Handkastið
Handkastið
Podcast by Handkastið
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: soundcloud.com
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Handkastið - Selfoss vinnur deildina og Grótta fellur 01.03.2019 1:12:57
Í þessum þætti var farið yfir fimm leiki í 17. umferð Olís-deildar karla en leik ÍBV og Akureyrar var tvívegis frestað. Gestur þáttarins var góðvinur þáttarins, íþróttafréttamaðurinn Benedikt Grétarsson. Í þættinum fórum við einnig yfir stöðuna í deildinni og er Sérfræðingurinn fullviss um að Selfoss verði Deildarmeistarar og Grótta falli. Handkastið er í boði Coolbet og BK Kjúklings og í samstarf...
Handkastið - Tíðindamikil umferð, Basti69 og Halldór Jóhann á línunni 25.02.2019 1:39:49
16. umferðin í Olís-deild karla varð gerð upp í þætti Handkastsins að þessu sinni. Gestur þáttarins var Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður á RÚV og Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari FH var á línunni í byrjun þáttar. Í þættinum var einnig velt því upp hver gæti tekið við FH liðinu í sumar en Halldór Jóhann gaf það út í vikunni að hann myndi hætta með FH eftir tímabilið. Stuðlarnir á C...
Handkastið - Er Selfoss næsta næstum því liðið, ólseigir FH-ingar og Elvar um Stuttgart 20.02.2019 1:17:33
Í þætti Handkastsins af þessu sinni var farið yfir 8-liða úrslitin í Coca-Cola bikar karla auk þess sem við fórum yfir þá leiki sem búnir eru kvennamegin. Gestir þáttarins voru þeir Gunnar Birgisson dagskrárgerðarmaður í Landanum á RÚV og Elvar Ásgeirsson leikmaður Aftureldingar og nýjasti íslenski handboltaatvinnumaðurinn okkar. Við ræddum komandi tíma hjá Elvari sem er á leið til Þýskalands sem...
Handkastið - Ponzan japlar á sokk og Aggi með brjósklos eftir að hafa lyft öllum þessum bikurum 11.02.2019 1:20:21
Í þættinum fórum við yfir 15. umferðina í Olís-deild karla sem lauk í kvöld með tveimur leikjum. Agnar Smári Jónsson leikmaður Vals kom í óvænta heimsókn og ræddum við til að mynda Tælandsferðir hans. Einnig völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar sem var virkilega drjúgur í þessari umferð.
Handkastið - Er veðmálavandi í íslenskum handbolta? 09.02.2019 35:33
Gestur þáttarins að þessu sinni er Guðmundur Sigurðsson nemi við sálfræði við HÍ en hann gerði BS-rannsókn um veðmálaþátttöku handboltamanna á Íslandi. Í rannsókninni kom fram að tæplega 47% leikmanna úr félagsliðum Íslandsmótsins hafi tekið þátt í peningaspilum. Af þeim sem veðjuðu á handboltaleiki höfðu 38% veðjað á leiki í eigin deild og rúmlega 10% veðjað á eigin leik. Við ræddum...
Handkastið - HM strákarnir heitir, Fram í Fuck it mode og Sverre í viðtali 04.02.2019 1:26:09
Í þættinum fórum við yfir 14. umferðina í Olís-deild karla en gestur þáttarins var Ingvar Örn Ákason aðstoðarþjálfari Fram sem eru í bullandi fallbaráttu eftir tap gegn KA um helgina. Við hringdum síðan norður og heyrðum í Sverre Jakobssyni sem var rekinn sem þjálfari Akureyrar í upphafi árs en er nú kominn í þjálfarateymi KA. Einnig völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar, fórum yfir stöðuna í...
Handkastið - Hitað upp fyrir Olís-deild karla og dregið í Final4 leik Coolbet 31.01.2019 58:25
Í þættinum að þessu sinni hituðu Sérfræðingurinn og Ponzan upp fyrir fyrstu umferðina í Olís-deild karla eftir áramót en deildin fer aftur af stað á laugardaginn. Rýnt var í það sem hefur gerst í handboltafréttum síðustu daga og vikur, stuðlarnir skoðaðir á Coolbet og að lokum drógum við út vinningshafa í tveimur leikjum hjá okkur. Tæplega klukkutíma handboltaumræða sem þú vilt ekki láta framhjá þ...
HM Handkastið - Gatorade bræður fara yfir HM, einkunnargjöf og risa Olís-deildarpakki 23.01.2019 1:17:18
Í HM þætti Handkastsins að þessu sinni voru gestir þáttarins fyrrum þáttastjórendur Gatorade sem var á dagskrá Áttunar ekki fyrir svo löngu síðan. Hermann Árnason íþróttaspekúlant og Davíð Örn Atlason sem kemur úr mikilli handboltafjölskyldu voru gestir þáttarins. Í þættinum fórum við yfir lokaleik Íslands á HM, gáfum íslensku landsliðsmönnunum einkunnir fyrir frammistöðu sína í Þýskalandi. Í sein...
HM Handkastið - Tvö töp en dýrmætur skóli og Spurt&Svarað með Læðunni 20.01.2019 1:10:32
Í HM þætti Handkastsins að þessu sinni komu gestirnir úr Hlíðunum. Æskufélagarnir Atli Már Báruson leikmaður Hauka í Olís-deildinni og og Arnar Sveinn Geirsson, leikmaður Vals í Pepsi-deildinni. Í þættinum fórum við yfir síðustu tvo leiki Íslands á HM gegn Þjóðverðum og Frökkum. Í lok þáttar var síðan Spurt&svarað með Læðunni og einnig tilkynntum við sigurvegara í Coolbet leikjum okkar síðustu dag...
HM Handkastið - Milliriðlar HERE WE COME!! og Benóný Friðriks í beinni frá Munchen 17.01.2019 1:17:14
Í HM þætti Handkastsins að þessu sinni komu gestirnir úr Hafnarfirðinum. Feðgarnir Guðjón Árnason og Árni Stefán Guðjónsson. Guðjón er fyrrum landsliðsmaður og Árni Stefán góðkunningi þáttarins. Í þættinum fórum við yfir síðustu tvo leiki Íslands á HM gegn Makedóníu og Japan. Ísland er komið í milliriðil og við spáðum í næstu leiki að auki. Í byrjun þáttar heyrðum við í fréttaritara þáttarins í Mu...
HM Handkastið - Dóri DNA og Geiri Sly fara yfir leikina gegn Spáni og Barein 14.01.2019 1:08:27
Í HM þætti Handkastsins að þessu sinni komu gestirnir úr Mosfellsbænum. Þeir Halldór Laxness Halldórsson betur þekktur sem Dóri DNA og Ásgeir Jónsson þekktur undir viðurnefninu Geiri Sly. Í þættinum fórum við yfir síðustu tvo leiki Íslands á HM gegn Spáni og Barein, ræddum við Dóra um handboltaferil hans og þættina Afturelding sem eru í bígerð. Í byrjun þáttarins kynntum við Final4 leik Handkastsi...
HM Handkastið - Króatíu leikurinn brotinn til mergjar! 11.01.2019 1:08:27
HM er farið af stað og Handkastið fylgist með strákunum okkar. Gestir þáttarins að þessu sinni voru þeir Ásbjörn Friðriksson leikmaður FH og Þorgrímur Smári Ólafsson leikmaður Fram í Olís-deild karla. Í þættinum fórum við yfir fyrsta leik Íslands á HM gegn Króatíu, fórum yfir frammistöður einstakra leikmanna og spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Spáni. RúnarsKára hornið var á sínum stað og síðan g...
Handkastið - Landsliðsumræða (Taka 2) 07.01.2019 1:24:28
Nýr þáttur á nýju ári. Fyrsti þáttur Handkastsins árið 2019 er kominn út og það þurfti tvær tökur til. Í fyrri tökum voru í settinu Sérfræðingurinn, Ponzan og Guðjón Guðmundsson en því miður eyðilagðist stór partur af þeim tökum og því var ekki hægt að birta þann þátt. Í þætti kvöldsins tók Ponzan út leikbann eftir frammistöðu sína á takkaborðinu í fyrri tökunni og því var Sérfræðingurinn einn við...
Handkastið - Senur á Selfossi, rauð jól, vonbrigði í Safamýri og púðurskot á Nesinu 17.12.2018 1:23:05
Gestur þáttarins að þessu sinni var Óskar Bjarni Óskarsson þrautreyndur þjálfari bæði hér heima og erlendis. Í þættinum var farið yfir síðustu umferðina í Olís-deild karla fyrir áramót en 13. umferðin fór fram um helgina. Að lokum fórum við yfir stöðuna í deildinni fyrir frí en næsta umferð í deildinni er ekki fyrr en í byrjun febrúar. Coolbet leikmaður umferðarinnar var valinn í lok þáttar.
Handkastið - Landsliðsumræða, Úrvalslið "Ekki landsliðsmanna" og RúnarsKáraHornið 14.12.2018 1:27:22
Gestur þáttarins að þessu sinni var fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Einar Örn Jónsson sem starfað hefur verið sem íþróttafréttamaður á RÚV til fjölda ára. Í þættinum ræddum við 16-liða úrslitin í bikarkeppninni, 28-manna landsliðshópinn sem Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari valdi á dögunum. Við völdum úrvalslið leikmanna sem ekki eru í 28-manna hópnum og þá var RúnarsKáraHornið á...
Handkastið - Bleik jól í Hafnarfirði, gul jól á Akureyri og Eyjamenn á fljúgandi siglingu 10.12.2018 1:26:50
Gestur þáttarins að þessu sinni var eftirherman ógurlega, Davíð Már Kristinsson. Í þættinum fórum við yfir 12. umferðina í Olís-deild karla þar sem tveir grannaslagir fóru fram. Í Hafnarfirði enduðu leikar með jafntefli eftir flautumark frá Adami Baumruk og fyrir norðan verða gul jól eftir eins marks sigur KA-manna. Að lokum völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar.
Handkastið - Uppgjör fyrri hluta Olís-deildar karla og Seðillinn kom í spjall 06.12.2018 2:03:50
Í þættinum að þessu sinni fóru Sérfræðingurinn og Ponzan yfir fyrri hluta Olís-deildar karla sem hálfnuð er, ásamt góðvini þáttarins, Árna Stefáni Guðjónssyni. Farið var yfir hvert lið vel og vandlega. Farið var yfir gengi liðanna og spáð var í spilin fyrir seinni hlutann. Einnig var valið úrvalslið fyrri umferðarinnar. Í lok þáttarins kom Siggi Seðill, markvörður Stjörnunnar í létt spjall og feng...
Handkastið - 3some á toppnum, FramkvæmdaBeggi og myndataka óheimil í Krikanum 03.12.2018 1:32:19
Gestur þáttarins að þessu sinni í Handkastinum var Árni Stefán Guðjónsson. Í þættinum fórum við yfir alla leikina í 11. umferð Olís-deildar karla en nú er deildin hálfnuð. Gríðarleg spenna er á bæði toppi og botni deildarinnar. Coolbet leikmaður umferðarinnar var valinn í lok umferðar.
Handkastið - Benóný í beinni frá Kenía, lið vanmetinna leikmanna og rosalegt skúbb frá Eyjum! 29.11.2018 1:17:51
Í þætti Handkastsins að þessu sinni var farið yfir leik Gróttu og Selfoss í lokaleik 10. umferðar Olís-deild karla. Benóný Friðriksson var á línunni frá Kenía og talaði tæpitungulaust um stöðu ÍBV-liðsins. Símasambandið frá Afríku hefði mátt vera betra en allt komst þó til skila. Valið var lið vanmetinna leikmanna í Olís-deildinni og farið var yfir stuðlanna fyrir næstu umferð sem verður svakaleg....
Handkastið - No Ási no party, Seðillinn vann fyrir seðlunum, jarðarför og eru ekki allir kúl? 26.11.2018 1:39:09
Gestur þáttarins hjá Handkastinu að þessu sinni var hinn óútreiknanlegi aðstoðarþjálfari Aftureldingar, Ásgeir "Sly" Jónsson. Í þættinum var farið yfir fyrstu fimm leikina í 10. umferð Olís-deildar karla þar sem baráttan á öllum vígstöðum harðnar og harðnar með hverjum deginum. Einnig var farið yfir Evrópuleik Selfyssinga sem fram fór um helgina. Ásalausir FH-ingar máttu þola tap fyrir norðan gegn...
Handkastið - Gjaldþrot í Eyjum, Hver er Einar Birgir? RúnarsKáraHornið, Tom velur draumalið 22.11.2018 1:45:51
Gestur þáttarins að þessu sinni var þáttastjórnandi Seinni Bylgjunnar á Stöð2Sport, Tómas Þór Þórðarson. Í þættinum var farið yfir tvo síðustu leiki 9. umferðar í Olís-deild karla, Evrópuleik Selfyssinga sem fram fer á laugardaginn. Einnig fórum yfir stöðuna í Olís-deild kvenna sem er komin í jólafrí. RúnarsKáraHornið var á sínum stað og þá valdi Tom draumalið leikmanna sem gætu farið út í atvinnu...
Handkastið - VAR var þrisVAR, skúbb frá Akureyri, besta vítaskytta landsins og Benni fellir Gróttu 19.11.2018 1:17:28
Gestur þáttarins í Handkastinu að þessu sinni var hinn þrautreyndi fjölmiðlamaður og gleðigjafi Benedikt Grétarsson. Í þættinum fórum við yfir fyrstu fjóra leikina í 9. umferð Olís-deildar karla, spáðum í spilin fyrir Evrópuleik Selfyssinga næstkomandi laugardag og næstu tvo leiki í Olís-deild karla. Auk þess ræddum við áhrifin sem það hefur haft á Olís-deildina að Stöð2Sport hafi fengið sýningarr...
Handkastið - Markmiðablað fyrir Selfoss stelpur, síðasti séns Ella Rich? Lið FreeAgent leikmanna 15.11.2018 1:08:12
Það var fámennt en góðmennt í sautjánda þætti Handkastsins í kvöld. Þeir bakkabræður, Ponzan og Sérfræðingur voru tveir í NewBalance stúdíó-inu. Farið var yfir 9. umferðina í Olís-deild kvenna þar sem stórleikur umferðarinnar fór fram í Origo-höllinni í kvöld. Spáð var í spilin og farið var yfir stuðlabergið fyrir næstu umferð í Olís-deild karla sem fram fer um helgina. Að lokum bjó Handkastið til...
Handkastið - Selfyssingar ekki ósigrandi, Rjúpna-Þrándur, Góu Hraun í Krikanum og RúnarsKára-hornið 13.11.2018 1:37:26
Gestur þáttarins að þessu sinni var hinn eitur hressi grunnskólakennari í Öldutúnsskóla Árni Stefán Guðjónsson. Farið var yfir 8. umferðina í Olís-deild karla og spáð var í spilin fyrir næstu umferðir í deildinni en fimm umferðir eru fram að jólafríi. Auk þess völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar. - Elvars lausir Selfyssingar lentu á Danna Inga veggnum - Andlausir Eyjamenn halda áfram að vald...
Handkastið - Patti Jó um litríkan feril, skrautlegar sögur og hæðir og lægðir með landsliðinu 08.11.2018 2:09:13
Gestur þáttarins að þessu sinni í Handkastinu var Patrekur Jóhannesson núverandi þjálfari Selfoss og austurríska landsliðsins. Rætt var um athyglisverðan feril Patreks sem hófst í Garðabænum, stutt viðkoma í Hafnarfirðinum áður en hann flutti til Akureyrar þar sem ferilinn fór almennilega á flug. Patti á að baki 241 landsleik og lék í fjölda ára í atvinnumennsku bæði í Þýskalandi og á Spáni með mö...
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали