Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: fotbolti.net
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Inkasso, ÞÞÞ og komandi umferð í Pepsi Max 27.07.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um Inkasso-deildina og fóru yfir komandi umferð í Pepsi Max-deildinni. Þórður Þorsteinn Þórðarson, leikmaður FH, var á línunni en hann gekk í raðir Fimleikafélagsins frá ÍA í vikunni.
Heimavöllurinn - Bikardrama og markaregn eftir markaþurrð 25.07.2019
Knattspyrnuþjálfararnir Baldvin Már Borgarsson og Steinunn Sigurjónsdóttir eru gestir Heimavallarins að þessu sinni og ræða við Mist Rúnarsdóttur um gang mála í Pepsi Max-deildinni og helstu boltafréttir nýliðinnar viku.
Ástríðan í neðri deildunum - Æsispennandi barátta í 2. deild 24.07.2019
Keppni í 2. deild karla er æsispennandi en þegar tólf umferðir eru búnar eru einungis sex stig sem skilja að topplið Selfyssinga og Völsung í 9. sætinu. Atli Jónasson og Óskar Smári Haraldsson eru sérfræðingar í 2. deildinni en þeir eiga báðir mörg tímabil að baki í deildinni. Þeir kíktu á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru vel yfir hvert einasta lið í deildinni og völdu einnig lið fyrri umferð...
Innkastið - Topp táningar og volæði í FH 22.07.2019
Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunni Birgis fara yfir 13. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Hverjir eru bestu táningarnir í deildinni? Tom valdi topp fimm! Meðal efnis í þættinum: Brynjar Björn með frábæra uppskeru, volæði hjá FH, Björn Daníel mestu vonbrigðin, formaðurinn á lyklaborðinu, allt í núlli hjá Grindavík, Big Bó skorar, Kristján Flóki á leiðinni, Glenn ömurlegur á vinstri kantinum, I...
Útvarpsþátturinn - Aron Jó og boltaspjall 21.07.2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson stýrðu skútunni og tóku meðal annars mjög áhugavert viðtal við Aron Jóhannsson. Aron gekk í raðir Hammarby frá Werder Bremen fyrr í þessum mánuði en hann hefur gengið í gegnum erfiða tíma á ferlinum vegna meiðsla. Annars ræddu þeir Tómas og Benni um boltann og heyrðu meðal annars í Elvari sem var á leið til Greni...
Innkastið - Basl hjá KA og breytt staða FH 16.07.2019
9. umferðinni í Pepsi Max-deild karla lauk loksins í gærkvöldi, tæpum mánuði eftir að hún byrjaði. Liðin í Evrópukeppni spiluðu í þessari umferð fyrir tæpum mánuði en nú eru öll lið með jafnmarga leiki í deildinni. KR er áfram með þægilegt forskot á toppnum en fallbaráttan harðnar og KA er komið í fallsæti. Arnar Daði Arnarsson, Gunnar Birgisson og Magnús Már Einarsson skoðuðu stöðuna í Innkastinu...
Heimavöllurinn - Inkasso og 2. deildar veisla 15.07.2019
Það er komið að því að skoða hvað hefur verið í gangi í neðri deildunum það sem af er sumri. Inkasso-deildin er í aðalhlutverki í nýjasta þætti Heimavallarins en einnig er farið yfir gang mála í 2. deild. Gestur þáttarins að þessu sinni er knattspyrnuþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson.
Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn og Arnar Viðars 13.07.2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 13. júlí. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Gestur: Óskar Hrafn Þorvaldsson. Aðrir viðmælendur: Arnar Þór Viðarsson og Daníel Geir Moritz.
Inkasso-hornið - Farið yfir fyrri umferðina og úrvalslið valið 12.07.2019
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti er farið yfir fyrri hluta Inkasso-deildarinnar en 11. umferðin lauk í gær. Sérfræðingarnir fara yfir stöðuna á hverju liði, ræða spútnik lið umferðarinnar, fallbaráttuna og toppbaráttuna. Í seinni hluta þáttar...
Heimavöllurinn: Lokahóf fyrri hluta Pepsi Max 11.07.2019
Nú er keppni í Pepsi Max deildinni hálfnuð og í þætti dagsins á Heimavellinum gera þáttastýrurnar, Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir, upp fyrri hluta mótsins með gestasérfræðingnum Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttur.
Innkastið - Stigamet við botninn og vonbrigðaval 08.07.2019
Nýtt Innkast eftir 12. umferð Pepsi Max-deildarinnar sem var heldur betur dreifð! Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunnar Birgis eru allir á sínum stað. Þeir völdu meðal annars einn leikmann úr hverju liði sem kallað er eftir að skili meiru en þeir hafa gert í sumar. Vonbrigðaval. Meðal efnis: Nauðsynlegur sigur fyrir Óla Kristjáns, Víkingar fá hrós en eru í fallsæti, Blikar í brekku, HK-ingar...
Pepsi Max hringborð - Eyjafréttir, Valur á flugi og umdeildir dómar 06.07.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Magnús Már fjölluðu ítarlega um Pepsi Max-deildina. - Daníel Geir Moritz var í beinni frá Vestmannaeyjum en það er nóg í gangi í fótboltamálunum þar. Þjálfaraskipti og leikmannabreytingar. -...
Gísli Eyjólfs klár í leikinn gegn HK - Grasið ekki grænna hinum megin 06.07.2019
Það verður stórleikur í Pepsi Max-deildinni á sunnudagskvöld þegar Breiðablik tekur á móti HK í Kópavogsslag. Gísli Eyjólfsson er kominn aftur heim í deildina eftir stutt stopp hjá Mjallby í Svíþjóð og er klár í slaginn fyrir leikinn. Gísli v...
Inkasso-hornið og Tom á Pollamótinu 06.07.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir ræddi við Úlf Blandon, sérfræðing um Inkasso-deildina, og var farið yfir 10. umferðina sem nú er í gangi. Mörg áhugaverð úrslit hafa litið dagsins ljós og ungir leikmenn látið að sér kveða. &Ia...
Ástríðan í neðri deildunum - Staðan skoðuð í 3 og 4. deildinni 03.07.2019
Níu umferðum er lokið í 3. deild karla í sumar og riðlakeppni er hálfnuð í 4. deildinni. Magnús Már Einarsson fékk þá Magnús Val Böðvarsson og Ingimar Helga Finnsson til að fara yfir gang mála í þessum deildum. Magnús Valur er harðasti aðdáandi 4. deildarinnar og heldur úti aðganginum "passionleague" á Snapchat. Ingimar Helgi er leikmaður Árborgar í 4. deildinni.
Heimavöllurinn: Frá framherja í 1. deild að besta varnarmanni Íslands 03.07.2019
Sif Atladóttir hefur verið ein fremsta knattspyrnukona Íslands síðustu ár. Hún byrjaði ekki að æfa af krafti fyrr en hún var orðin 15 ára og þá voru allir landsliðsdraumar víðsfjarri.
Innkastið - KR stuð og verðlaun umferða 1-11 01.07.2019
Brottrekstur, risakaup og toppslagur. Í Innkastinu í kvöld var meðal annars opinberað úrvalslið og bestu menn umferða 1-11 í Pepsi Max-deildinni. Fullmannað Innkast að þessu sinni. Elvar Geir, Gunni Birgis, Magnús Már og Tómas Þór. Farið var yfir 11. umferðina, sigur KR gegn Breiðabliki í stórleiknum, bikardráttinn, Inkaso-hornið, Gunni giskar og allt eins og það á að vera.
Pepsi Max hringborð - Hitað upp með Henry Birgi 29.06.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hitað var upp fyrir áhugaverða 11. umferð Pepsi Max-deildarinnar þar sem meðal annars má finna stórleik milli toppliðanna, KR og Breiðabliks. Henry Birgir Gunnarsson ræddi við Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson. Farið var yfir...
Vill að VAR verði tekið upp í Pepsi Max-deildinni 29.06.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þóroddur Hjaltalín, formaður dómaranefndar KSÍ, vill að Ísland taki upp VAR myndbandsdómgæsluna eins fljótt og mögulegt er. UEFA hefur þróað VAR-tækni þar sem lágmark þarf fjórar myndavélar...
Heimavöllurinn: Cloé í bláa liðið og útlendingarúta úr landi 26.06.2019
Gestir dagsins á Heimavellinum eru Bára Kristbjörg og Aníta Lísa. Það eru 7 umferðir búnar í Pepsi Max deildinni. Við förum yfir leiki umferðarinnar og stórleikinn sem nálgast.
Inkasso-hornið - Ási Arnars um Fjölni, brottreksturinn frá Fram og Gústa Gylfa 26.06.2019
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti ræðir hann við Ásmund Arnarsson þjálfara Fjölnis sem situr í 2. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og topplið Þórs. Liðið mætast í toppbaráttuslag á laugardaginn. Í þættinum ræddi hann til að mynda brottreks...
Innkastið - Einvígi um titilinn, bras FH og krakkamiðja Víkings 23.06.2019
Innkastið eftir 10. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már gera upp umferðina. Deildin er að þróast í tveggja hesta einvígi KR og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn. Í þætti kvöldsins: Einvígi FH og Breiðabliks um titilinn, er Gísli Eyjólfs að koma heim?, Andri bjargaði Val, ekkert getur bjargað ÍBV, HK-ingar fá hrós, gleðin farin hjá Skagamönnum, gleðin komin hjá S...
Beitir Ólafs og ótrúleg leið hans til KR 22.06.2019
Beitir Ólafsson, markvörður KR, mætti sem gestur í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Beitur hefur verið virkilega öflugur það sem af er tímabili en áður en hann gekk í raðir KR 2017 voru hanskarnir komnir á hilluna og hugurinn farinn frá fótboltanum. Hlustaðu &a...
Copa America og Inkasso-hornið 22.06.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu aðeins um Copa America áður en þeir tóku snúning og fjölluðu um Inkasso-deildina. Úlfur Blandon, sérfræðingur um Inkasso-deildina, var á línunni.
Pepsi Max umræða - Hvað eiga félögin að gera í glugganum? 22.06.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fjölluðu um Pepsi Max-deildina. Tíunda umferðin var skoðuð en Leifur Garðarsson, lýsandi á Stöð 2 Sport, skoðaði liðin og leikina. Þá var fjallað um komandi félagaskiptaglugga en gluggi...
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали