uk

HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

Health IS ↓ Епізодів: 177

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: www.heilsuerla.is

Автор

HeilsuErla

Категорія

Health

Сайт подкасту

www.heilsuerla.is

Останній епізод

25 вер 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android майже 10 млн завантажень · рейтинг 4,8 iOS незабаром

Епізоди

23. Glaðari þú. (Sjóböð, kuldaþjálfun, föstur, blóðsykur, homopatía, sjáfsmildi og tarot). Guðrún Tinna Thorlacius og Margrét Leifsdóttir 01.12.2023

Gestir þáttarins eru þær stöllur og vinkonur Margrét Leifsdóttir arkítekt og heilsumarkþjálfi og Guðrún Tinna Thorlacius þroskaþjálfi, markþjálfi, homopati og fleira. Þær fara um víðan völl í þessu áhugaverða spjalli og ræða meðal annars um ávinning sjóbaða, kuldaþjálfun, föstur, blóðsykur, homopatíu, sjáfsmildi, tarot og mikilvægi góðrar heilsu.  Sjóðbaðsleikjanámskeiðin þeirra Glaðari þú eru gíf...

Hvað er prófkvíði og hvað er til ráða? Sólrún Ósk Lárusdóttir. (Heilsumoli 4) 26.11.2023

Í þessum heilsumola ræðir Erla við Sólrúnu Ósk Lárusdóttur, sálfræðing um prófkvíða, afhverju hann stafar og hvað er hægt að gera til þess að minnka áhrif hans á okkur.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !

22. Gleym þér ei. (Alzheimer frá sjónarhorni aðstandenda og hvernig sjúkdómurinn tekur oft toll af heilsu umönnunaraðlila, líkamlega, andlega og félagslega.) Ragna Þóra Ragnarsdóttir 24.11.2023

Í þættinum ræðir Erla við Rögnu Þóru Ragnarsdóttur, eiginkonu Guðlaugs Níelssonar eða Gulla eins og hann er ávallt kallaður. Gulli sem er 67 ára gamall greindist með Alzheimer fyrir tæpum 6 árum síðan og sjúkdómurinn er nú kominn á það stig að suma daga nær Ragna ekki augnsambandi við hann, aðra daga í sekúndu og sekúndu og einstaka sinnum fær hún bros. Brosin hans eru samt orðin mjög takmörkuð au...

21. Að lifa tilgangsríku lífi. (Prestsstarfið, samkennd, hjónabandið og lýðheilsa.) Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir 17.11.2023

Í þættinum ræðir Erla við hjónin Bjarna Karlsson og Jónu Hrönn Bolladóttur um lífið, preststarfið, hegðun, mótbyr og meðbyr í trú á Íslandi, samkennd, hörmungarnar í Grindavík, hjónabandið, lýðheilsu og margt fleira. Bjarni og Jóna Hrönn eru bæði prestar og leiðir þeirra lágu saman í guðfræðideildinni í Háskóla Íslands fyrir nokkrum áratugum. Jóna Hrönn hefur starfað sem prestur í 40 ár og er nú s...

20. Riddari hringavitleysunnar. (Barátta við geðhvörf, geðrof, sáraristilbólgur og krabbamein.) Ágúst Kristján Steinarsson 10.11.2023

Í þættinum ræðir Erla við Ágúst Kristján Steinarsson stjórnendaráðgjafa, rithöfund, tónlistarmann og fyrirlesara um magnaða lífsreynslu hans og baráttu við geðhvörf, geðrof, sáraristilbólgur og krabbamein. Fyrir um tíu árum síðan gekk Ágúst Kristján í gegnum sína alvarlegustu maníu þar sem hann endaði nakinn á torgi í  Kaupmannahöfn. Eftir 14 ára rússíbanareið með síendurteknum spítalavistum og fl...

19. Hvernig hámörkum við líkamlega heilsu? (Foreldrahlutverkið, áhrif svefns, hreyfingar, mataræðis, öndunar ofl.) Evert Vígundsson og Þuríður Guðmundsdóttir (Rúrý kíró) 03.11.2023

Þessi þáttur er í boði UNBROKEN  Í þessu einlæga spjalli ræðir Erla við hjónin Evert Víglundsson og Þuríði Guðmundsdóttur um foreldrahlutverkið, áhrif svefns, hreyfingar, mataræðis, öndunar og fleira á líkamlega heilsu okkar og hvernig heilsan er það síðasta sem við viljum missa og það fyrsta sem við viljum ná í aftur ef við ,,missum" hana.   Hlustendur fá að heyra um heilsuvenjur þeirra, hva...

18. Að hlusta á líkamann. (Heilbrigði, hreyfigeta, verkjalosun, hamingja og lífsgæði.) Margrét Arna Arnardóttir 27.10.2023

Í þessum áhugaverða þætti ræðir Erla við Margréti Örnu Arnardóttur, íþróttafræðing, jógakennara, heilara og meðferðaraðila um um jóga, heilun og bandvefslosun og hvað það er miklvægt að tengjast sjálfum sér og hlusta á innsæið og líkamann. Ástríða Margrétar Örnu er að hjálpa öðrum að finna sína eigin verðleika og gleði í lífinu þannig að hver einstaklingur geti orðið besta útgáfan af sjálfum sér....

17. Mikilvægasta ,,like-ið" er þitt eigið. (Seigla, þrautseigja, munur á milli kynslóða, kvíði og streita.) Anna Steinsen 20.10.2023

Í þessum bráðskemmtilega þætti ræðir Erla við Önnu Steinsen, fyrirlesara, stjórnendamarkþjálfa, heilsumarkþjálfa og jógakennara um heilsu, seiglu, þrautseigju, mun milli kynslóða, kvíða, streitu og margt fleira. Anna er mikill húmoristi og þeir sem þekkja Önnu vita að þar sem hún er, er aldrei leiðinlegt. Þið verðið ekki svikin af þessari hlustun. Anna er einn af stofnendum og eigendum Kvan og hef...

16. Svefn og heilsa. Hvers vegna er svefn mikilvægur fyrir góða heilsu? Dr. Erla Björnsdóttir 13.10.2023

Í þættinum ræðir Erla við Dr. Erlu Björnsdóttur sálfræðing og stofnanda Betri svefns um hvernig heilsa okkar hefur áhrif á svefn og hvað góður svefn getur haft gífurlega jákvæð áhrif á heilsu okkar. Þær nöfnur ræða um kæfisvefn, svefnlyfjanotkun, svefnvenjur ungmenna, neföndun á nóttunni, svefnstigin fjögur og hvernig þau skipta öll máli í heildarmyndinni og ýmislegt fleira er tengist svefni og he...

15. Afreksíþróttir, andlegur styrkur, árangur og heilsa. Ásdís Hjálmsdóttir 07.10.2023

Hlustendur hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum fá 20% afslátt af Under Armour og Mizuno vörum í Altis Bæjarhrauni, Altis.is og Under Armour verslun í Kringlunni út október 2023 með því að nota kóðann "heilsuerla" . Í þættinum ræðir Erla við Ásdísi Hjálmsdóttur, hugarfarsþjálfara, íþróttakonu og fyrrum afrekskonu í frjálsum íþróttum um afreksíþróttir og heilsu, hugarþjálfun og hvað getur haf...

14. Heildræn heilsa, sjúkraþjálfun og stoðkerfisfræðingar. Hildur Kristín Sveinsdóttir 01.10.2023

Í þættinum ræðir Erla við Hildi Kristínu Sveinsdóttur, sjúkraþjálfara og eiganda Sjúkrasport (Sjúkraþjálfunin í Sporthúsinu). Hildur Kristín ræðir um starf sjúkraþjálfara frá sínu sjónarhorni og hvernig henni þætti réttara að stéttin héti ,,stoðkerfisfræðingar" sem er meira lýsandi fyrir hennar starf.  Hún vinnur mjög heildrænt og tekur inn í myndina alla ,,vinkla" sem hafa áhrif á heils...

13. Heilsumissir, skömm, sorg og samkennd. Anna Sigurðardóttir 24.09.2023

Í þættinum ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur, sálfræðing og stofnanda og eiganda Samkenndar Heilsuseturs um það hvernig hún missti heilsuna eftir röð áfalla og hvernig hún hefur hægt og rólega komist aftur til betri heilsu. Þær stöllur ræða um hlutverk sálfræðinga, um skömm, sorg,  samkennd, örmögnun, kulnun og heilsumissi. Anna útskýrir á skemmtilegan hátt afhverju það er svo erfitt að breyta ve...

12. Hvað er fjárhagsleg heilsa og fjárhagslegt heilbrigði? Björn Berg Gunnarsson 18.09.2023

Ég minni hlustendur hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum að  með því að nota kóðann "heilsuerla" og fáið þið 20% afslátt af Under Armour og Mizuno vörum í Altis Bæjarhrauni, Altis.is og Under Armour verslun í Kringlunni út október 2023. Í þættinum ræðir Erla við Björn Berg Gunnarsson, viðskiptafræðing með meiru um fjárhagslega heilsu og hvað fjárhagslegt heilbrigði er og hvað það er ekki og...

Öndunaræfing 4-7-8. (Heilsumoli 3) 16.09.2023

Heilsumoli dagsins er öndunar- og núvitundaræfing.  Öndunaræfingar aðstoða okkur við að slaka á og gleyma stað og stund. Öndunaræfingar róa taugakerfið og hugann, geta minnkað streitu og kvíða og  bætt einbeitingu og svefn.  Með því að  hafa meiri stjórn á önduninni verður öndunin dýpri og hægari. Með því er hægt að lækka blóðþrýstinginn, slaka á spennu í líkamanum og bæta heilsu hjartans. Æfingin...

11. Hvernig getur sköpunargleði haft áhrif á heilsu okkar? Birna Dröfn Birgisdóttir 12.09.2023

Í þættinum ræðir Erla við Birnu Dröfn Birgisdóttur, sköpunargleðifræðing um það hvernig sköpunargleði getur haft áhrif á heilsu okkar og hvernig heilsa okkar getur haft áhrif á sköpunargleði. Birna er er doktorsnemi í Háskólanum í Reykjavík þar sem hún rannsakar sköpunargleði og hvernig leiðtogastíllinn þjónandi forysta hefur áhrif á sköpunargleði starfsmanna. Birna hefur safnað að sér ýmsum tólum...

Vangaveltur um félagslega heilsu. (Heilsumoli 2) 10.09.2023

Hefur þú upplifað félagslegt heiluleysi? Skilgreining Alþjóðaheilbrigðisstofnunar (WHO):  ,,Heilsa er algjör líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan, en ekki einungis það að vera laus við sjúkdóma og örorku.“ Við þurfum því að huga jafnt að öllum þessum þremur þáttum því að ef einn fer úr jafnvægi þá hefur það áhrif á hina þættina.  Spurðu þig reglulega, Hvað þarf ég til þess að mér líði vel og Hve...

10. Félagsleg heilsa og mikilvægi hennar. Hrefna Hugosdóttir og Ragnhildur Bjarkadóttir 05.09.2023

Í þættinum ræðir Erla við Hrefnu Hugósdóttur, hjúkrunarfræðing og Ragnhildi Bjarkadóttur, sálfræðing um félagslega heilsu og mikilvægi hennar. Þær stöllur eru einnig fjölskyldufræðingar og stofnuðu Auðnast árið 2014 í þeim tilgangi að þjónusta atvinnulífið um allt er varðar heilsu og félagslegt öryggi starfsfólks. Sama ár var Auðnast klíník opnuð en þar er boðið upp á þverfaglega meðferð, handleið...

Leggðu daglega inn í heilsubankann. (Heilsumoli 1) 03.09.2023

Heilsumolar er stuttir þættir, vangaveltur og fræðsla sem einstaklingar geta nýtt sér til þess að hafa jákvæð áhrif á eigin heilsu og líðan.  Í þessum fyrsta heislumola eru 5 ráð sem gætu gagnast þeim sem vilja bæta heilsuna. Á okkur dynja alls kyns upplýsingar um hvernig bæta megi heilsuna, bæði varðandi hreyfingu, matarræði og annað. En hvernig vitum við hvað er satt og rétt? Hverju eigum við að...

09. Lífið er kynlíf. Kynheilbrigði og áhrif þess á heilsu okkar. Áslaug Kristjánsdóttir 26.08.2023

Í þættinum ræðir Erla við Áslaugu Kristjánsdóttur, hjúkrunarfræðing, kynfræðing og kynlífsráðgjafa um kynlíf og kynheilbrigði og áhrif þess á heilsu okkar.  Áslaug er forvitin um lífið og vissi snemma hvað hún ætlaði að verða þegar hún yrði stór og stóð við það. Hún starfar sem kynlífsráðgjafi og aðstoðar fólk við að vera í ástarsambandi sem færir því hamingju og gott kynlíf. Hún vill hálpa fólki...

08. Breytingaskeið kvenna og heilsa. Halldóra Skúladóttir 22.08.2023

Í þættinum ræðir Erla við Halldóru Skúladóttur, eigenda Kvennaráð.is um breytingaskeið kvenna og áhrif þess á heilsu okkar. Þátturinn á erindi til allra, bæði kvenna og karla til þess að skilja þetta tímabil í lífi kvenna.  Breytingaskeiðið er tímabil í lífi allra kvenna sem er oft tengt vanlíðan vegna þeirra einkenna sem því fylgja. Á breytingaskeiði gera ýmis einkenni og kvillar vart við sig veg...

07. Máttur matarins. Upplifðu alvöru lífsgæði sem fylgja heilsusamlegum lífsháttum. Geir Gunnar Markússon 17.08.2023

Í þættinum ræðir Erla við Geir Gunnar Markússon næringarfræðing og einkaþjálfara um mikilvægi mataræðis fyrir góða heilsu. Geir Gunnar eða Heilsugeirinn eins og hann er oftast nefndur brennur fyrir sem bestri heilsu allra landsmanna og vonar að sem flestir geti upplifað alvöru lífsgæði sem fylgja heilsusamlegum lífsháttum. Heilsugeirinn vinnur heildrænt að bættri heilsu og byggir á því að vinna í...

06. Geðheilbrigði og vellíðan starfsfólks er samfélagsleg ábyrgð en ekki einkamál hvers og eins. Helena Jónsdóttir 12.08.2023

Í þættinum ræðir Erla við Helenu Jónsdóttur, klíniskan sálfræðing og stofnanda og eiganda Mental ráðgjafar , um það hvernig geðheilbrigði og vellíðan starfsfólks er samfélagsleg ábyrgð en ekki einkamál hvers og eins.  Þær stöllur ræða um hvers vegna það sé mikilvægt að stjórnendur taki geðheilbrigðismál föstum tökum og hafi tæki og tól til þess að takast á við þennan vanda auk þess að sýna sjálfir...

05. Bandvefur og heilsa. Að komast aftur inn á vinnumarkaðinn eftir 14 ára fjarveru vegna heilsuleysis. Hekla Guðmundsdóttir 08.08.2023

Í þættinum segir Hekla Guðmundsdóttir, eigandi bandvefslosun.is og Body Reroll æfingakerfisins á einlægan hátt frá áfallasögu sinni og hvernig hún komst aftur inn á vinnumarkaðinn eftir 14 ára fjarveru vegna heilsuleysis. Hekla hannaði æfingakerfið Body Reroll til þess að allir gætu fundið eitthvað fyrir sig í heilsurækt. Hún kennir nú í Dans og jóga og heldur einnig reglulega kennaranámskeið til...

04. Færni til framtíðar. (Hreyfifærni barna, náttúran og útivist). Sabína Steinunn Halldórsdóttir 01.08.2023

Sabína Steinunn Halldórsdóttir er íþrótta- og heilsufræðingur, móðir og stelpukona sem situr ekki auðum höndum. Hún heldur út síðunni Færni til framtíðar og hefur gefið út fjölmargar bækur varðandi útiveru og leikgleði. Í þættinum sem segir Sabína okkur frá sér, sinni menntun og ástríðu fyrir hreyfifærni barna og útivist. Hún hefur óbilandi trú á náttúrunni, sem hún segir að sé bæði heilandi og he...

03. Tengslaröskun og hvernig áföll hafa áhrif á taugakerfið okkar. Friederike Berger 01.08.2023

Í þættinum segir Friederike Berger, jógakennari og heilari okkur á einstaklega einlægan hátt frá erfiðum áföllum í æsku og hvernig þau hafa haft áhrif á líf hennar. Hún útskýrir tengslaröskun og hvernig áföll hafa áhrif á taugakerfið okkar. Friederike bendir á hvað það er mikilvægt að hlúa að sér, róa taugakefið með öndun, jóga og heilun og sýna sjálfum sér mildi en sjálfsmildi er leiðin að jafnvæ...

Слухайте подкаст Með lífið í lúkunum у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали