uk

Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ Епізодів: 2954

Podcastþættir Fótbolta.net

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: fotbolti.net

Автор

Fotbolti.net

Категорія

Sports

Сайт подкасту

fotbolti.net

Останній епізод

25 лис 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android 10 млн+ завантажень · рейтинг 4,7+ iOS незабаром

Епізоди

Innkastið - Jólatörn, öflug stjórateymi og handakrikarangstöður 30.12.2019

Elvar og Daníel skoða jólatörnina í ensku úrvalsdeildinni í síðasta Evrópu-Innkasti ársins 2019. Meðal efnis: Handakrikarangstöður í VAR, De Bruyne leikmaður ársins?, enginn veikur blettur hjá Liverpool, þáttur Jody Morris í sigri Chelsea, handbragð Arteta, Andreas Pereira, breytt hlutverk Gylfa, Ancelotti og Ferguson, Haaland til Dortmund, Zlatan til AC Milan og bestu leikmenn áratugarins.

Áramótakæfan - Fótboltaárið 2019 gert upp 28.12.2019

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson fóru yfir árið 2019 í Áramótakæfunni sem var nú smökkuð í sjöunda sinn. Hressir viðmælen...

Fantabrögð - 18. umferð - Jólabann 22.12.2019

18. umferðin í Fantasy Premier League reyndist alveg eins erfið og hún virkaði á pappír. Jamie Vardy og Danny Ings skoruðu en Manchester United og Tottenham fóru illa með fólk. Sérstaklega Heung Min Son sem skellti sér í 3 leikja jólabann með því að fá beint rautt. Hann var einn vi...

Heimavöllurinn - PepsiMax hátíð og risar snúa heim 21.12.2019

Heimavöllurinn snýr aftur og þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir hafa um ýmislegt að ræða eftir huggulegt haustfrí. Goðsögnin Margrét Lára Viðarsdóttir hefur lagt skóna á hilluna og landsliðskonurnar Dagný Brynjarsdóttir og Rakel Hönnudóttir eru komnar heim úr atvinnumennskunni. Rakel kíkir einmitt í heimsókn á Heimavöllinn og ræðir tímann í Svíþjóð og Englandi og endurkomuna í íslens...

Höddi Magg kveður Pepsi Max mörkin og ræðir um Liverpool 21.12.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hörður Magnússon kom í heimsókn en hann er hættur störfum sem íþróttafréttamaður, í bili að minnsta kosti. Hann fór yfir viðburðarík ár sem stjórnandi Pepsi Max-markanna, ræddi um árangur Liverpool í vetur og fleira tengt boltanum.

Gróttuleiðin í Pepsi Max - Greiðslur, þjálfarabreytingar og væntingar 21.12.2019

Grótta kom gríðarlega á óvart á liðnu sumri og vann 1. deildina. Liðið leikur í deild þeirra bestu á komandi ári. Birgir Tjörvi Pétursson, formaður knattspyrnudeildar Gróttu, kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Í þættinum opinberaði hann að þó leikmenn liðsins séu ekki á föstum launagreiðslum þá sé búið að setja upp sérstakt kerfi bónusgreiðslna fyrir leikmenn og þá þurfa þeir ekk...

Fantabrögð - 17. umferð - Fantabrögð x Draumaliðið 18.12.2019

Í fjarveru GT dugði ekkert minna en að fá alvöru fallbyssu í þáttinn og því mætti Jói Skúli, stjórnandi hlaðvarpsins Draumaliðið og ræddi um Fantasy gengi sitt. Hann gerði svo upp 17. umferðina með Aroni og spáði í spilin fyrir næstu umferð. Eðlilega...

Innkastið - Stórir stjórar og lið tímabilsins hingað til 17.12.2019

Evrópu-Innkastið er sent út frá Ölveri í Glæsibæ þessa vikuna. Benedikt Bóas blaðamaður og Gunnar Ormslev kappleikjalýsandi voru með Elvari í Innkastinu að þessu sinni. Toppbaráttan var skoðuð og Gunnar fékk það heimaverkefni að velja úrvalslið ensku &uac...

Mögnuð fótboltasaga Ejub Purisevic 14.12.2019

Ejub Purisevic var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 og fór yfir fótboltasögu sína í viðtali við Elvar Geir og Tómas Þór. Ejub hefur markað djúp spor í íslenskan fótbolta en hann er þekktastur fyrir að ná ótrúlegum ára...

LiVARpool og Meistaradeildardrátturinn 14.12.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Er viðurefnið LiVARpool sanngjarnt? Er tilviljun að Steven Gerrard samdi til 2024? Hvernig verður drátturinn í Meistaradeildinni á mánudag? Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um Evrópufótboltann.

Innkastið - Sleðaferð um Pepsi Max-deildina 11.12.2019

Sérstök hátíðarútgáfa af Innkastinu! Teymið var kallað saman til að skoða stöðu mála hjá öllum tólf liðum Pepsi Max-deildar karla. Tómas Þór, Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már skoðuðu tíðindin sem hafa borist í haust og vetur. Hvernig eru leikmannahóparnir að líta út, hvaða leiðir er verið að fara í þjálfaramálum og hvaða vonir og væntingar er hægt að gera til liðanna?

Miðjan - Jói Kalli um stöðuna á Skaganum 10.12.2019

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, er gestur í hlaðvarpsþættinum Miðjunni að þessu sinni. Meðal efnis: Draumabyrjun á síðasta tímabili, af hverju fjaraði undan liðinu?, leikmannamálin, breytingar á leikstíl ÍA, framhaldið á Akranesi, nýir aðstoðarþjálfarar, fjölgun leikja á Íslandsmótinu, ungur sonur í atvinnumennskunni, gervigras á Akranesvöll, ótrúlegt gengi Liverpool, ævintýri Leicester og...

Fantabrögð - 16. Umferð - Rauð viðvörun 10.12.2019

Það skiptust á skin og skúrir þessa helgina hjá Aroni og Gylfa þegar kom að Fantasy. Þrefaldi Tottenham skammturinn hjá Aroni skilaði sér heldur betur þegar þeir unnu 5-0 sigur á Burnley. Á meðan unnu Liverpool 3-0 sigur og héldu hreinu en þar sem Trent spilaði aðeins 50 mín. fékk hann ekki stig fyrir að halda hreinu. Vardy hélt áfram að skora, Rashford er allt í einu orðinn einn heitasti leikmaðu...

Innkastið - Óstöðvandi topplið og meira fjör hjá Tottenham 09.12.2019

Það var líf og fjör í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni en gestir voru Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson. Öllu léttara var yfir þeim en síðast þegar þeir kíktu í heimsókn í byrjun október. Síðan &thorn...

Íslenski boltinn - Lenging mótsins og viðtal við Bjarna Ólaf 07.12.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór héldu áfram að ræða um mögulega lengingu á Íslandsmótinu. Þá var Bjarni Ólafur Eiríksson í viðtali en hann gekk nýlega í raðir ÍBV. Daníel Geir Moritz,...

Enski boltinn - Ferðalag Tom og desemberdagskrá Liverpool 07.12.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Fjallað um enska boltann. Tómas Þór sagði frá vinnuferð sinni þar sem hann heimsótti Turf Mor og Anfield, sá Manchester City rúlla yfir Burnley og Everton tapa illa fyrir Liverpool. Þá var Magnús Þór Jónsson af kop...

Ítalski boltinn - Spennandi titilbarátta Inter við Juventus 07.12.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Farið er yfir það helsta í ítalska boltanum. Björn Már Ólafsson, helsti sérfræðingur Íslands um ítalska boltann var í beinni frá Malmö. Hann ræddi við Elvar og Tómas um gang mála.

Enska Innkastið - Ljungberg breytir engu 06.12.2019

Í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni fer öll orkan í ensku úrvalsdeildina enda tvær umferðir að baki síðan þátturinn var síðast á dagskrá. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru umsjónarmenn þáttarins. Daníel er lítill í sér v...

Fantabrögð - 15. umferð - Sprengju varpað í lok þáttar! 06.12.2019

Strákarnir hittust í GT studio og ræddu 15. umferðina. VAR-sóknarlínan sýndi, eins kaldhæðið og nafnið er, enn og aftur fram á mikilvægi sitt. Vardy, Abraham og Rashford skoruðu allir. Tammy lék marga þjálfara grátt og einhverjir söfnuðu stigum á bekknum. Mælt er með...

Fantabrögð - 14. umferð - Að taka á sig mínus 01.12.2019

14. umferðin fór ekki alveg eins vel og við höfðum vonað. Jamie Vardy skoraði, en ekki alveg eins mikið og við hefðum óskað okkur. Einungis eitt lið skoraði fleiri en tvö mörk og einungis tvö lið héldu hreinu. Willems lestin gefst ekki upp og Freddie Ljungberg blés lífi í Aubameyang. Fyrir...

Fótboltapólitíkin - Þreföld umferð á Íslandsmótinu 2021? 30.11.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, kom í útvarpsþáttinn Fótbolti.net. Hann ræddi um fótboltapólitíkina og það sem félögin eru að ræða sín á milli þessa dagana, þar á meðal fjármálin. Þá ræddi hann um hugmyndir um að lengja Íslandsmótið en hann er stuðningsmaður þess að 2021 verði gerð tilraun með að spila þrefalda umferð í Pepsi Max-deildinni, áf...

Enska hringborðið - Léttir að hafa losnað við Emery 30.11.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, var á línunni og ræddi um stóru fréttirnar úr enska boltanum. Unai Emery var rekinn úr stjórastól Arsenal og félagið er nú í leit að næsta stjóra.

Jón Þór um Algarve höfnunina og magnaða MLV9 30.11.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari var á línunni og ræddi um ástæður þess að íslenska kvennalandsliðið fær ekki að vera með á Algarve æfingamótinu á komandi ári. Þá var einnig rætt um Margréti Láru Viðarsdóttur en þessi magnaða fótboltakona lagði skóna á hilluna í vikunni.

Fantabrögð - 13. umferð - Viva la Burnley 26.11.2019

Þessi "tricky" umferð stóð kannski undir nafni. Man City og Liverpool unnu bæði 2-1, sem þýðir að enn er Liverpool að fá á sig mörk. Rashford og Lacazette skoruðu slatta af stigum sem skiluðu liðum þeirra þó einungis svekkjandi jafnteflum. Mál málanna er þó Burnley sem vann annan 3-0 sigur sinn í röð og aftur skoruðu báðir iðnaðarmennirnir, Wood og Barnes. Stigahæsti leikmaður umferðarinnar, aðra...

Enska hringborðið - Hitabylgja í enskum stjórasætum 25.11.2019

Elvar og Daníel eru með Evrópu-Innkastið og fara yfir leiki liðinnar umferðar í ensku úrvalsdeildinni. Þrettán umferðum er lokið í deildinni. Það eru mörg stjórasæti sjóðheit í deildinni. Hver verður næsti stjóri sem fær sparkið? Grínkallinn Emery, VAR, stórfurðulegur leikur í Sheffield, Balotelli horn og ýmislegt fleira.

Слухайте подкаст Fotbolti.net у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали