uk

Kop.is

Gullkastið

Sports IS ↓ Епізодів: 410

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: www.kop.is

Автор

Kop.is

Категорія

Sports

Сайт подкасту

www.kop.is

Останній епізод

30 вер 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android майже 10 млн завантажень · рейтинг 4,8 iOS незабаром

Епізоди

Gullkastið – Byrjunin á endanum 29.01.2024

Við erum mjög langt í frá búnir að jafna okkur á Svarta Föstudeginum en neyðumst nú til að velta hinu óhugsandi fyrir okkur, hver tekur við af Klopp næsta sumar? Ekki bara Klopp heldur öllum hans helstu samstarfsmönnum líka? Liðið hélt annars áfram að malla vel í vikunni og fór áfram í báðum bikarkeppnum, nú er bara Wembley eftir í Deildarbikarnum og í FA Cup fáum við Southampton næst og þar með t...

Gullkastið – Klopp hættir eftir tímabilið 26.01.2024

Þessi föstudagur gat ekki byrjað mikið verr, Juregn Klopp tilkynnti í morgun að þetta tímabil verði hans síðasta sem stjóri Liverpool og ekki nóg með það þá hætta einnig allir hans nánustu samstarfsmenn í þjálfarateyminu. Reyndum að ná utan um þetta í neyðar Gullkasti og spá aðeins í hvert framhaldið verður. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi, Einar Örn og Sveinn Waage Þökkum að vanda...

Gullkastið – Liverpool á flugi 22.01.2024

Frábær sigur á útivelli hjá afar ungu Liverpool liði og toppsætið ennþá okkar. Fórum yfir það helsta í þessari viku og hituðum upp fyrir bikarvikuna sem er framundan Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull  /  Húsasmiðjan  /  Verdi Travel  /  Jói Útherji  /  Ögurverk ehf  /  Done

Gullkastið – Seinni hálfleikur tímabilsins 17.01.2024

Liverpool liðið er komið aftur til æfinga og næsti leikur á dagskrá er úti gegn Bournemouth í deildinni áður en okkar menn fara aftur í tvo bikarleiki. Skoðum stöðuna í deildinni og möguleika okkar manna í seinni hlutanum. Athugðum hvort það sé einhver merkjanlegur púls á leikmannamarkaðnum o.fl. Það var svo komið að stjóranum í Ögurverk lið aldarinnar Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSt...

Gullkastið – Skytturnar skotnar niður 09.01.2024

Frábær sigur á Emirates og Liverpool fer því áfram í bikarnum, næstu leikur í þeirri keppni er í lok mánaðar. Undanúrslit í deildarbikarnum eru næst á dagskrá og svo smá vetrarfrí. Enn heldur meiðslalistinn áfram að lengjast en vonandi sjáum við aðeins til sólar frá og með næsta mánuði. Fram að því er leikmannaglugginn opinn og a.m.k. hægt að bregðast eitthvað við. Það var svo auðvitað klárað að f...

Gullkastið – Flugeldasýning á Anfield 02.01.2024

Liverpool bauð upp á flugeldasýningu á nýársdag í einhverri mestu einstefnu sem sést hefur skv. útreikningum á marktækifærum (xG) síðan þær mælingar hófust. Fjögur mörk var niðurstaðan og Liverpool hefði vel getað skorað tíu mörk til viðbótar. Livrpool er fyrir vikið eitt á toppnum þegar tímabilið er rúmlega hálfnað og haldi liðið áfram að spila svona þarf töluvert til að taka það af okkar mönnum...

Gullkastið – Gleðilegt ár 28.12.2023

Síðasti þáttur ársins og af því tilefni spáðum við aðeins í leikmannamarkaðinn framundan í janúar. Hlóðum í stutt uppgjör á árinu 2023 þar sem helst stendur uppúr að Liverpool varn Man Utd 7-0 á Anfield. Þrír nokkuð ólíkir leikir í jólatörninni og alvöru slagur framundan strax eftir jól. Það kom svo vinstri vængframherji/sóknarmaður í Ögurverk lið aldarinnar Þökkum öllum hlustendum og lesendum fyr...

Gullkastið – Lykilmenn í lægð 19.12.2023

Hrikalega svekkjandi markalaust jafntefli á Anfield um helgina og ósannfærandi frammistaða hjá okkar mönnum. Of margir lykilmenn ekki alveg að finna fjölina undanfarnar vikur en þurfa heldur betur að leita betur fyrir stórleikinn um næstu helgi. Toppsætið um jólin í boði í þeim leik. Það er svo ljóst hvaða lið verða með Liverpool í Evrópudeildinni eftir áramót þó Liverpool verði reyndar ekki með í...

Gullkastið – Libpool, Libpool top of the league 11.12.2023

Tilvitnun Bill Shankly á ansi vel við eftir þessa viku " Ay, here we are with problems at the top of the league " Tveir frekar ósannfærandi útisigrar, sex stig og einhvernvegin er Liverpool komið á toppinn í deildinni. Tökum því heldur betur fagnandi. Tvær umferðir og mikið leikjaálag hjá toppliðunum á Englandi og áhugaverð úrslit, deildin er töluvert jafnari á þessu tímabili. Bættum svo miðjumann...

Gullkastið – Markaveisla á Anfield 04.12.2023

Liverpool þurfti fjögur mörk á Anfield til að rétt svo merja sigur gegn Fulham sem er alltaf jafn óþægilegur andstæðingur fyrir Liverpool. LASK var ekki eins mikið vandamál í miðri viku og farseðillinn í 16-liða úrslit í Evrópudeildinni þar með staðfestur. City, Villa og Tottenham töpuðu öll stigum í toppbaráttunni og helgin því heilt yfir jákvæð fyrir okkar menn. Næst á dagskrá eru tveir útileiki...

Gullkastið – Gott jafntefli! 27.11.2023

Það er ákaflega sjaldan sem stuðningsmenn Liverpool eru sáttir við jafntefli en ætli við getum ekki tekið þessu um helgina. Liverpool er fyrir vikið enn vel á lífi í annars mjög jafnri deild sem hefur farið ágætlega af stað. Framundan er ekkert asnalegt HM í eyðimörk heldur rosalegur mánuður þar sem Liverpool spilar 10 leiki frá 30.nóv til 1.janúar. Spennið beltin. Hinn miðvörðurinn er næstur á da...

Gullkastið – Etihad framundan 21.11.2023

Liverpool er í öðru sæti stigi á eftir Man City og þeir eru næstir á dagskrá, klárlega stærsti leikur tímabilsins það sem af er og að sjálfsögðu eru hann settur á þennan fullkomlega ömurlega rástíma í hádeginu eftir landsleikjahlé. Miðverðir eru næstir á dagskrá í Ögurverk liði aldarinnar. Tókum svo púlsinn á því sem helst er að frétta í þessu síðasta landsleikjahléi ársins. 10 stig tekin af Evert...

Gullkastið – Stemming á Anfield 14.11.2023

Ljómandi góð Kop.is ferð á Anfield að sjá flottan 3-0 sigur á Brentford aðalatriði vikunnar og hvaða úrslit helgarinnar gera fyrir Liverpool í deildinni, liðið er einu stigi frá toppliði Man City sem bíða í næsta leik. Landsleikjapása annars framundan Gullkastið heldur svo áfram að velja lið  Ögurverk lið aldarinnar  og núna voru það hægri bakverðir. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SStei...

Gullkastið – Vintage Liverpool 06.11.2023

Þéttingsfast kjaftshögg í Luton um helgina eftir góðan stíganda í Liverpool 2.0. Vorum svo sannarlega að vona að Liverpool væri núna vaxtið upp úr svona afleitum jafnteflum en svo er greinilega ekki. Deildarbikarsigur í miðri viku var öllu meira hressandi. Nóg drama annars eftir helgina og þá sérstaklega eftir leikinn norður Englandi, yfirlýsingar og hvaðeina. Frammundan er svipað prógramm, Toulou...

Gullkastið - Skyldusigur í öðrum gír 30.10.2023

Fréttir frá Kólumbíu settu mjög svartan blett á annars jákvæða viku innanvallar hjá Liverpool. Góður karakter hjá liðinu eftir hræðilegrar fréttir frá Kólumbíu að vinna Nottingham Forest svo til án þess að fara úr öðrum gír og auðvitað var sigurinn tileinkaður Luis Diaz. Toulouse mætti á Anfield í síðustu viku og fór Liverpool langt með að klára riðilinn í Evrópudeildinni með mjög góðum 5-1 sigri....

Gullkastið – Liverpool borg Er Auðvitað Rauð! 24.10.2023

Everton bætti met W.B.A yfir fæstar heppnaðar sendingar í deildarleik í Úrvalsdeildinni þegar þeir mættu með sína tveggja hæða rútu á Anfield án árangurs. Borgin er og verður alltaf rauð. Er Liverpool í toppbaráttu/titilbaráttu? Tókum stöðuna á deildinni almennt og vottuðum bæði Bill Kenwright (Mr. Everton) og Bobby Charlton (Mr. Manchester United) virðingu en báðir féllu frá í vikunni. Tveir leik...

Gullkastið – Merseyside Derby um helgina 17.10.2023

Liverpool fór inn í landsleikjahlé í töluverðum mótvind eftir aðeins eitt stig af sex mögulegum og einhverja verstu einhliða dómgæslu í sögu deildarinnar. Þrátt fyrir það er liðið aðeins þremur stigum frá toppnum og einu frá Man City sem er hinn raunverulegri toppur og staðan því alls ekkert galin þrátt fyrir allt. Tókum stöðuna á toppi deildarinnar, hvernig helstu keppinautar Liverpool í vetur ha...

Gullkastið – Rán!!! 02.10.2023

Tottenham þurfti tvö rauð spjöld, sjálfmark og líklega verstu dómara"mistök" VARsögunnar til að merja sigur á heimavelli gegn frábæru liði Liverpool. Óbragðið er vægast sagt ekki farið eftir þetta ljóta rán og félagið réttilega að krefjast svara og vitiborinna aðgerða. Helgin gerð upp frá Spáni að þessu sinni. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttar...

Gullkastið - Góður taktur 25.09.2023

Ef að það væri bara spilað seinni hálfleikinn væri þetta Liverpool lið á góðri leið með að verða besta lið sögunnar. Tveir góðir 3-1 sigrar í vikunni og ágætis úrslit annarsstaðar. Deildarbikarinn fer af stað í þessari viku er Leicester kemur í heimsókn og um helgina er það erfitt verkefni í London. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarin...

Gullkastið – Jekyll & Hyde 18.09.2023

Enn ein endurkoman og á endanum góður sigur í hádegisleik eftir landsleikjahlé þar sem Liverpool spilaði alla hittarana í fyrri hálfleik. Ágætis helgi heilt yfir í enska boltanum frá okkar sjónarhóli. Þetta er svo allt að fara í venjulega rútínu í þessari viku þegar við hefjum tvo leiki á viku kafla fram að næsta landsleikjahléi. Austurríki á fimmtudaginn og West Ham mætir svo á Anfield um helgina...

Gullkastið – Hverjir unnu leikmannagluggann? 11.09.2023

Spáðum í byrjun tímabilsins í samanburði við væntingar, hvaða lið "vann" leikmannagluggann, framtíð Salah og Wolves leiknum um helgina. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull  /  Húsasmiðjan  /  Verdi Travel  /  Jói Útherji  /  Ögurverk ehf

Gullkastið – Gluggalok og góður sigur 04.09.2023

Gamlir Gegenpressing taktar á Anfield gegn Aston Villa og spennandi holning að komast á liðið. Glugganum lokaði með Gravenberch og (ennþá) engri sölu á Salah. Áhugaverðar breytingar hjá toppliðunum í sumar og fyrstu línur farnar að skýrast núna þegar fyrsta landsleikjahlé tímabilsins er skollið á. Góð vika fyrir Liverpool. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn Kop.is Hópferð með Verdi...

Gullkastið - Sturluð innkoma Nunez 28.08.2023

Darwin Nunez stimplaði sig inn með látum og afgreiddi Newcastle eftir hroðalega pirrandi leik. Vonandi túrbóskotið sem Liverpool þarf fyrir þessu tímabili og byrjunin fyrir alvöru á hans ferli hjá Liverpool. Aftur kemur Liverpool til baka og vinnur og aftur þarf liðið að spila manni færri stóran hluta leiksins eftir soft rautt spjald. Alvöru karakter í þessu liði greinilega. Þetta er svo síðasta v...

Gullkastið – Lokmetrar leikmannagluggans 22.08.2023

Ágætur endurkomusigur á Anfield til að klára Bournemouth og fyrsta sigur tímabilsins staðreynd. Nýr leikmaður keyptur í síðustu viku en ljóst að það þarf að kaupa annan í þessari viku. Glugganum lokar eftir rúmlega viku. Newcastle bíður svo í næstu viku! Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi Kop.is Hópferð með Verdi Travel á Anfield 10. – 13. nóvember á Liverpool – Brentford Nánar um fer...

Gullkastið – Vika vonbrigða 16.08.2023

Það er ekki hægt að segja að hlutirnir hafi verið að falla með Liverpool í þessari viku, hvorki innan né utan vallar. Tímabilið byrjaði á Stamford Bridge og endaði með enn einu jafnteflinu gegn Chelsea. Þeir keyptu bara bæði Caicedo og Lavia, búnir að eyða meira en La Liga á Spáni samanlagt frá því í fyrrasumar. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Kop.is Hópferð með Verdi Tr...

Слухайте подкаст Gullkastið у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали