Kop.is
Gullkastið
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: www.kop.is
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Gullkastið – Bring on yer Internazionale 13.12.2021 59:29
Eftir ævintýralegt klúður hjá UEFA kom Inter Milan upp úr hattinum í næstu umferð Meistaradeildarinnar. Liverpool er því aftur á leiðinni á San Siro þar sem þeir luku riðlakeppninni með fullu húsi stiga. Steven Gerrard kom svo aftur á Anfield en fékk lítið meira en lófaklappið. Næsta verk er svo ríkasta íþróttalið sögunnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið - Be Divock! 06.12.2021 1:09:17
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool fór á Goodison og bauð gleðileg jól og tók þá bókstaflega með vinstri. Divock Origi kom inná gegn Wolves með þau fyrirmæli frá Klopp að vera Divock Origi, hann gerði einmitt það. Frábær vika og framundan er ferð til Milan og endurkoma Steven Gerrard. Tvær heilar umferðir á Englandi, nóg að ræða og þrumustuð.
Gullkastið – Nágrannaslagurinn 29.11.2021 1:08:47
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Everton er verkefni vikunnar á Goodison Park og verður vonandi ekki jafn herfilega heimskulega dæmdur og fáránlega grófur og þessi leikur liðanna var á síðustu leiktíð. Sú fjandans viðureign er geymd en ekki gleymd. Úlfarnir bíða svo um helgina einnig á útivelli. Síðustu viku vann Liverpool samanlagt 10-0 og var það nokkuð vel sloppið frá...
Gullkastið - Af Molde ertu kominn, að Molde skaltu aftur verða 22.11.2021 1:10:28
Liverpool rústaði Arsenal enn eina ferðina á Anfield en það var ekki bara gleði um helgina, Man Utd sagði okkar manni á hjólinu mjög ósanngjarnt upp störfum. Meistaradeild í vikunni og þétta leikjaprógramm næstu vikur. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið – Breytingar hjá Liverpool 15.11.2021 59:55
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Sveinn Waage Michael Edwards er búinn að staðfesta það að hann ætli að hætta sem Sporting Director eftir tímabilið og Julien Ward tekur við af honum. Hvaða áhrif gæti þetta haft á félagið? Steven Gerrard er tekin við Aston Villa og mætir kokhraustur með þá á Anfield í næsta mánuði. Stórleikur gegn Arsenal um helgina en skytturnar hafa ekk...
Gullkastið - Skítur skeður 08.11.2021 1:10:31
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Tap í London en sigur í Meistaradeildarriðlinum. Svekkjandi veikleikar í leik Liverpool og verulega vond töpuð stig. Nóg að gera annarsstaðar í boltanum enda nú þegar búið að skipta um stjóra hjá fimm liðunum í úrvalsdeildinni. Er Gerrard að koma í enska boltann?
Gullkastið – Sjóðandi pirrandi jafntefli 01.11.2021 1:12:45
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool henti hreinlega frá sér tveimur stigum á Anfield um helgina en komst áfram í deildarbikarnum. Tottenham rak stjórann sinn, United gerði það ekki, City tapaði og Arsenal er að nálgast þá í töflunni. Benitez er í basli hjá Everton. Ballið heldur svo áfram í vikunni og tveir stórir leikir framundan.
Gullkastið - GIVE ME FIVE! 25.10.2021 1:11:18
Guðlaugur Þór Utanríkisráðherra var með okkur í þessari viku ásamt fyndnasta vini okkar Sveini Waage til að fara yfir þessa bráðfyndnu veislu á Old Trafford. Stemmingin hefur sjaldan verið betri. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Guðlaugur Þór og Sveinn Waage
Gullkastið – Hin Heilaga Þrenning með sýningu 18.10.2021 1:13:57
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Landsleikir og fjarvera lykilmanna hafði engin áhrif á Liverpool liðið sem var stórkostlegt gegn Watford og sluppu heimamenn nokkuð vel með 0-5 tap. Næsti leikur er úti gegn Atletico Madríd í Meistaradeildinni og á sunnudaginn er stórleikurinn gegn United á Old Trafford. Þétt dagskrá og almenn gleði.
Gullkastið - Klopp í sex ár og nýtt Olíufélag 11.10.2021 1:09:22
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sádi-Arabía er loksins búið að klára kaup sín á Newcastle og koma til með að breyta því félagi í nýjasta Olíufélagið í boltanum. Jurgen Klopp fagnaði sex ára starfsafmæli með Liverpool og leikjaprógrammið út þennan mánuð er nokkuð krefjandi með útileikjum og fjarveru lykilmanna.
Gullkastið - Sanngjarnt svekkjandi jafntefli 04.10.2021 57:17
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Rétt eins og í síðasta deildarleik tapaði Liverpool tvisvar sinnum forystu og gerði á endanum jafntefli. Man City var þó eðli málsins samkvæmt töluvert annað stríð en háloftaboltinn gegn Brentford. Svakalegur stórslagur á Anfield. Porto er hinsvegar okkar uppáhalds borg, það er nokkuð ljóst. Tókum púlsinn á öllu því helsta frá leikjum helg...
Gullkastið – Tvö töpuð stig 27.09.2021 1:09:43
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool lenti í bölvuðu veseni með kála leik helgarinnar gegn Brentford þrátt fyrir að skora þrjú mörk og fá færi til að skora a.m.k. þjrú í viðbót. Það kostaði á endanum, auðvitað. Porto næst á dagskrá og svo risaleikurinn gegn Man City yfrirvofandi um helgina.
Gullkastið – Gamla góða formið 21.09.2021 1:12:17
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Góður sigur á Palace í deild eftir fáránlega óöruggan sigur á AC Milan í Meistaradeildinni. Liverpool er farið að minna aftur á 2018-2020 liðið. Norwich lítið mál í deildarbikarnum.
Gullkastið - Svartur blettur á góðum sigri 13.09.2021 1:11:16
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Meiðsli Harvey Elliott settu sannarlega svartan blett á annars frábæra frammistöðu Liverpool gegn Leeds núna um helgina. Það eru kunnuleg andlit búin að raða sér í efstu fjögur sætin strax í fjóðu umferð og Meistaradeildin fer af stað í vikunni.
Gullkastið – Glugginn glatað tækifæri 04.09.2021 1:01:26
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Árni Steinn Landsleikjahlé og nýbúið að loka leikmannaglugganum. Skoðuðum hvað Liverpool gerði á markaðnum í sumar og hvaða skilaboð það sendir. Ljóst að andstæðingar Liverpool sátu alls ekki auðum höndum.
Gullkastið – Jafnteflistap og leikmannaglugginn 30.08.2021 1:00:05
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Svekkjandi jafntefli gegn tíu Chelsea mönnum, lokametrar leikmannagluggans og slúðrað um mögulega brottför Michael Ewdards.
Gullkastið – Lokavika leikmannagluggans 23.08.2021 1:04:35
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Flott þrjú sig á ofboðslega leiðinlegu Burnley liði og góð byrjun á tímabilinu. Risaslagur strax í næstu umferð og lokavika leikmannagluggans. Gerir Liverpool eitthvað spennandi þar? Ný lína í dómgæslu, áhugaverð úrslit í öðrum leikjum o.fl.
Gullkastið - Alvöru Liverpool 17.08.2021 1:08:16
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool, alvöru Liverpool fór til Norwich í fyrsta leik á nýju tímabili og sótti þægileg þrjú stig í leik sem var fullur af jákvæðum punktum. Fjörug fyrsta umferð annars í deildinni sem lofar góðu fyrir tímabilið. Leiðinlegasta lið deildarinnar næst á dagskrá og leikmannaglugginn er ennþá opinn.
Gullkastið - Tilbúnir í mót 11.08.2021 1:17:38
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þá er ekkert að vanbúnaði og mótið má bara hefjast.
Gullkastið - Læti á leikmannamarkaðnum 06.08.2021 1:02:03
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool hefur lokið æfingaferð sinni til Austurríkis og Frakklands, næst eru tveir leikir á Anfield og svo hefst nýtt mót næstu helgi. Það eru risa stórar bombur á leikmannamarkaðnum en fæstar hafa nokkuð með Liverpool að gera, Edwards er meira í að semja við okkar bestu menn. Nýjar áherslur í VAR og sitthvað fleira í þætti vikunnar.
Gullkastið - Leikmannamarkaðurinn á Englandi 28.07.2021 1:14:42
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Yfirferð yfir helstu fréttir vikunnar með áherslu á leikmannamarkaðinn hjá helstu keppinautum Liverpool sem og auðvitað Rauða Hernum.
Gullkastið – Æfingaleikir, sölur og samningar 21.07.2021 52:36
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Æfingaleikjatímabilið hófst með óvenjulegum hætti í dag þegar Liverpool spilaði tvo hálftíma leiki í Austurríki. Það er svo venjulegur leikur á föstudaginn gegn Mainz. Liverpool seldi tvo leikmenn í þessari viku og það gæti verið stutt í sölu á fleiri mönnum. Eitthvað sem gæti losað um fyrir kaupum á nýjum mönnum. Svo voru áhugaverðar frét...
Gullkastið - Nýtt tímabil 05.07.2021 1:10:50
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Maggi og Steini skelltu sér í heimsreisu austur fyrir fjall og var nýtt tímabil í enska boltanum formlega hafið á Selfossi að þessu sinni, bullandi sumar, nokkrar Egils Gullstundir og almenn gleði. Það má fara klára þetta landsliðamót og fara hefja alvöru fótbolta á ný.
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали