uk

Kop.is

Gullkastið

Sports IS ↓ Епізодів: 398

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Автор

Kop.is

Категорія

Sports

Сайт подкасту

www.kop.is

Останній епізод

29 чер 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android майже 10 млн завантажень · рейтинг 4,8 iOS незабаром

Епізоди

Gullkastið - Loksins sigur 01.03.2021

Loksins loksins sigur í deildarleik þrátt fyrir ennfrekari brottföll í leikmannahópnum, framundan er eru svo tveir ólíkir leikir við höfuðborgarliðin og nágrannana í Chelsea og Fulham. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið - Þegar sýður uppúr þá þrífur maður eldavélina 15.02.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Það blæs verulega á móti hjá okkar mönnum og alls kyns furðusögur verið á lofti um helgina eftir slæmt tap gegn Leicester í leik sem var reyndar að svona 75% leiti vel spilaður af okkar mönnum. Leipzig í Meistaradeildinni annað kvöld, Everton um helgina og meiðslalistinn svo langur að Ingó Tóta er að semja lag um hann.

Gullkastið - Það er alltaf næsta tímabil 08.02.2021

Veik von um alvöru titilbaráttu dó í síðstu viku og ljóst að Liverpool er í bullandi erfiðri baráttu um Meistaradeildarsæti ef gengi liðsins fer ekki að breytast til batnaðar. Afar erfið vika á dagskrá að þessu sinni. Framundan eru svo þrír stórir leikir.

Gullkastið – Leikmannaglugginn og leikir í London 01.02.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Ensku meistararnir skelltu sér tvisvar til London í þessari viku og náðu í sex risastór stig. Þetta var allt annað að sjá en þessa 2010 útgáfu af Liverpool sem við fengum megnið af janúar. Auk þess var síðasti dagur leikmannagluggans í dag og Liverpool lét til sín taka með panic kaupum á tveimur miðvörðum, ekki veitir af. Brigton sem vann...

Gullkastið – Déjà vu 25.01.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Það er eins og við séum stanslaust að horfa á sama leikinn þessa dagana, tveir vondir tapleikir í þessari viku og áframhald á ömurlegu gengi. Aðalvandamálið blasir við en eigendur félagsins eru ekki aðeins farnir að fara í taugarnar á stuðningsmönnum liðsins heldur stjóranum líka sem er meira áhyggjuefni. Frank var sparkað hjá Chelsea og f...

Gullkastið - Þurr janúar 18.01.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Liverpool er í smá krísu, vond töpuð stig á Anfield gegn Man Utd liði sem mætti fyrst og fremst til að halda stiginu. Næstu leikir eru gegn Dyche, Mourinho og Moyes þannig að það er hætta á sömu sýningu áfram ef Liverpool nær ekki að breyta um takt sóknarlega.

Gullkastið – United í deild og bikar 11.01.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Börnin hjá Aston Villa stóðu sig vel en þar sem það dugði ekki til er Liverpool á leiðinni á Old Trafford í næstu umferð bikarsins. Fyrst er reyndar deildarleikur á Anfield við sama lið.

Gullkastið 2020 > 2021 05.01.2021

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi  Tap gegn Southampton ofan á tvö afleit jafntefli fyrir áramót. Liverpool er á barmi þess að vera í sinni fyrstu krísu í nokkuð langan tíma. Það er rosalegt prógramm framundan næstu mánuði og spurning hvort hópurinn verði eitthvað styrktur fyrir þau átök. Fórum yfir vonda byrjun á nýju ári.

Gullkastið - 2020 28.12.2020

Svekkjandi jafnteflistap gegn Allardyce fótbolta kom ekki í veg fyrir að við gerðum árið upp í lokaþætti fyrir áramót. 2020 var þrátt fyrir allt árið okkar, loksins loksins. Spáið í hversu ömurlegt ár þetta var fyrir þá sem halda alls ekki með Liverpool? Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið - Rauð Jól 22.12.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þriðja árið í röð er Liverpool á toppnum yfir hátíðarnar, Bobby Firmino kláraði Jose og félaga í toppslagnum og Roy Hodgson og hans menn áttu sannarlega ekki sjö dagana sæla. Það verður áfram rútubílafótbolti næst því Big Sam er mættur aftur og mætur á Anfield með sína menn í WBA.

Gullkastið – Gérard Houllier 15.12.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Gérard Houllier féll frá í gærkvöldi og var þess mikla fagmanns minnst, Nagelsmann og hanns menn í RB Leipzig bíða í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, vikan var erfið í deild og Meistaradeild og næsta vika virkar voðalega þung vegna leikjaálags og meiðslalista.

Gullkastið - Dansað við Úlfa 07.12.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Ajax var skúrað af Anfield í miðri viku og Úlfarnir étnir í gær. Áhorfendur loksins aftur á Anfield og liðið í fínum málum þrátt fyrir allt. Stefnir í áhugaverða og harða toppbaráttu eins og þetta er að spilast núna og næsta vika verður áhugaverð hvað liðsval Klopp varðar.

Gullkastið – Bullandi mótvindur 30.11.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Það er ekki margt sem dettur með Liverpool þessa dagana og ljóst að liðið er í smá krísu á toppi deildarinnar eins og Bill Shankly orðaði það einu sinni. Það hefur ekki fallið vafaatriði með Liverpool það sem af er tímabili og videodómgæslukerfið í heild sinni hefur undirstrikað það sem áður var haldið fram um enska dómara, þeir eru ekki n...

Gullkastið - Bakkað yfir Leicester 23.11.2020

Það var ekki að sjá á leik Liverpool að menn hefðu teljandi áhyggjur af endalaust löngum meiðslalista þegar Leicester kom á Anfield, svokölluð yfirpilun. Áhugverð úrslit í öðrum leikjum og næsta vika er mjög þétt með tveimur leikjum á dagskrá. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið – Erfitt að ná í lið 16.11.2020

Þetta tímabil stefnir í að verða eitt það versta í sögu félagsins er kemur að meiðslum lykilmanna og vondufréttirnar héldu heldur betur áfram að koma í þessari viku. Ef menn eru ekki meiddir eru þeir veikir af Covid. Það er stórleikur um næstu helgi gegn toppliði deildarinnar og gríðarlegt leikjaálag fram að áramótum. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið - Góður punktur 09.11.2020

Liverpool skellti sér á toppinn um helgina með góðum endurkomusigri á West Ham, annar sigurinn í Meistaradeildinni og næsti leikur er annaðkvöld í Bergamo. Fórum einnig yfir það helsta úr umferð vikunnar á Englandi. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið - Liverpool á toppnum 02.11.2020

Liverpool skellti sér á toppinn um helgina með góðum endurkomusigri á West Ham, annar sigurinn í Meistaradeildinni og næsti leikur er annaðkvöld í Bergamo. Fórum einnig yfir það helsta úr umferð vikunnar á Englandi. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið – Kirkja Alisson Becker 27.10.2020

Liverpool komst aftur á beinu brautina með tveimur baráttusigrum, VAR áfram í sviðsljósinu og svipuð vika framundan. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið – Skyggnst inn í heim umboðsmannsins 19.10.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn, Maggi og Aggi Magnús Agnar umboðsmaður Stellar Group og fyrrum samherji okkar hérna á Kop.is fór yfir hörmungar helgarinnar með okkur, bransann sem hann er í og auðvitað var spáð í spilin fyrir stórleikinn sem er framundan í Meistaradeildinni. Aggi stofnaði fyrirtæki sem hét Total Football og því vel viðeigendi gestur fyrir viðureign gegn Ajax.

Gullkastið - Kristján Finnboga í spjalli 15.10.2020

Maggi Beardsley fékk sjálfan Kristján Finnbogason í spjall fyrir nágrannaslaginn enda ljóst að markmenn beggja liða hafa verið í fókus undanfarið.

Gullkastið - NBA / Project Big Picture / Meistaradeildin / Everton 12.10.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Liverpool vann eiginlega NBA í vetur, ræddum aðeins Project Big Picture sem forráðamenn Liverpool og Man Utd er sagðir vera á bakvið og snúa að töluverðum breytingum á deildarfyrirkomulaginu á Englandi. Jurgen Klopp í fimm ár, Covid í Liverpool borg, Interlull - sóttkví og einangrun. Stórleikurinn gegn toppliði Everton. Úrvals klukkutími a...

Gullkastið – WTF 06.10.2020

Liverpool gerði hressilega í buxan sín á Villa Park. Varaliðið féll með sæmilegri sæmd úr deildarbikarnum Leikmannaglugganum lokaði Meiðsli og Covid smit lykilmanna Dregið í Meistaradeildinni Galið landsleikjahlé Þétt dagskrá og langt síðan Liverpool átti svona slæma viku.

Gullkastið - Hið raunverulega Liverpool 30.09.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Arteta og félgar fengu heldur betur að sjá hið raunverulega Liverpool á Anfield. Hrikalega flottur leikur hjá okkar mönnum sem vonandi setur tóninn fyrir tímabilið. Það er svo deildarbikarleikur næst gegn sama mótherja áður Liverpool fer á Villa Park

Suðurlandsins eina von í Arsenal upphitun 25.09.2020

Suðurlandsins eina von Arilíus Marteinsson kom í spjall um sína menn í Arsenal  Stjórnandi: Magnús Gunnlaugur Þórarinsson  Viðmælandi: Arilíus Marteinsson

Gullkastið - Tökum Willan fyrir verkið 25.09.2020

Hlóðum í upphitun fyrir helgina í Hellinum. Lincoln afgreitt með yfirflæði af jákvæðum frammistöðum, áhugaverð byrjun tímabilsins hjá helstu andstæðingum Liverpool og stórleikur gegn Arsenal framundan um helgina. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Слухайте подкаст Gullkastið у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали