uk

Samfylkingin

Kratinn

News IS ↓ Епізодів: 40

Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: podcasters.spotify.com

Автор

Samfylkingin

Категорія

News

Сайт подкасту

podcasters.spotify.com

Останній епізод

12 чер 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android майже 10 млн завантажень · рейтинг 4,8 iOS незабаром

Епізоди

S211: Efnahagsmálin á mannamáli 19.11.2025

Í þættinum fóru Arnar, Ásta, Þórður og Valur yfir fréttir vikunnar. Efnahagsmálin voru fyrirferðarmikil enda gengur vel, tiltekt í ríkisrekstri hefur skilað raunverulegum árangri og nú heldur vaxtalækkunarferlið áfram. Í síðari hluta þáttarins ræddi Sonja við Ölmu Ýr Ingólfsdóttur, formann ÖBÍ um löggildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

S210: Fagurfræðilega ómöguleg lausn framkallar samsæriskenningu á forsíðu Morgunblaðs 12.11.2025

Í Krata dagsins er kafað ofan í ótrúlega fyndna, ranga og nett brjálaða forsíðufrétt Morgunblaðsins, nýja ásýnd Sjálfstæðisflokksins sem felur í sér að horfa til fortíðar og hvort það sé ekki bara fínt að fá á sig Kristrúnar Frostavetur. Farið er yfir ríkislögreglustjóramálið, eða JYSK-skandalinn, og skýrt af hverju það þurfi að setja lög um snjallsímabann í skólum. Í síðari hluta þáttarins ræðir...

S209: Kratabylgjan sem tröllríður heiminum og stóri fallegi húsnæðispakkinn 05.11.2025

Í þætti dagsins er fjallað um stöðu ríkislögreglustjóra, kratabylgjuna sem fer nú um heiminn, nýjustu könnun á fylgi flokka, vandamál Pírata við að kjósa sér formann og Arnaldarvísitöluna, svo fátt eitt sé nefnt. Í síðari hluta þáttarins er fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar svo krufinn.

S208: Málefnastarf og efnilegir Kratar 29.10.2025

Valur ræsti varaliðið út þessa vikuna og fór yfir fréttir með þeim Bjarnveigu Birtu og Jóla. Jónas Már kom svo í spjall um málefnastarf Samfylkingarinnar sem nú er í fullu fjöri.

S207: Kvennasamstaða, sveitarfélög og íslenski fáninn 22.10.2025

Í þættinum fara þau Sonja, Valur, Ásta og Arnar yfir fréttir vikunnar og í síðari hluta heyrum við viðtal Arnars við Kristján Þórð en hann stóð fyrir sérstakri umræðu um launaþjófnað og mansal í síðustu viku.

S206: Maine coon, Laxness og leikskólamál 15.10.2025

Í þættinum í dag fara Ásta, Sonja, Valur og Þórður yfir fréttir vikunnar sem voru nokkuð margar og vítt og breitt um sviðið. Í seinni hluta þáttar heyrum við viðtal við Dagbjörtu Hákonardóttur um þingmannamál sem hún lagði fram í síðustu viku um leikskólamál.

S205: Varnir Alþingis og varnir Íslands 07.10.2025

Öryggismálin eru á oddi í þessum þætti. Farið var yfir nokkrar fréttir vikunnar, öryggisbrot á Alþingi, Reykjavíkurleiðina og fleira og í seinnipart þáttar heyrum við viðtal við Víði Reynisson, einn helsta varnar- og öryggissérfræðing landsins.

S204: Veðmálastarfsemi og vendingar vikunnar 30.09.2025

Farið var yfir fréttir síðustu daga, fall Play, ótrúlega frásögn af Birgi Þórarinssyni, frábæran flokksstjórnarfund, hrókeringar í Miðflokknum og það hvort búið sé að eyðileggja Reykjavík eins og sumt stjórnmálafólk virðast halda. Viðmælandi þáttarins var Sigurþóra Bergsdóttir sem ræddi um ólögmæta veðmálastarfsemi við Þórð.

S203: Sokkar, bolir og afsökunarbeiðni frá Samfylkingunni 24.09.2025

Í þessum þætti fara Arnar, Sonja og Þórður yfir ýmis mál sem báru á góma í fréttavikunni. Þátturinn hefst á afsökunarbeiðni fyrir hönd Samfylkingarfólks í Reykjavík.

S202: Kristrún Frostadóttir 17.09.2025

Forsætisráðherra mætti í spjall til Þórðar Snæs og var á nokkuð persónulegum nótum. Á fjórum árum fór hún úr því að verða þingmaður yfir í að gegna embætti forsætisráðherra. Hún fer yfir það og margt fleira.

S201: Forsetaslagur í UJ 10.09.2025

157. löggjafarþing er sett og hlaðvarp Kratans snýr aftur. Í þessum fyrsta þætti vetrarins tökum við frambjóðendur til embættis forseta Ungs jafnaðarfólks tali.

S104: Logi Einarsson 18.06.2025

Logi, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Íslands er gestur í hlaðvarpsþætti Kratans í þessari viku. Hann var formaður Samfylkingarinnar árin 2016 -2022.

S103: Oddný Harðardóttir 11.06.2025

Þriðji viðmælandi Þórðar er Oddný G. Harðardóttir sem var fyrst kvenna fjármálaráðherra á Íslandi. Hún var formaður Samfylkingarinnar árið 2016.

S102: Árni Páll Árnason 04.06.2025

Árni Páll er gestur í öðrum þætti okkar í Kratanum. Hann fer yfir sinn pólitíska feril og formannstíð og ræðir jafnaðarmennskuna.

S101: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 28.05.2025

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er fyrsti viðmælandi Þórðar Snæs Júlíussonar þar sem hún ræðir um sinn stjórnmálaferil og þátttöku í starfi jafnaðarfólks um áratugaskeið.

Слухайте подкаст Kratinn у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали