uk

Handkastið

Handkastið

Sports IS ↓ Епізодів: 365

Podcast by Handkastið

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: soundcloud.com

Автор

Handkastið

Категорія

Sports

Сайт подкасту

soundcloud.com

Останній епізод

2 жов 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android майже 10 млн завантажень · рейтинг 4,8 iOS незабаром

Епізоди

Handkastið - Upphitunarþáttur sæti 6 - 1 03.09.2019

Seinni upphitunarþáttur Handkastsins fyrir Olís-deild karla.

Handkastið - Upphitunarþáttur sæti 12 - 7 01.09.2019

Fyrri upphitunarþáttur Handkastsins fyrir Olís-deild karla.

Handkastið - Styttist í veisluna! 21.08.2019

Handkastið fór yfir stöðuna á liðunum í Olís-deild karla en undirbúningstímabilið er í fullum gangi.

Handkastið - Ótímabær spá fyrir Olís-deild karla! 14.07.2019

Það eru innan við tveir mánuðir í 1. umferðina í Olís-deild karla og því löngu kominn tími til að koma með ótímabæra spá fyrir deildina! Fórum yfir leikmannagluggann og stöðuna á leikmannahópunum hjá liðunum.

Handkastið - Upphitun fyrir Final4 og Aron Pálmars í viðtali 30.05.2019

Í þættinum var hitað upp fyrir Final4 sem fram fer í Köln um helgina. Gestir þáttarins voru bræðurnir Lárus Helgi og Þorgrímur Smári Ólafssynir. Við fórum yfir liðin sem eru komin í Final4 auk þess sem við heyrðum í Aroni Pálmarssyni leikmanni Barcelona sem er að kominn í Final4 í áttunda skipti. Auk þess fórum við yfir stuðlana á Coolbet. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Handkastið - TIL HAMINGJU SELFYSSINGAR! 22.05.2019

Selfyssingar eru Íslandsmeistarar í handknattleik í fyrsta skipti eftir tíu marka sigur á Haukum á heimavelli í kvöld! Við fórum yfir þennan svakalega leik, afhroð Hauka og allt Selfossliðið í þætti kvöldsins með Ragnari Njálssyni. Við óskum Selfyssingum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn! Þátturinn er í boði BK Kjúklings!

Handkastið - Senur í Schenkernum - Fer bikar á loft á miðvikudaginn? 19.05.2019

Selfyssingar eru komnir með pálmann í hendurnar eftir sigur á Haukum í framlengdum spennutrylli í DB Schenkerhöllinni í kvöld. Lærisveinar Patta Jó. þurfa nú aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér þann stærsta. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Handkastið - Allt í járnum í úrslitaeinvíginu og djúsí-maraþon slúðurpakki 17.05.2019

Gestur þáttarins að þessu var Árni Stefán Guðjónsson. Haukarnir fóru á Selfoss og jöfnuðu þar metin í úrslitaeinvíginu með flautumarki. Við fórum vel yfir leikinn í kvöld auk þess að spá í spilin fyrir leikinn á sunnudaginn. Í lokþáttar buðum við síðan uppá svakalegan slúðurpakka. Einn sá stærsta hingað til í vetur! Þátturinn er í boði BK Kjúklings!

Handkastið - Fara Selfyssingar taplausir í gegnum úrslitakeppnina? 14.05.2019

Úrslitaeinvígið hófst í kvöld þegar Selfoss vann fimm marka sigur á Haukum á Ásvöllum. Einar Örn Jónsson mætti í Handkastið og fór yfir leikinn með Sérfræðingnum og Ponzunni. Einnig spáðum við í spilin fyrir leik tvö sem fram fer á föstudaginn á Selfossi. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Handkastið - Tvö bestu liðin mætast í úrslitum, Áttan mætir í Olís og slúðurmolar 11.05.2019

Haukar eru komnir í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn og mæta þar Selfyssingum. Í þættinum fórum við yfir oddaleik Hauka og ÍBV sem fram fór í dag. Auk þess spáðum við í spilin fyrir úrslitaeinvígið, ræddum um oddaleikinn í Grillinu þar sem HK vann Víking nokkuð sannfærandi. Í lok þáttar fengu nokkrir slúðurmolar að líta dagsins ljós. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Handkastið - Afhverju hætti Elías Már? Sópur á Selfossi og töfralæknir í Hafnarfirði 06.05.2019

Gestur þáttarins að þessu sinni er góðvinur þáttarins, Benedikt Grétarsson íþróttafréttamaður og mikill handboltaáhugamaður. Selfyssingar eru komnir í úrslit og mæta þar annað hvort Haukum eða ÍBV sem mætast í fjórða leik á miðvikudaginn. Við fórum yfir leik kvöldsins þar Selfoss sló Val úr leik. Einnig fórum við yfir leik Hauka og ÍBV sem fór fram í gærkvöldi og öll lætin sem hafa einkennt það ei...

Handkastið - Selfyssingar í lykilstöðu og yfirvinna hjá aganefndinni 03.05.2019

Í þættinum fórum við yfir undanúrslitaeinvígin í karla boltanum. Það er allt á suðupunkti í báðum einvígum og mikil læti þar sem rauð spjöld hafa verið áberandi. Við fórum vel yfir rauðu spjöldin í Eyjum og ollarann frá Árna Steini. Gestur þáttarins var Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður hjá RÚV. Við ræddum síðan komu Egils Magg í FH, umspilið í Grillinu og 8-liða úrslitin í Meistara...

Handkastið - Haukur og Haukar á eldi og Þrefaldur GústiJó 01.05.2019

Ásbjörn Friðriksson spilandi þjálfari FH er gestur Handkastsins í þessum þætti. Í þættinum fórum við yfir úrslitaeinvígið hjá stelpunum þar sem Valsstelpurnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á sunnudaginn eftir 3-0 sigur á Fram. Einnig fórum við yfir undanúrslitaleikina karlamegin sem fóru fram í gærkvöldi. Í lokin tókum við stutt spjall við Ásbjörn um tímabilið hjá FH. Þátturinn er í boði BK...

Handkastið - Ránfuglinn sýnir klærnar, slúðurmolar og RúnarsKáraHornið 25.04.2019

Í þættinum fórum við yfir úrslitaeinvígið í kvennaboltanum, oddaleik Hauka og Stjörnunnar auk þess sem við töluðum um undanúrslitaeinvígin karla megin sem hefst á þriðjudaginn í næstu viku. Við fórum síðan yfir nokkra slúðurmola og í lokin buðum við upp á RúnarsKáraHornið. Þátturinn er að vanda í boði BK Kjúklings.

Handkastið - Páskakraftaverk og Bikarmeistararnir farnir í sumarfrí 22.04.2019

Í þættinum fórum við yfir fyrstu tvær umferðirnar í 8-liða úrslitunum í Olís-deild karla. Hituðum upp fyrir úrslitaeinvígið kvennamegin og ræddum umspilið í Grillinu bæði hjá strákunum og stelpunum. Í lok þáttar völdum við síðan Coolbet leikmann vikunnar. Þátturinn er að vanda í boði BK Kjúklings.

Handkastið - Landsliðsumræða, sameiginlegt úrvalslið karla og kvenna og hitað upp fyrir playoffs 18.04.2019

Fyrrum stjórnendur Fríkastsins, þeir Ingvar Örn Ákason og Baldvin Fróði Hauksson, voru mættir í New Balance stúdíóið ásamt Ponzunni. Rætt var um landsliðið og leikina gegn Norður-Makdóníu. Hitað upp fyrir úrslitakeppnina karla- og kvennamegin og rýnt í umspilið um sæti í Olísdeildunum. Í lok þáttar völdum við sameiginlegt úrvalslið Olísdeildar karla og kvenna. Þátturinn er í boði BK-kjúklings

Handkastið - Dr. Gaupi fer yfir Olís-deild karla 08.04.2019

Það þarf ekkert að lýsa þessu eitthvað mikið meira. Einfaldlega njótið. Þátturinn sem hlustendur Handkastsins hafa beðið eftir í allan vetur! Þátturinn er í boði BK Kjúklings og í samstarfi við Áttan Miðlar.

Handkastið - Saturday night edition! 06.04.2019

Handkastið sefur aldrei! Í þessum laugardagsþætti fóru Ponzan, Sérfræðingurinn og Keli the Cat yfir lokaumferðina í Olísdeild karla og fyrstu leikina í úrslitakeppninni kvennamegin. Einnig var spáð í spilin fyrir umspilið í Grillinu karla- og kvennamegin.

Handkastið - Ekki lengur lítill fugl og Fram áfram í bullandi fallbaráttu 03.04.2019

Næst síðasta umferðin í Olís-deild karla fór fram í kvöld og var umferðin gerð upp í þessum þætti Handkastsins. Gestur þáttarins er Styrmir Sigurðsson, fyrrum markvörður Stjörnunnar á gullaldar tímabili félagsins. Nokkrum slúðurmolum var hent út í kosmósinn og staðan bæði í fallbaráttunni og undanúrslitin hjá stelpunum skoðuð. Handkastið er í boði BK Kjúklings.

Handkastið - Titlaóður Gústi Jó, strákarnir hans Geirs á lífi og Gróttan fallin 31.03.2019

Ponzan og Sérfræðingurinn fóru yfir þriðju síðustu umferðina í Olís-deild karla, þar sem línur eru farnar að skýrast en þó talsverð spenna á flestum stöðum töflunnar. Farið var yfir stöðuna í Olís-deild kvenna, þar sem Ágúst Þór Jóhannsson bætti við enn einni dollunni í safnið. Farið yfir Coolbet-stuðlana fyrir næstu umferð Olís-deildar karla & kvenna og spáð í framhaldið.

Handkastið - Staða handboltans á Íslandi og nýjasti landsliðshópurinn 28.03.2019

Þeir Arnar S. Gunnarsson og Ásgeir Gunnarsson eru gestir Handkastsins í þessum þætti. Aðalumræðan í þættinum er staða handboltans á Íslandi. Í þættinum ræddum við einnig val GummaGumm. á íslenska landsliðshópnum fyrir leikina gegn Norður-Makedóníu. Í lok þáttar fórum við yfir stuðlana fyrir næstu umferð í Olís-deild karla og kvenna.

Handkastið - Næstum því liðin töpuðu bæði, Haukar í bílstjórasætinu og slúðursprengja frá Akureyri 24.03.2019

19. umferðin í Olís-deild karla hófst í dag með fimm leikjum og henni lýkur á morgun með leik Vals og Akureyrar. Gestur Handkastsins í þættinum er Árni Stefán Guðjónsson. Guðlaugur Arnarsson þjálfari Vals er í símaviðtali í upphafi þáttar. Haukar eru komnir með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir og línur eru að skýrast í botnbaráttunni. Í lok þáttar völdum vi...

Handkastið - Er krísa hjá Val? Styttist í titil hjá Selfyssingum og hvaða lið fellur með Gróttu? 18.03.2019

18. umferðin í Olís-deild karla var gerð upp í þættinum að þessu sinni. Við fengum lögfræðinginn Jóhann Skúla Jónsson í þáttinn og fengum við hann til að greina umferðina í þaula. Aðeins fjórar umferðir eru eftir af deildinni og því eru línurnar að fara skýrast. Hvaða lið verður Deildarmeistari? Hvaða lið falla? Hvað er að gerast á Hlíðarenda? Eyjamenn á fljúgandi siglingu og fyrsti sigur Geirs Sv...

Handkastið - Final4 uppgjör og dómara-fíaskó 10.03.2019

Í Handkastinu að þessu sinni fórum við yfir Final4 sem fór fram um helgina. Þar voru FH og Valur sem stóðu uppi sem sigurvegarar í karla og kvennaflokki. Það var ekki hægt að ræða um Final4 án þess að ræða dómarabíó-ið sem var á föstudagskvöldið. Gestur þáttarins nýráðinn þjálfari Hauka í Olís-deild kvenna, Árni Stefán Guðjónsson. Í lok umferðar fórum við yfir stuðlabergið í næstu umferð í Olís-de...

Handkastið - Raggi Njáls í spjalli og Final4 umræða 05.03.2019

Í þessum þætti var farið yfir Final4 helgina sem framundan er. Undanúrslitin í CocaCola bikar karla og kvenna fara fram á fimmtudag og föstudag og úrslitaleikirnir á laugardaginn. Gestir þáttarins voru þeir Tómas Þór Þórðarson þáttastjórnandi Seinni Bylgjunnar og Ragnar Snær Njálsson nýjasti leikmaður Stjörnunnar í Olís-deild karla. Handkastið er í boði Coolbet og BK Kjúklings og í samstarfi við Á...

Слухайте подкаст Handkastið у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали