Kop.is
Gullkastið
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: www.kop.is
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Gullkastið - Barátta við Chelsea innan sem utan vallar 10.08.2023 1:33:20
Nýtt tímabil hefst á sunnudaginn og það er erfitt að fylgja eftir fréttum af leikmannamarkaðnum í þessari viku svo margar og misvísandi eru þær. Leikurinn við Chelsea virðist a.m.k. löngu byrjaður þar stríðið á leikmannamarkaðnum virðist hvað helst vera gegn þeim. Ekkert annað í stöðunni en að hjóla í Hellinn og hita upp fyrir nýju tímabili og fara yfir helstu fréttir. Stjórnandi: Einar Matthías...
Gullkastið – Nýja leikmenn strax! 02.08.2023 1:28:59
Það hafa verið viðræður undanfarna daga við Southampton varðandi kaup á Romeo Lavia auk þess sem André leikmaður Fluminense var orðaður við Liverpool í þessari viku. Liverpool þyrfti helst að klára báða í þessari viku. Henderson og Fabinho eru formlega og staðfest farnir og flest hinna liðanna ættu að eiga eftir að gera slatta á leikmannamarkaðnum í sumar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur:...
Gullkastið – Henderson og Fabinho 18.07.2023 1:07:51
Innkoma Saudi Araba í knattspyrnuheiminn tók skarpa beyju til Liverpool í síðustu viku og virðist ætla setja áform Liverpool á leikmannamarkaðnum í annan farveg en leit út fyrir í fyrstu. Fyrirliðinn og Fabinho jafnvel fara jafnvel báðir í þessari viku og svo komu fréttir í dag af dónaboði í Luis Diaz líka, hvaða helvítis bara? Augljóst hvað var á dagskrá í Gullkastinu í dag auk þess sem æfingatím...
Gullkastið - Dóri Sly 03.07.2023 59:55
Miðjan hjá Liverpool er töluvert sterkari á pappír með Szoboszlai til viðbótar við Mac Allister og kaupin á Ungverjandum eru klárlega aðeins hærra level en við vorum kannski að gera okkur vonir um fyrir nokkrum vikum. Spennandi vikur og nokkuð jákvæður andi yfir Liverpool og miðað við slúðrið er ekkert búið að loka veskinu ennþá. Eins erum við að kynna næstu Kop.is ferð með Verdi Travel sem verður...
Gullkastið – Kop.is hópferðir 2023/24 20.06.2023 59:11
Leikjalisti fyrir nýtt tímabil er komin út og af því tilefni er ekki úr vegi að tilkynna nýtt samstarf Kop.is og Verdi Travel um hópferðir á næsta tímabili. Tókum púlsinn á leikmannaslúðri tengdu okkar liði og fréttum af fáránlega miklum auknum umsvifum Saudi Araba í enska boltanum og bara heimsfótboltanum almennt. Spáðum í framtíð Trent og hver sé líklegasti arftaki Salah í markaskorun af hinum...
Gullkastið – Alexis Mac Allister 05.06.2023 1:05:51
Setjum fókusinn strax á tímabilið 2023/24 því að miðað við fréttir dagsins í dag virðast forráðamenn Liverpool ekki ætla að sitja aðgerðarlausir hjá á leikmannamarkaðnum í sumar líkt og stundum áður. Alexis Mac Allister er aðalatriðið í vikunni enda sagður vera á leið í læknisskoðun en slúðrið stoppar síður en svo á honum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda...
Gullkastið – Loksins búið 30.05.2023 1:09:52
Þessu langa og kolbölvaða tímabili lauk loksins um helgina með ekta lokaleik og 4-4 jafntefli milli tveggja liða sem höfðu augljóslega að engu að keppa. Smá uppgjör á tímabillinu og skoðum hvaða breytingar eru að verða á deildinni næsta vetur og hvað Liverpool er líklegt til að gera á leikmannamarkaðnum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þá...
Gullkastið – Lykilmenn kvaddir á Anfield 22.05.2023 1:23:16
Draumur um Meistaradeild dó líklega endanlega á Anfield um helgina, Bobby, Milner, Ox og Keita voru kvaddir með virktum og ljóst að löngu tímabili er nánast lokið þó enn sé einn leikur eftir. Silly Season er komið á fullan snúning og útlit fyrir að Liverpool láti til sín taka fljótlega eftir að flautað verður mótið af. Titilbaráttunni er einnig lokið og ljóst að þetta tímabil var nánast samfelld v...
Gullkastið – Scouse sigur á Leicester 16.05.2023 1:14:53
Scouse bræðurnir sáu saman um Leicester með aðstoð Mo Salah og viðheldur Liverpool fyrir vikið áfram pressu á Newcastle og Man Utd í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Meira getum við ekki farið fram á eftir þennan langa vetur. Titilbaráttan er hinsvegar búin og línur aðeins farnar að skýrast í æsispennandi fallbaráttu. Næst er það síðasti heimaleikur tímabilsins og kveðjustund tveggja goðsagna hj...
Gullkastið - Velkomin (fals)von 08.05.2023 1:17:00
Eurovision vika í borginni og Liverpool heldur áfram að hlaða niður þremur stigum í erfiðum leikjum, síðast gegn ógeðslega leiðinlegu Brentford liði. Okkar menn því sannarlega farnir að anda ofan í hálsmálið á liðunum fyrir ofan. Dugar það til í lok mánaðar? Skoðum aðeins félagsskiptamarkaðinn og hvar hin liðin eru líkleg til að þurfa styrkja sig og hvar samkeppnin verður mest við okkar menn um ný...
Gullkastið – Give me five 04.05.2023 1:21:41
Fimm sigurleikir í röð og þar af fjórir sigrar með eins marks forystu. Batamerki á Liverpool liðinu og enn smá líflína fyrir Meistaradeildarsæti. Stutt í leikmannagluggann og línur farnar að skýrast smá í deildinni, eða hvað? Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan...
Gullkastið – Endaspretturinn 20.04.2023 47:34
Liverpool rústaði Leeds um síðustu helgi og vann þar með loksins útileik. Nýtt leikkerfi er að taka á sig mynd með Trent Alexander-Arnold í aðalhlutverki og það er ekki til sá miðjumaður í Evrópu sem hefur ekki verið orðaður við Liverpool. Feliz Bergsson mætti með okkur á nýjan og endurbættan Sólon í Miðbænum og fór yfir allt það helsta í þessari viku. Hann er auðvitað á leiðinni til Liverpool í n...
Gullkastið – Vika vonbrigða 12.04.2023 1:13:45
Staða Liverpool er þannig í deildinni að jafntefli dugar ekki til og skiptir engu hvort spilað sé gegn Chelsea eða toppliði Arsenal. Frammistaðan var vissulega mun betri síðasta klukkutímann í þessum leikjum en afhroðið sem okkur var boðið fyrstu tvo tímana sem er kannski tímabilið í hnotskurn. Já og auðvitað var vonin sem fylgdi fréttum af tilboði Liverpool í Jude Bellingham drepin strax með frét...
Gullkastið – Hvað varð um hugarfarsskímslin? 03.04.2023 1:20:00
Fullkomlega afleitur seinni hálfleikur gegn Man City og ljóst að Liverpool er komið ó nokkuð slæma krísu innanvallar og hugarfar leikmanna bara hreint ekki gott. Framundan eru stjóralausir Chelseamenn í enn meiri krísu. Slæm vika fyrir breska þjálfara og núna er búið að reka 13 stjóra á tímabilinu, apríl rétt að byrja! Arsenal bíður svo um helgina, guð blessi okkar menn í þeim leik með álíka spila...
Gullkastið – Endaspretturinn að hefjast 29.03.2023 1:02:22
Landsleikjapásu líkur með látum í hádeginu á laugardaginn er Liverpool mætir í enn einn hádegisleikinn á útivelli gegn Man City. Seinna í vikunnu er það Chelsea einnig á útivelli og svo bíður Arsenal um helgina. Þetta er vika sem gæti haft töluverð áhrif niðurstöðu tímabilsins, bæði í baráttunni um Meistaradeildarsæti og eins titilbaráttunni. Annars hafa verið töluverðar og skrítnar hræringar á þj...
Gullkastið - 7up 06.03.2023 1:15:16
Af öllum Liverpool liðumm sögunnar vann þetta lið stærsta sigur sögunnar gegn þeim! Ekki bara var þetta Man Utd heldur var þetta Man Utd á bullandi siglingu með tilheyrandi moldviðri í allan vetur. Stærsta tap United í Úrvalsdeildinni og raunar frá því vel fyrir heimsstyrjöldina kom á Anfield Road í gær. Þetta tímabil hættir ekki að vera skrítið og fullt af öfgum í báða enda. Þetta er ekki einu si...
Gullkastið - Ekkert viðbragð 28.02.2023 1:08:48
Tímabil frá helvíti heldur áfram og nú tókst ekki að granda Crystal Palace, aftur á þessu tímabili. Veltum fyrir okkur var líklegustu breytingarnar eru a leikmannahópnum í sumar og möguleg leikmannakaup í staðin. Næst á dagskrá er svo Wolves í fjórða skiptið og svo Man Utd um helgina! Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur...
Gullkastið – Sprengidagur á Anfield 22.02.2023 1:10:03
Þetta bara gat ekki farið neitt mikið verr eftir að hafa byrjað svo vel. Gjörsamlega óþolandi kvöld á Anfield sem var eins og brot af því versta frá öllu tímabilinu hjá Liverpool. Liðið sýndi hinsvegar lífsmark um helgina í Newcastle og næsti leikur er orðin gríðarlega mikilvægur. Þetta og fleira í þéttum pakka vikunnar Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda sam...
Gullkastið – Loksins lífsmark á Anfield 15.02.2023 1:06:07
Liverpool sýndi ágætis lífsmark á Anfield um helgina sem gefur vonandi góð fyrirheit fyrir risastóra viku sem er framundan. Hörkubarátta á báðum enda töflunnar og Meistaradeildarbarátta Liverpool er kannski ekki alveg steindauð? Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðj...
Gullkastið – Það er enginn botn! 08.02.2023 1:06:07
Ofsalega vont tap gegn Úlfunum og gengur gjörsamlega ekki neitt. Everton/Stoke/Bolton/Burnley eftir helgi! Enska Úrvalsdeildin kærir Man City fyrir að hafa svindlað á reglum deildarinnar í 14 ár (döh) og við spáum lítillega í slúðri um næsta yfirmann knattspyrnumála. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda...
Gullkastið – Tímabil frá helvíti 31.01.2023 1:17:30
Þetta tímabil er mjög hratt að verða einhver mestu vonbrigði seinni tíma og ljóst að framtíð félagsins er skyndilega bara alls ekki eins björt og hún var fyrir ekki svo löngu síðan. Enn einn tapleikurinn og hörmungar frammistaðan um helgina og einum bikar færra í boði fyrir vikið. Leikmannaglugganum lokaði í dag og einhvernvegin tókst Liverpool að verða ennþá veikara, einu fréttir dagsins voru þær...
Gullkastið – Janúar! 24.01.2023 1:12:15
Það er ekki nýtt að Liverpool gangi illa í janúar og það breytist lítið í síðustu viku. Sigurleikur þó í auka leiknum gegn Wolves í 64-liða úrslitum FA Cup og steindautt 0-0 jafntefli í pirrandi leik á Anfield gegn glænýju liði Chelsea. Það fer eftir því hvort glasið er hálf fullt eða hálf tómt hvort það hafi verið batamerki greinanleg á leik liðsins. Skoðum það helsta út deildinni almennt og næst...
Gullkastið – Ömurleg íþróttahelgi 16.01.2023 1:11:57
Það gengur gjörsamlega ekkert hjá Liverpool þessa dagana og félagið komið í töluverða krísu sem ekki er gott að sjá fyrir endan á. Úrslit helgarinnar almennt voru ekki til að bæta ástandið sama hvaða íþrótt verið er að tala um. Hentum okkur í vangaveltur um þjálfarateymið, liðið almennt, ensku deildina og vendingar þar og fréttir helgarinnar af eigendamálum Liverpool. Umsjón Einar Matthías og Magg...
Gullkastið – Vesen í Bítlaborginni 09.01.2023 1:03:42
Það gengur hvorki né rekur hjá okkar mönnum að finna taktinn og leikur liðsins hvorki fugl né fiskur um helgina frekar en undanfarið. Ljóst að finna þarf lausnir, augljóslega á leikmannamarkaðnum en eins bara innan hópsins sem fyrir er. Hin liðin virðast alls ekki ætla að slá slöku við frekar en síðasta sumar og ljóst að samkeppnin er ekkert að minnka í enska boltanum. Stjórnandi: Einar Matthías...
Gullkastið – Endurvekja þungarokkið takk! 04.01.2023 1:16:54
Það er fullkomlega búið að skrúfa niður í þungarokksfótboltanum sem Liverpool spilaði undir stjórn Klopp og breytingar á leikmannahópi liðsins undanfarin ár eru bara ekki nógu sterkar, oftar en ekki bókstaflega. FSG hefur líklega aldrei verið undir meiri pressu en einmitt í þessum glugga enda þörf á alvöru styrkingu á miðsvæðinu fullkomlega æpandi. Eftir skipsbrotið gegn Brentford var ekki annað h...
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали