uk

Poppsálin

Poppsálin

Health IS ↓ Епізодів: 112

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar. 

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: www.facebook.com

Автор

Poppsálin

Категорія

Health

Сайт подкасту

www.facebook.com

Останній епізод

9 сер 2023

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android майже 10 млн завантажень · рейтинг 4,8 iOS незабаром

Епізоди

Albert litli - Siðlaus tilraun til að rannsaka fælni (phobia) 01.04.2022

Í þessum þætti verður fjallað um eina frægustu (og siðlausu) rannsókn sem gerð hefur verið innan sálfræðinnar.  Albert litli var 11 mánaða gamall þegar atferlisfræðingurinn John B. Watson ákvað að gera tilraun á því hvort hægt væri að styðjast við kenningu rússans Ivan Palvov um klassíska skilyrðingu til að framkalla hræðsluviðbrögð eða fælni hjá barni.  Hver var hugmyndin bak við tilraunina? Hvað...

Lygasýki og Tania Head fórnarlamb 9/11 25.03.2022

Í þessum þætti verður fjallað um sálfræðilegt fyrirbæri sem nefnist lygasýki eða pathalogical lying. Sagt verður frá einkennum, orsökum og meðferð.  Einnig verður sögð áhugaverð saga konu sem naumlega lifði af hryðjuverkaárásina 9/11 í New York.  Með því að styrkja Poppsálina um 5 evrur inni á Patreon er hægt að fá auka þátt um lygasýki þar sem fjallað er um læknaskýrslu manns sem kom inn á bráðam...

Afneitun á meðgöngu 17.03.2022

Í þessum þætti verður fjallað um það þegar einstaklingar ganga í gegnum 9 mánaða meðgöngu án þess að vita af því. Þetta kallast leyni meðganga eða afneitun á meðgöngu. Farið verður í sögu konu sem upplifði það að ganga með barn í 9 mánuði án þess að vita af því og sálfræðilegar skýringar bak við slíka reynslu.  Á mínútu 14 kemur hlé í 30 sekúndur sem Poppsálar stjórnandinn kunni ekki að laga. Biðs...

Barnahneigð og barnaníð: Sálfræðilegar pælingar og rannsóknir 10.03.2022

Þessi þáttur er einn stór TW þáttur!!  Fjallað er um sálfræðilegar rannsóknir, hugmyndir og kenningar um barnahneigð og barnaníð. Fjallað er um mikilvægi þess að greina á milli þessara hugtaka og ólíkra hópa gerenda og einstaklinga.  Skoðað er hvað einkennir þá sem brjóta á börnum og hvað hægt sé að gera. Hægt er að styrkja Poppsálina með því að gerast áskrifandi á  https://www.patreon.com/Poppsal...

Ofbeldi í samböndum: Kanye West, Pete Davidson og Kim Kardashian 03.03.2022

Í þessum þætti er fjallað um ofbeldi í samböndum, rætt er um andlegt og líkamlegt ofbeldi og ofbeldishringinn sem fólk getur upplifað.  Einnig munu Elva og Lilja Gísla Bachelor-sérfræðingur og hlaðvarpsstjórnandi Fantasíusvítunnar ræða um áhyggjur sínar af hegðun Kanye West gagnvart Kim Kardashian og Pete Davidson.  Hvet ykkur eindregið til að styrkja Poppsálina með því að gerast áskrifendur fyrir...

Duggar fjölskyldan - Heimsfræg og stórhættuleg 24.02.2022

Í þessum þætti er fjallað um eina frægustu fjölskyldu Bandaríkjana, Duggar fjölskylduna. Raunveruleikaþættir um fjölskylduna hafa notið gríðarlegra vinsælda enda fjölskyldan mjög sérstök og umdeild. Í þættinum verður fjallað um mjög íhaldsamar og jafnvel hættulegar kristilegar hugmyndir fjölskyldunnar, sifjaspell og pólitík en Josh Duggar, elsti sonurinn var nýlega ákærður fyrir vörslu barnakláms....

Amy Winehouse (Allur þátturinn): Einstaka röddin, vímuefnin og sjálfsskaðinn 18.02.2022

Hæfileikaríka söngkonan með einstöku röddina Amy Winehouse þurfti að glíma við alls konar djöfla á sinni stuttu ævi.  TW:Í þættinum er fjallað um sjálfsskaða, vímuefni og andlát.  Þessi þáttur var gefinn út fyrir mánuði síðan fyrir styrktaraðila Poppsálarinnar en hægt er að styrkja Poppsálina um 5 evrur á mánuði:  á https://www.patreon.com/Poppsalin Styrktaraðilar munu reglulega fá aukaþætti eða &...

Af hverju eru Íslendingar alls staðar? Valin athygli og staðfestingaskekkja 11.02.2022

Af hverju eru Íslendingar alls staðar? Valin athygli og staðfestingaskekkja Þessi þáttur er tekinn upp á Tenerife þar sem Elva sálfræðikennari veltir því fyrir sér af hverju hún nær alltaf að spotta alla Íslendinga í útlöndum. Erum við eitthvað öðruvísi en aðrir? Erum við of hávær? Klæðum við okkur spes? Erum við með eitthvað sérstakt klaka lúkk eða er þetta bara sálfræðileg hugræn skekkja?  Hægt...

Karen Carpenter: Lífshættuleg ógleðislyf og Anorexia 03.02.2022

Tónlistarkonan yndislega Karen Carpenter lést um aldur fram árið 1983 aðeins 32 ára að aldri. Í þessum þætti verður fjallað um tónlistarferil hennar, baráttu hennar við átröskun og misnotkun á lífshættulegu lyfi sem veldur uppköstum.  Ég hvet öll sem eru að glíma við slæma líkamsímynd eða erfitt samband við mat að fylgjast með gagnlegum síðum á instagram eins og: https://www.instagram.com/healthis...

Stokkhólms-heilkennið: Sálfræðileg mýta eða raunverulegt fyrirbæri? 27.01.2022

Árið 1973 voru fjórir grunlausir einstaklingar teknir til fanga þegar bankaræningi réðst inn í Kreditbanken í Stokkhólmi.  Gíslatakan stóð yfir í 5 daga og fóru gíslarnir að halda með bankaræningjanum í lokin og fyrirlitu lögregluna sem reyndi að bjarga þeim. Í kjölfarið af þessu kviknaði hugmyndin að sálfræðilegu fyrirbæri sem nefnist Stokkhólms-heilkenni.  Í þessum þætti verður fjallað um þetta...

Bohemian Grove: Mannfórnir og djölfadýrkun háttsettustu manna heims? 20.01.2022

Á hverju ári hittist hópur háttsettustu manna heims á stað sem nefnist Bohemian Grove. Myndir hafa náðst af fyrrum forsetum Bandaríkjana ræða þar málin meðfram því að stunda mannfórnir og tilbiðja guðlegar verur.  Hægt er að styrkja Poppsálina og fá aðgang að fleiri þáttum með því að gerast áskrifandi: https://www.patreon.com/Poppsalin

Amy Winehouse: Einstaka röddin, vímuefnin og sjálfsskaðinn (Patreon þáttur) 17.01.2022

Hæfileikaríka söngkonan með einstöku röddina Amy Winehouse þurfti að glíma við alls konar djöfla á sinni stuttu ævi.  Hægt er að hlusta á þennan þátt með því að gerast styrktaraðili Poppsálarinnar fyrir 5 evrur á mánuði:  á https://www.patreon.com/Poppsalin Styrktaraðilar munu reglulega fá aukaþætti eða "snemm-aðgang" að þáttum Poppsálarinnar.  TW: Í þættinum er fjallað um sjálfsskaða, v...

Charles Whitman: Morðóður siðblindingi eða verkfræðinemi með heilaæxli? 13.01.2022

Fjöldamorðið við Texas Háskóla - Sálfræðileg greining Sumarkvöld eitt árið 1966 fór Charles Whitman upp í turn á skólalóð Texas háskóla.  Í 90 mínútur stóð hann í turninum og skaut handahófskennt á saklausa vegfarendur. Whitman drap 16 manns og særði 30 aðra.  Sálfræðin hefur lengi reynt að skilja svona morðæðishegðun og fara Elva og Vilborg sálfræðikennarar yfir fimm ólíkar sálfræðikenningar sem...

Samskynjun og hljóðhatur: Gulir tónar og grænar sjöur 06.01.2022

Hvernig er tölustafurinn 7 á litinn eða bókstafurinn B? Er þriðjudagur með sama vibe og október?  Er tíminn með form og lögun og vikudagar með ákveðna liti? Upplifir þú sterk viðbrögð við smatt hljóðum eða andardrætti annarra?  Í þessum þætti er fjallað um áhugavert fyrirbæri sem nefnist samskynjun. Reynsla fólks af þessu fyrirbæri fá að heyrast og farið verður í fræðilegar pælingar bak við þetta...

Jólaþáttur: Jóladepurð, sorg og streita - Ráð frá sála 15.12.2021

Í þessum jólaþætti og síðasta Poppsálarþætti ársins spjalla þær Elva og Sólrún Ósk sálfræðingur um jólin. Þær tala um skammdegisþunglyndi og hátíðarþunglyndi sem sumir geta fundið fyrir.  Farið er í ýmis atriði sem gott getur verið að hafa í huga yfir hátíðarnar. 

Snapchat-perrinn Hörður, barnahneigð, barnaníð og meðferð 11.12.2021

Poppsálin heldur áfram að fjalla um ógeðsleg mál. Í þessum þætti verður talað um barnaníðinginn Hörð sem hefur verið í umræðunni undanfarið. Farið verður í sálfræðina bak við barnahneigð, greiningarviðmið, muninn á barnahneigð og barnaníð og mögulegar meðferðir.  Þessi þáttur er ekki endilega fyrir þau sem eru viðkvæmt fyrir svona málefnum. 

R.Kelly - Barnaníð, barnaklám og gaslýsing 02.12.2021

Í þessum þætti verður fjallað um viðbjóðslegt mál söngvarans R. Kelly. Í þættinum er farið í sögur af hegðun hans. Farið verður í reynslu ungra stúlkna af honum og út á hvað gaslýsing gengur.  Þessi þáttur er ekki fallegur. Í þættinum má heyra stúlku lýsa kynnum sínum af R. Kelly og tilraunir hans til að sverja af sér alla ábyrgð. 

Aaliyah - R&B prinsessan í klóm barnaníðings 25.11.2021

Í þessum þætti af Poppsálinni er fjallað um R&B prinsessuna Aaliyah en hún lést í flugslysi aðeins 22 ára gömul. Umræða um "samband" hennar og R. Kelly söngvara var hávær á sínum tíma og mun Poppsálin skoða það mál. En hvernig talað var um þeirra "samband" á sínum tíma er algjörlega sturlað. 

Kpop: Þjálfunarbúðir, aðdáun, gleði og vel smurt viðskiptamódel 11.11.2021

Í þessum þætti fær Poppsálin til sín góðan gest. Guðrún Ólafsdóttir hefur mikinn áhuga dægurmenningu Suður Kóreu og kennir hún fjölbreytt námskeið hjá Endurmenntun HÍ, sem tengjast m.a. ferðalögum, s-kóreskri menningu og Kpop.  Í þættinum verður farið í einkenni K-pop, tenginguna við menningu landsins og þessa miklu innreið inn á Bandarískan og Evrópskan markað.  Einnig spjalla þær Elva og Guðrún...

Disney prinsessur: Kvenleiki og geislabaugar 05.11.2021

Í þessum þætti fær Poppsálar Elva til sín Önnu Eir, sálfræðisnilling með meiru. Þær ræða um Halo effect eða geislabaugsáhrifin, Disney prinsessur, útlit, kvenleika og líkamsímynd.  Elva segir einnig frá mjög vafasömum kenningum sem hún bjó sjálf til.  Allt mjög óviðeigandi en líka mjög skemmtilegt.  Endilega styrkið Poppsálina með kaffibolla: https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

Havana syndrome - Hljóðvopn eða hystería? 29.10.2021

Árið 2016 fóru bandarískir sendiráðsmenn á Kúbu að finna fyrir sérkennilegum einkennum. Þeir heyrðu mjög óþægilegt hljóð og upplifðu heilaþrýsting, svima, ógleði, minnisleysi og jafnvel einkenni heilahristings í kjölfarið. Talið er að um einhvers konar hljóðvopnaárás gegn Bandaríkjunum hafi verið um að ræða.  Nýlega fóru aðilar að finna fyrir svipuðum einkennum í Vín og Berlín.  Er nýr vopnahernað...

Stafræn áhorfendahrif (Digital Bystander effect) - Af hverju tökum við mynd í stað þess að hringja eftir aðstoð? 21.10.2021

Í október nauðgaði maður konu í lest í Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Hópum farþega varð vitni að árásinni en gerði ekkert, nema taka ódæðið upp á myndband. Árið 1964 var Kitty Genovisi drepin á göngu sinni heim úr vinnu. Hópur fólks stóð og horfði á. Enginn greip inní eða hringdi á lögreglu fyrr en það var orðið of seint.  Í þessum þætti verður fjallað um sálfræðilegt fyrirbæri sem nefnist áhorfenda...

Britney Spears - Frelsi í augsýn? 07.10.2021

Í þessum þætti fara Fjóla og Elva Britney nördar yfir stöðu mála hjá söngkonunni. Margt hefur gerst á undanförnum mánuðum og frelsi mögulega í augsýn.  Elva og Fjóla ræða nýjustu vendingar í málaferlum Britney, brottrekstur föður hennar og möguleg málaferli gegn honum.  Endilega styrkið Poppsálina með kaffibolla: https://www.buymeacoffee.com/poppsalin Einnig kann Poppsálin að meta öll "læk&qu...

Varanleiki tilfinninga: Höfnun, óöryggi og ólík ástartungumál 01.10.2021

Þessi þáttur af Poppsálinni er heldur óhefðbundinn þar sem hann fjallar aðallega um áhugaverða hugmynd innan sálfræðinnar. Hugmyndin um varanleika tilfinninga og það að  upplifa að tilfinningar séu hverfular  er tengt við höfnun, óöryggi í samböndum og lítið sjálfstraust.  Hægt er að styrkja Poppsálina með einum kaffibolla :) https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

Varg Vikernes: Black metal tónlist og djöfladýrkun 24.09.2021

Í kringum 1990  var kirkjubrennu faraldur í gangi í Noregi. Kirkjubrunarnir voru tengdir við djölfadýrkun og black metal tónlist.  Í þessum þætti verður fjallað um black metal hljómsveitina Mayhem og sérstaklega óhugnanlega sögu  Varg Vikernes, bassaleikara hljómsveitarinnar. 

Слухайте подкаст Poppsálin у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали