Hvers vegna stafrænir innviðir? Hversu mikið almannafé er að fara í staf...
12. Tekist á um málefni sveitarfélaga: Pallborð fulltrúa stjórnmálaflokka á Alþingi 09.10.2025 1:12:36
Í þætti dagsins eru líflegar pallborðsumræður þar sem fulltrúar stjórnmálaflokka á þingi takast á um málefni sveitarfélaga. Pallborðsumræðurnar áttu sér stað á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna 2025 í síðustu viku og vöktu þær mikla lukku meðal þeirra tæplega 500 gesta sem saman voru komnir á ráðstefnuna.
11. Sameiningarviðræður: Sameining samþykkt og hvað svo? - Ólafur Þór Ólafsson 19.09.2025 35:07
Hvað gerist þegar sveitarfélög hafa samþykkt að sameinast? Ólafur Þór Ólafsson ræðir um sameiningarferlið en hann hefur tekið þátt tveimur sameiningum bæði sem kjörinn fulltrúi og sveitarstjóri.
10. Sameiningarviðræður: Hvað gerist þegar áhuginn kviknar? - Ólafur Þór Ólafsson 18.09.2025 36:48
Hvað gerist þegar sveitarfélög hafa áhuga á að fara í sameiningarviðræður? Hvernig virkar ferlið? Ólafur Þór Ólafsson ræðir um sameiningaviðræður en hann hefur tekið þátt í slíkum viðræðum bæði sem kjörinn fulltrúi og sveitarstjóri.
09. Úrgangsstjórnun sveitarfélaga 101 - Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson 11.09.2025 36:44
Gestur ráðhússinns að þessu sinni er hann Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur í úrgangsmálum hjá Umhverfis- og orkustofnun. Umræðuefni þáttarins er nýuppfærð handbók um úrgangsstjórnun sveitarfélaga og er m.a. farið yfir helstu skyldur sveitarfélaga í úrgangsmálum, gjaldtöku sveitarfélaga vegna úrgangsþjónustu og hvernig má nýta ný útboðssniðmát.
08. Stafræna vegferðin: eru sveitarfélögin fær í framtíðina? - Björgvin Sigurðsson 28.08.2025 27:21
Gestur Ráðhússins í þessum þætti er Björgvin Sigurðsson, sérfræðingur í stafræna teymi Sambandsins. Fjallað er um Stafræna samstarf sveitarfélaganna, mikilvægi þess að vera með stafrænu málin í lagi, árangurinn sem hefur náðst hingað til, gerfigreind og verkefnin framundan.
07. Farsældarráð: raunverulegt hreyfiafl eða bara blaður? - Hjördís Eva Þórðardóttir 14.08.2025 28:48
Gestur Ráðhússins er Hjördís Eva Þórðardóttir verkefnastjóri farsældar barna hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Í þættinum verður fjallað um stofnun og tilgang farsældarráða landshluta í þágu farsældar barna.
06. Viljandi villt: á að sleppa slættinum? - Jón Kristófer Arnarson 10.07.2025 32:44
Gestur Ráðhússins er Jón Kristófer Arnarson, garðyrkjustjóri Múlaþings og er rætt við hann um verkefnið Viljandi villt sem gengur út á það að leyfa villtum gróðri að spretta á vel völdum grænum svæðum til að styðja við líffræðilega fjölbreytni, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og jafnvel spara pening.
05. Til hvers er vinnuskóli sveitarfélaga? - Ólafur Bergur Ólafsson 03.07.2025 20:35
Gestur Ráðhússins er Ólafur Bergur Ólafsson, forstöðumaður vinnuskóla Reykjanesbæjar, þar sem fjallað er um þau miklu tækifæri er felast í þátttöku ungmenna í vinnuskólum.
04. Fasteignaskattur orkumannvirkja: hvers virði er virkjun? - Bryndís Gunnlaugsdóttir 11.06.2025 25:24
Í þetta skiptið ræða Bryndís Gunnlaugsdóttir og Finnur Ricart Andrason eitt heitasta málið í samráðsgátt stjórnvalda um þessar mundir – áform um að afnema undanþágu rafveitna frá fasteignamati. Þetta hljómar kannski frekar tæknilegt, en áhrifin gætu orðið veruleg fyrir sveitarfélög víða um land til aukinna tekna og eins og útfærslan er núna gæti þetta aukið tekjur allra sveitarfélaga. Spurningunum...
03. Hvernig gengur sveitarfélögum í úrgangsmálum? - Freyr Eyjólfsson 05.06.2025 31:23
Í þessum þætti er rætt við Frey Eyjólfsson, verkefnastjóra fræðslu og kynningarmála hjá Sorpu um stöðu úrgangsmála hjá sveitarfélögum landsins. Farið er yfir þær breytingar sem hafa orðið á undanförnum árum á flokkunarkerfi landsins í kjölfar þess að hringrásarlögin tóku gildi um áramótin 2023, hvaða árangur hefur náðst og hvaða áskoranir sveitarfélögin standa nú frammi fyrir í því að stuðla að hr...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.